Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 25. ágúst 2010 miðvikudagur
Heildarkostnaður við greiðslu-
stöðvun og slit gamla Landsbank-
ans nam tæpum 6 milljörðum
króna fyrstu sex mánuði ársins eða
sem nemur einum milljarði króna
á mánuði. Verði mánaðarleg-
ur kostnaður jafnhár út árið gæti
heildarkostnaður ársins numið allt
að 12 milljörðum króna eða sem
nemur helmingi kostnaðar við
smíði Búðarhálsvirkjunar. Til sam-
anburðar má geta þess að saman-
lagður kostnaður skilanefndar og
slitastjórnar Glitnis nam 4,6 millj-
örðum í fyrra.
Lárentsínus Kristjánsson, lög-
fræðingur og formaður skilanefnd-
ar Landsbankans, segir að kröfu-
hafar hafi engar athugasemdir gert
við kostnað vegna umsýslu með
eignir bankans og störf skilanefnd-
ar og slitastjórnar við að innheimta
kröfur og verja eignasafn búsins.
Greiðslustöðvun lýkur senn
Fram kom á blaðamannafundi á
mánudag, að loknum fundi með
kröfuhöfum í Landsbanka Íslands
hf., að greiðslustöðvun, sem Hér-
aðsdómur Reykjavíkur samþykkti
5. desember 2008 hafi verið fram-
lengd til 5. desember á þessu ári,
en hún getur að hámarki staðið í
24 mánuði. Að þeim tíma liðnum
heldur almenn slitameðferð bank-
ans áfram.
Aðspurður sagði Lárentsínus á
blaðamannafundinum, að ekki sé
við því að búast að kostnaður verði
jafnmikill vegna uppgjörs og slita
Landsbankans á síðari árshelm-
ingi þessa árs. Þar muni mestu um
að verið sé að ljúka stórum verk-
efnum og rannsóknum sem mála-
rekstur og ýmsar kröfur grundvall-
ast á.
Á það er að líta að rannsókn
Deloitte í London fyrir skilanefnd
og slitastjórn Landsbankans lýkur
ekki fyrr en undir lok ársins og er
ráðgert að niðurstöður rannsókn-
arinnar liggi fyrir í desember. Sam-
bærilegri rannsókn er löngu lokið
varðandi Kaupþing og rannsókn
Kroll á Glitni lauk fyrr á þessu ári.
Skilanefnd og slitastjórn Lands-
bankans gerðu kröfuhöfum grein
fyrir kostnaði vegna starfa skila-
nefndar og slitastjórnar, en sam-
stals eru þær með 115 menn á
launum í fjórum löndum. Fyrstu
6 mánuði ársins nam kostnaður
við rannsókn á málefnum Lands-
banka Íslands liðlega 1,3 milljörð-
um króna, en hann er að mestu
bókfærður hjá skilanefnd bankans
í Reykjavík.
Firnamikill sérfræðikostnaður
Sex milljarða króna kostnaðurinn á
fyrri hluta ársins skiptist um það bil
þannig að um 1,6 milljarðar króna
eru laun og launatengd gjöld. Þetta
er liðlega fjórðungur heildarupp-
hæðarinnar. Réttum helmingi upp-
hæðarinnar, tæpum 3 milljörðum
króna, var varið til kaupa á þjón-
ustu lögfræðinga og öðrum sér-
fræðikostnaði. Þar af nam kostn-
aður erlendis um 2,5 milljörðum
króna en lögfræði- og sérfræði-
kostnaður hérlendis nam á sex
mánuðum 470 milljónum króna.
Af gögnum skilanefndarinnar
má ráða að beinn kostnaður vegna
skilanefndarinnar hafi verið 525
milljónir króna fyrstu 6 mánuði
ársins eða um 87 milljónir króna á
mánuði.
Til samanburðar má geta þess
að sambærilegur kostnaður hjá
skilanefnd og slitastjórn Glitnis
nam 732 milljónum króna allt árið
í fyrra eða liðlega 60 milljónum
króna á mánuði.
Ekki er vitað hvert milljónirn-
ar 525 hafa farið. Hitt er vitað, að
margir skilanefndarmenn senda
reikninga fyrir vinnu sína. DV
greindi til dæmis frá því í febrúar
2009 að ýmsir skilanefndarmenn
hefðu stofnað einkahlutafélög og
tækju greiðslur sínar í gegnum
slík félög. Ársæll Hafsteinsson lög-
fræðingur og fyrrverandi yfirmað-
ur lögfræðisviðs Landsbankans
er nú titlaður framkvæmdastjóri
skilanefndar Landsbankans. Upp-
haflega var hann skipaður í skila-
nefndina en mjög var deilt á að
fyrrverandi yfirmenn bankanna
væru einnig viðloðandi slit þeirra
og uppgjör. Hann stofnaði ÁH-lög-
menn ehf. 8. október 2008, aðeins
degi eftir að hann var skipaður í
skilanefnd Landsbankans.
