Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 17
miðvikudagur 25. ágúst 2010 erlent 17 Virtur bandarískur stjörnu- fræðingur segir að leitin að vits- munalífi í geimnum eigi ekki að einskorðast við leit að lifandi geimverum, heldur eigi einnig að leita að vélum sem búi yfir gervi- greind. Seth Sostak er einn þeirra fjölmörgu vísindamanna sem vinna að SETI-verkefninu, sem er skammstöfun fyrir Search for Extraterrestrial Intelligence, leit- inni að vitsmunalífi í geimnum. Hingað til hafa stjörnufræðing- ar beint leitinni að lifandi verum á borð við okkur sjálf, sem kunni að leynast einhvers staðar í óra- víddum alheimsins. Við leitina er skimað eftir útvarpsbylgjum í geimnum. Sostak skrifar í nýlegri grein að stuttur tími geti liðið á milli þess sem háþróaðar verur á fjarlægum plánetum finni upp útvarpstækni og gervigreind. Hann segir að lík- ur okkar á að finna „greindar vél- ar“ sé mun meiri þar sem líftími þeirra sé mun lengri en veranna sem bjuggu þær til. Líklegra að rekast á vélar SETI-verkefnið, sem rekið er af frjálsum félagasamtökum með þátttöku vísindamanna um allan heim, hefur áratugum saman snú- ist um leit að vitsmunaverum, lif- andi geimverum sem orðið hafa til með líffræðilegri þróun. Seth Sostak segir í samtali við BBC að á meðan líffræðileg þróun vits- munavera sem hafi greind til þess að senda boð til annarra pláneta taki langan tíma, taki mun styttri tíma fyrir þróaðar verur að finna upp gervigreind og vélar sem yrðu mun fullkomnari en lífverurnar sjálfar. „Á einhverjum tímapunkti finna verur upp útvarpsbylgjur. Bylgjurnar fara í loftið og það þýð- ir að við getum fengið veður af líf- verunum. En fáeinum öldum eftir þá uppfinningu, að minnsta kosti ef við mennirnir erum haldbært viðmið, finna verurnar upp gervi- greind, vélar með sjálfstæða hugs- un. Við munum líklega ná því á þessari öld. Það þýðir að verurnar hafa fundið upp arftaka sína,“ segir Sostak. Hann segir að með ósköp einföldum líkindareikningi komi í ljós að mun líklegra sé að við mennirnir rekumst á skilaboð frá vélum en lifandi verum. Leitað að verum af holdi og blóði Hingað til hefur leitin, eins og áður sagði, beinst að lifandi verum. Þá hefur verið miðað við að þær séu gerðar úr lífefni líkt og menn og skepnur jarðar, lifi í takmarkaðan tíma, fjölgi sér og séu umfram allt afkvæmi þróunar, eins og við. En sumir vísindamenn innan SETI hafa þá bent á að náttúran hafi fundið aðrar leiðir til að skapa líf, með því að notast við önnur form og efni. Geimverurnar myndu þá ekki aðeins vera ólíkar okkur í út- liti, heldur myndu þær einnig virka á allt öðru líffræðilegu stigi en við. Þá megi ekki útiloka sambland líf- vera og véla. Sostak segir að líklegt sé að viti- bornar vélar myndu ferðast á milli pláneta sem ríkar væru af efni og orku. Það þýði að SETI-menn þurfi að beina sjónum sínum að hlýjum, ungum plánetum eða að hnöttum í miðri vetrarbrautinni. gervigreind í geimnum heLgi hrafn guðmundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Stjörnufræðingur hjá vísindasamtökunum SETI, leitinni að vitsmunalífi í geimn- um, segir að meiri líkur séu á að menn rekist á vitibornar vélar í geimnum en lifandi geimverur. Vélarnar geti lifað mun lengur en lífverurnar sem sköpuðu þær. Menn hafa hlustað eftir útvarpssendingum úr geimnum í hálfa öld. Líklegt er að vitibornar vél- ar myndu ferðast á milli pláneta sem ríkar væru af efni og orku. Íinnanvið50ljósárafjarlægðfrájörðinnieruumþaðbil2.500stjörnur. Efeinhverþessarastjarnaerheimiliannarsþróaðsmenningarsamfélags ættiþaðnúþegaraðvitaafokkurmeðþvíaðnemaútvarps-,ratsjár-og sjónvarpsútsendingarokkar.