Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Síða 8
8 fréttir 4. október 2010 mánudagur
Skuldarar sem hyggjast nýta sér
tímabundið úrræði umboðsmanns
skuldara vegna þess að þeir sitja uppi
með tvær fasteignir þurfa að leggja út
allt að 79 þúsund krónum til að afla
nauðsynlegra gagna.
Á meðal þeirra gagna sem um-
boðsmaður skuldara fer fram á að
skuldari afhendi, til samþykktar um-
sókn um tímabundið úrræði vegna
tveggja fasteigna, er verðmat tveggja
löggiltra fasteignasala á báðum
íbúðunum sem um ræðir, vottorð
þjóðskrár um fjölskyldu og hjúskap-
arstöðu auk veðbókarvottorðs sýslu-
manns. Samanlagt nemur kostnaður
við að afla þessara gagna nálægt 80
þúsund krónum.
Endurgreiðist við samþykkt
Þær upplýsingar fengust hjá um-
boðsmanni skuldara að embættið
væri lögum samkvæmt bundið að því
að gögnin þyrftu að liggja fyrir. Hins
vegar endurgreiddi umboðsmað-
ur skuldara kostnað vegna verðmats
eignanna, sé umsóknin samþykkt.
Eftir sem áður þarf fólk að leggja
út þennan pening en leiða má líkur
að því að þeir sem leita til umboðs-
manns skuldara vegna greiðsluerfið-
leika að þessu tagi, eigi erfitt með að
finna tæplega 80 þúsund krónur sem
ekki hefur verið ráðstafað.
Dýrir pappírar
Samkvæmt upplýsingum frá fast-
eignasölunni Remax kostar verð-
mat fasteignar 15 þúsund krónur að
viðbættum 25,5 prósent virðisauka-
skatti. Sá sem þarf tvö slík veðbók-
arvottorð fyrir báðar fasteignirnar
greiðir því 75.300 krónur ef hann læt-
ur Remax framkvæma matið en ekki
er loku fyrir það skotið að verðmatið
sé eitthvað ódýrara annars staðar. Því
til viðbótar þarf skuldarinn að verða
sér úti um veðbókarvottorð fyrir
báðar íbúðirnar. Það kostar samtals
3.000 krónur, samkvæmt upplýsing-
um frá sýslumanninum í Reykjavík.
Loks þarf hann að framvísa vottorði
um fjölskyldu og hjúskaparstöðu
sem kostar 900 krónur samkvæmt
upplýsingum frá þjóðskrá.
Samtals nemur kostnaðurinn
79.200 krónum.
Sé umsókninni hafnað situr
skuldarinn uppi með kostnaðinn
en sé hún samþykkt fær hann end-
urgreiddan kostnaðinn við verð-
matið – í þessu dæmi 75.300 krón-
ur.
Hjá Umboðsmanni skuldara
fengust enn fremur þær upplýsing-
ar að þeir sem sæki um úrræðið fái
yfirleitt umsóknina samþykkta.
Í lögum um söluúrræði fyrir þá sem sitja uppi með tvær fasteignir felst að skuldarinn
þarf í umsókninni að leggja fram gögn sem kosta 80 þúsund krónur. Stærsti kostnaður-
inn felst í tvöföldu verðmati fyrir hvora fasteign. Hjá umboðsmanni skuldara fást þær
upplýsingar að sá kostnaður sé endurgreiddur af embættinu, fáist umsóknin samþykkt.
KOSTAR 80 ÞÚSUND
AÐ NOTA ÚRRÆÐIÐ
Þetta úrræði er ætlað þeim sem keypt höfðu íbúð til heimilisnota á tímabilinu
1. janúar 2006 til 1. nóvember 2008 og hafa ekki náð að selja. Um er að ræða
söluúrræði sem gerir fólki kleift að losa sig við aðra íbúðina með því að ráðstafa
henni til kröfuhafa miðað við áætlað markaðsverð.
