Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Qupperneq 22
22 fréttir 19. nóvember 2010 föstudagur
Stofnandi Wikileaks
í vondum málum
Gefin hefur verið út handtökuskipun
í Svíþjóð á hendur Julian Assange,
stofnanda uppljóstrunarvefsíðunnar
Wikileaks. Assange hefur verið sak-
aður um nauðgun og kynferðislega
áreitni. Marianne Ny, ríkissaksókn-
ari í Svíþjóð, las upp fréttayfirlýsingu
um handtökuskipun Assange, sem
var gefin út af héraðsdómi Stokk-
hólms. Hann hefur enn ekki verið
ákærður og segir Ny að handtöku-
skipunin sé gefin út svo hægt sé
að ljúka við yfirheyrslur í málinu.
Assange hefur staðfastlega neitað
sök, en hann segir að hann hafi haft
mök við meint fórnarlömb með fullu
samþykki þeirra.
Fuglaflensan
komin aftur
Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa stað-
fest að 59 ára kona í Hong Kong
sé smituð af fuglaflensunni, þeirri
sömu og fékk alla heimsbyggðina
til að standa á öndinni á vormán-
uðum árið 2003. Hefur viðvörunar-
stig verið hækkað í Hong Kong og
fólk hvatt til að hafa allan varann á.
Óvíst er hvort konan hafi smitast af
flensunni í Hong Kong eða á megin-
landi Kína, en þangað ferðaðist hún
fyrir stuttu. Samkvæmt ferðafélög-
um konunnar mun hún ekki hafa
komist í snertingu við lifandi fugla á
ferðalagi sínu.
Kínverjar „ræna“
netumferð
Í skýrslu sem var skilað til fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings kemur fram
að kínversku fyrirtæki í eigu ríkisins,
hafi tekist að fá 15 prósent af allri
netumferð í heiminum endurvarpað
í gegnum sína eigin netþjóna. Hafi
fyrirtækið síðan afritað fjölda tölvu-
skeyta og annarra viðkvæmra upp-
lýsinga, meðal annars frá bandaríska
þinginu, varnarmálaráðuneytinu og
geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA. Atvikið átti sér stað 8. apríl og
mun ekki hafa gerst aftur. Kínversk
yfirvöld segja að um óviljaverk hafi
verið að ræða, en Bandaríkjamenn
eru á öðru máli. Telja þeir Kínverja
jafnvel vera að þróa vefvopn (e. cy-
ber weapon), sem gæti lamað inter-
netið í einni andrá.
Sjónvarpskokkurinn Hugh Fearn-
ley-Whittingstall, sem ætti að vera
áhorfendum BBC Food á Fjölvarp-
inu að góðu kunnur, hefur sett af
stað herferðina Fish Fight, sem er
beint gegn brottkasti í Norðursjó.
Í herferðinni er því haldið fram að
allt að helmingi alls afla sem veidd-
ur er í Norðursjó sé kastað fyrir
borð, eða um milljón fiskar á hverju
ári. Með herferðinni vill Fearnley-
Whittingstall berjast fyrir því að
fiskveiðistefna Evrópusambands-
ins verði tekin til gagngerrar endur-
skoðunar. Honum finnst brottkastið
vera hneykslanleg sóun á fullkom-
lega góðum matvælum og fáránlegt
að ekki megi landa fiski sem er tal-
inn of lítill eða af rangri tegund.
Mikill stuðningur
Á aðeins tveimur dögum tókst
Fearnley-Whittingstall að safna
rúmlega 24 þúsund undirskriftum
fyrir Fish Fight og verða þær sendar
til Mariu Damanaki, framkvæmda-
stjóra fiskveiða í Evrópusamband-
inu, ásamt bréfi þar sem þess er
krafist að brottkast verði gert ólög-
legt. Ekki er haldin tala um magn
þess afla sem kastað er fyrir borð í
Norðursjó en sérfræðingar segja, að
það sé að minnsta kosti fjórðung-
ur alls afla sem veiddur er. Callum
Roberts, prófessor í fiskifræðum við
háskólann í York, telur að um helm-
ingur aflans lendi í sjónum og að
„talan gæti jafnvel verið hærri.“
Fearnley-Whittingstall segir að
fiskveiðistefnunni sé um að kenna.
