Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Þema náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
2011 er sjálfbær ferðaþjónusta. Verðlaunin verða veitt
í 17. sinn og nema 350.000 dönskum krónum. Þau verða
veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem hefur
verið í fararbroddi og stuðlað að því að draga úr
umhverfisáhrifum ferðaþjónustu á Norðurlöndum.
Öllum er heimilt að senda inn tillögur um verðlaunahafa.
Í tillögunum þarf eftirfarandi að koma fram auk rökstuðnings:
• Kynning og lýsing á starfseminni.
• Hver hefur haft veg og vanda af starfseminni.
• Starfsemin skal vera faglega unnin og hafa þýðingu fyrir
almenning í einu eða fleiri norrænu ríkjanna.
• Tillagan má að hámarki vera tvær A4 síður og skal henta
til fjölföldunar.
Verðlaunahafinn verður valinn af nefnd sem skipuð er
fulltrúum norrænu ríkjanna fimm og sjálfstjórnarsvæðanna
Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Tillögurnar skulu sendar inn á sérstöku eyðublaði og þurfa
að berast skrifstofu sendinefndar Noregs í Norðurlandaráði,
í síðasta lagi föstudaginn 10. desember 2010 kl. 12.00.
Eyðublaðið er hægt að nálgast á vefsíðu Norðurlandaráðs,
norden.org, eða hjá skrifstofu norsku sendinefndarinnar.
Nordisk Råd
Den norske delegation
Stortinget, 0026 Oslo
Sími +47 2331 3568
nordpost@stortinget.no
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Náttúru- og
umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2011
NYTJAMARKAÐIR BERJ-
AST UM VIÐSKIPTAVINI
Hörð samkeppni hefur myndast um við-
skiptavini fyrir jólin á nytjamörkuðum
í Reykjavík. Nýr markaður, sem svipar
mjög til Kolaportsins, var opnaður í
Korputorgi og þá er rekinn jólamarkaður
í Síðumúlanum.
Nadia Tamimi stendur fyrir nýjum
markaði á Korputorgi. Hún ákvað að
láta slag standa og opna nýjan mark-
að í ljósi þess hversu erfiðlega henni
gekk að fá bás í Kolaportinu. „Það er
ekki opið í Kolaportinu dagana fyrir
jól og ekki heldur á virkum dögum og
þess vegna ákvað ég að opna þenn-
an nýja markað,“ segir Nadia. „Ég
var oft búin að fara í Kolaportið og
það gekk svo erfiðlega að fá bás. Þess
vegna ákvað ég að láta slag standa.
Ég ákvað að snúa á kreppuna,“ segir
Nadia full eftirvæntingar.
Frí barnaklipping
Markaður Nadiu á Korputorgi á að
sinna barnafjölskyldum vel og um
síðustu helgi var meðal annars boðið
upp á fría barnaklippingu. Aðspurð
hvernig það kom til að hún ákvað að
opna markað segir hún: „Maðurinn
minn var atvinnulaus og við í vand-
ræðum með að láta heimilishaldið
ganga. Við eigum þrjú börn og erum
sérstaklega meðvituð um hversu erf-
iðlega barnafjölskyldum gengur að
reka heimili. Það er líka þess vegna
sem við leggjum sérstaka áherslu
á að hér sé eitthvað gott í boði fyr-
ir barnafjölskyldur. Við buðum upp
á fría barnaklippingu og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Það var bið-
röð af foreldrum með börn sín langt
út úr dyrum,“ segir Nadia og segir
að uppátækið verði endurtekið fyrir
jól enda víst að fjöldi foreldra hefur
ekki efni á að fara með börn sín í jóla-
klippingu fyrir jólin.
Lifa góðu lífi í kreppunni
Nytjamarkaðir lifa góðu lífi í
kreppunni. Kolaportið og Góði hirð-
irinn voru lengi einna stærstir en nú
spretta upp aðrir nytjamarkaðir víða
um borg og stefnir í mikla samkeppni
fyrir jólin. Umboðssalan er til húsa
við Smáratorg í þúsund fermetra
húsi og þar er ýmislegt í boði, bæði
notað og nýtt. Annan nytjamarkað
er að finna í Mörkinni og enn einn í
Síðumúla sem eykur vinsældir sín-
ar. Nytjamarkaður til styrktar ABC-
barnahjálp í Skútuvogi nýtur einnig
vinsælda fyrir jólin en þar eru til sölu
bæði nýjar og notaðar vörur svo sem
föt, heimilistæki, húsgögn og í raun
allt milli himins og jarðar.
