Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 13
mánudagur 4. október 2010 fréttir 13
er mjög alvarlegt að ríkissaksóknari
hafi ekki skilning á stöðu þolenda
ofbeldis.
Það er alveg skelfilegt að hugsa
til þess að hann sitji áfram í emb-
ætti. Hann er vanhæfur til þess að
fara með kynferðisbrotamál eftir
að hann er búinn að láta þessi um-
mæli falla. Það er einlæg von mín
að hann muni taka þá ákvörðun að
stíga sjálfur til hliðar.“
„Afhjúpar þekkingarleysi sitt“
Guðrún Jónsdóttir talskona Stíga-
móta tekur undir þetta: „Valtýr af-
hjúpar þekkingarleysi sitt á eðli og
afleiðingum ofbeldis og alvarleika
þess. Hann virðist ekki þekkja það
að algeng viðbrögð við grófu of-
beldi eins og nauðganir eru er hálf-
gert lostaástand, survival instinct.
Viðbrögðin eru ekki alltaf rökrétt.“
Hún hefur oftar en einu sinni feng-
ið til sín konur sem urðu fyrir grófri
nauðgun en viðbrögð þeirra voru
engu að síður eins og um eðlilegt
kynlíf hefði verið að ræða fyrst um
sinn.
„Hann gerir þá kröfu til kvenna
að það sé þeirra að stöðva ofbeldið.
Hann nefnir ekki einu orði ábyrgð
karla, að hann geri kröfu til þess að
mögulegur nauðgari taki ábyrgð á
því að kynlífið fari fram með sam-
þykki beggja aðila. Þar með viðheld-
ur hann aldagömlum viðhorfum
um að það sé kvenna að passa sig og
ef þær geri það ekki geti þær sjálfum
sér um kennt. Það er óásættanlegt.
Gjörsamlega óásættanlegt.“
Hún segir að krafa Stígamóta sé
að allir hafi kynfrelsi við allar að-
stæður. „Það þýðir að kynlíf sé þá og
því aðeins ásættanleg og ánægju-
legt að ljóst sé að allir taki þátt í því
af fúsum og frjálsum vilja. Valtýr
virðist aftur á móti telja að konur
hafi tilkynningaskyldu til nauðgara
og gerir þær ábyrgar fyrir því að láta
hann vita. Hvernig dettur honum
það í hug?“
Nauðgun er ekki hægt að
mæla í tíma
Henni ofbauð einnig vegna ann-
arra ummæla sem Valtýr lét falla
um mál sem var fellt niður þó að
maðurinn hefði játað athæfið.
Var fólkið í ástarleik þegar mað-
urinn fór skyndilega inn í hana.
Þar sem þau höfðu verið í ástar-
leik taldi ríkissaksóknari að mann-
inn skorti ásetning og því væri ekki
hægt að líta á það sem nauðgun.
Sagði hann til dæmis: „Með hlið-
sjón af því sem á undan var geng-
ið í þeirra samskiptum og aðstæð-
um öllum var ekki unnt að byggja á
því að sú háttsemi sem hann játar,
að hafa sett lim sinn í stutta stund
inn í leggöng hennar hafi falið í sér
refsivert athæfi.“ Guðrún segir aft-
ur á móti að nauðgun sé ekki hægt
að mæla í tíma. „Það er hægt að
veita mikla áverka á nokkrum sek-
úndum og skaða fólk á örskamm-
ri stundu. Nauðgunarmál eru ólík
og hafa fjölmargar birtingarmynd-
ir. En þau hafa alltaf alvarleg-
ar afleiðingar. Samkvæmt
lögum eru þetta alltaf með
alvarlegustu brotum sem
hægt er að fremja gegn
annarri manneskju.
Lögin viðurkenna það,
þótt það endurspegl-
ist ekki í þeim dómum
sem falla.“
Eðlilegt að gera sömu kröfu til
karla
Guðrún segir að eftir að hún las
greinina, í síðustu viku þar sem
fram kom að af 130 tilkynningum til
Neyðarmóttökunnar hafi sjö verið
sakfelldir árið 2009, hafi hún farið
yfir komutölur í Stígamót sama ár.
Þegar hún var að draga frá þau mál
sem voru tilkynnt á báðum stöðum,
Neyðarmóttökunni og Stígamótum,
hafi 140 ný mál verið eftirstandandi
þar sem um nauðgun og nauðgun-
artilraun var að ræða. Því hafi þekkt
nauðgunarmál og nauðgunartil-
raunir verið 270 árið 2009.
