Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Page 23
mánudagur 4. október 2010 lífsstíll 23
n notaðu allan þennan auka tíma. Ekki fara
beint í tölvuna og ekki gleyma þér á Facebook
næstu tvö tímana. Byrjaðu daginn!
8
Heillaðu við fyrstu kynni:
n Brostu og hallaðu þér að öðrum þegar þeir
tala.
n Snúðu þér að manneskjunni sem er með
orðið.
n Spurðu spurninga sem snúa að tilfinningum
og möguleikum, ekki aðeins staðreyndum.
n Ekki grípa fram í.
n Hrósaðu.
n Finndu sameiginlegt áhugamál.
n Gerðu grín að sjálfum/sjálfri þér.
n Hvettu aðra til að taka þátt í umræðunum.
n Settu kraft í rödd þína.
n Ekki byrja á neikvæðri setningu.
n Talaðu um áhugamál þín.
n Ekki tala bara um sjálfa/n þig.
9
Ekki hugsa um vinnuna öllum
stundum:
n Farðu lengri leiðina heim ef þú hefur átt erf-
iðan dag á skrifstofunni. Kveiktu á útvarpinu og
leyfðu huganum að fara yfir daginn helming-
inn af leiðinni. Skiptu yfir á tónlistarstöð þeg-
ar þú ert hálfnuð/hálfnaður heim og hættu að
hugsa um vinnuna.
n Jafnvel þótt þú sért stór karl í vinnunni er ekki
þar með sagt að þú getir gert kröfur heima fyrir.
Mundu að heimilisfólkið fær ekki borgað fyrir
að sjá um þig.
n Fáðu að pústa út í 15 mínútur eftir að heim
er komið.
n Flest þurfum við einhvern tímann að vinna
um helgar eða á kvöldin. Gerðu það þegar
nauðsyn krefur en ekki taka upp fartölvuna
bara til að kíkja á póstinn þinn.
n Leggðu í vana þinn þegar þú kemur heim
að spyrja makann hvernig dagurinn var og
HLUSTAÐU.
nÞótt þú viljir ekki trúa því eru allar líkur á að
fyrirtækið muni lifa af án þín.
n Veldu tíma þegar öll vinna er bönnuð.
n Vaknaðu fyrr. Taktu frá eigin tíma en ekki
tíma fjölskyldunnar. Þú gætir komist heim fyrr
í staðinn.
10
Gefðu ferilskrá þinni andlitslyft-
ingu og forðastu eftirfarandi:
n Skreyttan pappír.
n Times New Roman.
n Pínu lítið letur.
n Gráan texta.
n Myndir og skreytingar.
n Furðulega pappírstærð.
n lárétt format.
11
Bættu krafti út í lífið:
n Ræktaðu líkamann – jafnvel tíu mínútna
göngutúr mun bæta skapið og orkuna.
n Hlustaðu á skemmtilega tónlist.
n Fáðu nægan svefn.
n Hreyfðu þig hraðar.
n Talaðu við vini.
n Komdu hlutunum í verk.
n Ekki nota óhollan mat til að næla þér í orku.
12
Komdu hlutunum í verk:
n Segðu sjálfri/sjálfum þér að þú þurfir bara að
vinna að verkefninu í fimm mínútur. Svo lítil
vinna er varla fráhrindandi.
n Byrjaðu bara! Um leið og þú byrjar á ein-
hverju er mun auðveldara að halda áfram.
nVerðlaunaðu þig. Ekki fara á Facebook fyrr en
þú hefur lokið ákveðnu verki.
n Vektu áhuga þinn á verkefninu.
Af hverju hræðistu verkefnið?
Það er of umfangsmikið:
n Brjóttu stórt verkefni niður í mörg lítil verk-
efni.
Þú býrð ekki yfir almennilegri kunnáttu:
n Leitaðu þér upplýsinga áður en þú byrjar.
Farðu á netið, talaðu við einhvern sem hef-
ur leyst svipað verkefni, lestu bók eða farðu á
námskeið. Æfðu þig svo.
Þú einblínir á það neikvæða:
nEkki einblína á hindranir. Reyndu að finna
lausnir. Horfðu á það sem þú munt fá út úr
verkefninu – tækfæri til að læra, tækifæri til að
bæta þig, tækifæri til að auka tekjur, byggja upp
frama..
13
Komdu í veg fyrir ónæði:
A) Settu upp heyrnartól:
Jafnvel þótt þú sert ekki að hlusta á neitt gefa
heyrnartólin til kynna að þú viljir fá að vera í
friði. Veldu stór og mikil heyrnartól sem fara
ekki fram hjá neinum.
B) Skoðaðu póstinn tvisvar á dag:
Kíktu á tölvupóstinn á morgnana og á kvöldin.
Slökktu á öllum hljóðmerkjum sem tölvan gef-
ur frá sér.
C) Láttu vita:
Segðu viðskiptavinum að þú kíkir aðeins tvisv-
ar á póstinn daglega.
D) Komdu í veg fyrir ruslpóst
Tölvupóstforritiði þitt getur auðveldlega fyllst
af ruslpósti sem getur skapað meiriháttar trufl-
un. Bannaðu allt „spam“.
