Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Side 24
Fimm ára samningur hjá ÓlaFi Það er
morgunljóst að Breiðablik er hæstánægt með Ólaf Helga Kristjánsson,
þjálfara Íslandsmeistaranna, en tilkynnt var á lokahófi félagsins á laug-
ardagskvöldið að hann væri búinn að undirrita nýjan fimm ára samning.
Breytist því ekkert og þjálfar Ólafur Blikana til ársins 2015. Ólafur tók við
liði Breiðabliks á miðju tímabili 2006 og stýrði því úr fallbaráttu og upp í
miðja deild. Hann gerði liðið að bikarmeisturum í fyrra en það var fyrsti
titilinn sem karlalið félagsins vann. Hann gerði síðan gott betur í ár og
vann fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins.
Kolbeinn á sKotsKÓnum Landsliðsmaðurinn
Kolbeinn Sigþórsson skoraði annan leikinn í röð fyrir lið sitt AZ Alkmaar
þegar það lagði Heracles, 2-1, í hollensku úrvalsdeildinni. Mark Kolbeins
jafnaði metin í 1-1 en það kom rétt undir lok fyrri hálfleiks en honum
var síðan skipt út af í hálfleik. Kolbeinn skoraði einnig í vikunni gegn
Íslandsvinunum í BATE Borisov þegar liðin mættust í Evrópudeildinni en
þar höfðu Hvítrússarnir öruggan sigur. Kolbeinn mun eflaust leiða fram-
línu íslenska U21 árs landsliðsins þegar það mætir Skotum í umspili um
sæti á EM2011 á laugardalsvellinum á fimmtudagskvöldið.
molar
Skammarlegt
tap tigerS
n Tiger Woods hefur ekki gengið
vel á golfvellinum að undanförnu
og náði þessi slaki árangur hans
nýjum lægðum í
Ryder-bikarnum
í gær. Hann
tapaði þá með
félaga sínum
Steve Stricker í
fjórmenninngi
gegn Luke
Donald og Lee
Westwood 6-5.
Það þýðir að Englendingarnir voru
búnir að vinna sex holum meira en
Bandaríkjamennirnir og kláraðist
leikurinn því á þrettándu holu.
Versti árangur Tigers fyrir þetta var
í Ryder-bikarnum árið 1997 sem
var 5-3 en þá lék hann með Mark
O‘Meara gegn Bernhard Langer og
núverandi fyrirliða Evrópu, Colin
Montgomerie.
Sven-göran
mættur aftur
n Svíinn Sven-Göran Eriksson er
kominn aftur í enska boltann en
nú í næstefstu deild. Hann tók í gær
við Champions-
hip-liði Leic-
ester sem rak
Paolo Sousa á
dögunum. Leic-
ester kom upp í
næstefstu deild
í fyrra og stóð
sig frábærlega
en gengið í ár
hefur ekki verið nærri því jafngott.
Leicester situr í þriðja neðsta sæti,
fallsæti, með átta stig eftir tíu leiki.
Sven-Göran þekkir auðvitað til á
Englandi en hann hefur þjálfað
enska landsliðið, Manchester City
og verið yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá Notts County þó það hafi
verið í stutta stund.
ricky hélt framhjá
n Hneykslismálin í kringum breska
íþróttamenn virðast endalaus.
Hnefaleikakappinn Ricky Hatton
var á dögunum
gripinn með
nefið fullt af
kókaíni og var
keppnisleyfið
tekið af honum.
Hann er farinn
í meðferð en nú
hefur kvenboxari
að nafni Emma
Bow stigið fram í sviðsljósið og sagt
frá ellefu mánaða ástarsambandi
þeirra. Hatton hélt framhjá unnustu
sinni Jennifer Dooley sem er þessa
dagana að reyna hugga vinkonu
sína, Coleen Rooney, eftir að Wayne
Rooney hélt framhjá henni með
vændiskonu.
Sjöundi titill loeb
n Heimsmeistarakeppnin í rallakstri
var jafnóspennandi og vanalega
þetta tímabilið en Frakkinn
Sebastian
Loeb hampaði
sínum sjöunda
heimsmeistara-
titli í gær sem
er met. Þessum
merka áfanga
fagnaði hann
á heimavelli
en Loeb vann
Frakklandsrallið um helgina.
Loeb kom inn í rallið árið 2002, þá
á Citroen, en hann hefur haldið
tryggð við bílaframleiðandann síðan
og unnið samfellt frá árinu 2004.
Þriðja árið í röð vann Citroen í flokki
bílaframleiðanda en Citroen hefur
unnið þann titil í sex skipti á síðustu
átta árum.
24 sport UMSjÓn: TóMaS þóR þóRðaRSOn tomas@dv.is 4. október 2010 mánudagur
Í fyrsta skiptið klárast Ryder-bikar-
inn á mánudegi en mikil úrkoma hef-
ur gert kylfingum óleik um helgina. Í
gær náðist að klára 3. umferð þar sem
leiknir voru tveir leikir í fjórmenningi
(Tveir saman sem slá til skiptis einn
bolta ) og fjórir leikir í fjórbolta (Tveir
saman og betra skor á hverri holu tel-
ur ). Bandaríkin höfðu yfir, 6-4, fyrir
þriðju umferðina en nú hefur Evrópa
stungið af en Bandaríkin fengu að-
eins hálfan vinning í gær gegn fimm
og hálfum vinningi Evrópu.
