Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 18
18 fréttir 19. nóvember 2010 föstudagur BÍLALIND.IS Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900 Við seljum bílinn þinn meðan þú slappar af. Mikil sala! Vilt þú selja bílinn þinn? Settu hann á skrá hjá okkur frítt! Heilbrigðiskerfið gæti Hrunið Guðrún Bryndís Ragnarsdóttir, verkfræð- ingur og sjúkraliði, segir að Íslendingar missi heilbrigðiskerfið úr almannaþjón- ustu yfir í tryggingakerfið innan fárra ára líkt og Hollendingar. Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu geri alla heilbrigðis- þjónustu dýra og bygging sjúkrahúss muni í ofanálag reynast almannaþjónustunni banabiti. Niðurstaðan telur Guðrún verða þá að heilbrigðiskerfið hrynji með jafn- afdrifaríkum hætti og bankarnir. Guðrún Bryndís Karlsdóttir, verk- fræðingur og sjúkraliði, segir hættu á því að Íslendingar gætu misst heil- brigðiskerfið úr almannaþjónustu yfir í tryggingakerfið. Niðurskurður í heil- brigðiskerfinu gæti orðið dýrari en nemur því sem á að spara og of stór bygging sjúkrahúss muni í ofanálag reynast almannaþjónustunni bana- biti. Íslendingar munu þurfa að tryggja sig „Íslendingar gætu þurft að koma upp sjúkratryggingakerfi í náinni fram tíð,“ segir Guðrún. „Þetta er fyrirsjáan- leg þróun sem mögulega er hægt að koma í veg fyrir. Íslendingar eru stoltir af því að búa við gott heilbrigðiskerfi en það er veruleg hætta á að því verði fórnað nú í kjölfar efnahagshrunsins. Eftir slíkt hrun verður þjóðfélagið ann- ars konar en við höfum þekkt. Við höf- um búið við gott heilbrigðiskerfi hér í mörg ár. Við hverfum aftur um áratugi hvað varðar aðgengi að þjónustu.“ Fórnaði framboðinu Guðrún Bryndís kom fram í sjón- varpsþættinum Návígi með Þórhalli Gunnarssyni á dögunum og ræddi um útreikninga sína og tækifæri í hag- ræðingu með verðkönnun á þjónustu sjúkrahúsa – einnig LSH. Hún hætti við framboð sitt til stjórnlagaþings til að geta tjáð sig um málið í fjölmiðlum. Útreikningar Guðrúnar þykja sýna glöggt í hvað stefnir og þann kostn- aðarauka sem fylgir fyrirhuguðum niðurskurði í fjárlögum 2010. Guð- rún telur að ef af niðurskurði verði geti það haft mikil áhrif á þjónustu og lífskjör á landinu öllu. Það hljóti því að vera krafa að slíkar aðgerðir leiði raunverulega til mikils ábata fyrir ríkið og skattgreiðendur. „Mörg dæmi eru um að hagræðingarað- gerðir séu illa undirbúnar og ekki sé gert heildstætt mat á öllum rekstrar- og áhrifaþáttum heldur eingöngu horft á málið út frá þröngum hags- munum einstakra eininga. Þannig getur sparnaður einnar heilbrigðis- stofnunar valdið auknum kostnaði annars staðar og heildar ávinningur verið enginn eða neikvæður.“ Rándýrar, einfaldar aðgerðir Þegar breytingar eru gerðar í heil- brigðisþjónustu er mikilvægt að líta á kerfið sem eina heild og hlutverk hennar í samfélaginu. Sem dæmi nefnir Guðrún að á sjúkrahúsum á landsbyggðinni séu framkvæmdar minni aðgerðir sem ekki séu fram- kvæmdar á LSH og biðlistaaðgerðir, svo sem bæklunaraðgerðir og háls-, nef- og eyrnaaðgerðir – þetta gæti leitt til þess að aðgerðir verði að hluta til framkvæmdar á einka- reknum skurðstofum á höfuð- borgarsvæðinu sem eru dýrari en skurðstofur á sjúkrahúsum á lands- byggðinni. „Þessi þróun gæti orðið afdrifa- ríkari en margan grunar,“ segir Guðrún Bryndís. „Það er afskap- lega óvarlegt að gera ráð fyrir því að LSH geti tekið við öllum þessum að- gerðum án þess að fá greiðslu fyrir. Kostnaður vegna einfaldra aðgerða á landsbyggðarsjúkrahúsum er lítill borinn saman við verðskrá LSH. Það felst ákveðin þversögn í því að ábati náist með því að flytja þjónustu þangað sem kostnaðurinn er hærri.“ 33 milljarðar meðan verið er að skera niður? „Kostnaður við nýbyggingu Land- spítalans var áætlaður um 33 millj- arðar króna árið 2009 og svipuð upphæð árið 2003,“ segir Guðrún Bryndís. „Og það má því velta því fyrir sér hvort þetta sé rétti tíminn til að byggja nýtt sjúkrahús nú þegar verið er að endurskipuleggja heil- brigðiskerfið. Ég tel það vera hagsmuni allra að framkvæmd við þennan nýja Landspítala gangi vel og að það sé hægt að hagræða raunverulega í heilbrigðiskerfinu án þess að það verði því að falli. Almenningur ger- ir sér kannski ekki grein fyrir um- fangi byggingarinnar en í fyrsta áfanga eru um 76 þúsund fermetr- ar: 49 þúsund fermetra sjúkrahús, 10 þúsund fermetra heilbrigðis- vísindadeild, 13 þúsund fermetra rannsóknastofa fyrir sunnan Barna- spítala Hringsins og 4.000 fermetra sjúklingahótel fyrir norðan kvenna- deildarbygginguna. Þá er reiknað með að byggja 36 þúsund fermetra í seinni áföngum. Það skiptir svo miklu máli að vel takist til til þess að heilbrigðisþjónustan geti áfram þjónað landsmönnum. Þá er stað- setningin mikilvæg og í þessu tilfelli er hún afar umdeild eins og ég hef áður rætt. Miðbærinn er alls ekki hentugur byggingarstaður eða hag- kvæmur.“ Þetta er fyrirsjáanleg þróun sem mögulega er hægt að koma í veg fyrir. kRistjana GuðBRandsdóttiR blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is spáir afdrifaríkum afleiðingum Guðrún Bryndístelurhægtaðsnúaóheillaþróuní heilbrigðismálumÍslendingavið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.