Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Page 14
Það er dýrara að taka rútu frá Reykja-
vík til Akureyrar en að fljúga, þrátt
fyrir að ríkið niðurgreiði sérleyfishöf-
um aksturinn á milli staðanna. Flug-
ferðin til Akureyrar tekur um þrjú
korter á meðan rútuferð á milli sömu
staða tekur um sex stundir. Þegar
kemur að áætlunarleiðum á rútu-
markaði er fákeppni ráðandi í þeim
skilningi að neytendur hafa bara
einn valkost.
Tveir risar
Bílar og fólk ehf, líka kallað Sterna, er
sérleyfishafi áætlunarferða frá höf-
uðborgarsvæðinu, um Vesturland og
norður til Akureyrar. Þeir hafa einn-
ig sérleyfi á ferðum um Suðurland,
Suðausturland og til Egilsstaða. Á
Norðurlandi og á Vestfjörðum eru
smærri aðilar með áætlunarleiðirnar
en á Reykjanesi (til dæmis Keflavík–
Reykjavík) eru Kynnisferðir með tögl
og hagldir, eftir útboð, en sérleyfis-
hafinn er Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum.
10 þúsund til Akureyrar
Athygli vekur að hagstæðara er að
fara með flugvél á milli Akureyrar og
Reykjavíkur eða á milli Reykjavíkur
og Egilsstaða en að taka rútu Sterna.
Gjald fyrir einn fullorðinn með
Sterna til Akureyrar kostar 10.400
krónur. Athugun DV á fargjöldum
með Flugfélagi Íslands til Akureyr-
ar leiðir í ljós að fargjaldið kostar á
bilinu 9.130 til 11.980, eftir því hvort
bónussæti eru laus, en það ræðst af
því hvort pantað er með góðum fyrir-
vara eða ekki. Reyndar má líka kaupa
miða á 5.990 ef nettilboð eru nýtt.
Flugfargjald til Akureyrar, miðað við
ódýrasta kost, er 37 prósent ódýrara
en fargjald með rútu. Þess utan tek-
ur sex sinnum meiri tíma að fjlúga en
að taka rútu.
Til samanburðar má líka nefna að
það kostar um 8.400 krónur að aka
til Akureyrar á einkabíl, miðað við
að hann eyði 10 lítrum af bensíni á
hundraðið og fari í gegn um Hval-
fjarðargöngin á fullu verði. Það er
með öðrum orðum ódýrara að aka
einn á bíl til Akureyrar en að taka
rútu. Ef til dæmis fjórir fara saman í
bíl er kostnaður á mann 2.100 krón-
ur, eða margfallt minni.
58 prósent ódýrara
til Egilsstaða
Svipaður munur kemur einnig í ljós
þegar flugfargjald til Egilsstaða til
Reykjavíkur er skoðað. Það kost-
ar á bilinu 10.465 til 13.320 krónur
en einnig er hægt að kaupa svokall-
að forgangsmiða sem kosta 16.590
krónur. Þá er hægt að kaupa miða
á nettilboði með góðum fyrirvara á
6.990 krónur. Rútufargjaldið kostar
aftur á móti 16.800 krónur fyrir einn
fullorðinn en börn fá fargjald á lægra
verði. Það er með öðrum orðum allt
að 58 prósent ódýrara að fljúga til Eg-
ilsstaða en taka rútu.
„Óheppilegt fyrir neytendur“
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir að
einkaleyfi í geira sem þessum sé að
sjálfsögðu óheppilegt fyrir neytend-
ur. Hann bendir á að margar leið-
irnar séu niðurgreiddar af ríkinu og
hagnaðarvon sé ekki mikil nema
farþegum fjölgi. Eins og ástandið
sé núna sé ekki grunnur fyrir sam-
keppni, því miður. „En ef menn
hækka verðið of mikið á leiðum þar
sem einnig er flogið, þá má segja að
þar sé viss samkeppni,“ segir hann
en ítrekar að þetta sé afar óheppilegt
fyrir neytendur.
Styrktar ferðir
Áætlaður heildarkostnaður vegna
sérleyfisaksturs árið 2010 er 333
milljónir króna. Þar af er leiðin á
milli Reykjavíkur og Akureyrar styrkt
um 48 milljónir króna, Snæfellsnes–
Borgarnes um 23 milljónir króna,
Vík–Höfn um 22 milljónir króna og
akstur á Reykjanesi (aðallega Kefla-
vík–Reykjavík) um 20 milljónir króna.
Þetta kemur fram í samgönguáætlun
2009 til 2012.
Vegagerðin annast eftirlit með
verðum á þeim leiðum sem boðnar
eru út. Verð til farþega fyrir einstak-
ar leiðir má ekki fara yfir ákveðið há-
mark. Þannig má leið sem er styttri
en 100 kílómetrar ekki kosta meira
en 30 krónur á hvern kílómetra, eða
3.000 krónur, svo dæmi sé tekið. Há-
marksgjald á hvern kílómetra lækkar
svo örlítið eftir því sem ferðin lengist.
Í stuttu máli má segja að flestir
aðilar á markaði séu með verðin eins
há og þeim er leyfilegt.
Innanlandsflug er líka styrkt af
ríkinu en ekki leiðirnar frá Reykja-
vík til Ísafjarðar, Akureyrar og Egils-
staða.
