Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Síða 40
Guðmundur fæddist í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949, prófi í forspjallsvísindum frá Háskóla Íslands 1950, stundaði frönskunám við Háskóla Íslands einn vetur, var við nám í píanóleik hjá Gunnari Sigurgeirssyni 1939– 41, hóf nám hjá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1941 og lauk þaðan prófi 1948 þar sem hann lagði einkum stund á píanóleik en aðalkennari hans þar var Árni Kristjánsson, var í einkatímum í píanóleik hjá Árna Kristjánssyni og Rögnvaldi Sigur- jónssyni 1948–50, hóf nám við Tón- listarháskólann í París 1950 og lauk þaðan prófi 1953. Guðmundur var píanókenn- ari við Tónlistarskólann í Reykjavík 1953–61, skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga 1970–71, söngkennari barna- og unglingaskólans á Hvols- velli og Hellu 1970–71 og píanó- kennari við Tónlistarskólann í Kópavogi 1971–94 er hann fór á eft- irlaun. Guðmundur var framkvæmda- stjóri járnvöruverslunarinnar Jes Zimsen hf. 1959–70, dagskrárfull- trúi við tónlistardeild Ríkisútvarps- ins 1971–78 og á sumrin um skeið frá 1980 en hann var með vikulega tónlistarþætti í útvarpi um nokk- urra ára skeið. Guðmundur var í Félagi járn- vöru- og búsáhaldakaupmanna 1959–70, var fulltrúi Félags ís- lenskra tónlistarmanna á fundum Bandalags íslenskra listamanna og var formaður Félags tónlistarkenn- ara 1981–82. Guðmundur hélt fjölda opin- berra einleikstónleika og tónleika með einleikurum og söngvurum. Þá kom hann fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í útvarpi og sjónvarpi, bæði sem einleikari og með öðrum. Hann hélt fyrirlestra við Háskóla Íslands um franska tónlist og skrifaði blaða- og tímaritsgreinar um tónlist. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 14.7. 1951, fyrri konu sinni, Huldu Auði Krist- insdóttur, f. 13.2. 1932, d. 24.9. 2000, viðskiptafræðingi. Hún var dóttir Kristins Helgasonar, bifreiðarstjóra í Reykjavík, og Helgu Níelsdóttur ljósmóður. Guðmundur og Hulda Auður slitu samvistum. Börn Guðmundar og Huldu Auð- ar eru Auður Eir, f. 10.11. 1951, leið- sögumaður, búsett á Akureyri, en maður hennar er Helgi Gestsson og eru börn þeirra Jón Gestur, f. 1974 en sambýliskona hans er Gerður Ringsted en dóttir Jóns Gests og Huldu Kristínar Guðmundsdóttur er Rebekka Rut, f. 1999; Kristín, f. 1976, en maður hennar er Sigurður Rafn Þorkelsson og eru börn þeirra Birta Eir, f. 1999, Helgi Hrafn, f. 2005 og Gísli Freyr, f. 2007. Guðmundur Kristinn, f. 9.1. 1955, símvirki í Kanada, en kona hans er Vigdís Sigtryggsdóttir og eru börn þeirra Jón, f. 1978, kvæntur Ni- cole Morgan Adam en börn þeirra eru Bryndís Elizabeth, f. 2005, Ella Nicole, f. 2007, og Erik Jón, f. 2009; Helga Kristín, f. 1982 en unnusti hennar er Cecil Boone og er dóttir þeirra Vigdís Lilja Yvonne, f. 2009. Helga Kristín, f. 25.12.1955, sjúkraliði og húsmóðir, búsett í Njarðvík, en maður hennar er Stef- án Sigurðsson og eru dætur þeirra Þórhildur, f. 1974; Guðrún Björk, f. 1975; Hulda Katrín, f. 1979; Stefanía Helga, f. 1987. Þórdís, f. 19.8. 