Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Blaðsíða 54
Háklassa
54 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 19. nóvember 2010 föstudagur
Stórleikur helgarinnar í enska bolt-
anum er jafnframt sá fyrsti í fjórtándu
umferðinni. Norður-Lundúnaslag-
urinn á milli Arsenal og Tottenham
fer fram í hádeginu á laugardaginn
en þar má búast við mikilli skemmt-
un. Arsenal hefur verið á góðu skriði,
unnið fjóra af síðustu fimm leikj-
um sínum og er komið upp í annað
sæti deildarinnar. Tottenham komst
loksins aftur á sigurbraut um síðustu
helgi með auðveldum sigri á Black-
burn en það er ansi langt síðan Tott-
enham var jafnvel mannað og það
er í dag. Tottenham hefur þó gengið
afar illa að leggja nágranna sína að
velli. Á laugardaginn mætast einn-
ig tvö lið sem hafa komið skemmti-
lega á óvart. Grétar Rafn og félagar í
Bolton, sem vermir fimmta sætið eft-
ir þrettán umferðir með nítján stig,
taka á móti vondu strákunum frá
Newcastle. Þeir eru með átján stig,
þremur sætum neðar.
Fyrsti sigurinn í tíu ár
Það er vægt til orða tekið þegar sagt
er að Tottenham hafi gengið illa að
leggja nágranna sína í Arsenal að
velli. Þegar Tottenham gerði sér lít-
ið fyrir og vann Arsenal í apríl und-
ir lok síðasta tímabils var það fyrsti
deildarsigur Tottenham á strákun-
um hans Wengers í tíu ár. Tottenham
sló Arsenal út úr deildarbikarnum
fyrir tveimur árum en annars hef-
ur Arsenal alfarið séð um að vinna
nágrannaslagina á undanförnum
áratug. Þegar Tottenham loks vann
leik núna í apríl voru það hinn ungi
Danny Rose og hinn eldfljóti Gareth
Bale sem skoruðu mörkin.
Arsenal hefur vinninginn þeg-
ar litið er yfir leiki liðanna í gegn-
um söguna. Alls hafa liðin mæst 146
sinnum í deildinni. Arsenal hefur
unnið 60 leiki, Tottenham 46 og 40
sinnum hafa þau gert jafntefli. Bikar-
leikirnir eru nokkuð jafnir en Arsenal
hefur unnið þrjá leiki af fimm þegar
þau hafa mæst í bikarnum en Tott-
enham hina tvo. Alls hefur Arsenal
unnið Tottenham 69 sinnum í öll-
um keppnum á móti 51 sigri Totten-
ham. Jafnteflin eru samtals 44. Það er
því óhætt að segja að Arsenal hefur
haft nokkra yfirburði gegn nágrönn-
um sínum en því má þó ekki gleyma
að sjaldan ef aldrei hefur Tottenham
verið jafnvel mannað. Tottenham er
líka einstaklega vel lagið að leika vel
á móti stóru liðunum þó leikmenn
liðsins eigi þó afskaplega erfitt með
að halda haus þegar komið er í leiki
gegn liðunum sem eiga að teljast
veikari en þau. Tap fyrir Wigan og
Úlfunum í ár sannar það.
Gagnkvæm virðing
Lítið fer fyrir Bacary Sagna í hægri
bakvarðarstöðunni hjá Arsenal en
jafnan skilar hann þó alltaf sínu.
Hann bryddaði meira að segja upp
á nýjum töktum um síðustu helgi og
skoraði eitt mark í góðum sigri Ars-
enal á Everton í Guttagarði. Hans
bíður það ærna verkefni að mæta
Gareth Bale sem er ástæða margra
martraða hægri bakvarða út um all-
an heim um þessar mundir.
„Þetta verður alveg frábær leikur.
Það er alltaf gaman að mæta Tott-
enham en ég held að þessi leikur
verði alveg einstakur. Ég hef aðeins
fylgst með Tottenham á þessu tíma-
bili og það spilar alveg frábæran fót-
bolta. Við reynum líka alltaf að halda
boltanum við jörðina og því sé ég
ekki fram á annað en þetta verði al-
veg stórkostleg skemmtun. Sjálfur á
ég mikið verk fyrir höndum að gæta
Gareth Bale en það verður bara gam-
an. Hann er orðinn besti vængmaður
deildarinnar og til þess er maður nú
í þessu, að spila við þá bestu,“ segir
Bacary Sagna.
Á hægri kantinum býður Tott-
enham upp á aðra rakettu en þar
er enski landsliðsmaðurinn Aaron
Lennon. Hann áttar sig vel á styrk-
leikum Arsenal og veit hvað bíður
liðsins á Emirates-vellinum um helg-
ina.
