Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 20
Algjör
hryllingur
Græna ljósið frumsýnir á föstudag-
inn hryllingsmynd sem hefur vakið
óhug og sterk viðbrögð um allan
heim. Myndin heitir The Hum-
an Centipede sem þýðir Mannlega
hundraðfætlan. Myndin fjallar um
tvær bandarískar stúlkur sem lenda í
klónum á geðsjúkum þýskum lækni.
Myndin er sú fyrsta hérlendis sem
fer í svokallað Heimabíó Græna
ljóssins. The Human Centipede
verður þannig frumsýnd samtímis
í Háskólabíói og á VOD-heimaleig-
um Símans og Vodafone. Áhorf-
endur hafa því val um það frá fyrsta
degi hvort þeir sjái myndina í kvik-
myndasal eða heima í stofu.
Keppir fyrir
ÍslAnds hönd
Kvikmynd Dags Kára Pétursson-
ar, The Good Heart, hefur verið
valin sem framlag Íslands til kvik-
myndaverðlauna Norðurlanda-
ráðs 2010. Hinar myndirnar fjór-
ar, sem myndin mun etja kappi
við, eru Submarino frá Dan-
mörku, Miesten Vuoro frá Finn-
landi, Upperdog frá Noregi og
Metropia frá Svíþjóð. Verðlaun-
in, að andvirði 350.000 danskra
króna, eru veitt kvikmynd sem á
rætur í norrænni menningu og
býr yfir miklum listrænum gæð-
um. Kvikmyndin á einnig að sýna
listræna nýsköpun og jafnframt
þróa kvikmyndalistina með því
að sameina hinar ýmsu hliðar
hennar í sannfærandi og heil-
steyptu verki. Þetta er í sjöunda
sinn sem verðlaunin eru veitt.
Kynnir
KynungAbóK
Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra kynnir
upplýsingaritið Kynungabók í dag
í Þjóðmenningarhúsinu klukkan
14.00. Um er að ræða upplýsingarit
fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja sem
gefið er út af mennta- og menning-
armálaráðuneytinu. Markmiðið með
útgáfunni er að að veita raunsæja
mynd af stöðu kynjanna í samfélag-
inu og vekja ungt fólk til umhugsun-
ar um hvernig mismunandi mótun
kynjanna út frá menningu, umhverfi
og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.
Ritið er hugsað sem eftirfylgni við
lagaákvæði um jafnréttisfræðslu
og er hluti af innleiðingu á nýrri
menntastefnu þar sem jafnrétti, lýð-
ræði, sjálfbærni, læsi og sköpun eiga
að vera í öndvegi í öllu skólastarfi.
20 fókus 25. ágúst 2010 miðvikudagur
forsmeKKur AirwAves Iceland
Airwaves, í samtarfi við Rás 2 og bílaleiguna Hertz,
halda tónleika á Akureyri á laugardag sem verða
upphitun fyrir tólftu Airwaves-hátíðina. Tónleikarnir
fara fram á Græna hattinum og er ókeypis inn. Fram
koma Bloodgroup, sem á rætur að rekja til Egilsstaða,
Endless Dark frá Ólafsvík og Grundarfirði og akur-
eyrsku böndin Sjálfsprottin spévísi og Buxnaskjónar.
Húsið verður opnað klukkan 22.00.
Anna Svava Knútsdóttir skemmtir sér vel við handritsskrif:
grínteymi framleiðir smelli
Leikkonan Anna Svava Knútsdótt-
ir, Gunnar Björn Guðmundsson og
Ottó Geir Borg eiga góða daga um
þessar mundir en þau skemmta
sér stórkostlega við handritsskrif
að nýrri þáttaröð gerðri eftir bók
Tobbu Marinósdóttur, Makalaus,
sem verður framleidd af Skjá ein-
um. „Við liggjum og grenjum úr
hlátri við skrifin,“ segir Anna Svava.
„Þetta verða um tíu þættir og í hverj-
um þeirra er að finna atriði þar sem
sögupersónur komast í óborganlega
vandræðalegar aðstæður. Efnið sem
við höfum til að vinna úr er afskap-
lega skemmtilegt.“
Anna Svava og Gunnar Björn
hafa átt farsælt samstarf eftir að hafa
unnið í góðum hópi að áramóta-
skaupinu í fyrra og framleiða nú
hvern grínsmellinn á fætur öðrum.
Það er óhætt er að segja að þarna sé
komið grínteymi sem líklegt er til að
taka við af eldri kynslóðinni.