E) Slökktu á hringingunni:
Ef þú misstir af einhverjum símtölum geturðu
hringt til baka þegar þú tekur þér pásu.
14
Borðaðu hægar:
n Samkvæmt rannsóknum borðum við minna
þegar við borðum hægar.
n Það er erfitt að njóta matarins þegar við
skóflum honum í okkur.
n Meltingin hefst í maganum og því hægar sem
við borðum því síður verður okkur illt í magn-
um.
15
forðastu dýr DIY (do it yourself)
mistök:
n Ódýr verkfæri, engin verkfæri, röng verkfæri
n Súperman/súperwoman-sjúdómurinn.
n Ekkert vinnuleyfi.
n Of mikill sparnaður á efni.
n Hroðvirkni.
n Lítil forvinna.
n Engin kunnátta.
16
lestu klassískar bókmenntir:
n Auktu þannig orðaforðann.
n Bættu stafsetninguna.
n Skerptu á hugarstarfseminni.
n Fáðu góðar hugmyndir frá löngu látnum rit-
höfundum.
n Aflaðu þér þekkingar.
n Taktu þátt í alvarlegri umræðu.
17
Njóttu líkamsræktarinnar:
n Færðu þig út úr líkamsræktarstöðinni og út
í náttúruna.
n Fáðu vin, vinkonu eða fjölskyldumeðlim til
að hreyfa sig með þér.
n Gerðu leik úr hreyfingunni og tíminn mun
fljúga áfram.
18
Komdu hreyfingu inn í daglega
rútínu:
n Æfðu alltaf á mánudögum og stilltu þannig
hugann fyrir komandi viku.
n Aldrei sleppa tveimur dögum í röð.
n Ekki tengja árangur við tölu á vigtinni.
n Þótt þú eigir kort í ræktina ertu ekki sjálfkrafa
byrjuð/byrjaður að æfa.
n Þótt þú hafir verið í formi í framhaldsskóla
ertu það ekki endilega í dag.
n Þó þú segist ekki hafa tíma til að hreyfa þig
þarf það ekki að vera satt.
19
stefndu hærra:
n Hafðu hugann opinn – þú getur ekki bætt
kunnáttu þína nema þú sért opin/n fyrir tæki-
færum. Ekki sætta þig við stöðuna. Það er alltaf
hægt að gera betur. Hafðu augu og eyru opin
svo þú missir ekki af neinu og íhugaðu jafnvel
furðulegustu hugmyndir.
n Örvaðu hugann – við verðum færari eftir því
sem við verðum klárari. Vertu forvitin/n. Próf-
aðu þig áfram þangað til þú finnur bestu leið-
ina. Fylgstu með því sem aðrir eru að gera.
Lestu bækur og greinar um fjölbreytt efni.
Kannaðu hugmyndir sem skjótast upp í hug-
ann um miðja nótt.
n Leitaðu leiðsagnar – það er afar líklegt að þú
þekkir einhvern sem er betri í ákveðnum verk-
efnum en þú. Biddu sérfræðingana um aðstoð.
n Ekki sætta þig við sæmilegt – auðvitað eigum
við að vera þakklát fyrri það sem við höfum en
það ætti ekki að stoppa okkur í að reyna að gera
enn betur. Heimurinn er á stöðugri hreyfingu
og ef þú fylgir ekki með muntu staðna.
20
Vertu skemmtilegt foreldri:
n Fáðu barnið þitt til að skella upp úr alla vega
einu sinni á dag.
n Ekki gera neitt þrjá daga í röð nema þú sért
tilbúin/n til að gera hlutinn daglega. Dæmi: Ef
barnið þitt er með hita og þú leyfir því að sofa
upp í skaltu takmarka það við tvær nætur. Ann-
ars muntu aldrei koma því úr rúminu þínu aft-
ur.
n Syngdu í morgunsárið. Sérstaklega ef þú ert
laglaus því þannig færðu alla fjölskylduna til að
brosa.
n Passaðu að fá nægan svefn.
n Ekki láta skapið bitna á börnunum.
n Við erum fljót að venjast lúxusvarningi. Ekki
kaupa allan heiminn handa börnunum þínum.
Þau verða miklu ánægðari með gjafir sem þau
fá sjaldan.
n Passaðu að einu orðin sem börnin þín heyra
frá þér séu ekki neikvæð. Dæmi: Ekki – Nei –
Hættu. Reyndu að mynda jákvæðar setningar
sem þýða það saman. „Já, þú mátt fara frá borð-
inu um leið og þú hefur lokið við matinn“ í stað
þess að segja: „Nei, þú mátt ekki fara fara frá
borðinu fyrr en þú ert búinn“.
n Láttu barnið vita að þú ætlir að laga til í her-
bergi þess. Mörg börn kunna ekki við grams-
andi foreldra og taka því verkið sjálf að sér.
n Notaðu stuttar, hnitmiðaðar setningar.
Dæmi: „Sittu í stólnum.“ – „Þú getur meitt þig.“
n Ekki ofnota nei-ið. Notaðu það þegar þú þarft
á því að halda.
