Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Page 44
Kristín Eiríksdóttir sendir frá sér bókina Doris deyr fyrir þessi jól. Hún hefur komist í kast við lögin og getur horft aftur og aftur á myndina Harold og Maude. Kristínu langar helst að hitta poppprinsessuna Britney Spears til að geta skrifað ævisögu hennar og leiðist trúnóröfl. Nafn og aldur? „Kristín Eríksdóttir, 29 ára gömul.“ Atvinna? „Ritstörf.“ Hjúskaparstaða? „Í sambúð.“ Fjöldi barna? „0.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Fílharmóníuna.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Já.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Það er síbreytilegt dæmi, ástæður óljósar.“ Hefur þú farið í megrun? „Ekki skipulega.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum? „Já.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Já.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ekkert.“ Til hvers hlakkar þú núna? „Að hitta vinkonu mína á eftir.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „Harold og Maude vegna þess að merkingin í henni er svo flókin og falleg og stórkostlega framsett.“ Afrek vikunnar? „Setti upp gardínur.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Já, oft.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Því miður ekki, nema svolítið á munnhörpu.“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið? „Óákveðin.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Opinn hugur og náungakærleikur.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Engan, leiðist trúnóröfl.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Britney Spears til að skrifa ævisögu hennar.“ Hefur þú ort ljóð? „Já.“ Nýlegt prakkarastrik? „Plataði auðtrúa stelpu.“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Teningaspil.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Fer allt eftir skapi.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Segi góða nótt.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Refsing, auðmýkt og lærdómur.“ Langar að skrifa ævi- sögu Britney Spears m yN d ir S ig Tr yg g u r A ri 44 hin hliðin 19. nóvember 2010 föstuDagur www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. komdu í áskrift! 512 70 80 dv.is/askrift frjálst, óháð dagblað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.