Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 12
12 fréttir 4. október 2010 mánudagur
Fundargestir á málþinginu Ástir og
átök. Kvennabaráttan þá og nú, sem
haldið var þann 1. október í Háskóla
Íslands skora á Valtý Sigurðsson rík-
issaksóknara að segja af sér emb-
ætti nú þegar. Ummæli hans í DV í
vikunni afhjúpa vanhæfni hans til
að gegna embætti ríkissaksóknara.
Verði hann ekki við því er skorað á
Ögmund Jónasson dóms- og mann-
réttindaráðherra að veita honum
formlega áminningu.
Það var í opnum umræðum eft-
ir fyrirlestrana sem ummæli Val-
týs bárust til tals. Birtust ummæl-
in í DV, en í síðustu viku var tvisvar
sinnum rætt við Valtý í DV vegna
nauðgunarmála. Fyrri greinin birt-
ist á miðvikudaginn og fjallaði um
það hversu mörg mál sem þekkt eru
í kerfinu endi með sakfellingu. Rætt
var við Valtý um nauðgunarmál og
rangar sakargiftir í nauðgunarmál-
um. Í helgarblaðinu var síðan farið
yfir lögregluskýrslur í nauðgunar-
málum og rætt við hann um niður-
stöður þeirra mála. Kom ein konan
með bæði blöðin á fundinn svo þeir
sem ekki höfðu lesið þessar greinar
gætu gert það áður en þeir tækju af-
stöðu til ummælanna. Um fimmtíu
manns sátu fundinn og áskorunin
var samþykkt einróma.
Blöskraði ummælin
Aðstandendur málþingsins voru
Rannsóknarstofa í kvenna- og
kynjafræðum og Skotturnar, regn-
hlífarsamtök kvennahreyfingarinn-
ar á Íslandi. Fundarstýra á fund-
inum var dr. Auður Styrkársdóttir,
forstöðukona Kvennasögusafns Ís-
lands og hún útskýrði af hverju það
var ákveðið að senda þessa áskorun
á fjölmiðla: „Það var mörgum mik-
ið niðri fyrir. Þegar rýnt var í þessi
ummæli blöskraði öllum sem tjáðu
sig og þar á meðal mér. Það var ansi
margt í þessu sem var óásættanlegt.
Valtýr afhjúpaði viðhorf til nauðg-
unarmála sem eru þess eðlis að það
verður ekki við þau unað. Hann læt-
ur að því liggja að þessi mál séu óæðri
öðrum ofbeldisverkum, ekki jafn al-
varleg. Það hlýtur að útskýra hversu
fáir leita til dómstóla eftir nauðgun.“
„Hversu fullur varstu þegar
það var stolið frá þér?“
„Ég bið lesendur um að hugsa það
sem svo að þeir myndu mæta svona
viðhorfum þegar það væri til dæm-
is stolið frá þeim. Þá þyrftu þeir að
svara spurningum eins og: „Hversu
fullur varstu þegar það var stolið
frá þér?“ Eða eins og þarna kemur
fram, þegar þeir segja að það hafi
verið stolið af þeim. Konu sem hefur
verið nauðgað er ekki trúað ef hún
var drukkin. Hvar værum við stödd
ef réttarkerfið færi svona með mál á
öllum sviðum?“
Í helgarblaðinu sagði Valtýr
að áfengisdrykkja skipti að sjálf-
sögðu máli varðandi trúverðug-
leika kvenna og því sé alltaf reynt að
spyrja ítarlega um áfengisneyslu.
Óásættanleg viðhorf
Í sama viðtali fór Valtýr einnig yfir
þau mál þar sem konan ber því við
að hafa frosið. Sagði hann meðal
annars: „Ég hef séð nokkur svona
mál. Það er ekki óalgengt að fólk
hafi verið saman. Þau byrja að kyss-
ast og láta vel að hvort öðru. Síðan
allt í einu frýs konan en segir aldrei
neitt. Á hann að ganga út frá því
að konan sé þá andsnúin þessu?