Hann vill að það verði helsta mark-
mið sjávarútvegsráðherra aðild-
arríkja Evrópusambandsins, að
banna brottkast, þegar ráðherra-
fundur verður haldinn um úrbæt-
ur á fiskveiðistefnunni. „Brottkast
er nú óhjákvæmileg afleiðing fisk-
veiðistefnunnar og kvótakerfisins.
Fiski er hent í hafið vegna þess að
það er gert ólöglegt að landa hon-
um.“
Ráðherra og umhverfis-
verndarsinnar taka undir
Sjávarútvegsráðherra Bretlands,
Richard Benyon, fagnar baráttu
Fearnley-Whittingstall. „Brottkastið
er einn mesti bresturinn sem er að
finna í sameiginlegu fiskveiðistefn-
unni. Ég og Fearnley-Whittings-
tall erum í sömu baráttu. Ég er að
vinna að því að binda endi á þessa
skammarlegu iðju, sem hefur verið
þvingað upp á útvegsiðnaðinn og
hefur greinilega engan tilgang leng-
ur.“
Umhverfisverndarsinnar hafa
löngum kvartað vegna mikils brott-
kasts í sjávarútveginum. Samtök-
in Fish2Fork berjast fyrir sjálfbærri
nýtingu sjávarfangs, og Charles
Clover er talsmaður þeirra. „Það
er frábært að maður með aðdrátt-
arafl eins og Fearnely-Whitting-
stall skuli veita þessu máli athygli.
Það þýðir að stærri hluti almenn-
ings mun sjá hve mikið af fiski er í
raun veitt, en örlög aflans eru sorg-
leg. Það er hræðilegt að við getum
ekki forgangsraðað veiðiaðferðum
þannig að við þurfum ekki að henda
hundruðum þúsunda tonna í sjó-
inn á hverju ári. Í Bandaríkjunum
eru línuveiðar til dæmis mun út-
breiddari en í Evrópu.“
Ný og bætt stefna í
burðarliðnum
Fiskveiðistefna Evrópusambandsins
er í endurskoðun um þessar mund-
ir en ný stefna verður kynnt árið
2013. Maria Damanaki vinnur nú
að tillögum um úrbætur sem verða
kynntar sjávarútvegsráðherrum að-
ildarríkja innan skamms. Markmið-
ið er að búa til „skynsamlega stjórn-
un fyrir fiskistofna á 21. öldinni.“ Á
miðvikudag sagði Damanaki í við-
tali á miðvikudag: „Ég er að undir-
búa úrbætur á fiskveiðistefnunni
og ég mun veita brottkasti sérstaka
athygli. Brottkast verður að forðast,
með einum hætti eða öðrum.“
baráttan gegn
brottKaStinu
Sjónvarpskokkurinn Hugh Fearnley-Whittingstall hefur hafið herferð gegn brott-
kasti í Norðursjó. Sjávarútvegsráðherra Bretlands fagnar baráttunni og segir fisk-
veiðistefnuna ónýta í núverandi mynd. Ný stefna er væntanleg 2013.
bjöRN teitssoN
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Brottkast verður að forðast, hvern-
ig sem mögulegt er.
Ráðalaus? Maria
Damanakivinnur
núaðúrbótum
ásameiginlegri
fiskveðistefnuESB.
MyNd ReuteRs
Hugh Fearnley-Whittingstall Vannaðheimilda-
myndumfiskveiðaroghneykslaðistábrottkasti.
MyndinverðursýndíBretlandieftiráramót.