Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 53
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 SPORT 53
Strákarnir okkar í Þýskalandi 4. HLUTI
hef ekki lesið bókina og get því ekki
dæmt hana.“
Guðjón Valur: „Ef leikmenn vilja
gefa út bók eiga þeir endilega að gera
það. Burt séð frá bókinni er það mjög
gott fyrir íslensku deildina að fá Loga
til að spila. Hann vekur athygli og það
er vonandi að Logi geti fljótlega far-
ið að spila eins vel og þegar hann var
upp á sitt besta. Bókin er ekki slæm
fyrir handboltann. Þetta vekur umtal
sem er jákvætt.“
Róbert: „Mér finnst ekkert að því
að menn gefi út bækur. Byggist þó
svolítið á því hvernig þær eru byggð-
ar upp. Ég geri ráð fyrir að það sé ekki
mikið í bók Loga sem er viðkvæmt
fyrir okkur sem þekkjum hann. Við
vitum hvernig hann er. Í Danmörku
hefur mikið verið gefið út af svona
bókum og að mínu mati er það flott.
Þetta eru íþróttamenn sem margir
líta upp til. Sérstaklega börn. Þegar
ég var yngri vildi ég lesa allar svona
bækur til að skyggnast inn í þennan
heim. Þetta er því hið besta mál.“
Nú berast stöðugar fréttir af slæmu
ástandi á Íslandi. Hvernig kemur
þetta ykkur fyrir sjónir? Flestir ykkar
hafa verið búsettir erlendis í mörg ár
og voru ekki búsettir á Íslandi þegar
góðærið stóð sem hæst. Er óþarflega
mikil neikvæðni á Íslandi?
Róbert: „Þetta var mjög skrýtið.
Eiginlega eins og að horfa á leiksýn-
ingu utan frá. Maður var eiginlega
uppi á pöllum að horfa á góðærið
en horfir síðan á hrunið núna sem er
töluvert alvarlegra. Ég var atvinnu-
maður í handbolta á meðan á góðær-
inu stóð og á ágætis launum en leið
eins og ég væri verkamaður þegar
ég var á Íslandi. Allir á nýjum Range
Rover-bílum. Maður var spurður að
því á hvernig bíl maður væri. Nýjum
Volvo, svaraði ég. Þá var hlegið að
manni. Fjölskyldubíl. Af hverju ertu
ekki á BMW? Þetta var mjög skrýting
stemning. Það er hins vegar erfitt að
setja sig í aðstæður þeirra sem glíma
við erfiðleika heima núna.“
Guðjón Valur: „Ástandið heima
er mjög sorglegt. Mér þótti skrýtið
að á meðan ég var atvinnumaður í
Þýskalandi og á góðum launum voru
jafnaldrar mínir heima komnir með
einbýlishús og tvo bíla og lifði góðu
lífi sem maður skildi ekki alveg. Það
er vont að vera núna hér úti og sjá
fólk heima sem maður þekkir eiga í
erfiðleikum. Að missa vinnu eða eiga
á hættu að missa húsnæði sitt. Ég
vona að það verði hægt að finna góða
lausn fyrir alla aðila.“
Guðjón Valur, hefurðu leitt hug-
ann að því hvað þú ætlar að gera þeg-
ar handboltaferlinum lýkur?
Guðjón Valur: „Ég hef lokið
einkaþjálfaranámi frá Keili. Það gæti
verið að maður færi að vinna við það.
Maður hefur gríðarlegan áhuga á
handbolta. Hvort ég yrði góður þjálf-
ari eða ekki hef ég ekki hugmynd
um.“
Hvernig metið þið möguleika Ís-
lands á komandi heimsmeistara-
móti?
Róbert: „Það fer eftir því hvort all-
ir verða heilir og hvort þeir spili eftir
bestu getu. Þá eigum við góða mögu-
leika. Við þurfum hins vegar á öllum
okkar mönnum að halda og það er
ekkert sjálfgefið að það náist. Það er
hins vegar markmiðið að reyna að
fylgja eftir góðum árangri á síðustu
stórmótum.“
Guðjón Valur: „Ég veit það ekki.
Svo framarlega sem við verðum all-
ir heilir, í góðu standi, þá eigum við
góða möguleika á að ná langt. Ég
væri til í að ræða við þig um markmið
eftir að fyrsti riðillinn í mótinu verð-
ur búinn.“
Guðmundur: „Við erum sterkir
þegar allir eru heilir og í formi. Um
leið og við lendum í meiðslum verð-
ur liðið ekki eins sterkt. Það verður að
sjá hvernig ástandið verður á hópn-
um í byrjun janúar. Þá verður hægt
að gefa meira út um markmið.“
Hvaða ráð hafið þið handa ung-
um, íslenskum leikmönnum sem
eru að spá í að halda út í atvinnu-
mennsku?
Róbert: „Það er mikilvægt að vera
orðinn yfirburðamaður á Íslandi áður
en farið er út. Þetta fer þó svolítið eft-
ir hverju leikmenn eru að sækjast.
