Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 17
mánudagur 4. október 2010 erlent 17
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur gefið út viðvörun til
allra þegna sinna sem búsettir eru
í Evrópu. Ráðuneytið telur sig hafa
upplýsingar um að hætta sé á röð
hryðjuverkaárása í álfunni.
Óttast er að árásanna sé að
vænta frá al-Kaída-samtökun-
um sem undirbúi nú hryðjuverk í
Evrópu. Því eru Bandaríkjamenn
beðnir um að huga vel að nágrenni
sínu og vera á varðbergi á ferðalög-
um. Samkvæmt tilkynningu frá ut-
anríkisráðuneytinu er staðan sögð
mjög alvarleg.
Ráðamenn í Bretlandi meta nú
stöðuna og ræða hvort hækka eigi
viðbúnaðarstig í landinu gagnvart
mögulegum hryðjuverkum. Nú
þegar er viðbúnaðarstigið þar á því
stigi að hryðjuverk séu talin þar afar
líkleg, næsta stig fyrir ofan er að
búast megi við hryðjuverkaárás á
hverri stundu.
Óttast yfirvöld að verið sé að
skipuleggja röð af hryðjuverkaárás-
um sem svipi til árásanna í Mumb-
ai á Indlandi fyrir tveimur árum þar
sem árásirnar fóru fram á fjölsótt-
um ferðamannastöðum. Eiffelturn-
inn hefur undanfarið verið rýmdur
þar sem grunur lék á að hryðjuverk
yrði framið þar. Þá benda sumir á að
lítil hætta sé á að hryðjuverk verði
framin, en ljóst sé að í kjölfarið verði
fólk Í Evrópu og Bandaríkjunum nú
hræddara en áður.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna gefur út viðvörun:
Vara við hryðjuverkum í Evrópu
árunum fram að albanska banka-
hruninu. Þetta var afskaplega há
upphæð fyrir þessa 3,5 milljóna
manna þjóð þar sem meðallaun
landsmanna vorru um 55 pund í
kringum 1995. Enda var það líka
svo í þessum píramídaviðskipt-
um að margir landsmanna höfðu
selt húsin sín til að fjárfesta í
þeim. Tímabil ógnarbjartsýni tók
við eftir svartnætti kommúnism-
ans þar sem píramídaviðskipti,
sem sennilega eru meðal ein-
földustu og heimskulegustu fjár-
málaafurða sem til eru, áttu að
bjarga landsmönnum frá fátækt.
Það er kannski til marks um
hversu óráðsían var mikil á þess-
um árum í Albaníu að eitt helsta
fjármálagúrúið í landinu var sí-
gaunakona að nafni frú Sudja
sem stýrði einum bankanum
sem hét sama nafni og hún. Su-
dja þessi varð fræg í Albaníu og
kom mikið fram á fjölmiðlum
þar sem hún kvaðst geta spáð
fyrir um þróun fjármálamarkaða
og vaxta á innlánsreikningunum
með því að rýna í kristalskúluna
sína. Albaníubólan endaði svo
með háum hvelli eins og sú ís-
lenska þó vissulega virðist hún
hafa verið jafnvel enn ýktari og
frumstæðari.
Albaníu- og Íslandsbólan
Eftir einkavæðingu Landsbank-
ans og Búnaðarbankans árið 2002
og 2003 tók það íslensku bank-
ana ekki langan tíma að fyllast af
erlendu lánsfé sem mikið fram-
boð var á hjá erlendum bönk-
um. Þessu lánsfé var svo komið í
umferð á Íslandi í gegnum fyrir-
tæki, eignarhaldsfélög og óbreytta
borgara sem mikið var herjað á
um að taka ný og ný lán fyrir nýj-
um og enn betri efnislegum hlut-
um. Þessi innspýting lánsfjár-
magns inn í hagkerfið gat af sér
áður óþekkta bjartsýni og neyslu-
hyggju meðal Íslendinga.
Sú bóla sprakk svo eftir að
lausaféð var uppurið, þrátt fyrir
tilraunir bankanna til að endur-
fjármagna sig með innlánsreikn-
ingum sem buðu ótrúlega háa
vexti eins og Icesave og Edge, og
íslensku bankarnir áttu í erfiðleik-
um með að standa í skilum gagn-
vart erlendum lánardrottnum sín-
um. Glitnir hrundi svo fyrstu eins
og frægt er orðið.
Í Albaníu var vandamálið
bundið við Albaníu að mestu og
góðærið þeirra var ekki fjármagn-
að með erlendu lánsfé nema
að litlu leyti. Hluti af fjármagn-
inu sem notað var til að fjárfesta
í píramídaviðskiptunum kom
frá Albönum sem bjuggu í út-
löndum en annars var að mestu
um að ræða sparifé fólks, tekj-
ur og fjármuni sem það náði sér
í með eignasölu. Ástæðan fyrir
því að Albanir settu peningana
sína í þessi píramídaviðskipti var
að eftir fall kommúnismans féll
framleiðsla saman í verksmiðj-
um sem áður höfðu verið reknar
af ríkinu og atvinnulífið lamaðist.
