Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 25
miðvikudagur 25. ágúst 2010 sport 25
stærstu
sigrarnir
9:0
Man. United – ipswich
mars 1995
n Manchester United á stærsta sigurinn í úrvals-
deildinni frá upphafi. Þá slátraði liðið Ipswich
Town á heimavelli sínum 9–0 í leik þar sem
markamaskínan Andy Cole skoraði hvorki meira
né minna en fimm mörk. Cole var fyrstur til að ná
þeim áfanga í úrvalsdeildinni og hefur engum
tekist að toppa það. Mark Hughes, sem nú stýrir
liði Fulham, skoraði tvö mörk í leiknum og þeir
Paul Ince og Roy Keane sitt markið hvor.
1:8
nottinghaM Forest – Man. United
febrúar 1999
n Manchester United á ekki bara metið þegar kemur að stærsta
sigrinum í úrvalsdeildinni og stærsta sigrinum á heimavelli heldur
vann liðið einnig stærsta útisigurinn gegn Nottingham Forest árið
1999. Hið magnaða sóknartvíeyki Andy Cole og Dwight Yorke skoruðu
fjögur mörk í leiknum. Tvö hvor. Það var svo besti varamaður allra tíma,
Ole Gunnar Solskjær, sem kom inn á og skoraði fjögur mörk á síðustu
tíu mínútum leiksins. Forest féll þetta árið.
7:0
BlackBUrn – nott. Forest
nóvember 1995
n Alan Shearer kemur aftur við sögu og nú með Blackburn. Hann
skoraði þrennu þegar liðið vann Nottingham Forest í nóvember
1995, þetta var ein af ellefu þrennum á ferli hans og hefur eng-
inn gert betur í úrvalsdeildinni. Blackburn varð meistari þetta ár
og stal titlinum af United á síðasta degi. Shearer var valinn besti
leikmaður tímabilsins enda setti hann met með því að skora 34
mörk í 42 leikjum. Aðeins Andy Cole hefur náð sama árangri.
9:1
tottenhaM – wigan
nóvember 2009
n Tottenham tókst næstum því að jafna
met United þegar það tók Wigan Athl-
etic af lífi á White Hart Lane í fyrra. Peter
Crouch skoraði eina mark fyrri hálfleiks
en í þeim síðari brustu allar flóðgáttir.
Jermain Defoe skoraði þá ein fimm mörk
og jafnaði þar með met Andys Cole og
Alans Shearer. Þeir Aaron Lennon, David
Bentley og Nico Kranjcar skoruðu svo
eitt mark hver fyrir Tottenham. Paul
Scharner klóraði í bakkann fyrir Wigan.
Þessi lið eiga þó samt ekki metið fyrir
flest mörk skoruð í einum leik. Það met
var sett í leik Portsmouth og Reading
sem fór 7–4. Á meðal markaskorara
Portsmouth var enginn annar en
Hermann Hreiðarsson.