Í Korputorgi eru allir básar pant-
aðir fram að jólum og margir á bið-
listum. Þegar blaðamann bar að
garði voru allir básar fullskipaðir. Á
markaðstorginu mátti meðal ann-
ars finna kæsta skötu og reyktan fisk,
brauð og kökur úr Sveitabakaríi og
vörur undir merki Beint frá býli. Þar
mátti einnig finna heimilisvarning
og notaðan jafnt sem nýjan fatnað á
góðu verði.
KRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Ég ákvað að snúa á kreppuna.
Allir básar fráteknir ÁnýjumnytjamarkaðiKorputorgseruallirbásarpantaðirframaðjólumogmargirábiðlistum.
Hæstiréttur hefur dæmt lögreglu-
manninn Garðar Helga Magnús-
son sekan um brot í opinberu starfi.
Ákvörðun um refsingu Garðars var
frestað og verður hún látin niður falla
haldi hann almennt skilorð í tvö ár.
Garðar var sýknaður í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrr á árinu.
Forsaga málsins er sú að 18. jan-
úar árið 2009 var Garðar, ásamt fleiri
lögreglumönnum, við eftirlit á bíl í
miðbænum þegar þeir voru kvaddir
að veitingahúsinu Apótekinu í Aust-
urstræti. Þar hafði sést maður með
hníf, samkvæmt tilkynningu sem
lögregla fékk.
Þegar lögreglan kom að staðn-
um var þar einnig staddur maður,
fæddur 1987, sem var undir áhrif-
um áfengis. Hóf hann að ausa sví-
virðingum af kynferðislegum toga
yfir lögreglumennina, samkvæmt
dómskjölum. Drengurinn var tekinn
og snúinn niður af lögreglumönn-
unum, handjárnaður og settur inn í
lögreglubílinn. Að því loknu var ekið
með hann út á Granda þar sem hon-
um var sleppt lausum.
Garðari var á engum tíma-
punkti vikið úr starfi á með-
an rannsókn málsins fór fram né
heldur á meðan málið var fyrir dóm-
stólum. Þegar málið var fyrst tekið
fyrir í héraðsdómi sagði Gísli Páls-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
ríkislögreglustjóra, að það hefði ver-
ið tekin ákvörðun um að bíða niður-
stöðu dóms áður en hann yrði send-
ur í leyfi. „Meginskýringin er sú að
það er mat ríkislögreglustjóra að
málavextir séu mjög óljósir um atriði
sem kunna að varða ætlaða sök lög-
reglumannsins,“ sagði hann.
„Ákvörðun G (Garðars Helga
Mangússonar, innsk. blm.) um að
ekið skyldi með A þá leið sem gert
var til að freista þess að róa hann nið-
ur svo lögreglumennirnir kæmust
sem fyrst til að sinna áfram verkefni á
vettvangi lögregluaðgerðar, sem þeir
höfðu verið kvaddir til, ætti sér ekki
stoð í 15. gr. lögreglulaga og rúmaðist
ekki innan almennra heimilda sem
lögregla hefur venju samkvæmt til
að halda uppi lögum og reglu,“ segir
meðal annars í dómnum.
Garðar Helgi hefur starfað sem
lögreglumaður í áratug. Hann var í
viðtali við DV árið 2009 þar sem hann
lýsti því hvernig dagur í lífi lögreglu-
manns gengur fyrir sig. Þar sagðist
hann eiginlega hafa slysast í starfið.
„Ég var í vinnu og átti erfiðan dag.
Ég vaknaði úrillur og fannst vinnan
leiðinleg og langaði að prófa eitthvað
nýtt. Svo heyrði ég að það vantaði í
lögguna þar sem ég var. Allt í einu var
ég bara kominn í lögguna. Bara upp á
djókið. Ég var ekki með neina löggu-
drauma þegar ég var krakki. Ég hafði
aldrei neinn áhuga á lögreglunni
og ætlaði ekki í lögregluna. En allt í
einu var ég kominn í lögguna og ég er
hérna enn þá,“ sagði Garðar.
Saklaus, svo sekur Garðarvarfyrstsýknaðuríhéraðsdómiáðurenhannvar
sakfellduríHæstarétti.
Út fyrir eigið
valdsvið
Lögreglumaður ók með dreng út á Granda og skildi hann eftir:
AÐALSTEINN KJARTANSSON
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is