GöGn sEm þarf að lEGGja fram:
n Veðbókarvottorð fyrir báðar íbúðirnar. Sýslumenn sjá um útgáfu veðbókarvottorða.
n Verðmat tveggja löggiltra fasteignasala á báðum íbúðunum.
n Veflykil inn á þitt svæði á www.skattur.is svo hægt sé að nálgast skattframtöl
þín eða skattframtöl síðustu þriggja ára og síðasta álagningarseðli á pappír eða
á rafrænu formi (PDF).
n Vottorð um fjölskyldu- og hjúskaparstöðu. Þjóðskrá gefur vottorðin út og hægt
er að sækja um þau á vef Þjóðskrár Íslands.
n Síðustu greiðsluseðlar allra lána, skuldbindinga og innheimtubréf frá lögfræði-
innheimtu vegna vanskila, ef það á við.
n Greinargerð þar sem gerð er ítarleg grein fyrir skuldbindingum sem hvíla á
báðum íbúðunum.
n Samþykki fyrir gagnaöflun undirritað af þér og ef við á maka þínum og þeim
sem teljast til heimilisins.
Fyrir hverja?
balDur GuðmunDsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Ásta sigrún Helgadóttir Umboðs-
maður skuldara þarf ýmis gögn sem
getur kostað tugi þúsunda að afla.
Sparisjóðabanki Íslands, áður Ice-
bank, hefur höfðað mál gegn Mile-
stone. Þar er á ferðinni gjaldþrota
banki gegn gjaldþrota fjármálafyrir-
tæki þar sem barist er um milljarða.
Málarekstur Sparisjóðabankans
gegn Milestone var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á dögunum.
Fyrirtækið er í eigu bræðranna Karls
og Steingríms Wernerssona en það
varð tæknilega gjaldþrota við banka-
hrunið síðla árs 2008. Um mitt síð-
asta ár fékk Milestone heimild til að
leita nauðasamninga en í september
í fyrra var fyrirtækið úrskurðað gjald-
þrota. Í kjölfarið blöstu við afskriftir
upp á minnst 80 milljarða króna af
skuldum félagsins og nú berst Spari-
sjóðabanki um milljarðakröfu sína í
þrotabúið.
Í júlí 2009 gerði embætti sérstaks
saksóknara húsleit í höfuðstöðvum
Milestone ásamt dótturfélagi þess,
Sjóvá. Rannsóknin snýr að meintu
stórfelldu fjármálamisferli sem teng-
ist starfsemi Milestone og fjárfest-
ingarstarfsemi Sjóvár, meðal annars
að meintri misnotkun á bótasjóði
tryggingarfélagsins. Grímur Sigurðs-
son, skiptastjóri þrotabús Milestone,
hefur boðað tuttugu dómsmál tengd
rekstri fyrirtækisins fyrir hrun og
áður en það fór í þrot. Kröfur í þrota-
búið nema tæplega hundrað millj-
örðum króna.
Krafa Sparisjóðabankans er til-
komin vegna svokallaðra framvirkra
lánasamninga Milestone. Jón Ár-
mann Guðjónsson lögmaður flytur
dómsmálið fyrir hönd Sparisjóða-
banka Íslands og staðfestir hann
milljarðakröfu bankans á hendur
Milestone. Hann segist vongóður um
sigur. „Bankinn lýsti kröfu í þrotabú-
ið upp á rúma 3 milljarðar. Skipta-
stjóri samþykkti kröfuna að mestu
leyti en við erum nú að þræta um af-
ganginn,“ segir Jón Ármann.
Þetta snýst um hefðbundinn
lánasamning, framvirka samninga,
og uppgjör á því þegar Milestone
gaf upp öndina. Þetta eru 500 millj-
ónir sem skilja á milli og þetta snýst
því um einhverja peninga. Ég er von-
góður.“
trausti@dv.is
Sparisjóðabanki Íslands fer fram á 3,5 milljarða úr þrotabúi Milestone:
Vill milljarða frá Milestone
milestone Ofurskuld-
sett fyrirtæki sem Karl
Wernersson fór fyrir. Kröfur
í þrotabúið nema tæplega
hundrað milljörðum króna.
