Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 44
Kristín Eiríksdóttir sendir frá sér bókina Doris deyr fyrir þessi
jól. Hún hefur komist í kast við lögin og getur horft aftur og
aftur á myndina Harold og Maude. Kristínu langar helst að hitta
poppprinsessuna Britney Spears til að geta skrifað ævisögu
hennar og leiðist trúnóröfl.
Nafn og aldur?
„Kristín Eríksdóttir, 29 ára gömul.“
Atvinna?
„Ritstörf.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
Fjöldi barna?
„0.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Fílharmóníuna.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og
af hverju?
„Það er síbreytilegt dæmi,
ástæður óljósar.“
Hefur þú farið í
megrun?
„Ekki skipulega.“
Hefur þú tekið
þátt í skipulögðum
mótmælum?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að
hafa haldið upp á?
„Ekkert.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að hitta vinkonu mína á eftir.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Harold og Maude vegna þess að merkingin í henni er svo
flókin og falleg og stórkostlega framsett.“
Afrek vikunnar?
„Setti upp gardínur.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Já, oft.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Því miður ekki, nema svolítið á
munnhörpu.“
Viltu að Ísland gangi í
Evrópusambandið?
„Óákveðin.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Opinn hugur og náungakærleikur.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella
fullan og fara á trúnó með?
„Engan, leiðist trúnóröfl.“
Hvaða fræga einstakling
myndir þú helst vilja hitta og
af hverju?
„Britney Spears til að skrifa
ævisögu hennar.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Plataði auðtrúa stelpu.“
Ertu með einhverja leynda
hæfileika?
„Teningaspil.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Fer allt eftir skapi.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður
en þú ferð að sofa?
„Segi góða nótt.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Refsing, auðmýkt og lærdómur.“
Langar að skrifa ævi-
sögu Britney Spears
m
yN
d
ir
S
ig
Tr
yg
g
u
r
A
ri
44 hin hliðin 19. nóvember 2010 föstuDagur
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað