Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Blaðsíða 2
2 fréttir 22. nóvember 2010 mánudagur
Magnús Kristinsson, fjárfestir og út-
gerðarmaður í Vestmannaeyjum,
skilur eftir nærri tveggja milljarða
króna skuldir inni í móðurfélagi
pítsustaðarins Dominos, Pizza-
Pizza ehf. Útgerðarmaðurinn hef-
ur misst yfirráð sín yfir félaginu til
skilanefndar Landsbanka Íslands
vegna skulda félagsins. Skuldirnar
sem hvíla á Dominos voru hins veg-
ar tilkomnar áður en Magnús keypti
pítsustaðinn árið 2007. Þetta kemur
fram í ársreikningum Pizza-Pizza
fyrir 2008 og 2009 sem skilað var til
ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra
fyrr á þessu ári.
Landsbankinn og Dominos Int-
ernational í Bandaríkjunum munu
nú vera að leita að áhugasömum
kaupendum að Dominos en sú leit
hefur ekki borið árangur enn sem
komið er. Meðal þeirra sem nefndir
hafa verið til sögunnar sem bankinn
hefur íhugað að leita til vegna rekst-
ursins á Dominos er Skúli Gunn-
ar Sigfússon, stofnandi og eigandi
Subway á Íslandi, en hann hefur náð
mjög góðum árangri með Subway-
keðjuna hér á landi. Landsbankinn
hefur þó ekki sett sig í samband við
Skúla Gunnar vegna málsins sam-
kvæmt heimildum DV.
Í tilkynningu frá Landsbank-
anum í ársreikningnum árið 2009
kemur fram að unnið sé að fjárhags-
legri endurskipulagningu Pizza-
Pizza og að hugsanlegt sé að hluti
skuldanna verði afskrifaður þeg-
ar þar að kemur. Samkvæmt þessu
virðist Landsbankinn því trúa á
rekstrarhæfi Dominos á Íslandi.
Heimildir DV herma að Dom-
inos International hafi orðið mjög
undrandi þegar fyrirtækið heyrði
um skuldsetningu Dominos á
Íslandi. Við nánari athugun kom í
ljós að ekki var um að ræða skuldir
sem Magnús hafði stofnað til.
50 milljarða afskriftir
Magnús Kristinsson var einn af um-
svifameiri fjárfestum landsins á ár-
unum fyrir hrunið. Grunnurinn að
veldi hans er útgerðarfélagið Berg-
ur-Huginn í Vestmannaeyjum en
hann byggði það upp ásamt föð-
ur sínum. Magnús var stórtækur í
hlutabréfaviðskiptum fyrir hrun og
var um tíma stór hluthafi í fjárfest-
ingabankanum Straumi-Burðarási.
Þegar Magnús seldi þann hlut stofn-
aði hann fjárfestingafélagið Gnúp
ásamt Kristni Björnssyni og Þórði
Má Jóhannessyni en félagið átti tals-
vert magn hlutabréfa í FL Group og
Kaupþingi.
DV sagði frá því í fyrrahaust að
skilanefnd Landsbankans þyrfti að
afskrifa um 50 milljarða króna af
skuldum Magnúsar og félaga hans
við bankann.
Sjá um félagið fyrir hönd
Landsbankans
Eigandi Pizza-Pizza í dag er Eignar-
haldsfélagið Pizzasmiðjan ehf. sem
er skráð í eigu Úlfars Steindórssonar
og Kristján Þorbergssonar, stjórnar-
manna Pizza-Pizza.
Úlfar, sem einnig er forstjóri
Toyota, segir að Magnús hafi misst
eignarhald sitt yfir félaginu um mið-
bik síðasta árs. Þá hafði félag hans,
Vetrarmýri, sem áður hét Smáey og
Hrauney, haldið utan um bréfin í
Pizza-Pizza.
Úlfar segir að eignarhald þeirra
Kristjáns á félaginu sé tímabundið
en þeir sátu einnig í stjórn Pizza-
Pizza þegar Magnús átti Dominos.
„Þetta er hluti af samkomulagi sem
gert var við skilanefnd Landsbank-
ans á sínum tíma. Það er í raun og
veru ekki komin endanleg niður-
staða um eignarhaldið. Við erum
að passa upp á verðmætin sem eru
inni í þessu fyrir hönd skilanefnd-
arinnar og Dominos úti,“ segir Úlfar
Að hluta til eldri skuldir
Úlfar segir að skuldir Pizza-Pizza
séu að mestu gamlar. „Þetta er
skuldsetning sem var á félaginu
þegar Magnús keypti það... Þetta
var aldrei skuldsett frekar af hálfu
Magnúsar. Hann endurfjármagnaði
bara gamlar skuldir,“ segir Úlfar.
Skuldirnar sem hvíla á Pizza-
Pizza í dag eru rúmlega 1.800 millj-
ónir króna samkvæmt ársreikningi
ársins 2009. Eigið féð er neikvætt
um rúmar 1.100 milljónir króna og
er eigið féð því neikvætt um tæp-
lega 170 prósent. Pizza-Pizza er
því tæknilega gjaldþrota en Lands-
bankinn metur það sem svo að
það sé þess virði að halda félaginu
gangandi. Rekstrartekjur Domin-
os námu rúmlega 1.600 milljónum
í fyrra en tap félagsins nam tæpum
200 milljónum á árinu.