Ætla þeir að verða næsti Ólafur Stef-
ánsson eða vilja þeir spila handbolta
samfara námi? Ef menn ætla sér að
ná langt mæli ég samt með því að þeir
klári fyrst menntaskóla og fari í há-
skóla. Handboltamenn fara oft í at-
vinnumennsku mun seinna en knatt-
spyrnumenn. Það er ekkert óalgengt
að þeir bíði þar til þeir verða 23 eða
24 ára. Gott er að vera búinn að fá fína
spilaæfingu heima, góðan líkamlegan
styrk og það er líka mikilvægt að ana
ekki út í einverja vitleysu.“
Guðmundur: „Það er ekkert
hægt að sleppa einhverjum skrefum
í þessu. Menn verða að vera eins vel
tilbúnir og kostur er. Stíga þau skref
sem þarf að stíga og fara ekki of fljótt
í atvinnumennsku. Þeir þurfa síð-
an að velja vel þau lið sem þeir fara
til og þjálfara líka. Oft er það þannig
að menn fá bara eitt tækifæri. Það
þarf að nýta og til þess þurfa menn
að vera tilbúnir. Heima fá menn oft
fínan skóla sem þeir þurfa að nýta.
Menn þurfa helst að hafa náð að
spila fyrir landsliðið.“
Guðjón Valur: „Það er svolítið
vanmetið að íslenskir leikmenn eru
snemma farnir að fá mjög mikilvæg
hlutverk hjá sínum liðum heima.
Þegar ég var 18 eða 19 ára var ég orð-
inn einn af aðalleikmönnum KA.
Farinn að spila fyrir fullri höll á Ak-
ureyri og í úrslitaleikjum. Þetta er
tækifæri sem ungir leikmenn eins
og í Þýskalandi fá ekki. Þeir sitja á
bekknum á þessum tíma og spila
kannski með öðrum flokki. Að berj-
ast um titla í meistaraflokki þegar þú
ert innan við tvítugt er gríðarlega gott
tækifæri. Hvort sem áhorfendurn-
ir eru þúsund eða tíu þúsund. Þeg-
ar þú ert búinn að axla ábyrgð heima
ertu miklu betur tilbúinn að gera hið
sama í atvinnumennsku erlendis.“
BESTIR INNAN FIMM ÁRA
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
ÞJÁLFARI
FÆÐINGARDAGUR 23.12. 1960
FJÖSKYLDUSTAÐA Í sambúð með
Fjólu Ósland Hermannsdóttur
FYRRI LIÐ Víkingur, UMFA, Fram,
Bayer Dormagen og GOG
HÆÐ/ ÞYNGD 175 cm og 79 kg
MENNTUN Meistaragráða í
fjármálum
ÁHUGAMÁL Handbolti, íþróttir,
stangveiði og fjallamennska
UPPÁHALDSTÓNLIST Alæta
UPPÁHALDSBÍÓMYND Dances
with Wolves
UPPÁHALDSMATUR Hangikjöt og
uppstúf
Í HVAÐA SÆTI LENDIR ÍSLAND Á
HM? Kemur í ljós
Róbert
Gunnarsson
LÍNUMAÐUR
FÆÐINGARDAGUR 22.05. 1980
FJÖSKYLDUSTAÐA Giftur
FYRRI LIÐ Fram, Aarhus GF og
Gummersbach
HÆÐ/ ÞYNGD 190 cm og 101 kg
MENNTUN Stúdentspróf
ÁHUGAMÁL Bækur, tónlist, útivera,
listir og börnin mín
UPPÁHALDSTÓNLIST Folk, indí,
rokk og kántrí
UPPÁHALDSBÍÓMYND
Godfather-þríleikurinn
UPPÁHALDSMATUR Jólamatur
Í HVAÐA SÆTI LENDIR ÍSLAND Á
HM? Góð spurning
Guðjón Valur
Sigurðsson
VINSTRI HORNAMAÐUR
FÆÐINGARDAGUR 08.08. 1979
FJÖSKYLDUSTAÐA Giftur og á tvær
dætur
FYRRI LIÐ Grótta, KA, Tusem Essen,
Vfl. Gummersbach
HÆÐ/ ÞYNGD 187 cm (1 cm hærri
en Snorri Steinn), 85 kg
MENNTUN Einkaþjálfari
ÁHUGAMÁL Íþróttir og heilsa og
líka mótorhjól
UPPÁHALDSTÓNLIST Fer eftir
skapi
UPPÁHALDSBÍÓMYND?
UPPÁHALDSMATUR Bæði mamma
og konan mín eru snilldarkokkar
Í HVAÐA SÆTI LENDIR ÍSLAND Á
HM? Í góðu sæti
Þrír góðir Guðmundur Guð-
mundsson er þjálfari Rhein-Neckar
Löwen. Með honum á myndinni eru
lærisveinar hans, þeir Guðjón Valur
Sigurðsson og Róbert Gunnarsson.