Hvernig á hann að vita það? Er
mælikvarðinn endilega sá að hún sé
ekki virk í rúminu með honum, taki
ekki þátt? Það held ég að sé nú bara
mismunandi.“ Þá sagði hann einn-
ig að algjört passívitet væri ekki skil-
greint sem mótmæli og myndi ekki
duga til sakfellis. Gerandinn yrði að
vita að hann væri að brjóta af sér.
Auður tekur þessi ummæli sem
dæmi um óásættanlegt viðhorf.
„Maðurinn verður að lesa sér til um
viðbrögð við alvarlegu ofbeldi. Ef þú
mætir öflugum andstæðingi þá er
það ekki það fyrsta sem að þú hugs-
ar að fara í slag við hann.“
Hún segir að þetta viðtal hafi
komið sér á óvart. „Ég átti ekki von
á því að Valtýr myndi afhjúpa dóm-
greindarleysi sitt á opinberum vett-
vangi. Þetta er ekki hver sem er sem
þarna talar. Þetta er ríkissaksóknari.
Hann verður að gæta orða sinna og
hann verður að sinna starfi sínu.“
Ekki stætt að sitja áfram
Hún segir að honum sé ekki stætt að
sitja lengur í þessu embætti. „Hann
ætti að segja af sér. Það er mín krafa.
Í ályktuninni óskuðum við eftir því
til vara að hann fengi áminningu frá
ráðherra, sem er hans yfirmaður.
Ráðherra ber að sjá til þess að all-
ir sem búa í þessu landi fái réttláta
málsmeðferð.
Reyndar þætti mér réttast að
víkja honum úr starfi. Ef það er
ólöglegt ætti að vera hægt að leysa
það með því að greiða honum bæt-
ur, það er ekki óyfirstíganlegt fyrir
ríkið. Það er hins vegar óásættan-
legt að hafa ríkissaksóknara með
þessi viðhorf. Hann lýsti nákvæm-
lega sama viðhorfi og yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunn-
ar lýsti fyrir nokkrum vikum og sá
maður var látinn fara.“
„Henni var nær“
Lilja Ólafsdóttir ein af stofnend-
um Rauðsokkuhreyfingarinnar sat
í panel á ráðstefnunni. „Í þessum
greinum í DV skín í gegn að viðhorf
ríkissaksóknara hefur þetta yfir-
bragð: „Henni var nær“. Það kemur
það þannig út að hann líti á fórn-
arlömb nauðgana eins og gert var
í gamla daga, að þau voru stödd á
röngum stað, á röngum tíma, í röng-
um fötum. Henni var nær að þvæl-
ast þetta svona til reika.
Þarna voru ýmis dæmi um við-
horf sem eru hliðholl þeim sem
framdi verknaðinn. Enda er hlut-
fallið á kærðum málum sem enda
með ákærum óskiljanlega lágt. Því
miður grunaði mig að það væri ekki
allt með felldu hjá ríkisaksóknara,
tölurnar tala sínu máli. Svo virðist
sem það sé ekki verið að reyna að ná
fram réttlæti heldur þagga þessi mál
niður. Það er eins og hjá ríkissak-
sóknara sé allt of mikil samúð með
nauðgurum. Eins og það sé hægt að
nauðga af gáleysi. Þegar ríkissak-
sóknari hefur svona viðhorf skil ég
vel að konur veigri sér við að kæra.“
Dæmin sem tekin voru í helg-
arblaðinu um nauðgunarmál sem
felld voru niður hjá ríkissaksókn-
ara urðu þess ekki valdandi að auka
skilning hennar á háu hlutfalli nið-
urfelldra mála. „Þarna fengum við
að sjá valin mál. Kannski voru þau
valin af því að þetta voru mál sem
honum fannst borðleggjandi að
vísa frá, ég veit það ekki. Mér fannst
þessi mál ekki vera þannig.“
„Þeir virðast hafa rétt fyrir
sér“
Eitt af þeim dæmum sem tekið var
fyrir í helgarblaðinu var mál konu
sem kærði eiginmann sinn fyrir ít-
rekuð kynferðisbrot eftir níu mán-
aða hjónaband. Þar segir að konan
hafi sagt tveimur frá málinu, systur
hins kærða og samstarfskonu sinni.