Hún segir að á síðustu árum hafi
þekktum nauðgunum fjölgað mjög
mikið í Norður-Evrópu. „Það er af
því að konur sætta sig síður við að
það sé brotið á þeim. Á sama tíma
fjölgar þeim málum sem erfitt er að
sanna vegna þess að áfengi er haft
um hönd. Í máli ríkissaksóknara
kom fram að drykkja hefur áhrif á
trúverðugleika kvenna, það skipti
máli hvort þær hafi verið að drekka
og þá hve mikið. Ég gat ekki séð að
hann gerði þá kröfu til karla að þeir
bæru ábyrgð á drykkju sinni og það
hefði áhrif á ábyrgð þeirra í kyn-
lífsathöfnum. Mér þætti eðlilegt að
hann gerði sömu kröfu til þeirra.
Fordómar, þekkingarleysi og
virðingarleysi
„Mjög mörg ummæli í þessari grein
eru í ætt við yfirlýsingarnar sem yf-
irmaður kynferðisbrotadeildar lög-
reglunnar lýsti í viðtali við DV fyrir
nokkrum vikum. Mér finnst alvar-
legt að æðstu menn
á þessum tveimur
lykilpóstum hafi
þessi viðhorf og
velti því fyr-
ir mér hvern-
ig viðhorfin
eru almennt
á þessum
deildum.
Fabúler-
ingar Val-
týs lýsa for-
dómum í garð
kvenna,
þekkingarleysi á ofbeldi og virð-
ingarleysi gagnvart konum. Það er
óásættanlegt. Ég geri þá kröfu að rík-
issaksóknari hafi lágmarksþekkingu
á kynferðisbrotamálum og sjálf-
sagða virðingu gagnvart konum. Það
er mjög alvarlegt mál ef þær konur
sem leita réttar síns mæti þessum
viðhorfum hjá æðsta valdamanni
réttarkerfisins. Hann er lykilmaður í
því að koma málum fyrir dóm.“
Sérstakur saksóknari fyrir
kynferðisbrotamál
Sími Guðrúnar hefur hringt stöðugt
síðustu daga. „Ég hef fengið fjöl-
mörg símtöl bæði frá konum
sem hafa orðið fyrir ofbeldi
og eins frá konum sem
hafa þekkingu á ofbeldi
og ofbýður þessi einhliða
þrönga sýn saksóknara.
Ég hef heyrt viturt fólk
segja að það ætti að ráða
sérstakan saksóknara
sem hefur þekkingu á
ofbeldi og fer með kyn-
ferðisbrotamál. Mér skilst
að Valtýr sé æviráðinn
þannig að það sé ekki
hægt að vísa honum úr starfi. En það
þarf eitthvað að gerast. Ég sé þrennt
í stöðunni, annað hvort verður hann
að fara frá, bæta sig stórkostlega eða
það verður að færa þessi mál á aðrar
hendur.“
Að lokum bendir Guðrún á að
síðasta vetur hafi Navanethem
Pillay, yfirmaður mannréttindamála
hjá Sameinuðu þjóðunum, kom-
ið í heimsókn til Íslands. „Hennar
megináherslur voru að íslenska rétt-
arkerfið yrði að ná betur utan um
þennan málaflokk. Það sama hafa
fleiri fulltrúar alþjóðlegra stofnana
sagt og íslenska ríkið hefur verið
ávítt af eftirlitsstofnunum Samein-
uðu þjóðanna. Ég get ekki heyrt að
ríkissaksóknari deili þeim áhyggjum
heldur ver hann óbreytt ástand.“
Krefjast afsagnar ríKissaKsóKnara
Blöskraði ummælin Auður Styrkársdóttir segir að viðhorf ríkissaksóknara í nauðgunarmálum séu óviðunandi. Réttast væri
að segja honum upp og borga honum bætur, í stað þess að veita honum áminnningu. myNd EggErt jóhANNESSoN
Fabúleringar Valtýs lýsa fordómum í garð kvenna,
þekkingarleysi á ofbeldi og virð-
ingarleysi gagnvart konum. Það
er óásættanlegt.
gerir kröfu um virðingu Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir að Valtýr
hafi orðið uppvís að fordómum, þekkingarleysi og virðingarleysi fyrir konum.
Það er eins og hjá ríkissak-
sóknara sé allt of mikil
samúð með nauðgur-
um. Eins og það sé
hægt að nauðga af gá-
leysi.
Skora á hann að segja af sér Á ráðstefn-
unni Ástir og átök. Kvennabaráttan þá og
nú var skorað á Valtý Sigurðsson ríkissak-
sóknara að segja af sér embætti nú þegar.
Þótti ráðstefnugestum ummæli hans í DV
í síðustu viku afhjúpa vanhæfni hans til
að gegna embætti ríkissaksóknara.