Hálaunamenn hrunsins
Upphaflega voru skilanefndirnar á
ábyrgð FME og stjórnvalda og voru
kostaðar af þeim. Síðar var það fyr-
irkomulag lagt niður og nú er all-
ur kostnaður greiddur með tekjum
sem fást úr eignasafni hinna föllnu
banka. Þar með eru skilanefndirn-
ar í raun aðeins háðar kröfuhöfum.
Heimildir eru fyrir því að tekj-
ur slitastjórnar- og skilanefndar-
manna hafi numið allt að 300 þús-
und krónum á dag. Þannig má
áætla að kostnaður við lögfræðing-
ana sjö, sem nú fara fyrir slitastjórn
og skilanefnd Landsbanka Íslands,
hafi numið 250 til 300 milljón-
um króna fyrstu sex mánuði árs-
ins. Samkvæmt því hafa allt að 230
milljónir króna farið í aðra staði.
Afar ólíklegt er að öll upphæð-
in hafi skipst milli Lárentsínusar
Kristjánssonar, Ársæls Hafsteins-
sonar, Einars Jónssonar, Kristins
Bjarnasonar, Herdísar Hallmars-
dóttur, Halldórs H. Backmans og
Péturs Arnar Sveinssonar. Á grund-
velli fyrirliggjandi gagna má ætla að
mánaðarlegar tekjur skilanefnda-
og slitastjórnarmanna séu á bilinu
4 til 8 milljónir króna á mánuði.
Há laun í London
Þess má geta að meðallaun 53
starfsmanna skilanefndar og slita-
stjórnar Landsbankans í Lond-
on námu að jafnaði 2,4 milljónum
króna. Að teknu tilliti til sérsamn-
inga, sem væntanlega eru gerðir
við hluta starfsmanna, voru meðal-
launin í London fyrstu sex mánuði
ársins 3,6 milljónir króna.
Meðallaun 53 starfsmanna
skilanefndar Landsbankans á Ís-
landi voru samkvæmt sambærileg-
um útreikningum rétt um ein millj-
ón króna að jafnaði á mánuði.
Annar kostnaður á vegum skila-
nefndar- og slitastjórnar Lands-
bankans fyrstu sex mánuði ársins
tengist húsnæði, tölvuþjónustu, al-
mennum rekstrarkostnaði, skipta-
kostnaði og kostnaði vegna skipta-
stjóra í Hollandi, samtals um 860
milljónir króna.
Vert er að geta þess að afrakstur
starfs skilanefndar og slitastjórn-
ar Landsbankans getur hlaupið á
tugum milljarða króna í bættum
heimtum og skilum fyrir kröfuhafa,
meðal annars fyrir Icesave-kröfu-
hafa í Hollandi og Bretlandi.
Helstu kostnaðarliðir skilanefndar
og slitastjórnar Landsbankans.
Upphæðir eru í milljónum króna.
n Laun og launatengd gjöld 1.605
n Skiptakostnaður 189
n Lögfræðikostnaður og annar
sérfræðikostnaður 2.953
-Innlent: 470
-Erlent: 2.483
n Hollenskir skiptastjórar 217
n Húsnæðiskostnaður 119
n Upplýsingatækni 71
n Annar rekstrarkostnaður 265
n Skilanefnd (SLA) 525
Samtals: 5.944 milljónir króna á
6 mánuðum.
kostnaðarliðir
jóHann HaukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans Frá
vinstri: Ársæll Hafsteinsson, Lárentsínus Kristjánsson,
Kristinn Bjarnason, Einar Jónsson, Herdís Hallmars-
dóttir, Halldór H. Backman og Pétur Örn Sveinsson.
mynd SiGtryGGur ari jóHannSSon
með frá upphafi Ársæll
Hafsteinsson (t.v) og Lár-
entsínus Kristjánsson hafa
annast skil þrotabúsins frá
falli Landsbankans.
Að teknu tilliti til sérsamninga, sem væntanlega eru gerðir við hluta
starfsmanna, voru meðallaunin í London
fyrstu sex mánuði ársins 3,6 milljónir króna.
kostnaður við slit
landsbankans hár
Kostnaður á vegum skilanefndar og
slitastjórnar Landsbanka Íslands hf.
var hartnær einn milljarður króna á
mánuði fyrstu sex mánuði ársins. Senn
lýkur rándýrri rannsókn Deloitte á
hruni Landsbankans í þágu kröfuhafa,
en skilanefndar- og slitastjórnarmenn
eru með launahæstu einstaklingum í
landinu um þessar mundir.