Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2010, Qupperneq 62
Ósk Norðfjörð frumflutti nýtt lag: Tekur dúeTT með Ásdísi rÁn 62 fólkið 19. nóvember 2010 föstudagur krisTjÁn jóhannsson: Sló í gegn í París Katrín Ósk Guðlaugsdóttir hárgreiðslumeistari náði frábærum árangri þegar hún lenti í öðru sæti í Trendvision-hárgreiðslukeppninni sem fram fór í París fyrr í mánuðinum. Katrín Ósk vann Wella Trend Vision- keppnina hér heima í október og vann þannig þátttökurétt í keppninni úti, sem er einn stærsti hárgreiðslu- viðburður í heimi. Katrín Ósk, sem er sjálfstætt starfandi hárgreiðslumeist- ari hjá Hár Expó, keppti við fjölda annarra keppenda allls staðar að úr heiminum undir vökulum augum blaðamanna helstu tískutímarita heims. Það verður því spennandi að fylgjast með Katrínu í framtíðinni. Bréf frá barna- verndarnefnd Bræðurnir Unnsteinn Manúel og Logi Pedro Stefánssynir, forsprakk- ar hljómsveitarinnar Retro Stefson, fara á kostum í bráðskemmti- legu viðtali í nýjasta hefti Monitor. Aðspurðir hvort þeir bræðurnir rífist mikið segir Unnsteinn: „Já, en við höfum skánað.“ Segir Unnsteinn svo frá því þegar hann neitaði að lána bróður sínum fyrir mat og gefa honum af því sem hann var að elda. Slógust þeir svo mikið að einn nágranninn hringdi á lögregluna sem kom á heimili þeirra og þurfti lögregluþjónn að hugga Loga sem var hágrátandi. „Við sögðum mömmu ekki frá þessu og svo fékk hún bréf frá barnaverndarnefnd nokkrum dögum seinna,“ segir Unnsteinn. „Ég er bara búin að vera á ferð- inni síðan ég frumflutti lagið þannig að ég hef lítil viðbrögð fengið enda talað við fáa,“ seg- ir fyrirsætan, ofurmamman og nú söngkonan, Ósk Norðfjörð, um nýja lagið sitt, Keep on Waiting, sem frumflutt var á Kananum síðstliðinn fimmtu- dagsmorgun. Hún segist þó hafa fengið fín viðbrögð frá starfsmönnum útvarpsstöðv- arinnar en hvers vegna ákvað hún að prófa sönginn? „Þetta var nú bara allt í gríni gert svona í kringum lag- ið hennar Ásdísar Ránar, vin- konu minnar. Henni finnst ég syngja svo vel að hún skoraði á mig að gera þetta. Svo ákváð- um við vinkonurnar að gera lag saman. Ég á góðan félaga sem er í bandi en gerir ekki danstónlist nema svona sem áhugamál. Við byrjuðum að- eins að ræða hvort þetta gæti ekki verið gaman og ákváðum síðan að slá til,“ segir Ósk sem syngur mikið sjálf. „Ég hef mjög gaman að því að syngja með krökkunum og raula með í kirkjunni. Ég elska tónlist en þetta er svo sem ekki braut sem ég ætlaði alltaf inn á,“ segir Ósk en von er á öðru lagi strax í desember. „Okkur langaði að gera tvö lög saman þannig að ég tal- aði við upptökustjórann Cos- mo og hann benti mér á Dóra vin sinn sem er með honum í hljómsveitinni Legend. Hann átti lag sem er rosalega flott þannig að við ákváðum að ég myndi bara syngja það. Það er gaman að bæði Krummi í Mínus og Haffi Haff séu með puttana í þessu því þar mætast tveir ólíkir tónlistarheimar en þeir eru auðvitað stórir í sín- um geira,“ segir Ósk sem var ekkert stressuð vegna frum- flutningsins. „Nei, í rauninni ekki. Mað- ur gerir bara eins vel og mað- ur getur. Þetta er nú bara frum- raunin þannig maður er ekkert að taka sig of hátíðlega,“ segir fyrirsætan og söngkonan, Ósk Norðfjörð. tomas@dv.is „Þegar ég er að kenna og segi strák- unum að syngja eins og þeir væru að njóta ásta, hlæja þeir bara að mér. Ég segi hiklaust við strákana: „Syngja neðan úr pung,“ og bæti við, „ann- ars er söngurinn bæði hljómlaus og óspennandi.