1968, rafeinda- virki og myndlistarkona í Kópavogi en maður hennar er Sigurður Vignir Guðmundsson og eru dætur þeirra Valgerður, f. 1992; Hulda Ólafía, f. 2003, og Ragnhildur Helga, f. 2009. Guðmundur kvæntist 12.8. 1976, eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingi- björgu Þorbergs, f. 25.10. 1927, tón- skáldi, söngkonu og kennara. Hún er dóttir Þorbergs Skúlasonar, skó- smíðameistara í Reykjavík, og k.h., Kristjönu Sigurbergsdóttur hús- móður. Bróðir Guðmundar var Pálmi, f. 13.12. 1925, d. 6.1. 1973. Foreldrar Guðmundar voru Jón Guðmundsson, f. 24.10. 1893, d. 7.1. 1959, verslunarstjóri í Reykjavík, og k.h. Kristín Pálmadóttir, f. 14.8. 1902, d. 2.7. 1982. Ætt Jón var sonur Guðmundar, b. á Breiðabólstað í Ölfusi Guðmunds- sonar, b. í Lambhaga Guðmunds- sonar, b. í Fróðholtshjáleigu Guðna- sonar, b. í Gerðum í Landeyjum Filippussonar. Móðir Guðmundar í Lambhaga var Katrín, dóttir Sveins Guðbrandssonar, b. í Gröf, og Guð- ríðar Filippusdóttur. Móðir Guð- mundar á Breiðabólstað var Arn- dís, systir Guðlaugar, langömmu Jóns Dalbú, sóknarprests í Hall- grímskirkju. Hálfbróðir Arndísar, sammæðra, var Jón, b. á Stóra-Hofi, langafi Kristínar, móður Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphall- arinnar. Arndís var dóttir Jóns Jóns- sonar, b. á Stóra-Hofi og Ingibjargar Narfadóttur. Móðir Jóns verslunarstjóra var Þórdís, dóttir Tómasar, b. á Vestra- Fróðholti Ólafssonar, b. í Hvammi í Landi Tómassonar. Móðir Þórdísar var Guðrún Jónsdóttir, b. á Hamra- hóli í Holtum Gunnarssonar, b. á Sandhólaferju Filippussonar, bróð- ur Rannveigar, langömmu Magd- alenu, langömmu Jónasar Kristj- ánssonar, fyrrv. ritstjóra DV. Móðir Guðrúnar var Sesselja, systir Þórð- ar, langafa Helgu, móður Einars Sveinssonar, fyrrv. forstjóra Sjóvá, og Benedikts stjórnarformanns, föður Bjarna, alþm. og formanns Sjálfstæðisflokksins. Sesselja var dóttir Jóns, b. í Sauðholti Gíslason- ar. Kristín var dóttir Pálma Péturs, sjómanns í Reykjavík Sigurðssonar, í Móakoti á Vatnsleysuströnd Sig- urðssonar. Móðir Pálma Péturs var Lilja Þórðardóttir frá Vémundastöð- um í Ólafsfirði. Móðir Kristínar var Sigríð- ur Ásbjörnsdóttir, b. í Melshús- um Ásbjörnssonar, b. í Melshús- um Péturssonar. Móðir Ásbjörns Ásbjörnssonar var Málfríður Ás- mundsdóttir, hreppstjóra í Elín- arhöfða Jörgenssonar Hanssonar, ættföður Klingenbergsættar. Móð- ir Sigríðar Ásbjörnsdóttur var Sig- ríður, systir Guðrúnar, langömmu Halldórs Jónatansson, fyrrv. for- stjóra Landsvirkjunar. Sigríður var dóttir Ásbjörns, b. í Melshúsum Er- lendssonar og Sigríðar Jónsdóttur yngra „steinbíts“, b. í Teigakoti Jóns- sonar, Bjarnasonar. Móðir Sigríðar eldri var Guðrún Magnúsdóttir. Útför Guðmundar fór fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 18.11. Guðmundur Jónsson píanóleikari Fæddur 13.11. 1929 – dáinn 11.11. 