Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 2
Bjarni Ármannsson, fjárfestir og
fyrrverandi forstjóri Glitnis, hef-
ur hagnast umtalsvert á viðskipt-
um með íslensk ríkisskuldabréf
frá hruninu árið 2008, samkvæmt
heimildum DV. Aðallega er um að
ræða ríkisskuldabréf, sem eru ein
traustasta fjárfesting sem menn
geta ráðist í.
Sjálfur neitar Bjarni að staðfesta
að hann hafi fjárfest umtalsvert rík-
isskuldabréfum frá hruninu en vill
heldur ekki neita því. „Ég svara því
ekki.“ Hann neitar því hins veg-
ar aðspurður að Íslandsbanki hafi
fjármagnað kaupin á skuldabréf-
unum í hans tiltelli. „Svarið við því
er nei.“
Heimildir DV herma að mörg
dæmi séu um það að fjármálafyr-
irtæki, fyrst og fremst Íslandsbanki
og MP Banki, láni fjárfestum allt
upp í 90 prósent af kaupverði rík-
isskuldabréfa gegn tíu prósent eig-
infjárframlagi þeirra sjálfra. Sam-
kvæmt því sem Bjarni segir á þetta
hins vegar ekki við í hans tilfelli.
Ástæðan fyrir þessum lánveit-
ingum mun meðal annars vera sú
að fjármálafyrirtæki þurfa að koma
fjármunum sínum í umferð og get-
ur það stundum reynst erfitt vegna
efnahagsástandsins í landinu. Lán
til fjársterkra aðila til kaupa á rík-
isskuldabréfum er því góð lausn
fyrir bankana vegna þess hversu
traust fjárfesting ríkisskuldabréf-
in eru. Bæði fjárfestarnir og bank-
arnir njóta því góðs af viðskiptun-
um með ríkisskuldabréfin því lítil
áhætta er í þeim fyrir báða aðila.
„Áratugur
ríkisskuldabréfanna“
Viðskipti með ríkisskuldabréf hafa
aukist mikið eftir hrunið vegna þess
hversu traust fjárfestingin er og
hækkaði verð þeirra mikið á árinu
2008. Þessi hækkun varð til þess að
ríkisskuldabréf skiluðu metávöxtun
það árið, samkvæmt nýlegri grein
eftir Valdimar Ármann í Kjarahagi,
tímariti félags viðskipta- og hag-
fræðinga. Ávöxtunin á ríkisskulda-
bréfum árið 2008 var 34,5 prósent
og svo 17,1 árið eftir. Valdimar seg-
ir í greininni að það sem af er árinu
2010 hafi ávöxtun á ríkisskuldabréf-
um haldið áfram að vera góð, eða
um 18 prósent.
Valdimar segir í greinni að nú um
stundir sé ríkisskuldabréfamarkað-
urinn nánast eini fjárfestingarkost-
urinn sem er í boði og að þess vegna
megi kalla síðastliðin tíu ár „ára-
tug ríkisskuldabréfanna“. „Íslensk-
ur skuldabréfamarkaður stendur á
tímamótum enda eini raunuveru-
legi fjárfestingarkosturinn í boði
eftir efnahagshrunið. Verðmæti
skuldabréfamarkaðarins samkvæmt
skuldabréfavísitölu GAMMA hef-
ur nærri tífaldast frá árinu 2000 og
ávöxtun verið um 12,5 prósent á ári
að meðaltali á hverju ári... Það má
því með sanni segja að ríkisskulda-
bréf hafi sannað sig sem ekki ein-
ungis örugg fjárfesting heldur einig
arðsöm kreppuvörn,“ segir Valdimar
í greininni.
Einn af spákaupmönnunum
Bjarni Ármannsson er einn af um 30
til 40 spákaupmönnum sem kaupa
og selja ríkisskuldabréf á skulda-
bréfamarkaði samkvæmt heimild-
um DV. Einn sérfræðingur í fjár-
málalífinu orðar það sem svo að
Bjarni sé „skuldabréfamaður“ og
hann hafi, öfugt við margra aðra
þekkta aðila úr íslensku viðskipta-
lífi á árunum fyrir hrun, alltaf verið
hrifinn af þeim sem fjárfestingar-
kosti.