Hrafnista:
Þurfa að loka
27 rýmum
Samkvæmt fjárlögum næsta árs fær
öldrunarheimilið Hrafnista í Reykja-
vík 377 milljónum króna minna
fjárframlag frá ríkinu en á þessu
ári. Í ár var framlagið 2.125 milljón-
ir króna en verður 1.748 milljónir
króna. Þessi niðurskurður hefur í för
með sér að fækka þarf um 27 rými á
Hrafnistu. Framkvæmdir hafa staðið
yfir á hjúkrunarheimilinu, en með
þeim er búið sameina tvö minni
einstaklingsherbergi í eitt stærra
herbergi. Pétur Magnússon, forstjóri
Hrafnistu, segir að vitað hafi verið
af niðurskurðinum í nokkurn tíma.
„Við höfum verið á fullu að undirbúa
okkur. Þessi niðurskurður er með
tvennum hætti. Annars vegar eru
daggjöld fyrir hvern heimilismann
lækkuð og hins vegar er bara verið
að fækka rýmum hjá okkur. Við höf-
um bjargað okkur með því að gera
veigamiklar breytingar á Hrafnistu í
Reykjavík, sem felast í því að tvö her-
bergi eru gerð að einu stóru,“ segir
Pétur.
„Auk þess opnaði Hrafnista í
Kópavogi á árinu. Til þess að mögu-
legt væri að opna þar fluttum við
heimildir upp í Kópavog, samhliða
fækkuninni í Reykjavík. Ég er aldrei
ánægður með að þurfa að taka á
okkur niðurskurð, því hann hefur
verið nánast stanslaus síðustu ár.
En vissulega gætum við verið í verri
málum miðað við marga aðra. En
við höfum verið með öflugan hóp
stjórnenda og starfsfólks til að mæta
þessu.“
Pétur segist vona að niðurskurð-
urinn bitni ekki á daglegu lífi heim-
ilisfólks. „Ég vet ekki hvað við getum
skorið niður mikið og aðlagað okkur
endalaust. Það er orðið mjög stutt
í þolmörk þess að það verði ekki
dregið úr þjónustu með áþreifanleg-
um hætti.“
Með niðurskurðinum hefur
fækkað um á bilinu 20–30 stöðugildi
á Hrafnistu í Reykjavík, en sú leið
hefur verið farin að ráða ekki nýja
starfsmenn í stað þeirra sem hættu.
valgeir@dv.is
Þarf róttækt afl
„Já, ég geri það, ég styð þessi mót-
mæli,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir,
nýkjörinn formaður Vinstri grænna
í Reykjavík. „Ég styð þessi mótmæli
vegna þess að forysta flokksins virð-
ist vera að beina honum í svona
mjög kratíska átt,“ sagði Sólveg í
Silfri Egils í dag. Sólveig sagðist ekki
trúa því að þörf væri á öðrum krata-
flokki á Íslandi, hér væri stór starf-
andi krataflokkur. Hinsvegar þurfi
róttækt afl.
Sólveig sagði að hún telji að
flestir þeirra sem kusu VG í síðustu
kosningum hafi gert það vegna þess
að þeir hefðu talið að þeir væru
að kjósa róttæka rödd í íslenskum
stjórnmálum: „Ég held að mjög
margir hafi orðið fyrir gríðarlegum
vonbrigðum.“ Þá sagði hún að ef fólk
vilji fá kosningar þá eigi það að fá
kosningar. „Allt annað er bara fas-
ískt,“ sagði Sólveig og benti á að það
væri fasísk hugsun að ætla að bæla
niður raddir um að nú eigi að verða
kosningar.
VG í rEykjaVík: