Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Síða 10
10 FRÉTTIR 4. október 2010 MÁNUDAGUR
TANNHEILSA FÁTÆKRA
BARNA ER SKELFILEG
Stjórnmálaflokkar lögðu mikla
áherslu á það fyrir kosningar til Al-
þingis vorið 2007 að aðgengi barna
að tannlæknaþjónustu yrði bætt
verulega. Þá var orðið ljóst að eitt-
hvað hafði farið úrskeiðis í tann-
vernd barna.
Eftir hrunið þegar fjárhagsstaða
fjölskyldna versnaði til muna varð
staða margra barna enn verri. Það
hafa tannlæknar á neyðarvökt-
um vitnað um. Þeir sáu sig enda
tilneydda á síðasta ári til þess að
efna til samstarfs þar sem Tann-
læknafélag Íslands bauð börnum
upp á fría þjónustu í samstarfi við
tannlæknadeild Háskóla Íslands.
Aðsóknin var gríðarlega mikil og
ástandið hjá mörgum börnum afar
slæmt. Sigurður Benediktsson, for-
maður Tannlæknafélags Íslands,
segir stöðuna enn vera skelfilega
og algerlega ólíðandi og bendir á í
því sambandi að af þeirri fjárhæð
sem veitt er til tannlækninga hafi
verið 296,1 milljóna króna afgang-
ur. Hann segir ennfremur Tann-
læknafélagið ekki ráða við kostn-
aðinn af hjálparvaktinni en margir
tannlækna sinni hjálparstörfum í
sjálfboðastarfi vegna neyðar barna
og unglinga.
Vanræksla á háu stigi
„Ég fullyrði að stjórnvöld og heil-
brigðisyfirvöld hafi sýnt börnum
þessa lands vanrækslu á háu stigi
og látið viðvaranir tannlækna og
þeirra sem láta sig tannheilbrigði
varða sem vind um eyru þjóta. Við
sem störfum á tannlæknastofum
verðum því miður vitni að afleið-
ingum þessa í hverri viku á stofum
okkar og var það skelfilega þung-
bær reynsla að starfa á Hjálparvakt
tannlækna og upplifa þá neyð sem
sum þessara barna eru í. Því mið-
ur þá getur Tannlæknafélagið ekki
staðið undir kostnaðinum af því að
endurtaka hjálparvaktirnar.“ Siguð-
ur segir tannlækna þó hafa verið að
aðstoða börn og unglinga sem búa
við kröpp kjör.
Almenningur svikinn
Sigurður segir stöðuna enn vera
skelfilega og algerlega ólíðandi og
bendir á í því sambandi að af þeirri
upphæð sem veitt er til tannlækn-
inga hafi verið 296,1 milljóna króna
afgangur.
Sigurður segist hafa bent ráð-
herra á þetta fyrir löngu síðan og
varað við þessum afgangi. „Ég
hreinlega skil ekki af hverju þetta
er svona og féll eiginlega allur ketill
í eld þegar ég las ríkisreikninginn
síðasta. Ég get ekki séð annað en
að embættismenn og Sjúkratrygg-
ingar Íslands hafi algjörlega brugð-
ist í þessu máli og séu ekki starfi
sínu vaxnir.“
Sigurður segist halda að væri
þetta afgangur af rekstri einhverr-
ar stofnunar, til dæmis sendiráðs
eða einhverju því um líkt væri ekk-
ert við þetta að athuga en meðan
þetta séu fjármunir sem eigi í raun
að renna til fólksins í landinu þá sé
verið að svíkja almenning.
Álfheiður fær hrós
Sigurður bendir á einfaldar stað-
reyndir málsins. Að Alþingi ákveð-
ur á hverju ári upphæð sem veita
á til tannlækninga. Síðan sé það
embættismanna að úthluta þess-
um peningum. Heilbrigðisráðu-
neytið sé stefnumótandi sam-
kvæmt lögum 112/2008 meðan
Sjúkratryggingar Íslands sjái um
framkvæmd.
„Heildarupphæðin fer til elli-
lífeyrisþega, öryrkja, barna, tann-
réttinga og vegna slysa,“ segir
Sigurður frá. „Upphæð ætluð til
tannlækninga er sérmerkt tann-
lækningum og ekki til þess að reka
neinar stofnanir eða því um líkt
enda eru Sjúkratryggingar Íslands
á sérfjárlögum. Afgangurinn er þá
sem sagt af allri heildinni en fjár-
veiting fyrir 2009 var 1666,4 millj-
ónir í það heila og afgangur 296,1
milljónir af öllu saman.“
Sigurður segir að fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, Álfheiði Inga-
dóttur hafi brugðið þegar Tann-
læknafélagið gerði henni grein
fyrir þessum afgangi af fjárlögum
tannlækninga sem náði nánast
áratug aftur í tímann og hann hafi
velt því fyrir sér hvort þessar upp-
lýsingar hafi eitthvað haft um það
að segja að ákveðið var að auka
endurgreiðslur til barna með al-
varlega fæðingargalla. Sigurður
segir svigrúmið hafa verið til stað-
ar. „Það má spyrja sig hvers vegna
enginn af fyrri heilbrigðisráðherr-
um þessa lands leysti þessi mál
fyrr. Á ráðherrann svo sannarlega
hrós skilið fyrir að beita sér í þessu
máli.“
Jafnháar endurgreiðslur til
foreldra vegna rítalíns
Endurgreiðsla til foreldra barna
vegna allra tannviðgerða og for-
varna hjá börnum undir 18 ára
aldri nemur 550 milljónum króna
á ári. „Ekki há upphæð sem fer til
barna í þessar hefðbundnu venju-
legu viðgerðir og forvarnir,“ segir
Sigurður og bendir til samanburð-
ar á að kostnaður Sjúkratrygginga
vegna rítalíns sé tæpar 500 milljón-
ir. „Svipuð upphæð fer í rítalín og
allar viðgerðir og forvarnir barna
hjá tannlæknum. Því mætti hugsa
sér til dæmis ef þessum afgangi
væri veitt bara til barna, mætti stór-
auka endurgreiðslur vegna tann-
viðgerða og forvarna,“ segir Sigurð-
ur.
Fögur fyrirheit til barna
Sigurður er ekki einn um að telja
aðgerðaleysi ráðandi hvað varðar
tannlækningar barna. Í því sam-
bandi má rifja upp að vorið 2009
féllu stór orð um hvernig kerf-
ið hefði brugðist börnum efnalít-
illa fjölskyldna. „Það getur enginn
heilbrigðisráðherra orðið vitni að
þessari reynslu sem við urðum fyr-
ir um síðustu helgi, án þess að gera
eitthvað,“ sagði Ögmundur Jóns-
son heilbrigðisráðherra sem sagð-
ist hafa orðið fyrir áfalli við að sjá
hve aðsókn og þörf þeirra barna
og unglinga sem leituðu í ókeyp-
is aðstoð var mikil. Af sama tilefni
sagði Ögmundur það hafa verið
óheillaspor að fara með tannlækn-
ingar út úr skólum á sínum tíma.
Þá benti Ögmundur á að það væri
ekki formið sem skipti öllu heldur
að eftirliti og tannhirðu væri fylgt
eftir. Hann sagðist myndu gera ráð-
stafanir til þess að færa þessi mál
til betri vegar. Ögmundur var þá
spurður hvort ókeypis tannlækn-
ingar fyrir börn og unglinga gætu
orðið að veruleika og sagði hann
það vissulega vera Vinstri hreyfing-
unni - grænu framboði keppikefli
og svo yrði áfram.
Hvað hefur áunnist?
Í ljósi þess að staða barna efna-
lítilla fjölskyldna með tilliti til
tannheilsu þeirra er áhugavert að
skoða hver árangur hefur orðið í
því að bæta stöðu þeirra. Ókeypis
tannlækningar hafa ekki orðið að
veruleika og útséð um að svo verði
í bráð þrátt fyrir að það hafi verið
ásetningu bæði Samfylkingar og
Vinstri grænna.
Þá er einnig gagnrýnivert í ljósi
aðkallandi neyðar að ekki hafi ver-
ið gengið harðar fram í að laga
verðskrá sjúkratryggingastofn-
unar. Tannlæknakostnaður er al-
mennt mun hærri en gjaldskrá
ráðuneytisins miðar við. Eða allt
frá 40 prósentum til 160 prósent-
um hærri eftir stofum. Í reynd fá
foreldrar því mun lægra hlutfall en
75 prósent endurgreitt sem virð-
ist gera það að verkum að tann-
læknakostnaður er mörgum fjöl-
skyldum ofviða.
Sigurður bendir á að tann-
læknar hafi ekki hækkað gjald-
skrár sínar umfram vísitölur og
að þær séu undir vísitöluhækkun-
um. Í grein í Læknablaðinu í vet-
ur komi fram að tannlæknaþjón-
usta hefur hækkað minnst allrar
heilbrigðisþjónustu í landinu síð-
astliðin 10 ár. „Á meðan hafa efni
og áhöld sem tannlæknar kaupa
hækkað um 100 prósent á 2–3
árum samkvæmt könnun sem ég
gerði og þessari hækkun hefur
ekki verið velt út í verð á þjónustu
hjá tannlæknum.“ Hann bendir á
að næstu misseri reyni á Sjúkra-
tryggingar Íslands að standa við
viljayfirlýsingu um að koma á ítar-
legri og nútímalegri aðgerðarskrá
sem tannlæknar geta unað við.
„Sameiginleg aðgerðarskrá tann-
lækna og yfirvalda er grundvöllur
hnökralausra samskipta milli að-
ila sem hægt er að nota til frekari
ávinnings.“
Svipuð upphæð fer í rítalín og allar við-gerðir og forvarnir barna hjá tannlækn-
um. Því mætti hugsa sér til dæmis ef þessum
afgangi væri veitt til bara til barna, mætti stór-
auka endurgreiðslur vegna tannviðgerða og for-
varna. Eina sem þyrfti að gera er að nýta heim-
ildina og ráðherrann fengi ókeypis hrós fyrir.
KRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
296,1 milljónir eru í afgang af fjárveitingum tannlækninga á meðan tannlæknar á neyðarvakt vitna um
skelfilega tannheilsu barna efnalítilla fjölskyldna. Sigurður Benediktsson tannlæknir er meðal þeirra
sem hafa bent heilbrigðisráðherra á þennan afgang með vísan í neyð barna og segir að lítið sem ekkert
hafi áunnist. Hann fullyrðir að stjórnvöld sem og heilbrigðisyfirvöld hafi á síðustu misserum sýnt börn-
um þessa lands vanrækslu á háu stigi.
Ólíðandi ástand hvað varðar tannlækningar barna
Stjórnvöld hafa sýnt börnum þessa lands vanrækslu, segir
Sigurður Benediktsson formaður tannlæknafélags Íslands