2010 40 minning 19. nóvember 2010 föstudagur andlátmerkir íslendingar Arnljótur fæddist að Auð- ólfsstöðum í Langadal, sonur Ólafs Björns- sonar, bónda þar, og k.h., Margrétar Snæ- björnsdóttur hús- freyju. Eiginkona Arnljóts var Þuríð- ur Hólmfríður Þor- steinsdóttir, systir Halldóru, konu Tryggva Gunn- arssonar, alþm. og bankastjóra. Arnljótur var einn þeirra sem stóðu að pereatinu gegn Sveinbirni Egils- syni í Lærða skólanum 1850. Hann lauk stúdents- prófi þjóðfundarárið 1851, lauk málfræðiprófi og forspjallsprófi við Kaupmannahafnarháskóla og las þjóðmegunarfræði sem í dag nefnist hagfræði. Hann var því fyrsti íslenski hagfræðistúdentinn. Hann tók ekki lokapróf í hagfræði en lauk guðfræði- prófi við Prestaskólann í Reykjavík 1863 og var síðan prestur að Bægisá og Sauðanesi. Áður en Arnljótur kom heim frá námi var hann einkakennari sonar Blixen–Finecke baróns og ferðaðist þá með þeim feðgum víða um Suður- Evrópu. Þá tók hann þátt í leiðangri til könnunar ritsíma- lögn til Íslands, árið 1860. Arnljótur sat á Alþingi nær óslitið frá 1858–1900, fyrst sem þingmaður Borgfirðinga, þá Norðmýlinga, fyrir Eyfirðinga 1881–85 og síðan konungs- kjörinn. Arnljótur var atkvæðamikill þing- maður. Hann var andstæð- ingur Jóns Sigurðssonar for- seta og Benedikts Sveinssonar en lagði áherslu á kröfur um fjárforræði. Þá barðist hann gegn valtýskunni. Á tímum rómantískrar þjóð- frelsisbaráttu markaði Arnljótur sér sérstöðu með áhuga á landshögum, búskaparhögum og fólksfjölda. Um þau mál tók hann saman skýrslur og greinargerðir. Þá samdi hann fyrsta íslenska hagfræðiritið, Auðfrœði, sem kom út 1880. Hann lést árið sem Ís- lendingar fengu heimastjórn. Arnljótur Ólafsson prestur og alþingismaður f. 21.11. 1823 – d. 29.10. 1904 merkir íslendingar merkir íslendingar Þórir, fæddist á Granastöðum í Ljósavatnshreppi. Hann var sonur Baldvins Baldvins- sonar, bónda og oddvita á Granastöðum og Ófeigsstöðum í Kinn og víðar, og Kristínar Jakobínu Jónasdótt- ur húsfreyju. Þórir lauk gagn- fræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Akur- eyrar 1922, stundaði nám við Menntaskól- ann í Reykjavík, við San Francisco Poly- technic High School í Bandaríkjunum 1923–25 og nám í arkitektúr við Uni- versity of California Extension School of Architecture 1924–26. Þórir starfaði á arkitektastofu W.L. Schmolle í San Francisco á árunum 1928–30. Hann kom heim árið 1930 og hóf þá störf við Teiknistofu landbún- aðarins, starfaði þar í tæp fjörutíu ár, og var forstöðumaður stofnunarinnar á árunum 1937–69. Um 1930 var Þórir, ásamt Gunn- laugi Halldórssyni, Bárði Ísleifssyni og Ágústi Pálssyni, helsti boðberi nýrrar róttækrar stefnu í bygg- ingarlist, funksjónalism- ans. Þetta má gleggst sjá á teikningum hans af húsi Vilmundar Jónssonar, Ingólfsstræti 14, og Samvinnubústöðun- um við Hringbraut og Ásvallagötu, norðan Bræðraborg- arstígs. Síðan átti funksjónalismi ís- lensku arkitektanna eftir að veðrast og aðlagast íslenskum aðstæðum. Þórir hafði umtals- verð áhrif á íslenska bygg- ingarlist á öldinni, einkum með teikningum mannvirkja íslenskra sveitabýla. Meðal annarra þekktra húsa eftir hann má nefna Al- þýðuhúsið við Hverfisgötu (nú Hótel 101) Mjólkursamsöluhúsið, Laugaveg 162 og hús Kaupfélags Árnesinga á Selfossi. Þórir skrifaði töluvert um bygging- arlist í blöð og tímarit, var prýðilegur rithöfundur og samdi smásögur og ljóð undir dulnefninu Kolbeinn frá Strönd. Þórir G. Baldvinsson arkitekt og forstöðumaður teiknistofu landbúnaðarins f. 13.11. 1906 – d. 11.8. 1993

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.