Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 22
22 lífsstíll 4. október 2010 mánudagur
1
finndu innri frið með því að
koma reglu á óreiðuna:
n Aldrei kaupa minjagripi.
n Skildu eina skúffu eða hillu eftir alveg tóma.
n Reyndu að halda yfirborðinu hreinu. Settu
t.d. eldhúsáhöld sem þú notar ekki daglega
ofan í skúffu eða skáp.
n Losaðu þig við dagblöð og tímarit sem þú ert
búin/n að lesa.
n Hafðu ákveðinn stað fyrir alla hluti.
n Gefðu bækur, dót og föt sem enginn fjöl-
skyldumeðlimur notar til þeirra sem þurfa.
n Segðu hrúgunum sem myndast á ganginum,
í hornum og á eldhúsbekkjum og borðum stríð
á hendur.
n Ekki kaupa hluti sem þú hefur enga þörf fyrir
á útsölum .
n Ef þú þarft að setja eitthvað í geymslu ætlarðu
ekki að nota það. Spurðu sjálfa/n þig hvort þú
þurfir virkilega á þessum hlut að halda?
n Ekki hirða það sem aðrir ætla að henda nema
þú fallir gjörsamlega fyrir því. Afþakkaðu ef þú
þarft ekki á því að halda.
n Brotinn gluggi eða húsgagn, illa farin máln-
ing, sprungnar ljósaperur og tómur klósett-
pappírsstandur skapa neikvætt andrúmsloft.
Ekki sætta þig við slíkt.
n Passaðu að eiga nóg af herðatrjám.
n Búðu um rúmið alla morgna.
n Settu lyklana þína alltaf á sama stað.
n Gakktu frá dóti og fötum áður en þú ferð að
sofa.
n Ekki kaupa meira af geisladiskum, DVD og
bókum fyrr en þú hefur lesið, hlustað og horft
á það sem þú átt.
n Passaðu að eiga alltaf nauðsynjavöru eins og
umslög, límband, tannkrem, frímerki, rafhlöð-
ur, plástur og slíkt.
n Ekki hamstra það sem þú hefur enga þörf fyr-
ir.
n Hengdu upp jakkann þinn.
n Fjárfestu í plastboxum.
n Ef þú átt mikið af hlutum sem þú veist ekki al-
veg hvað eru og þorir því ekki að henda – svona
eins og dularfullar rafmagnssnúrur, fjarstýr-
ingar, skrúfur, aukahlutir fyrir ryksugu – skaltu
safna því öllu í eitt box.
n Aldrei láta skúffu eða skáp fyllast svo mikið
að ekki sé hægt að loka.
n Losaðu þig við bilað drasl.
n Ef þú getur ekki fundið eitthvað er kominn
tími til að laga til.
2
Byggðu upp sjálfstraust:
A) Klæddu þig upp:
Fötin skapa ekki manninn en þau hafa áhrif á
líðan okkar. Enginn er meira meðvitaður um
útlit þitt en þú sjálf/ur. Þegar þú lítur ekki vel
út getur það haft áhrif á hvernig þú berð þig.
Farðu reglulega í bað, rakaðu þig, vertu í hrein-
um fötum og fylgstu með tískunni.
B) Gakktu hraðar:
Ein leið til að sjá hvernig okkur líður með okk-
ur sjálf er að fylgjast með göngulaginu. Geng-
urðu hægt? Ertu þreytt/ur? Lufsastu áfram?
Eða er kraftur í þér? Fólk með sjálfstraust geng-
ur hratt. Það veit hvert það er að fara, hvern það
ætlar að hitta og hefur mikilvægum verkefnum
að gegna. Gefðu í.
C) Góð líkamsstaða:
Hvernig við berum okkur segir margt um okk-
ur. Þeir hoknu virðast hafa minna sjálfstraust
en þeir sem eru beinir í baki. Með því að bera
þig vel líður þér ósjálfrátt betur. Stattu bein/n,
horfðu upp og náðu augnsambandi við fólk.
D) Þakkaðu fyrir:
Ef þú einblínir um of á það sem þú vilt mun
hugurinn skapa ástæður fyrir því að þú hafir
það ekki. Ekki dvelja við veikleika þína. Settu
fókusinn á þakklæti. Minntu þig á sigra þína og
hæfileika.
E) Hrósaðu öðrum:
Þegar okkur líður illa með okkur sjálf eigum við
til að fá útrás á öðru fólki með móðgunum og
slúðri. Ekki festast í slíkri neikvæðni. Ekki taka
þátt í illgjörnu baktali og reyndu að hrósa ein-
hverjum daglega. Fyrir vikið verðurðu betur
liðin/n og sjálfstraust þitt eykst. Leitaðu að því
besta í öðrum og finndu það í leiðinni í sjálfri/
sjálfum þér.
F) Sittu fremst:
Sama hvort um skólastofu, vinnustað eða
námskeið keppast margir um að sitja aftast.
