Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 19. nóvember 2010 föstudagur
„Ég bið fólk að
láta hana í friði“
Jónína Sigurjónsdóttir, móðir kon-
unnar sem var svívirt opinberlega
eftir að fyrrverandi eiginmaður
hennar var dæmdur fyrir nauðgun,
segist hafa áhyggjur af dóttur sinni.
Konan kom ekki fram undir nafni
þá en hefur ákveðið að koma fram
undir fullu nafni og mynd í kjallar-
grein í blaðinu í dag. Hún heitir Sól-
ey Sveinsdóttir og er sjö barna móð-
ir. Jónína, móðir hennar, segist hafa
áhyggjur af börnunum: „Ég finn til
með Sóleyju og börnunum og hef
áhyggjur af þeim. Ég sé að henni hef-
ur ekki liðið vel. En mig langar ekki
til þess að segja neitt ljótt um þetta
fólk þótt að ég hugsi það kannski.
Ég botna bara ekkert í þessu. Ég skil
ekki hvernig fólk talar. Sóley hefur
ákveðið að standa upp og verjast en
ég er orðin gömul og þreytt. Ég hef
ekki dug í það.“
Eilíf martröð
Sóley lýsti reynslu sinni í viðtali við
DV á mánudaginn. Þar sagði hún
jafnframt að móður sinni liði svo
illa vegna málsins að hún hefði ekki
farið út á tímabili. Jónína staðfestir
það. „Fólk dæmir mig út frá þessu
máli. Jafnvel fólk sem þekkir mig
ekki neitt. Ég finn það alveg. Kannski
er það bara ég, en ég hef það alltaf
á tilfinningunni að fólk kenni mér
um þetta. Ég veit að það er talað um
okkur. Þetta er lítill bær og ég finn
fyrir því. Margir virðast taka und-
ir rógburðinn þótt við þekkjum þá
ekki neitt og höfum ekki einu sinni
hugmynd um hverjir það eru. Engu
að síður virðast þeir taka afstöðu í
þessu máli. Þá hlýtur að vanta eitt-
hvað til þess að tala um. En ég vona
að þetta fólk fari að láta hana í friði.
Hún hefur ekki gert því nokkurn
skapaðan hlut og á þetta ekki skilið.
Ég vona að þetta fari að verða búið
svo hún og aðrir geti farið að jafna
sig. Þetta er bara búið að vera eilíf
helvítis martröð.“
Vill helst halda sig heima
Hún segir að á tímabili hafi fólk ver-
ið leiðinlegt við hana. „Það heilsaði
mér ekki þegar ég mætti því á götum
úti. Það mældi mig út og pískraði
þegar ég gekk fram hjá. Ég vissi al-
veg af hverju það var. Þannig að mig
hefur ekki langað að fara út á meðal
fólks. Ég vil helst halda mig heima.
Þegar dómurinn féll í Hæstarétti
reyndi ég að láta sem ég tæki ekki
eftir því sem var að gerast. Ég gerði
það sem ég ætlaði mér að gera en
talaði helst ekki við neinn. Þá var ég
ekki að angra neinn á meðan. Mér
leið betur með það.“
Örg út í lífið
Fjölskyldan forðast að ræða málið.
„Ég veit ekki hvort aðrir í fjölskyld-
unni hafi upplifað eitthvað sam-
bærilegt. Við reynum að ræða þetta
ekki okkar á milli þar sem við getum
ekkert við þessu gert. Við reynum
bara að lifa lífinu eins og það er. Það
er alla vega enginn að ergja mig með
því að ræða þetta við mig. Kannski
ræða systkinin þetta sín á milli, ég
veit það ekki.
En ég verð að viðurkenna að ég
varð hálf örg út í lífið og tilveruna
þegar þetta mál kom upp. Vegna
þess sem hann gerði henni og því
sem á eftir fylgdi. Menn eiga ekki að
komast upp með svona.“
Vonar að þessu ljúki fljótt
Hún segir að hann hafi heimsótt
hana eftir að naugðunin átti sér
stað. „Ég sagði við hann að mér
þætti það ekki fallegt sem hann
hefði gert. Þá svaraði hann: „Það
getur vel verið,“ og hló. Ég varð reið
og sagði honum að koma sér út.
Síðan hef ég ekki séð hann. Það er
alveg út í hött að halda því fram að
Sóley hafi spunnið þetta upp. Hún
myndi aldrei ljúga þessu upp á
hann. Þá hefði hann líka svarað því
en ekki hlegið. Það er bara verið að
reyna að snúa út úr málinu með því
rægja hana.
Ég hef heyrt af því að henni sé
líka bölvað í sand og ösku á Face-
book. Ég trúi því ekki að heilvita
manneskjur skuli láta svona. Ég bið
fólk að láta hana í friði og leyfa henni
að ala upp börnin sín. Ég vona að
Guð og almættið gefi að þetta sé að
verða búið.“
Jónína Sigurjónsdóttir er móðir Sóleyjar Sveinsdóttur sem
var svívirt á netinu eftir að fyrrverandi eiginmaður hennar
var dæmdur fyrir að nauðga henni. Jónína segir að málið
hafi verið martröð og biðlar til fólks að láta dóttur sína í
friði. Sjálf fer hún helst ekki út úr húsi vegna málsins af
ótta við dóm samfélagsins.
ingibJÖrg dÖgg kJartanSdóttir
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Það heilsaði mér ekki þegar ég
mætti því á götum úti.
Það mældi mig út og
pískraði þegar ég gekk
fram hjá. Ég vissi alveg
af hverju það var.
Ætlar að kæra verstu ummælin
Gróflega var vegið að æru Sóleyjar Sveinsdóttur á
netinu vegna hæstaréttardóms sem féll yfir manni
sem nauðgaði henni. Fólk sem tengdist manninum
tók upp hanskann fyrir hann með því að svívirða
hana. Hún hefur ákveðið að kæra öll ærumeiðandi
ummæli. „Ég talaði við lögregluna og við ætlum að
fara yfir það hvaða athugasemdir voru saknæmar.
Það voru svo margir sem tjáðu sig og sumir oftar en
einu sinni. Sumt var ljótt en er kannski ekki brot á
hegningarlögum. Þannig að við ætlum að leggjast
yfir þetta og sjá svo til hvað verður kært. En ég mun
kæra þessi ummæli.“
Jónas Ottósson, rannsóknarlögreglumaður á
Akranesi, staðfestir að Sóley hafi haft samband við
sig. Hann segir að vegna anna hafi hann þó ekki get-
að hitt hana en ráðgerir að þau fundi í dag, föstudag.
„Þannig að okkur hefur ekki borist formleg kæra. En
þegar hún verður lögð fram munum við skoða mál-
ið, við munum ekki fara almennilega ofan í þetta fyrr.
En ég get ekki tekið neina afstöðu í þessu máli og alls
ekki opinberlega. Við verðum að gæta hlutleysis og
vinna jafnt að sekt og sýknu. Því tjáum við okkur ekki
um mál sem eru í rannsókn hjá lögreglunni. En ég
get sagt þér það að þú hótar ekki fólki. Það er sak-
næmt að hóta fólki. En það þarf alltaf að skoða það
hvaða ummæli eru brot á hegningarlögum og síð-
an er það ríkissaksóknara að meta það hvort það sé
ákært í málinu eða ekki.“