Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Síða 8
8 FRÉTTIR 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Ólafi Þórðarsyni er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild:
Vinir Ólafs vaka yfir honum
Líðan Ólafs Þórðarsonar er óbreytt að
sögn vakthafandi læknis á gjörgæslu-
deild Landspítalans í Fossvogi. Hon-
um er haldið sofandi í öndunarvél.
Samkvæmt heimildum DV blæddi
mikið inn á heila Ólafs auk þess sem
hann hlaut alvarlegan áverka á fingri.
Samkvæmt heimildum DV sitja
nánir vinir ásamt fjölskyldu við
sjúkrabeð hans dag og nótt. Ólafur er
mjög vinamargur og mikil sorg ríkir
nú meðal þeirra.
DV náði tali af vinkonu Ólafs sem
sagðist vera með kveikt á kerti og
hugsa fallega til hans. Hún sagði Ólaf
vera góðan og traustan vin og einn
ljúfasta mann sem hún hafi kynnst.
„Maður vill bara ekki trúa því að þetta
hafi gerst, nú bið ég fyrir bata hans og
sendi honum fallegar hugsanir.“
Eins og áður hefur komið fram
hefur sonur Ólafs, Þorvarður Dav-
íð, játað að hafa ráðist á föður sinn á
hrottalegan hátt. Þorvarður á að baki
langan sakaferil og hefur meðal ann-
ars verið dæmdur fyrir líkamsárás,
fíkniefnasölu og brot gegn vopnalög-
um. Hann var úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald og mun þurfa
að sæta geðrannsókn, en sú rann-
sókn gæti tekið einhvern tíma, að
sögn Friðriks Smára Björgvinssonar,
yfirmanns rannsóknardeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ástæða árásarinnar mun vera sú
að Þorvarður Davíð taldi sig eiga inni
móðurarf og hafði hann átt í hótun-
um við föður sinn í einhvern tíma
áður en árásin átti sér stað, sam-
kvæmt heimildum DV.
Þorvarður Davíð og Þórður Daní-
el tvíburabróðir hans voru ættleiddir
þegar þeir voru ungbörn af Ólafi og
Brynhildi Sigurðardóttur, fyrri eigin-
konu hans sem lést árið 1994.
hanna@dv.is
Mikil sorg í vinahópnum
Vinir Ólafs sitja við sjúkrabeð
hans dag og nótt.
SVIKAHRAPPUR Á ÍSLANDI:
Svíkur Nígeríubúa
um íslenska skreið
„Hann falsar pappíra með íslensk-
um nöfnum og heimilisföngum svo
að hann virðist vera í lögmætum
viðskiptum við íslensk fyrirtæki,“
segir Ingólfur Sveinsson hjá Íslands-
stofu. Íslandsstofa varar við breskum
svikahrappi sem vitað er til að sé nú
staddur hér á landi.
Maðurinn sem bjó á Íslandi um
nokkurra ára skeið stundar útflutn-
ing á íslenskri skreið til Nígeríu.
Samvæmt heimildum DV hefur
hann stundað sýndarviðskipti þar í
landi árum saman en gríðarleg eftir-
spurn er eftir skreið í Nígeríu.
Ingólfur segir þetta skaða ímynd
Íslands á þessum markaði og að
engar smáupphæðir séu í húfi.
„Vegna mikillar eftirspurnar eftir
vörunni borga honum margir fyrir
fram og sitja síðan uppi með vöru af
allt öðrum gæðaflokki en þeir borg-
uðu fyrir, í minna magni eða fá jafn-
vel enga vöru í hendurnar.“
Maðurinn er með íslenskt
skúffu fyrirtæki hér á landi en býr á
Gíbraltar og er með net fyrirtækja
sem hann stundar viðskipti sín í
gegnum.
Sekt yfir Högum
skal standa
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur þess efnis að
Hagar, sem meðal annars reka versl-
anakeðjuna Bónus, þurfi að greiða
315 milljónir króna í stjórnvaldssekt.
Samkeppniseftirlitið komst að
þeirri niðurstöðu í september 2008
að Hagar hefðu misnotað markaðs-
ráðandi stöðu sína með aðgerðum
sem beindust gegn keppinautum
félagsins á matvörumarkaði og með
því brotið gegn samkeppnislögum.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
komst að sömu niðurstöðu í mars
2009 og í febrúar síðastliðnum stað-
festi héraðsdómur úrskurð áfrýjun-
arnefndar. Með dómi sínum stað-
festi Hæstiréttur brot Haga.
Geir vill
verjanda
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, telur að of mikill dráttur
hafi orðið á því að honum sé skip-
aður verjandi vegna málshöfðunar
Alþingis gegn honum. Geir skrifaði
Ingibjörgu Benediktsdóttur, forseta
landsdóms, bréf síðastliðinn mánu-
dag þar sem hann lýsir óánægju
sinni. Samkvæmt bréfinu vill Geir að
Andri Árnason hæstaréttarlögmað-
ur verði skipaður verjandi sinn og
segist Geir krefjast þess að skipunin
fari fram án frekari tafar. Í fréttum á
fimmtudag kom fram að ekkert svar
hefði enn borist við bréfinu.