Á árunum fyrir hrunið, 2005
og 2006 fór, verð ríkisskuldabréfa
lækkandi, samkvæmt grein Valdi-
mars, samhliða stækkun hluta-
bréfamarkaðarins í landinu. Þá
þóttu ríkisskuldabréf ekki nægi-
lega spennandi fjárfestingarkostur
miðað við marga aðra. Þegar stað-
an á fjármálamörkuðum heimsins
versnaði á árinu 2008 byrjaði eft-
irspurnin eftir ríkisskuldabréfun-
um að aukast og fjárfestar byrjuðu
að kaupa því í auknum mæli til að
verja sig fyrir breyttri og erfiðari
stöðu á mörkuðum.
Þessa sterku stöðu ríkisskulda-
bréfanna hefur Bjarni Ármannsson
nýtt sér en öfugt við marga þekkta
einstaklinga úr íslensku viðskipta-
lífi sýna ársreikningar eignarhalds-
félaga Bjarna afar sterka stöðu hans
þrátt fyrir hrunið og þá kreppu sem
skall yfir þjóðina í kjölfarið.
Sex milljarða skuldabréfaeign
Ársreikningar tveggja eignarhalds-
félaga Bjarna, Landsýnar og Sjáv-
arsýnar, sem skilað var til ársreikn-
ingaskrár í september, sýna báðir
töluverða skuldabréfaeign og eru
jafnframt til marks um ansi sterka
stöðu Bjarna þrátt fyrir hrun og
kreppu í íslensku samfélagi. Sam-
anlögð skuldabréfaeign félaganna
tveggja er rúmlega 2,2 milljarðar
króna en ekki er tilgreint nánar í
reikningunum hvers konar skulda-
bréf er um að ræða. Bjarni vildi ekki
ræða um skuldabréfafjárfesting-
ar sínar við DV og því er ekki hægt
að fullyrða neitt um gerð þessara
bréfa.
Athyglisvert er hins vegar að
skuldabréfaeign Landsýnar var
nærri 6 sex milljarðar króna árið
2008 en er rúmlega 1200 milljón-
ir króna árið 2009. Bjarni virðist
2 fréttir 4. október 2010 mánudagur
Bjarni GrÆÐir Í KrEPPUnni
Bjarni Ármannsson fjárfestir er einn af
30 til 40 spákaupmönnum sem grætt hafa
vel á fjárfestingum í ríkisskuldabréfum.
Bjarni neitar að tjá sig um fjárfesting-
arnar í samtali við DV. Staða tveggja
eignarhaldsfélaga Bjarna sýnir eignir
upp á marga milljarða króna og lækk-
andi skuldastöðu. Bjarni greiddi sér 400
milljóna arð út úr einu eignarhaldsfélagi
á meðan 800 milljóna skuldir dótturfélags
þess voru afskrifaðar.
ingi f. vilhjÁlmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Ég segi ekki neitt.
Bjarni ÁrmannSSon
Fjárfestir
mánaðarlaun: 33,3milljónirkr. haraldur floSi TryggvaSon
StjórnarformaðurOR
mánaðarlaun: 920.000kr.
Árni TómaSSon
Stjórnarformaðurskilanefndar
Glitnis.
mánaðarlaun: 1.788.799kr.
finnur SvEinBjörnSSon
Fyrrverandiskilanefndarmaðurog
fyrrverandibankastjóriArionbanka.
mánaðarlaun: 1.809.017kr
lÁrEnTSínuS KriSTjÁnSSon
FormaðurskilanefndarLandsbankans
mánaðarlaun: 523.132kr.
STEinunn guðBjarTSdóTTir,
FormaðurslitastjórnarGlitnis.
mánaðarlaun: 1.023.271kr.
SérKEnnari í grunnSKóla
yngri En 35 Ára.
mánaðarlaun: 280.000kr.
Birna EinarSdóTTir
BankastjóriÍslandsbanka
mánaðarlaun: 1.731.216kr.
ragnar Z. guðjónSSon
FyrrverandisparisjóðsstjóriByrs
mánaðarlaun: 2.208.636kr.
fjÁrframlög Til EmBæTTiS
umBoðSmannS SKuldara
mánaðargreiðslur: 41,6milljónirkr.
fjÁrframlög Til
ríKiSSaKSóKnara
mánaðargreiðslur: 10,5milljónir
nýúTSKrifaður
lögrEglumaður
FyrrverandisparisjóðsstjóriByrs
mánaðarlaun: 201.502kr.
PÁll hrEinSSon
Formaðurrannsóknarnefndar
Alþingis
mánaðarlaun: 1.097.272kr.
*Arðgreiðslur úr einu félagi
laun og
greiðslur
Bjarni Ármannson
Íhópispákaupmannasem
verslameðríkisskuldabréf,
samkvæmtheimildum