Slíkt lýsir lélegu sjálfstrausti. Ekki óttast athygl-
ina.
G) Láttu heyra í þér:
Ekki óttast að láta skoðun þína heyrast í hópi.
Fólk er ekki jafn dómhart og við óttumst. Not-
aðu hvert tækifæri til að æfa þig.
H) Þjálfaðu líkamann:
Líkamlegt heilbrigði hefur gífurleg áhrif á
sjálfstraust okkar. Komdu þér í form og þú færð
meiri kraft og jákvæðni gagnvart sjálfri/sjálfum
þér.
I) Gefðu af þér:
Ekki gleyma þér í eigin löngunum. Hvað með
fólkið í kringum þig? Gefðu af þér og þú munt
ekki hafa jafn mikilar áhyggjur af þínum göll-
um.
3
Minnkaðu ruslið:
n Takmarkaðu „take away“-kaffi og -mat.
n Fáðu endurvinnslutunnu.
n Notaðu margnota innkaupapoka í stað plast-
poka.
n Afþakkaðu tímarit sem þú lest ekki.
n Afþakkaðu ruslpóst.
n Notaðu sama bollann yfir daginn.
n Notaðu margnota klút í stað eldhúspappírs.
n Forðastu vörur sem eru marginnpakkaðar.
n Notaðu plastið utan af blaðinu til að taka upp
hundaskítinn.
n Veldu taubleiur í stað bréfbleia.
4. Komdu reglu á þvottinn:
n Komdu þér upp reglu. Ef þú býrð ein/n eða
tvö saman þurfið þið að þvo þvott tvo daga vik-
unnar. Ef þið eruð þrjú eða fjögur í heimili er
nauðsynlegt að þvo annan hvern dag. Ef þið
eruð fimm eða fleiri skaltu alla vega henda í
eina vél á dag. Ekki láta tauið safnast upp.
n Fjárfestu í nokkrum litlum þvottakörfum.
Hafðu eina inni á baði, eina inni í svefnher-
bergi og eina í þvottahúsinu.
n Gefðu föt sem þú notar ekki.
n Ekki kaupa fleiri föt en þú hefur pláss fyrir.
n Kauptu föt sem þarf ekki að strauja.
n Skelltu þér í náttfötin klukkutíma áður en þú
ferð í rúmið svo þú freistist örugglega ekki til að
skilja fötin eftir á gólfinu.
n Hentu fötum með blettum sem nást ekki úr.
n Hafðu herðatré við hendina í þvottahús-
inu svo þú getir hengt upp föt sem mega ekki
krumpast á snúruna.
n Haltu þvottahúsinu hreinu og snyrtilegu.
5
skipulegðu:
A) Hentu áður en þú byrjar. Ekki finna staði
fyrir rusl og drasl. Losaðu þig við það!
B) Skrifaðu allt niður! Eins frábær og heilinn
er getur hann ekki munað allt. Ekki nota heil-
ann sem geymslupláss fyrir atriði sem þú get-
ur auðveldlega skrifað niður.
C) Gakktu strax frá hlutunum! Ekki geyma
drasl á stofuborðinu eða öðrum dæmigerðum
geymslustöðum.
D) Gakktu vel um! Settu leirtauið ofan í vask-
ann eða strax í uppþvottavélina í stað þess að
láta það sitja á borðum og bekkjum. Vaskaðu
upp jafnóðum og þú eldar og aldrei yfirgefa
húsið í rusli.
E) Komdu þér upp rútínu! Það er eitthvað
ofsalega notalegt við hreint og drasllaust
heimili. Búðu til dagatal og fáðu alla fjölskyld-
una með í lið.
F) Skiptu yfir í þráðlaust.
6
Ekki láta tæknina trufla þig:
Kíktu einu sinni eða tvisvar á dag á tölvupóst-
inn þinn, Twitter og Facebook-síðu þína. Það
fer ótrúlegur tími í að sinna þessu öllu saman.
Láttu kúnnana vita að þú munir skoða tölvu-
póstinn þinn næst klukkan 16.
7
farðu fyrr á fætur:
n Ekki gera rótækar breytingar á svefnvenjum
þínum. Byrjaðu hægt. Vaknaðu korteri fyrr í
nokkra daga og færðu vekjaraklukkuna svo
fram um korter í viðbót.
n Farðu fyrr að sofa. Lestu bók ef þú ert ekki
þreytt/ur.
n Færðu vekjaraklukkuna frá rúminu þínu svo
þú verðir að standa upp til að slökkva á henni
en freistist ekki til að lúra lengur.
n Farðu strax út úr svefnherberginu þegar
klukkan hringir. Píndu þig til að standa upp svo
þér takist ekki að sannfæra þig um að leggjast í
rúmið örlítið lengur.
n Fáðu þér góðan morgunverð svo þú hlakkir
til að vakna.
23 lEiðir
til að auka lífshamingju þína
umsjón: indíana hreinsdóttir indiana@dv.is