„Mér höfðu borist hótanir. Ég
hringdi strax í Öryggismiðstöðina
og sagði þeim frá því, sagði þeim
að það væri mikilvægt að þeir færu
strax á staðinn ef kerfið færi í gang,“
segir Sveinbjörn Smári Herberts-
son, eigandi vélsmiðjunnar AR á
Eirhöfða sem brann til kaldra kola
1. nóvember síðastliðinn. Lögregl-
an hefur staðfest að um íkveikju sé
að ræða en ljóst er að bensíni var
hellt inn um bréfalúgu á hurð í að-
alinngangi vélsmiðjunnar.
Mjög ósáttur
Sveinbjörn Smári er mjög ósáttur
við vinnubrögð Öryggismiðstöðv-
arinnar og segir hana hafi brugðist
að öllu leyti í þessu máli. Það var
fyrir um það bil mánuði sem Svein-
birni fóru að berast hótanir, að hans
sögn, og var honum meðal ann-
ars hótað lífláti. Hann fór rakleitt
til lögreglunnar og fékk ráðlegging-
ar um hvernig best væri að tryggja
öryggi sitt og fyrirtækis síns. „Ég fór
til þeirra á Öryggismiðstöðinni og
sagði þeim frá hótununum og að
það væri ákveðinn einstaklingur
sem mætti ekki vera þarna, ítrekaði
að það væri mjög mikilvægt að farið
væri á staðinn ef öryggiskerfið færi í
gang eftir klukkan fimm þegar eng-
inn er á staðnum. Svo virðist sem
þeir hafi ekki skráð nema brot af
þeim fyrirmælum sem ég gaf þeim.“
Sveinbjörn vill ekki fara nánar út í
hótanirnar þar sem hann óttast um
öryggi sitt og fjölskyldunnar.
Bilun í kerfinu
Það var síðan aðfaranótt 1. nóvem-
ber sem Sveinbjörn vaknaði um mið-
nætti við símhringingu frá Örygg-
ismiðstöðinni. Að hans sögn sögðu
þeir öryggiskerfið hafa farið í gang,
en einungis væri um bilun í kerfinu
að ræða. Sveinbjörn gerði ráð fyrir
að maður frá þeim hefði farið á stað-
inn til að ganga úr skugga um að allt
væri með felldu. „Ég vaknaði upp
við símhringingu og sagði þeim að
enginn ætti að vera á verkstæðinu
á þessum tíma sólarhrings en þeg-
ar þeir fullvissuðu mig um að þetta
væri vegna bilunar í kerfinu sagði ég
að við myndum þá skoða þetta bet-
ur í fyrramálið. Ég fór rólegur aftur
að sofa vegna þess að ég treysti því
að þeir hefðu farið sjálfir á staðinn
og athugað málið. Ef ég hefði vitað að
enginn gerði það hefði ég strax farið
sjálfur og kannað hvað væri á seyði.“
Ekki tryggður
Klukkutíma síðar, eða um eittleyt-
ið, hringdi Öryggismiðstöðin aft-
ur í Sveinbjörn og sagði honum að
kviknað væri í fyrirtækinu sem er við
hliðina á mínu. „Það sorglegasta við
þetta er að það hefur sennilega ver-
ið kveikt í húsnæðinu á sama tíma og
kerfið fór fyrst í gang hjá þeim. Þessi
bilun í kerfinu sem þeir töluðu um
hefur verið þegar skynjarinn á hurð-
inni brann í sundur. Ég veit ekki fyrir
hvaða þjónustu ég hef verið að borga
þeim, þeir komu á eftir slökkviliðinu
á staðinn en það var vegfarandi sem
hringdi í slökkviliðið. Þá hefur eld-
urinn sennilega verið búinn að fá að
loga í klukkutíma og tjónið gríðar-
legt.“
Sveinbjörn Smári segir áfallið við
brunann hafa verið mikið. „Áfall-
HANNA ÓLAFSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: hanna@dv.is
Sveinbjörn Smári Herbertsson missti
lífsviðurværi sitt í bruna í byrjun þessa
mánaðar þegar kveikt var í verksmiðju
hans í Höfðahverfinu. Sveinbjörn vill
meina að Öryggismiðstöðin hafi brugðist
skyldum sínum og að hann hafi lifað við
falskt öryggi með öryggiskerfi frá þeim.
MISSTI FYRIRTÆKIÐ
Öryggiskerfið brást Sveinbjörn þar sem eldurinn kom upp.
Eldsneyti var hellt inn um lúgu á hurð. Hann bendir á víra þar sem
búnaður frá öryggisfyrirtæki var tengdur.
Íkveikja Kveikt var í verksmiðju
Sveinbjörns Smára í Höfðahverf-
inu eftir að honum höfðu borist
hótanir. MYND SIGTRYGGUR ARI