Phil Mickelson tapaði enn einum
leiknum en þessi magnaði kylfing-
ur sem er einn sá besti í heimi bætti
afskaplega vafasamt met í gær. Hann
tapaði þá þriðja leik sínum í Ryder-
keppninni í ár en samtals hefur hann
tapað sautján leikjum í Ryder-bikarn-
um. Hann bætti því met Raymonds
Floyd sem tapaði sextán leikjum á
sínum tíma.
Einu Bandaríkjamennirnir sem
náðu í eitthvað í gær voru Stewart
Cink og Matt Kuchar sem gerðu jafn-
tefli við Molinari-bræðurna, Franses-
co og Eduardo. Náðu Ítalarnir í hálf-
an vinning með því að vinna átjándu
holuna.
Í dag verða leiknir tólf tvímenn-
ingar þar sem tveir leika einfaldlega
á móti hvor öðrum. Eru því tólf vinn-
ingar í boði en Evrópa þarf aðeins að
vinna fimm af þessum tólf leikjum
til að tryggja sér Ryder-bikarinn sem
Bandaríkin unnu síðast á heimavelli.
tomas@dv.is
Bandaríkin fengu hálfan vinning í gær:
Evrópa stakk Bandaríkin af
Það er lítill stórveldisbragur á liði
Liverpool þessa dagana og eflaust
margir farnir að sakna Rafaels Ben-
itez úr stjórastólnum. Byrjun liðs-
ins undir stjórn Roy Hodgson fór úr
öskunni í eldinn í gær þegar Liver-
pool tapaði fyrir nýliðum Black-
pool, 2-1, á heimavelli. Ekki nóg
með að Liverpool tapaði sínum
þriðja leik í deildinni í ár og hafi að-
eins unnið einn, þá er liðið nú kom-
ið í fallsæti ensku úrvalsdeildar-
innar. Eftir sjö umferðir í sterkustu
deild heims er Liverpool í átjánda
sæti með sex stig, jafnmörg og ná-
grannarnir í Everton, en með lak-
ara markahlutfall. Liverpool hefur
aðeins unnið einn deildarleik.
Tveimur undir í hálfleik
Blackpool komst yfir á Anfield með
marki Skotans Charlies Adam úr víta-
spyrnu. Hlutirnir urðu svo verri fyrir
heimamenn undir lok fyrri hálfleiks-
ins þegar Luke Warney jók forystuna.
Liverpool sýndi aldrei sparihliðarn-
ar sem það gerir jafnan fyrir framan
Kop-stúkuna. Gríski miðvörðurinn
Sotirios Kyrgiakos minnkaði mun-
inn snemma í seinni hálfleik en nær
komust heimamenn ekki.
Liverpool gerði markalaust jafn-
tefli við Utrecht í Evrópudeildinni
í miðri viku þar sem liðið var stál-
heppið að sleppa með stig. Byrjun
liðsins hefur verið afleit en eini sig-
ur Liverpool kom á heimavelli gegn
WBA. Þar hafði liðið nauman sigur,
1-0.
óánægðir með byrjunina
„Þetta er mjög vond byrjun á tíma-
bilinu, byrjun sem okkur óraði
ekki fyrir,“ sagði knattspyrnustjóri
Liverpool, Roy Hodgson, við Sky
Sports eftir leikinn. „Við erum mjög
óánægðir með þessa byrjun en við
verðum að lifa með því sem hefur
gerst,“ sagði Hodgson sem tók við
Liverpool í sumar en áður stýrði
hann Fulham alla leið í úrslitaleik
Evrópudeildarinnar í maí.
„Þetta tímabil hefur verið skrýt-
ið. Við erum virkilega óánægðir að
vera með aðeins með sex stig eft-
ir fjóra heimaleiki og þrjá útileiki.
Þetta er ekki ásættanlegt. Við verð-
um að leggja harðar að okkur og
reyna að snúa þessu gengi við,“
sagði Hodgson sem fannst
Liverpool þó spila bet-
ur í seinni hálfleik.
„Mér fannst
Blackpool spila
vel í fyrri hálf-
leik en við vorum
ekki nálægt því að
gera það sem við
getum. Því miður
fengum við á okk-
ur þetta annað mark
rétt undir lok fyrri
hálfleiks. Í seinni hálf-
leik var samt allt ann-
að Liverpool-lið á vell-
inum. Blackpool fær þó
hrós fyrir að komst í 2-0
forystu og halda henni,“
sagði Roy Hodgson.
LiverpooL
í faLLsæti
TóMaS þóR þóRðaRSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Þetta er mjög vond byrjun
á tímabilinu, byrjun
sem okkur óraði ekki
fyrir.
Nýliðar Black-
pool niðurlægðu
Liverpool í ensku
úrvalsdeildinni í
gær þegar þeir lögðu
stórveldið, 2-1, á
Anfield. Liverpool er
í átjánda sæti ensku
úrvalsdeildarinnar
eftir sjö umferðir og
hefur aðeins unnið
einn leik.
Vafasamt met Enginn hefur nú
tapað fleiri leikjum í Ryder-bik-
arnum en Phil Mickelson.
MynD REuTERS