Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Blaðsíða 23
miðvikudagur 25. ágúst 2010 úttekt 23 Sævar Helgi Bragason fer fyrir Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnar- ness sem er eina félag áhugamanna um stjörnuskoðun á Íslandi. „Fé- lagið er nærri þrjátíu ára gamalt og félagar orðnir um 230 talsins,“ segir Sævar. „Aðsetur þess er í Val- húsaskóla á Seltjarnarnesi en uppi á þaki skólans er hvolfþak sem hýs- ir sjónauka félagsins.“ Stjörnusjón- aukinn er að sögn Sævars sá stærsti á landinu og hafa félagsmenn að- gang að honum. Aðspurður hvort starfsemin sé lífleg segir Sævar liðs- menn flesta mikla áhugamenn um stjörnufræði og stjörnuskoðun og því sé aldrei skortur á umtalsefni. „Við stöndum þess utan fyrir ótal spennandi uppákomum og kynn- um almenningi starfsemina.“ En hafa Sævar og félagar orðið varir við einhver teikn á lofti síðustu misseri? „Ekkert sem er í frásögur færandi, en það er ævinlega margt að sjá í himinhvolfinu.“ Á meðfylgjandi mynd sést einn félagsmanna horfa í sjónauka fé- lagsins í Valhúsaskóla. Á myndinni eru kunnugleg mynstur; stjörnu- merkið Nautið og Sjöstirnið (litla þyrpingin sem lítur út eins og inn- kaupakerra). Eitthvað fyrir alla María Sæmundsdóttir, starfsmaður í félags -og tryggingamálaráðu- neytinu, er ein þeirra fjölmörgu kvenna sem mæta til æfinga með Brenniboltafélagi Reykjavíkur. Í sumar hafa þær æft á mánudagskvöld- um á malarvellinum við Klambratún og auglýsa æfingarnar á Face- book-síðu félagsins. Félagið var stofnað eftir góðar viðtökur og vinsældir Brenniboltafé- lags Hafnarfjarðar sem var stofnað af Margrétu Gauju Magnúsdóttur. „Við höfum skemmtun og góða samveru að meginmarkmiði en höldum þó reglulega mót til að virkja keppnisandann. Í fyrra héld- um við meira að segja Íslandsmeistaramót og erum að hugsa um að halda það aftur. Við erum um 12-60 manns sem mætum á æfingar sem við höldum vikulega. Á sumrin æfum við úti en á veturna finnum við okkur hentugan stað til æfinga inni við. Við tökum sérstaklega vel á móti nýliðum og leggjum mikið í móttökurnar. Við pössum okkur til að mynda á því að flétta saman í lið nýliðum og vönum konum. Það koma oftast 2-3 nýjar konur á hverja æfingu og það hefur töluvert safnast í hópinn frá byrjun æfinga.“ Brennibolti á klambratúni Nýliðar bætast í hópinn á hverri æfingu: Hópur góðra vina sem teljast for- fallnir aðdáendur True Blood-sjón- varpsþáttanna um blóðþyrstar vampírur í Suðurríkjunum hittist reglulega til að bera saman bæk- ur sínar. Aðalheiður Sveinsdóttir og Stefán Svan Aðalheiðarson eru með- al þeirra sem sameinast í aðdáun og ætla að blása til fagnaðar þegar loka- þáttur þáttaraðarinnar verður sýnd- ur í lok september. „Við verðum með þema, blöndum drykki og klæðum okkur upp í gervi uppáhaldssögupersónu okkar,“ segir Stefán Svan. „Við hittumst þegar fyrsti þáttur- inn var sýndur í byrjun sumars og gerðum okkur glaðan dag og nú er á döfinni að hittast þegar lokaþáttur- inn verður sýndur.“ „Ég er ekki búinn að ákveða mig í hvaða gervi ég bregð mér en Sam er efstur á blaði, mér finnst hann skemmtilegur og aðlaðandi karakter. Við ætlum annars að halda fund síð- ar í vikunni og fara betur yfir skipu- lagið á fagnaðinum.“ En hvað er það sem heillar hóp- meðlimi svo mikið og hvað gerist þegar þáttaröðin er á enda? „Mér finnst þessi Suðurríkjastemning for- vitnileg og svo eru vampírur nátt- úrulega forboðnar og heillandi. Þegar þáttaröðinni lýkur er bara að bíða eftir næstu þáttaröð eða horfa á gömlu þættina aftur.“ Stefán og Aðalheiður heillast af vampírum og gera sér glaðan dag: Vampíruklúbbur gerir sér glaðan dag riðið berbakt Hjólaklúbburinn er samheldinn og tekur upp á ýmsu: Morten Lange fer nærri allra sinna ferða á hjóli og hefur hjólreiðamenn- ingu að áhugamáli. Hann er einn meðlima Fjallahjólaklúbbs Reykja- víkur sem samanstendur af breiðum hópi fólks sem vill bætta aðstöðu hjól- reiðafólks til samgangna. „Ég sjálfur stunda hjólreiðar af því það gefur mér ánægju, styrkir líkamlegt atgervi og andlega heilsu. Mér finnst gott að vera í sambandi við umhverfið og finnst ég búa við meiri orku þegar ég get kom- ist ferða minna á hjóli.“ Morten segir klúbbinn samheldinn og að alltaf sé að bætast í hann. Við erum með opið hús á fimmtudögum klukkan 20.00 í klúbbhúsinu okkar að Brekkustíg 2 í miðborginni þar sem fólk getur borið saman bækur sínar og fengið ráðgjöf frá reyndara fólki.“ Morten stóð fyrir skemmtileg- um viðburði á Menningarnótt ásamt Bryndísi Þórisdóttur þar sem hjólað var frá Klambratúni og um miðborg- ina undir yfirskriftinni: Berbakt um bæinn. „Innblásturinn að þessum við- burði var fenginn frá World Naked Bike Ride hreyfingunni sem stendur fyrir fáklæddum hjólalestum víða um heim. Sumir klæddu sig upp og komu klæddir flottum fötum, aðrir voru létt- klæddir.“ Spáð í stjörnurnar Stjörnuskoðun á Seltjarnarnesi:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.