Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2010, Qupperneq 26
Silja Úlfarsdóttir mun fljótlega yfirgefa skjáinn þegar hún hættir sem íþróttafréttamaður Stöðvar 2. Um sumarstarf var að ræða hjá Silju sem mun snúa sér alfar- ið að þjálfun í vetur. Samstarfs- maður hennar á íþróttadeildinni, Henry Birgir Gunnarsson, sem er annálaður hrekkjalómur hrekkti Silju og skrifaði á Facebook-síðu hennar: „uppfyllir gamlan draum í kvöld og les fréttir á nærbuxun- um“. Spurning hvort aðdáendur og Facebook-vinir Silju hafi fjöl- mennt fyrir framan skjáinn í gær- kvöldi í von um að verða heppnir. Frumburður stjörnuparsins Ragnhildar Steinunnar Jónsdótt- ur og Hauks Inga Guðnasonar hefur fengið nafnið Eldey Erla en parið eignaðist dóttur í lok júní. Nafnið Eldey er sjaldgæft en sam- kvæmt þjóðskrá eru aðeins ell- efu Eldeyjar á Íslandi. Sérstök og öðruvísi mannanöfn hafa verið áberandi á Íslandi upp á síðkast- ið og stjörnurnar láta ekki sitt eftir liggja. Önnur fegurðardrottning, Harpa Rós Gísladóttir, lét skíra sína tvíburasyni Kristófer Kjar- val og Alexander Kiljan á dög- unum. Nöfnin þekkjum við sem nöfn okkar dáðustu listamanna, þeirra Jóhannesar Kjarval og nób- elsverðlaunaskáldsins Halldórs Kiljans Laxness. Harpa þurfti að sækja um úrskurð mannanafna- nefndar vegna nafnsins Kjarval og tekur það nú íslenskri beyg- ingu.  Þá valdi sjónvarpsskonan Andrea Róberts að nefna sitt barn Dreka en samkvæmt þjóðskrá er hann eini Dreki landsins. Frum- burður Birtu Björnssdóttur, eig- anda Júníforms, og eiginmanns hennar heitir því skemmtilega nafni Stormur Björn, tískumóg- úllinn Arnar Gauti og hans eig- inkona skírðu börnin sín Natalíu París og Kiljan Gauta og tónlistar- maðurinn Jakob Frímann Magn- ússon og kona hans, Birna Rún Gísladóttir, skírðu dóttur sína Jar- únu Júlíu. EldEy, drEki og kjarval HrEkkti silju á facEbook Íslenskar stjörnur velja sérstök nöfn á börnin sÍn: Bikiníbomban Kristrún Ösp Barkardóttir er á leiðinni í heim- sókn til fyrrverandi kærasta síns, knattspyrnustjörnunnar Dwight Yorke. Kristrún segir að þau Yorke séu bara vinir og að þau ætli líklega að skella sér saman til Portúgal. Kristrún Ösp, sem er flutt í höfuðborgina þar sem hún ætlar að setjast á skólabekk og læra förðun og verða stílisti, stefnir svo á Lundúna-ferð með hópi vina en krakkarnir ætla að dvelja í íbúð í eigu knattspyrnu- mannsins. HEimsækir fyrrvErandi 26 fólkið 25. ágúst 2010 miðvikudagur Þórunn Högnadóttir: Frumlegar nafngiftir vekja lukku Ragnhildur Steinunn og Haukur Ingi skírðu stúlku sína Eldey Erlu á dögunum. Flytur Fyrir Hundana V ið hjónin höfum búið hér í 13 ár en því miður þá verðum við að flytja því okkur lyndir ekki við nágrann-ana sem sætta sig illa við hundahald heimilisins,“ segir Þórunn Högnadóttir útlits- hönnuður sem hefur sett íbúð sína í Grafarvogi á sölu. Þórunni kannast margir við frá því hún var ritstjóri þáttarins Innlits/útlits á Skjá einum. Þátturinn er nú horfinn af skjánum og hún starfar á tímaritinu Hús og híbýli. Þórunni er innanhússhönnun og smíði hugleikin og hef- ur hún lagt mikið í útlit íbúðar sinnar. „Okk- ur hefur liðið vel á heimili okkar öll þessi ár. Hverfið er afskaplega friðsælt og fallegt. Þess utan hef ég lagt töluverða vinnu í íbúðina enda innanhússhönnun eitt af mínum helstu hugð- arefnum.“ Þórunn og Brandur Gunnarsson eiginmaður hennar eiga tvo hunda af Chihua- hua- kyni. „Þrátt fyrir að hverfið sé annars fal- legt og friðsælt þá langar okkur að búa hund- unum betra umhverfi þar sem þeir geta gengið frjálsir um,“bætir hún við. Íbúðin er staðsett í Flétturima í Grafarvogi og hefur tekið mikl- um stakkaskiptum frá því Þórunn festi á henni kaup. Þrátt fyrir það hversu íbúðin er vel búin hefur hún þó ekki enn fengið tilboð í íbúðina. „Nei, ég hef ekki enn fengið tilboð í íbúðina þótt margir hafi litið við. Fasteignamarkaður- inn er í algeru frosti vegna efnahagsástandsins, það veit maðurinn minn sem er fasteignasali. Ég verð bara að vera vongóð.“ kristjana@dv.is Þórunn Högnadóttir útlitshönnuður hefur sett íbúð sína í Grafarvogi á sölu vegna ósættis við nágrannana. Vel vandað til verka Eldhúsið var fært í stofuna og endurnýjað að öllu leyti. Sykursætt en stílhreint Annað tveggja barnaherbergja á heimili hjónanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.