“,“ segir Kristján Jóhanns- son stórsöngvari í nýútkominni ævi- sögu sinni, Á valdi örlaganna, sem Þórunn Sigurðardóttir skrásetti. „Stór hluti af starfi söngvara hefur með kynvitund og kynheilbrigði að gera, það er eðlilegur hluti af lífinu og hvatinn í tilfinningunum, eins konar meðvituð kynhvöt, nátengd skapinu, sem þarf að vera heit, einörð og heil,“ heldur Kristján áfram í bókinni en hann segir alla góða sviðslistamenn hafa eitthvert sérstakt sambland af persónuleika og kynþokka. Séu bæði óútreiknanlegir og skapandi. „Þú þarft að hafa sterka kynvitund á sviði og kynlíf má ekki vera feimnis- mál. Þarna eru Ítalirnir ólíkir okkur, þrátt fyrir kaþólskuna og siðfágunina. Hún er ekki fólgin í pempíuskap eða einhverjum feluleik,“ segir Kristján sem bjó um áratugaskeið á Ítalíu þar sem hann var á meðal fremstu óperu- söngvara heims. Í bókinni talar Kristján einnig um óheflað orðbragð sitt. „Ég hef alltaf verið svona. Ég þyki stundum býsna grófur og Jóna er alltaf að skamma mig fyrir það. Mamma sagði líka oft: „Kiddi minn, ekki þennan talsmáta. Það eru stúlkur hér inni.“.“ Þá segir Kristján að á Ítalíu hafi plássið verið mun meira og einnig fyrir orðbragð. „Það hefur hentað mér vel því það var alltaf svolítill sjóara- bragur á mér – það er eðlið. Ég er jú „for helvede“ Íslendingur! Og það var talsvert blótað í mínum uppvexti. Amma Aðalheið- ur var alveg sérstök með þetta. Hún sagði iðulega: „Mikið andskotans ósköp er þetta fallegt.“ Kristján viðurkenn- ir einnig að hann sé glanni en að hann leggi sig alltaf fram við að vera almenni- legur. „Mér hefur alltaf þótt snobb leiðinlegt og ég held að ég sé ekki höfðingja- sleikja. En ég er glanni. Ég hef samt alltaf reynt að vera almennilegur við samstarfsmennina, ekki hvað síst þá sem eru baksviðs í leikhúsinu. Það gefur mér styrk til baka. Góður listamað- ur kemur með góðan anda með sér inn í leikhúsið. Það hef ég lært. Ekkert leikhús er betra en listamennirnir sem vinna þar.“ asgeir@dv.is Kynhvötin miKilvæg í söngnum Í nýútkominni ævisögu Kristjáns Jóhannssonar stórsöngvara fer hann um víðan völl. Þessi dáði en umdeildi listamaður talar meðal annars um það í bókinni að það sé nauðsynlegt að „syngja neðan úr pung“ og að stór hluti af starfi söngvarans hafi með með kynvitund og kynheilbrigði að gera. Á valdi örlaganna Ævisaga Kristjáns Jóhannssonar sem Þórunn Sigurðardóttir skrásetti. Kristján Jóhannsson Segir strákunum að „syngja neðan úr pung“ þegar hann er að kenna söng. Mynd SiGtryGGUr ari M yn d a rn O Ld B JÖ rn SS O n Söngkona Von er á öðru lagi með Ósk í desember.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.