Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 24
24 sport umsjón: ásgeir jónsson asgeir@dv.is 25. ágúst 2010 miðvikudagur stærstu sigrarnir Enska úrvalsdeildin hefur farið af stað með látum og einni mestu markasúpu sem sést hefur frá því að deild- in var sett á laggirnar 1992. Fjórir leikir hafa farið 6–0 og hvorki fleiri né færri en 62 mörk hafa verið skoruð í fyrstu tveimur umferðunum. dv tók saman stærstu sigrana í úrvalsdeildinni frá upphafi. 7:0 arsenal – everton maí 2005  n Arsenal gerði sér lítið fyrir og jarðaði Everton 7–0 á sínum gamla heima- velli, Highbury, í maí 2005. Dennis Bergkamp skoraði eitt mark og lagði upp þrjú. Robert Pires skoraði tvívegis en Robin van Persie, Patrick Vieira, mathieu Flamini og Edu skoruðu eitt mark hver. Þetta var næstsíðasta tímabil Berg- kamps með Arsenal en hann skoraði 87 mörk fyrir klúbbinn í 315 leikjum. 8:0 newcastle – sheffield wednesday september 1999  n Alan shearer, sá ótrúlegi markaskorari, jafnaði met Andys Cole þegar hann skoraði fimm mörk í einum og sama leiknum. Þar af voru tvö úr vítaspyrnum. Það voru svo þeir Aaron Hughes, Kieron Dyer og Gary speed sem bættu við mörkum. Á tíu ára ferli sínum með newcastle united skoraði shearer 148 mörk. Geri aðrir betur. 7:0 Man. United – Barnsley október 1997  n Andy Cole skoraði eina af sínum fimm þrennum á ferlinum og það í fyrri hálfleik. staðan var 4-0 í hálfleik en aðrir markaskorarar voru Ryan Giggs með tvö og Paul scholes og Karel Poborsky með sitt markið hvor. Þessi stórsigur gaf góð fyrirheit en Arsenal náði þó að skjóta united ref fyrir rass eftir áramót og hirti dolluna. 7:0 arsenal – MiddlesBroUgh janúar 2006   n Annar 7–0 sigur Arsenal-liðsins og nú á middlesbrough. Þarna var Thierry Henry upp á sitt allra besta en hann skoraði þrennu í leiknum. Philippe senderos, Robert Pires, Gilberto silva og Alexander Hleb skoruðu eitt mark hver. Á þessu tímabili tókst Henry að afreka það að verða markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, bæði í deildinni og í heild, og að skora sitt hundraðasta mark á Highbury, gamla heimavelli liðsins. 6:0 6-0 sigrarnir ágúst 2010  n 6–0 sigrarnir í byrjun þessa tímabils eru meira en lítið merkilegir. sérstaklega í ljósi þess að síðan úrvalsdeildin hófst árið 1992 hafa, að þeim meðtöldum, aðeins 20 leikir endað með þeirri markatölu. Þá er líka fáheyrt að þrír leikir fari 6–0 í sömu umferðinni. Arsenal sigraði Blackpool 6–0, newcastle sigraði Aston Villa 6–0 og Chelsea sigraði Wigan 6-0, á útivelli. Chelsea vann einnig West Bromwich Albion 6-0 í fyrstu umferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.