„Arsenal er heitasta liðið um
þessar mundir. Við féllum aðeins
niður en náðum nú sem betur fer
góðum sigri um síðustu helgi og von-
andi kemur það okkur á skrið. Arsen-
al er ótrúlega sterkt lið og sérstaklega
sóknarlega. Það tætti Everton-vörn-
ina í sundur um síðustu helgi þannig
við verðum að verjast sem lið og gefa
allt okkar í þetta. Við höfum svo sem
ekki miklar áhyggjur af okkar leik
fram á við, við eigum alltaf að gera
skorað. Mörkin telja samt lítið ef þú
ætlar alltaf að fá tvö á þig fyrir hvert
mark sem þú skorar,“ segir Aaron
Lennon.
spútnikliðin mætast
Langt er síðan Íslendingaliðið Bolt-
on spilaði jafn flottan fótbolta og
það gerir þessa dagana. Kraftaverka-
maðurinn Owen Coyle er búinn að
umbylta leik liðsins og hefur byrj-
un tímabilsins verið liðinu góð. Það
situr nú í fimmta sæti, Evrópusæti,
og virðist til alls líklegt. Það mætir
Newcastle um helgina sem verður
án vandræðagemsans Joeys Bartons
en hann fékk nóg af því að vera góði
strákurinn í síðustu viku og kýldi
Morten Gamst Pedersen. Fyrir það
fékk hann þriggja leikja bann. Einn
allra heitasti framherji ensku úrvals-
deildarinnar, Andy Carroll, verður þó
væntanlega mættur á Reebok-völl-
inn en hann lék sinn fyrsta landsleik
í tapi Englands gegn Frakklandi á
miðvikudagskvöldið.
„Það er mun léttara yfir okkur
þessa dagana,“ segir hinn grjótharði
Kevin Davies sem hefur blómstrað í
framlínu Bolton á tímabilinu. „Það
er auðvitað allt léttara þegar mað-
ur er að vinna leiki en við erum líka
að spila fallegan fótbolta og það er
gaman. Við höfum samt ekkert unn-
ið ennþá. Við megum ekki fara að
blekkja okkur með neinu svoleiðis
bulli. Fyrst og fremst höfum við unn-
ið okkur rétt til að vera á þeim stað
sem við erum á núna. Tímabilið er
samt ekki einu sinni hálfnað þannig
við ætlum ekki að fara gera okkur
neinar vonir. Næst er það bara leik-
ur gegn firnasterku liði Newcastle og
um það hugsum við í augnablikinu,“
segir Kevin Davies.
LundúnasLagur
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Eftir landsleik í miðri viku heldur
enska úrvalsdeildin áfram en stærsti
leikur helgarinnar er í hádeginu á
laugardaginn þegar Norður-Lundúna-
slagurinn á milli Arsenal og Tottenham
fer fram. Þau tvö lið sem hafa komið
hvað mest á óvart mætast einnig inn-
byrðis þegar Newcastle heimsækir
Grétar Rafn og félaga hans í Bolton.
Leikir heLgarinnar
Laugardagur 20. nóvember
12.45 Arsenal - Tottenham
15.00 Birmingham - Chelsea
15.00 Blackpool - Úlfarnir
15.00 Bolton - newcastle
15.00 man. united - Wigan
15.00 WBA - stoke
17.15 Liverpool - West Ham
sunnudagur 21. nóvember
13.30 Blackburn - Aston Villa
16.00 Fulham - man. City
mánudagur 22. nóvember
20.00 sunderland - Everton
Staðan
Lið L U J t m st
1. Chelsea 13 9 1 3 28:8 28
2. Arsenal 13 8 2 3 26:12 26
3. man. utd 13 6 7 0 26:15 25
4. man. City 13 6 4 3 15:10 22
5. Bolton 13 4 7 2 21:19 19
6. sunderland 13 4 7 2 15:13 19
7. Tottenham 13 5 4 4 18:17 19
8. newcastle 13 5 3 5 21:16 18
9. Aston Villa 13 4 5 4 15:18 17
10. stoke City 13 5 1 7 15:18 16
11. Liverpool 13 4 4 5 13:17 16
12. WBA 13 4 4 5 16:22 16
13. Everton 13 3 6 4 14:13 15
14. Blackburn 13 4 3 6 15:18 15
15. Blackpool 13 4 3 6 19:26 15
16. Fulham 13 2 8 3 13:13 14
17. Wigan 13 3 5 5 10:21 14
18. Birmingham 13 2 7 4 14:17 13
19. Wolves 13 2 3 8 13:23 9
20. West Ham 13 1 6 6 11:22 9
um heLgina
mættur á stuttbuxunum Owen Coyle
lifir sig vel inn í leikinn hjá Bolton.
mynd reUters
Öflugur Vandræðagemsinn Andy
Carroll er hættulegur í teignum.
mynd reUters
Í flottu formi samir
nasri og félagar í
Arsenal hafa verið
heitir síðustu vikurnar.
mynd reUters
Það er alltaf gaman að mæta
Tottenham en ég held
að þessi leikur verði
alveg einstakur. Ég hef
aðeins fylgst með Tott-
enham á þessu tímabili
og það spilar alveg
frábæran fótbolta.
Bestu
tíurnar