Fáir fjárfestingakostir voru inn í
myndinni fyrir Albani og koma
þurfti fjármagninu frá Albönum
erlendis í umferð. Í þessum far-
vegi spruttu upp litlir bankar sem
buðu upp á píramídaviðskiptin
og ástandið og fátæktin í landinu
gerðu Albani enn ginnkeyptari
fyrir því að auðgast hratt með lít-
illi fyrirhöfn.
Í tilfellum beggja landanna,
Íslands og Albaníu, varð það svo
hagkerfum þeirra endanlega að
falla hversu eftirlit hins opinbera
með fjármálamörkuðum var tak-
markað sökum þess hversu lít-
il reynsla var fyrir í löndunum af
slíkri fjármálastarfsemi. Afleið-
ingin af þessu varð svo hin sama
í báðum löndunum þá farvegur-
inn væri frábrugðinn: kerfishrun,
stjórnarbylting og tíma- og orku-
frek naflaskoðun í kjölfarið.
Heimildir: Miranda Vickers. The
Albanians: A Modern History.
James Pettifer og Miranda Vickers.
The Albanian Question: Reshap-
ing the Balkans.
ÍSLAND OG ALBANÍA HRUNDU Á SEX ÁRUM
Leiddi af sér byltingu Bankahrunið
í Albaníu leiddi af sér að ríkisstjórn Sali
Berishas, forsætisráðherra Albaníu, var
steypt af stóli árið 1997. Berisha náði
svo aftur stjórnartaumunum og er
forsætisráðherra landsins í dag.
Við Eiffel-turninn Turninn hefur
undanfarið verið rýmdur þar sem
grunur lék á að hryðjuverk yrði
framið þar.
ætLA Að rEkA „Ljósku-
Eyju“ á MALdÍV-EyjuM:
Ljóskur í útrás
Litháískt fyrirtæki stefnir nú að því
að eignast eyju í Maldív-eyjaklas-
anum þar sem einungis ljóskur fá
að starfa. Undanfarið hefur öflug
hreyfing ljóska farið vaxandi í Lithá-
en. Segjast ljóskurnar vera orðnar
þreyttar á því að gert sé grín að þeim
og þær sagðar heimskar. Því hafa
þær snúið vörn í sókn, og stefna nú
að því að sýna fram á hið gagnstæða.
BBC greinir frá þessu.
Fyrirtækið sem ætlar að setja upp
aðstöðu á einhverri eyjunni heitir
Olialia. Þá er hugmyndin sú að ef
einungis ljóskur séu að vinna muni
það leiða til þess að fleiri ferðamenn
koma. Olialia er rekið af ljóshærð-
um konum, og þar starfa einungis
ljóshærðar konur. Fyrirtækið starfar
í mismunandi geirum, allt frá því að
framleiða mat til útgáfu popptón-
listar.
Vandinn er sá að íbúar Maldív-
eyja líta þessa hugmynd ljóshærðu
kvennanna hornauga og segja hana
rasíska.
Eins og gefur að skilja eru íbúar
Maldív-eyja ekki ljóshærðir og munu
konur því þurfa að lita á sér hárið
til þess að fá vinnu. Þá ríkja lög í
landinu sem skylda fyrirtæki til þess
að ráða 50 prósent starfsmanna hið
minnsta úr röðum íbúa Maldív-eyja.
„Þegar konur með dökkt hár vinna
hér, þá eru þær umkringdar öllum
þessum fallegu ljóskum, þannig að
á endanum verða þær ljóshærðar
líka,“ segir Giedre Pukiene deildar-
stjóri aðspurð um málið. Þá segir
hún einnig: „Stelpurnar okkar eru
klárar og þær eru með gráður.“
PAkistAn:
Loka á banda-
ríska herinn
Ástand öryggismála í Pakistan er of
ótryggt til að hægt sé að leyfa flutn-
ing hergagna um ákveðna vegi í
landinu. Því hafa yfirvöld í land-
inu sagt að ein helsta flutningaleið
bandaríska hersins verði ekki opnuð
aftur fyrr en almenningur í landinu
hefur róast, en mikil reiði ríkir þar
vegna mannskæðra loftárása Banda-
ríkjamanna, þar sem notast er við
fjarstýrðar vélar. Bandaríkjamenn
hafa gert loftárásir í Pakistan síðustu
vikur og mánuði sem hafa valdið
mikilli reiði meðal almennings. Þrír
pakistanskir hermenn létu lífið í
einni slíkri árás fyrir helgi. Það leiddi
til uppþota og uppskáru talíbanar
miklar vinsældir með því að lofa því
að þeir myndu ráðast á herflutn-
ingabíla Bandaríkjamanna hvar sem
þeir fyndu þá. Yfirvöld í Pakistan
ákváðu í kjölfarið að banna banda-
ríska hernum að flytja hergögn á
ákveðnum þjóðvegi sem hann hefur
hingað til notað grimmt.