Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 55
Háklassa
föstudagur 19. nóvember 2010 sport 55
Hugtakið „tía“ er notað yfir leikmenn sem geta búið til
eitthvað úr engu á vellinum. Leikmenn sem skora mörk,
leggja þau upp og geta breytt leiknum á einu augabragði.
The Sun birti lista yfir tíu bestu tíurnar í sögu knatt-
spyrnunnar þar sem sjálfur Pele trónir á toppnum.
Michel Platini
Frakkland
Ferill: 1972 – 1987 (Nancy, Saint-Étienne, Juventus.)
Leikir (mörk): 432 (224)
Landsleikir (mörk): 72 (41)
Platini var allt í öllu þegar Frakkland varð Evrópu-
meistari árið 1984. Stórhættulegur fyrir framan
markið og einn allra besti leikmaður Evrópu á sínum
tíma. Gat svo sannarlega breytt leikjum þegar
honum datt það í hug.
Dennis Bergkamp
Holland
Ferill: 1981 – 2006 (Ajax, Inter, Arsenal.)
Leikir (mörk): 552 (234)
Landsleikir (mörk): 79 (37)
Hollenski töframaðurinn er jafnan kallaður Messías
í heimalandinu. Bergkamp gerði ekkert hratt en
hann gerði það fallega og af svo mikilli yfirvegun að
stundum mátti halda að hann væri einn á vellinum.
Fyrirmyndaratvinnumaður sem er sárt saknað.
Pele
Brasilía
Ferill: 1956 – 1974 (Santos,
New York Cosmos.)
Leikir (mörk): 1.184 (1.124)
Landsleikir (mörk): 92 (77)
Af mörgum talinn besti knatt-
spyrnumaður sögunnar. Hann
lék þó aldrei í Evrópu en þrír
heimsmeistaratitlar og 77 mörk
í 92 landsleikjum segja þó sína
sögu. Var aðeins sextán ára
gamall þegar hann sló í gegn
með Brasilíu á HM árið 1958. Bestu
íurnar
Maradona
Argentína
Ferill: 1976 – 1997 (Argentinos
Juniors, Boca Juniors, Barcelona,
Napoli, Sevilla, Newell‘s Old Boys.)
Leikir (mörk): 494 (258)
Landsleikir (mörk): 91 (34)
Vandræðagemlingurinn sem allir
elska. Maradona vann HM 1986
upp á sitt einsdæmi og er í harðri
baráttu við Pele um titilinn besti
knattspyrnumaður sögunnar.
Ótrúlegir hæfileikar sem bjuggu í
einum manni.
Zinedine Zidane
Frakkland
Ferill: 1988 – 2006 (Cannes, Bordeaux, Juventus, Real
Madrid.)
Leikir (mörk): 506 (96)
Landsleikir (mörk): 108 (31)
Ekki sá fljótasti í sögunni, en með líklega með þær
mýkstu og fallegustu hreyfingar sem sést hafa í
boltanum. Villimaður með augu í hnakkanum og
fætur úr gulli. Einn sá allra fallegasti á velli í sögunni.
Heimsmeistari með Frakklandi árið 1998.
Johan Cruyff
Holland
Ferill: 1964 – 1984 (Ajax, Barcelona, L.A. Aztecs,
Washington Diplomats, Levante, Ajax, Feyenoord.)
Leikir (mörk): 520 (291)
Landsleikir (mörk): 48 (33)
Johan Cruyff er talinn besti leikmaður sinnar kynslóðar.
Leiddi hollenska landsliðið á HM 1974 með liði sem er
talið besta lið sem aldrei vann HM. Gríðarlega sigursæll
bæði sem leikmaður og þjálfari. Endurhannaði íþrótt-
ina að mörgu leyti bæði sem leikmaður og þjálfari.
Roberto Baggio
Ítalía
Ferill: 1982 – 2004 (Vicenza, Fiorentina,
Juventus, AC Milan, Bologna, Inter, Brescia.)
Leikir (mörk): 488 (218)
Landsleikir (mörk): 56 (27)
Algjör töffari og skruggufljótur en bestur
var hann í að fá boltann fyrir fæturna og
búa eitthvað til. Spilaði með öllum þremur
stóru liðunum á Ítalíu en það hafa ekki
margir gert. Einn af gullmolum ítalskrar
knattspyrnusögu.
Ferenc Puskas
Ungverjaland
Ferill: 1943 – 1966 (Kispest, Budapest
Honvéd, Real Madrid.)
Leikir (mörk): 523 (509)
Landsleikir (mörk): 84 (85)
Enginn í sögunni á betra markamet með
landsliði sínu. Puskas var aldrei sá grennsti
í bransanum en hann kunni svo sannarlega
að fara með bolta. Hann fór fyrir landsliði
Ungverja sem var á hans tíma eitt það besta
í heimi.
Ronaldinho
Brasilía
Ferill: 1998 – ? (Gremio, Paris St. Germain,
Barcelona, AC Milan.)
Leikir (mörk): 309 (128)
Landsleikir (mörk): 87 (32)
Þessi þrítugi Brassi má kannski muna fífil
sinn fegri en fyrir aðeins nokkrum árum gat
hann heillað alla heimsbyggðina með einni
sendingu. Náttúrulega hæfileikaríkur en
elskar því miður aðeins of mikið að dansa
og fá sér.
Michael Laudrup
Danmörk
Ferill: 1981–1998 (KB, Brøndby, Juventus,
Lazio, Barcelona, Real Madrid, Vissel Kobe,
Ajax.)
Leikir (mörk): 479 (130)
Landsleikir (mörk): 104 (37)
Ivan Zamorano kallaði Laudrup alltaf
Snillinginn þegar þeir léku saman hjá Real
Madrid. Enginn Dani hefur átt að fagna
jafnflottum ferli, en honum tókst bæði að
leika með Real Madrid og Barcelona. Var
svo auðvitað Evrópumeistari með Dönum í
Svíþjóð árið 1992.