Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Síða 15
Kannið verð á þjónustu Neytendasamtökin vilja minna fólk á að hyggilegt sé að spyrjast fyrir um verð ýmissar þjónustu á borð við vinnu iðnaðarmanna eða verkstæðis, áður en þjónustan er keypt. Verðlag þess konar þjónustu er almennt frjálst, og það getur verið erfitt fyrir kaupanda þjónustunnar að sýna fram á ósanngirni í verðinu eftir á. Ef spurst er fyrir um verð þjónustu áður, má verkið ekki vera mik- ið dýrara en sagt var í upphafi. Að öðrum kosti ber seljanda að skýra frá ástæðum hærra verðs og spyrja neytandann hvort hann vilji að verkinu sé haldið áfram þrátt fyrir meiri kostnað. Nánar á vef samtakanna, ns.is. esB styrKir íslensKa rannsóKn Evrópusambandið hefur ákveðið að veita 110 milljóna króna styrk til rannsóknarverkefnis á vegum Háskólans í Reykjavík. Um er að ræða rannsókn í nýsköpunar- og frumkvöðla- fræðum við skólann, og snýst hún um að skoða hvernig þjónustufyrirtæki geta nýtt sér upplifun til að skapa samkeppnisforskot. Rannsóknin er samstarfsverk- efni á milli HR, Háskólans í Nottingham og þriggja þjónustufyrirtækja. Dæmi um fyrirtæki sem selja upplifun eru Disneyland og Wizarding World of Harry Potter- skemmtigarðarnir. Þeir eru skemmtigarðar sem í raun selja upplifun, en rannsókn- in snýst um hvort hægt sé að nota slíka upplifun til forskots á frjálsum markaði. miðvikudagur 25. ágúst 2010 neytendur 15 Nýir áfangastaðir hafa bæst við sólstrandaflóru íslenskra ferðamanna: Sumar og Sól á haustmánuðum Í kjölfar olíulekans í Mexíkóflóa hóf Flórídaríki víðfeðma auglýs- ingaherferð til þess að draga úr áhrifum á ferðamannaiðnaðinn. Ferðamönnum fækkaði strax, fjöldi fólks taldi olíuna hafa spillt aðstæðum í Flórída og sá fyrir sér olíusvartar baðstrendur. En sam- kvæmt ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur meirihluti olíunnar dreifst og litlar líkur eru taldar á því að olía nái að ströndum Flórída. Icelandair og Iceland Express hafa nýlega hafið flug til Fórída. Báðir aðilar fljúga til Orlando, en Icelandair flýgur einnig til fleiri áfangastaða í ríkinu. Einnig verður boðið upp á ódýrar ferð- ir til Flórída í vetur og bætist rík- ið því við fjölda frístundastaða Íslendinga þar sem sólin ræður ríkjum. Helstu áfangastaðirnir í haust eru Tenerife, Orlando og Alicante / Benidorm. DV tók saman verð hjá nokkr- um ferðaskrifstofum. Í öllum til- fellum er reiknað verð á mann fyrir hvern dag sem dvalið er á staðnum, en miðað er við tvo fullorðna farþega og þriggja stjörnu gistingu. Hjá öllum nema Icelandair er um að ræða staðl- að verð. Í tilviki Icelandair er ódýrasta verðið sem fannst tek- ið. Hvorki er tekið mið af gæði gistingarinnar né heldur af mis- munandi þjónustu hvers aðila fyrir sig. Inni í verðinu er flug- vallarskattur, gisting og flug, og var verðið fengið af heimasíðum ferðaskrifstofanna. Leitast var við að finna ódýrustu fargjöld- in hjá hverjum fyrir sig, en verð- ið hér á aðeins að gefa mynd af raunverulegu verði, en er ekki tæmandi verðkönnun. OrlandO Icelandair, Econolodge Inn and Suites. 143.800 – 17.975 kr. á dag. Úrval Útsýn, Staybridge Suites – International Drive. 178.800 – 22.300 kr. á dag. Tenerife Sumarferðir, Laguna Park 1 157.385 – 11.241 kr. á dag. Plúsferðir, Castalia Park / Los Brezos. 156.930 – 11.209 kr. á dag. Heimsferðir, Aparthotel Tenerife Sur, Los Cristianos. 161.080 – 11.506 kr. á dag. Vita, Tropical Playa. 158.240 – 11.302 kr. á dag. Úrval Útsýn, Tropical Playa. 159.625 – 11.402 kr. á dag. alicanTe / BenidOrm Sumarferðir, Buenavista. 140.702 – 11.725 kr. á dag. Úrval Útsýn, La Colina. 166.958 – 13.913 kr. á dag. Áreiðanlegustu fartölvurnar kaupin sýnir að netbækurnar bila um fimmtungi oftar. Bilunartíðni á gæða- fartölvum er þá 4,2%, á meðan að hún er 4,7% á venju- legum fartölvum og 5,8% á netbókum. Áreiðanlegir framleiðendur Fimm framleiðendur eru undir meðallagi í tíðni bilana og fjór- ir yfir. Lægsta tíðnin er hjá Asus- framleiðandanum, en 15,6% tölva frá þeim hafa bilað eftir þrjú ár. Fast á hæla Asus fylg- ir Toshiba, en Sony og Apple eru einnig með lága bilunartíðni. Dell er undir með- allagi, en hefur þó um 0,9% hærri tíðni bilana heldur en Apple, sem er með þá fjórðu lægstu. Oftast bila fartölvur frá Hewlett-Packard, Ga- teway, Acer og Lenovo. Mestur var munurinn þeirra á milli 4,1%, en það var á milli Lenovo og HP. Munur á hlutfalli bilana hjá HP, sem hafði hæsta hlutfallið, og Dell sem var næst með- altalinu er 7,3%. Það má því álykta að mikill munur sé á milli framleiðenda hvað áreiðanleika varðar. framleiðandi vegur þyngra en verðið Úr niðurstöðum rann- sóknarinnar má lesa að fyrir áreiðanleika tölvu skipti mun meira máli frá hvaða framleið- anda hún er heldur en hversu mikið hún kostar. Tölvur frá HP bila tæp- lega 40% oftar heldur en tölvur frá Asus. Á sama tíma er munur á bilun- artíðni milli fartölvugerða um 20%, en netbækurnar bila oftast. Verð skil- ar sér að einhverju leyti í áreiðan- leika, því að dýrari fartölvur bila al- mennt sjaldnar. En það skiptir meira máli frá hvaða framleiðanda tölvan er, sérstaklega þegar um meira en hundrað þúsund króna fjárfestingu er að ræða. Því er full ástæða til þess að taka tillit til áreiðanleika þegar fartölva er keypt. HP bila mest HP-tölvur bila mest á fyrstu þremur árunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.