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 194,9 kr. verð á lítra 195,7 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,3 kr. verð á lítra 194,3 kr.
bensín
Algengt verð verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,6 kr. verð á lítra 194,6 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,6 kr. verð á lítra 194,6 kr.
Áminning
skilAði ÁrAngri
„Oft er nægilegt að gefa fyrirtækj-
um áminningu um að lagfæra
verðmerkingar,“ segir á neytenda-
stofa.is en stofnunin hefur vald til
að beita sektum ef þörf þykir og
stjórnendur fyrirtækja bregðast
ekki við sem skyldi. Fram kemur
að tekið sé á móti ábendingum í
gegnum heimasíðu stofnunarinnar
og eru neytendur hvattir til að láta
vita ef þeir telja brotið á rétti sín-
um. Tilefni þessa er að dagana 16.
og 17. september fylgdi Neytenda-
stofa eftir ferð sinni á söfn og veit-
ingasölur á söfnum frá því í ágúst.
Hönnunarsafn Íslands, kaffiterían
Gerðarsafni, Súpubarinn í Lista-
safni Reykjavíkur og Kaffitár í Þjóð-
minjasafninu höfðu allar bætt úr
verðmerkingum eftir tilmæli Neyt-
endastofu.
skAmmir í strætó
n „Hann húðskammaði mig fyrir
að vera ekki mættur í strætóskýl-
ið,“ sagði óánægður viðskiptavinur
Strætó bs sem hafði hlaupið nokkur
hundruð metra á harðaspretti til að
ná vagninum. „Bílstjórinn á leið S1
stoppaði fyrir mér um 20 metrum frá
strætóskýlinu en lét mig heyra það,
þó það væri augljóst að
ég hefði gert allt sem
ég gat til að ná í tæka
tíð,“ sagði viðskipta-
vinurinn sem fannst
skammirnar óþarfar,
ekki síst í ljósi þess að enginn
var í vagninum.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
ódýr glerAugu
n Vefverslunin kreppugler.is fær
lofið fyrir að bjóða ódýr en vönd-
uð gleraugu. „Ég hefði ekki haft
efni á því að kaupa mér gleraugu
úti í gleraugnabúð en gat gert það
vegna þessarar verslunar,“
sagði ánægður viðskipta-
vinur við DV. Hann keypti
sér ný og flott gleraugu
á sjö þúsund krónur.
„Sambærileg gleraugu
hefðu kostað mig um
40 þúsund krónur,“
sagði hann.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: bAldur guðmundSSon baldur@dv.is 4. október 2010 mánudagur
HiLLuverðið giLdir „Auglýst verð á vöru á að vera endanlegt verð,
þannig að neytendur eiga að geta treyst því að hilluverðmerking sýni það verð sem þarf
á endanum að borga,“ segir í mola á heimasíðu Neytendasamtakanna, ns.is. Þar segir að
reglur kveði skýrt á um þetta og taka þurfi fram ef virðisaukaskattur eða önnur opinber
gjöld leggist á verðið sem gefið er upp. „Komi upp hærra verð þegar neytandinn ætlar
að greiða fyrir vöruna og ekki er um augljós mistök að ræða, þá á neytandinn rétt á að
fá vöruna á hilluverðinu. Verði fyrirtækið ekki við því eða ef hilluverðmerkingum er sí-
fellt ábótavant, er rétt að tilkynna það til Neytendastofu sem getur beitt úrræðum eins
og sektum á fyrirtæki sem að neita að fara eftir lögum og reglum,“ segir enn fremur.e
L
d
S
n
e
y
T
i
Ódýrara að fljúga en taka rútu
Það er allt að 58 prósent ódýrara að fljúga frá Reykjavík til Eg-
ilsstaða en að taka rútu sömu leið. Það er líka ódýrara að keyra
einn síns liðs til Egilsstaða heldur en að fljúga. Sama gildir um
leiðina frá Reykjavík til Akureyrar þrátt fyrir að ríkið niður-
greiði rútuferðir á milli þessara staða. Stærstu fyrirtækin á
markaði eru nátengd stærstu viðskiptablokkum landsins en
neytendur hafa ekki val um að skipta við aðra.
bAldur guðmundSSon
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Flugvélin hAgSTæðAri Þú sparar peninga með því að fara með flugvél frekar
en rútu – þangað sem það er hægt.
lEið FyrirTæki vErð
Reykjavík – Akureyri Sterna 10.400 kr.
Reykjavík – Egilsstaðir Sterna 16.800 kr.
Reykjavík – Höfn Sterna 12.200 kr.
Reykjavík – Vík Sterna 5.200 kr.
Reykjavík – Selfoss Sterna 1.700 kr.
Reykjavík – Borgarnes Sterna 2.200 kr.
Reykjavík – Hólmavík Sterna 7.600 kr.
Reykjavík – Gullfoss/Geysir Kynnisferðir 3.800 kr.
Reykjavík – Keflavík Kynnisferðir 1.950 kr.
verð með rútu
lEið vErð
Reykjavík – Akureyri 5.990 – 11.980 kr.
Reykjavík – Egilsstaðir 6.990 – 13.320 kr.
verð með flugi
lEið koSTnAður
Reykjavík – Akureyri 8.300 kr.
Reykjavík – Egilsstaðir 11.900 kr.
*miðAð við EyðSlu upp á10 líTrA á hundrAðið og Að FArið Sé um hvAlFjArðArgöng.
ferð með einkAbíl