Þessarútsendingar,sönnunargögnumtilvist tæknivæddssamfélagsokkar,eruáleiðumgeiminnáljóshraða.Meðnógu öflugumútvarpssjónaukumgætuaðrargeimverurvitaðaftilvistokkar. Viðerumréttnýbyrjuðaðsendaútmerkiumtilvistokkar,enönnur menningarsamfélöggætuhafagerteitthvaðsvipaðmunlengurenvið.Í Vetrarbrautinniokkargætuveriðtíumilljarðarafreikistjörnumsemlíkjast jörðinniogáeinhverjumþeirragætuvitibornarverurveriðforvitnarum möguleganágranna.Meðbæðiútvarps-ogstjörnusjónaukumreynum viðaðfinnaþessarútsendingar.Þessiviðleitnieðatilraunkallastleitað vitsmunalífiígeimnumeðaSETI. gæti veitt okkur svörLeitin aðvitsmunalífiígeimnumerólíkallri annarrileitaðlífienviðhöfumhing- aðtilreynt.Súleitsnýstekkiaðeins umaðfinnalíf,heldurvísbendingar semgætubenttillífsannarsstaðar, einsoghvortbyggilegirhnettireru algengireðasjaldgæfireðahvort skilningurokkaráupprunalífsins myndigeralífikleiftaðkviknaáMars.SETIleitaraðskýrumogsannfærandi sönnunargögnumumháþróaðarvitsmunalífverur. EfSETInæraðnemaoggreinamerkifráfjarlægumenningarsamfélagi, gætiþaðveittokkursvörviðýmsumþeimgrundvallarspurningumsemáður vorunefndar.Tilaðbyrjameðmyndiuppgötvunáöðrufjarlægumenningar- samfélagistraxsannaaðlífiðerekkieinstaktájörðinni.Þarsemmjöglíklegt eraðöllmenningarsamfélögsemviðgætumnumiðmeðSETI-rannsóknum værumunþróaðrienvið,eraðminnstakostimöguleikiáaðviðgætumlært mikiðafskilaboðumþeirra,efviðskiljumþau. TEkIðafSTjörnufræðIVEfnuM,STjornuSkodun.IS.BLaðaMaðurBæTTIVIðfyrIrSögnuM. leitin að vitsmunalífi í geimnum Leynast vitsmunir hér? ÞessimyndHubble-sjón- aukanssýnirþyrpinguvetrarbrautaígeimnum.geim- urinnerógnarstórogeinhversstaðargætivitsmunalíf leynst.SethSostakstjörnufræðingurtelurlíklegraað viðfinnumvélarmeðgervigreindenlífverur. mynd nasa viðurkenna vanmátt sinn Lögregluyfirvöld á Filippseyjum hafa viðurkennt að þau hafi ekki haft nægilega menntun, búnað eða reynslu til að takast á við gíslatökuna á mánudaginn. Þá lokaði vopnaður fyrrverandi lögreglumaður sig inni í rútu sem full var af ferðamönnum frá Hong Kong. Átta þeirra létust eft- ir margra klukkustunda samninga- viðræður við manninn sem fóru úr böndunum þegar hann fór að skjóta gísla sína á meðan lögreglumenn- irnir reyndu að brjótast inn í rútuna. Rannsókn mun fara fram á aðgerð- um lögreglu, en heimsbyggðin gat fylgst með atburðunum í beinni út- sendingu á BBC World News, CNN og fleiri alþjóðlegum fréttastofum. Hitler af gyðingaættum Rannsóknir á erfðamengi skyld- menna Adolfs Hitler hafa leitt í ljós að hann var af gyðingaættum. Belgíski blaðamaðurinn Jean-Paul Mulders og sagnfræðingurinn Marc Vermeeren höfðu uppi á þrjátíu og níu skyldmennum Hitlers og fengu að taka munnvatnssýni úr þeim til að rannsaka. Niðurstöður úr þeim rannsókn- um sýna svo að ekki verður um villst að Hitler og fjölskylda hans eigi ættir að rekja til gyðinga. Jean-Paul skrifar um niðurstöðurnar í belgíska tímaritið Knack. Áður hafa sagn- fræðingar velt fyrir sér möguleikan- um á skyldleika Hitlers við gyðinga en þetta er í fyrsta sinn sem sýnt er fram á hann. uppáhaldstré Önnu Frank dautt Hið hundrað og áttatíu ára kast- aníutré í Amsterdam í Hollandi sem Anna Frank skrifaði um í dagbók sinni féll á mánudaginn í miklu slagviðri. Tréð létti lund Önnu þeg- ar hún var í felum á háalofti húss í borginni í næstum tvö ár. Stálgrind var sett umhverfis tréð fyrir um átján mánuðum til þess að halda því stöð- ugu eftir að sveppur komst í það. Tréð var orðið gamalt og óstöðugt. Annað og yngra kastaníutré verð- ur gróðursett í stað þess sem féll. Tréð stóð við húsið sem Anna Frank dvaldist í þegar fjölskylda henn- ar faldi sig fyrir nasistum í seinni heimstyrjöldinni. Tréð sást einung- is af einum stað í húsinu, þar sem Anna sat löngum stundum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.