21
Hættu að tuða:
n Endalausar kvartanir eru þreytandi. Skiptu
yfir í hljóðláta aðferð. Settu þvottakörfuna í
fangið á honum án þess að segja orð. Fylgstu
með því sem gerist.
n Takmarkaðu orðanotkun við eitt orð. Ekki
segja: „Eins og ég er búin að minna þig á millj-
ón sinnum þá eigum við enga mjólk svo ef þú
vilt ekki þurfa að fara út aftur skaltu muna að
koma við í búðinni.“ Prófaðu að segja: „Búðin!
Mjólk!“
n Ekki krefjast þess að hlutirnir séu fram-
kvæmdir eftir þínu höfði.
n Minntu makann á að það er betra að neita
verki en að svíkja loforð. Segðu: „Láttu mig vita
ef þú ætlar ekki að gera þetta svo ég geti gert
þetta sjálf/ur.“
n Vertu viss um að allir séu með verkaskiptingu
á hreinu.
n Taktu verk makans að þér einstöku sinnum
og aflaðu þér þannig góðvildar.
n Deildu verkefnum eftir persónuleika. Ef þú
hatar óumbúið rúm meira en makinn skalt þú
sjá um að búa um.
n Gerðu hlutina sjálf/ur.
n Notaðu „to-do“-lista.
n Sættu þig við hálfan sigur. Kannski setti hann
ekki diskana í uppþvottavélina en að koma
þeim út úr borðstofunni er mikil framför.
n Ekki biðja um hið ómögulega. Ef þú veist að
konan þín mun ekki koma að neinu sem snert-
ir bílinn ykkar vertu þá ekki að biðja hana um
það.
n Ekki gagnrýna hvernig makinn sinnir verk-
efnum. Ekki gera grín að fötunum sem hann
velur á börnin. Ef þú vilt að eitthvað sé gert á
ákveðinn hátt skaltu gera það sjálf.
n Veltu fyrir þér hvort þú getir keypt smá ham-
ingju fyrir peninga. Veistu um ungling sem
væri til í að slá lóðina fyrir smá aur? Hefurðu
efni á heimilishjálp? Ef húsverkin eru að ganga
að sambandi ykkar dauðu verðið þið að leita
hjálpar.
22
Auktu hamingjuna – strax!
A) Auktu orkuna:
Stattu upp og gakktu um gólf þegar þú talar í
símann eða, jafnvel betra, farðu út í hreina loft-
ið. Rannsóknir sýna að þegar við hreyfum okk-
ur hraðar verða efnaskiptin hraðari. Leyfðu
sólinni að skína á þig.
B) Leitaðu til vina:
Skipulegðu hádegis-„hitting“ eða sendu göml-
um vini sem þú hefur ekki rætt við lengi tölvu-
póst. Náin og jákvæð samskipti eru lykillinn að
hamingju.
C) Kláraðu leiðindarverkefni:
Svaraðu erfiðum tölvupóstum, hringdu krefj-
andi símtöl, keyptu það sem þú þarfnast og
pantaðu tíma hjá tannlækni. Þú færð heilmikið
út úr því að geta strikað yfir verkefni á „to do“-
listanum.
D) Skapaðu róandi umhverfi:
Lagaðu til í kringum skrifborðið þitt. Flokk-
aðu pappír, hentu rusli og settu óhreint leirtau
inn í eldhús. Stórir staflar af blöðum virka ekki
vinnuhvetjandi. Aldrei fresta verkefni sem tek-
ur innan við mínútu að leysa.
E) Skipulegðu skemmtun:
Pantaðu bók sem þig hefur langað að lesa eða
planaðu helgarferð með vinunum. Samkvæmt
rannsóknum er regluleg skemmtun lykilatriði
að hamingju og tilhlökkunin skiptir þar mestu
máli. Fáðu vini, fjölskyldu og kunningja til að
taka þátt.
F) Gerðu góðverk:
Gerðu eitthvað fallegt fyrir einhvern og þér líð-
ur strax betur.
G) Brostu:
Þvingaðu bros á varir þínar og það verður fljót-
lega ekta.
23
Hafðu ofan af fyrir börnunum
án sjónvarps:
n Búðu til hús úr teppum og húsgögnum.
n Leiktu tónlist.
n Sestu út í garð með börnunum og ræddu við
nágrannana.
n Bjóddu þeim í göngutúr og spurðu þau um
það sem á vegi ykkar verður.
n Dansaðu með krökkunum.
n Biddu þau um að hjálpa til við heimilisverk-
in.
n Leyfðu þeim að hjálpa til við eldamennsk-
una.
n Leyfðu þeim að vaska upp.
n Biddu um hjálp við að leggja á borðið.
n Sýndu þeim hvernig hægt er að búa til
trommur úr pottum og sleifum.
n Keppið um hver getur öskrað hæst.
n Farðu í feluleik við þau.
n Keppið um hver getur hoppað hæst og lengst.
n Lestu fyrir þau bók.
n Sýndu þeim gömul myndaalbúm.
n Leyfðu þeim að taka myndir af þér.