Tvíeykið ætlar sér að gefa sér
tíma í vetur til að vinna að framhaldi
einleiksins Dagbók Önnu Knúts
sem fór sigurför um allt landið í
sumar. Aðspurð hvort þarna sé efni í
leikið efni í sjónvarpi segist hún alls
ekki útiloka það. „Ég er með nokkrar
hugmyndir um framhald eða þróun
þess efnis sem ég ætla að gefa mér
tíma til að vinna eftir áramót með
Gunnari.“
Fyrir þá sem misstu af einleikn-
um í sumar nefnir Anna Svava að
töluverð eftirspurn sé eftir fleiri sýn-
ingum og því líklegt að hann verði
fluttur aftur í vetur og verða sýning-
arnar auglýstar síðar.
kristjana@dv.is
Til stóð að framleiða mynd byggða á bók Stefáns Mána, Svartur á leik, á þessu ári en verkefnið er
nú í biðstöðu. Leikstjórinn Óskar Þór
Axelsson segir ekki útlit fyrir að kvik-
myndin fari í framleiðslu á þessu ári
því framlag frá Kvikmyndamiðstöð
Íslands fáist ekki sökum fjárskorts.
Mikil eftirvænting hefur ríkt hvað
varðar framleiðslu myndarinnar
og nöfn leikarans Þorvalds Davíðs
Kristjánssonar og ofurfyrirsætunn-
ar Tinnu Bergs nefnd í tengslum við
hlutverk aðalsögupersóna og eld-
heitrar ástarsenu þeirra á milli.
Framlag íslenskra sjóða er oftast
nær skilyrði fyrir umsóknum í er-
lenda kvikmyndasjóði, sem leggja
fram það fjármagn sem eftir stend-
ur til að tryggja framleiðslu. Vilyrði
frá íslenskum kvikmyndasjóðum er
þannig aðgöngumiði að frekara fjár-
magni.
Erlent framlag háð innlendu
Framleiðendur myndarinnar, Zik
Zak og Filmus, hafa þó náð að fjár-
magna myndina á erlendum vett-
vangi upp að því marki sem til stóð
að kæmi frá Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands. Erlenda fjármagnið er þó háð
mótframlagi frá íslenska sjóðnum.
Sigurrós Hilmarsdóttir, fram-
leiðslu -og fjármálastjóri Kvik-
myndamiðstöðvar, segir stöðu sjóðs-
ins þrönga og staðfestir að myndin sé
ekki meðal þeirra sem hafi fengið út-
hlutun í ár. Nú þegar hafi 210.5 millj-
ónum verið úthlutað af þeim 270
milljónum sem til ráðstöfunar eru
í ár. „Djúpið hans Baltasars fékk 75
milljónir, Gauragangur, sem er einn-
ig framleidd af Zik Zak, fékk 70 millj-
ónir og Okkar eigin Osló í leikstjórn
Reynis Lyngdals fékk 65.5 milljónir,“
segir Sigurrós.
Nánast tæmdur sjóður
„Það er því ljóst að það er lítið eft-
ir af fé í sjóðnum og búið að út-
hluta af þessu fé einnig í handrita-
styrki svo að það sem eftir stendur
er enn minna.“ Sigurrós segir ásókn
í styrki vera mikla, sótt hafi verið
styrki frá kvikmyndamiðstöð vegna
tíu mynda og því ljóst að þörfin sé
meiri en hún getur annað. „Úthlutun
frá kvikmyndamiðstöð er langt ferli
og margar þessara mynda bíða af-
greiðslu og mega jafnvel ekki vænta
niðurstöðu fyrr en á næsta ári. Stað-
an er vissulega þröng og sjóðurinn
hefur minnkað. Flestir taka þessu af
jafnaðargeði og skilningi.“
Héldu sínu striki
Óskar Þór Axelsson, leikstjóri mynd-
arinnar, segir erfitt að glíma við af-
leiðingar efnahagshrunsins og þá
óvissu sem skortstaða sjóðsins skapi.
„Við tökum niðurstöðunni af yfirveg-
un þótt við séum svekktir,“ segir hann.
„Við höfðum fengið vilyrði fyrir styrk-
úthlutun en vegna niðurskurðarins
fengum við hana ekki í ár,“ bætir hann
við. Óskar segir undirbúning mynd-
arinnar langt kominn. „Við ákváð-
um að halda okkar striki. Ég var áður
búsettur í New York og flutti heim til
að sinna undirbúningi. Handritið er
klárt, við höfum ráðið í flest hlutverk
og ég hef farið að skoða tökustaði
í sumar. Nú verðum við hins vegar
að bíða með tökur þar til á næsta ári
enda er erlend fjármögnun háð því að
íslenskt fjármagn fáist á móti.“
kristjana@dv.is
bíður leiks
Undirbúningur langt kominn
Óskar Þór leikstjóri bíður átekta.
myNd SigtryggUr Ari
Slæm staða Kvikmyndamiðstöðvar kemur kvikmyndagerðarfólki illa:
svarTur
Klár í slaginn Óskar Þór lætur engan
bilbug á sér finna.
myNd SigtryggUr Ari
hvAð heitir lAgið?
„Oh God I am the american
dream. But now I smell like
vaseline.“
svAr: BoBBy Brown - Frank Zappa
Við ákváðum að halda okkar striki. Ég var áður búsettur í New York og flutti heim til að sinna undirbúningi.