„Maðurinn neitaði auðvitað sök
og systir hins kærða staðfesti ekki
framburð hennar. Hún stóð með
bróður sínum. Hún var ekki hlut-
laust vitni en það var annað vitni í
málinu. Samt var rannsókn máls-
ins hætt. Þá kom einnig fram að
konan hafi verið í langtíma lyfja- og
sálfræðimeðferð sem rekja mætti
til kynferðisofbeldis. Svo vann það
gegn henni hve skammur tími leið
frá því að hún sagði frá ofbeldinu
þar til hún kærði manninn. Kon-
ur sem verða fyrir ofbeldi í para-
sambandi segja yfirleitt ekki frá því
strax. Þær byrgja það inni í sér, skít-
hræddar og veigra sér við að segja
nokkrum manni frá því.
Þessi kona var af erlendu bergi
brotin. Oft eru þessar konur vina-
lausar og einstæðar þar sem þær
hafa ekkert bakland hér á landi.
Þannig að það getur tekið þær rosa-
lega langan tíma að rísa upp gegn
ofbeldinu. Svo hóta þessir menn
þeim að enginn muni taka þær trú-
anlegar, þær muni aldrei fá upp-
reisn æru sinnar þótt þær leggi fram
kæru. Þeir virðast hafa rétt fyrir sér
ef ég skoða þetta mál. Því miður.“
Skelfilegt að hann sitji áfram
Ríkissaksóknari sagði þetta um
málið: „Það vantaði eitthvað í þetta.
Það var alveg ljóst að hún mót-
mælti aldrei eða hafði ekki þorað
því. Hann var nú eitthvað ofbeld-
ishneigður.“ Lilja segir að þetta séu
óskiljanleg ummæli. „Þarna birt-
ist okkur mjög undarlegt viðhorf.
Hér segir Valtýr að maðurinn hafi
verið ofbeldishneigður og að kon-
an hafi ekki mótmælt af því að hún
þorði því ekki en samt telur hann
ekki ástæðu til þess að ákæra. Það
Krefjast afsagnar ríKissaKsóKnara
„Skelfilegt að hugsa til þess að hann sitji
áfram í embætti,“ segir Lilja Ólafsdóttir
um Valtý Sigurðsson ríkissaksóknara.
Í síðustu viku var tvisvar rætt við Valtý
um nauðganir í DV. Lilja segir að viðhorf
hans endurspegli gamla hugmynd um að
konur geti sjálfum sér um kennt sé þeim
nauðgað. Samúðin með nauðgurum sé of
mikil. Dr. Auður Styrkársdóttir vill að
Valtý verði sagt upp og greiddar bætur,
sé uppsögnin ólöglegt. Það sé óásætt-
anlegt að ríkissaksóknari hafi þessi
viðhorf. Guðrún Jónsdóttir talskona
Stígamóta tekur í sama streng. Sé ekki
hægt að víkja Valtý úr embætti verði að
fá sérstakan saksóknara til að fara með
kynferðisbrotamál.
inGiBJörG döGG kJArtAnSdÓttir
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Segir Valtý vanhæfan LiljaÓlafsdóttirsegiraðviðhorfValtýsendurspegligamlarhugmyndirumaðþaðsékonumsjálfum
umaðkennaefþeimsénauðgað.Eftirþessiviðtölséhannvanhæfurtilþessaðfarameðkynferðisbrotamál.
mynd EGGErt JÓHAnnESSon
Það kemur þannig út að
hann líti á fórnarlömb
nauðgana eins og gert
var í gamla daga, að
þau voru stödd á röng-
um stað, á röngum
tíma, í röngum föt-
um. Henni var nær að
þvælast þetta svona til
reika.