Stofninn af þessari skuld er til-
kominn frá því Birgir Bieltvelt, fjár-
festir sem í dag á meðal annars
Skeljung, átti Dominos hér á landi
fyrir nokkrum árum. Birgir hefur
stundað fjárfestingar með Baugi og
Björgólfi Thor Björgólfssyni, sem er
góðvinur Birgis. Samkvæmt heim-
ildum DV naut Birgir mikillar lána-
fyrirgreiðslu frá Straumi á árunum
fyrir hrunið auk þess sem Straumur
greiddi Birgi þóknanir fyrir ráðgjöf
og þátttöku í viðskiptum Straums í
Skandinavíu, meðal annars vegna
kaupanna á fasteignafélaginu Sjæl-
sö. Birgir tók einnig þátt í ýmsum
viðskiptum Straums, meðal annars
þegar fjárfestingabankinn keypti
Magasin du Nord ásamt Baugi árið
2004.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis kemur fram að eitt af störf-
um Birgis í Skandinavíu hafi verið
að „afla fjárfestingartækifæra fyrir
fjárfesta“ . Skuldir félags í eigu Birg-
is, Property Group, námu tæpum
19 milljörðum króna samkvæmt því
sem segir í skýrslunni.
Lánið endurfjármagnað af
Landsbankanum
Svo virðist sem upprunalega
skuldin sem hvílir á Pizza-Pizza,
um milljarður króna, hafi kom-
ið frá Straumi-Burðarási á sínum
tíma en Björgólfur Thor var ráð-
andi aðili í þeim banka. Aðspurð-
ur segist Úlfar ekki skilja þann
gjörning: „Ég skil ekki þann gjörn-
ing, ef þú ert að spyrja mig að því.
Ég skil ekki hvernig menn komust
að þeirri niðurstöðu. Það er ekkert
meira um það að segja,“ segir Úlfar
þegar hann er spurður að því hvort
það sé eðlilegur rekstur að skuld-
setja pítsustað um milljarð króna.
Hugsanlegt er hins vegar að
skuldsetningin á staðnum hafi
verið tilkomin vegna þess að Birgir
Þór var búinn að tryggja sér leyfi til
að opna Dominos-staði í Skandin-
avíu. Ætla má að þessi staðreynd
hafi gert honum kleift að fá hærri
lán út á félagið þar sem það ætlaði
sér að sækja inn á töluvert stærri
markaði en hinn íslenska.
Þær skuldir voru svo endur-
fjármagnaðar af Landsbanka Ís-
lands síðar meðal annars með
erlendu kúluláni sem var á gjald-
daga í fyrra, samkvæmt ársreikn-
ingi 2008. Hugsanlegt er að lánin
hafi verið færð yfir til Landsbank-
ans þar sem Magnús Kristinsson
naut hagstæðrar lánafyrirgreiðslu
í bankanum vegna hlutuabréfa-
eignar sinnar í honum árið 2008.
Það lán stóð í tæpum milljarði
króna í árslok 2008 en var ekki
greitt í fyrra samkvæmt ársreikn-
ingi 2009. Endurfjármögnun inn-
lendra lána Pizza-Pizza með er-
lendum lánum jók svo enn frekar á
skuldsetningu félagsins út af geng-
TVEGGJA MILLJARÐA
SKULDIR Á DOMINOS
Tæplega tveggja milljarða króna skuldir
hvíla á pítsustaðnum Dominos eftir góð-
ærið. Félagið var meðal annars í eigu
Baugs, Birgis Bieltvelts og Magnúsar
Kristinssonar á þessum tíma. Magnús
hefur misst fyrirtækið til Landsbankans
en hann ber þó ekki ábyrgð á skuldun-
um sem eru að sliga félagið heldur Birg-
ir, fyrri eigandi Dominos. Hann fékk um
milljarð króna að láni frá Straumi inn í
rekstrarfélagið á sínum tíma.
ingi f. viLhjáLMSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Úr rannsóknarskýrslunni:
n„Áhættuskuldbindingaroktóber2008:18,6milljarðarkróna.PropertyGroup
varstofnað1.janúar2006.Markmiðfélagsinsvaraðaflafjárfestingartækifæra
fyrirfjárfestaífasteignaviðskiptumog/eðakaupogsalafasteigna,enmarkaðs-
svæðiþessvaríSkandinavíuogínærliggjandilöndum,einkumÞýskalandiogí
Eystrasaltslöndum.HelstueigendurfélagsinsvoruBGPartnersehf.(Guðmundur
ÞórðarsonogBirgirÞórBieltvedt)með50,1%eignarhlutogPartnerHolding
A/Smeð37,5%eignarhlut,eneigendurþessvorustofnendurogrekstraraðilar
PropertyGroupáðureníslenskuhluthafarnirkomuaðfélaginu.
nÁtímabilinujanúar2007tiloktóber2008hækkuðuskuldirPropertyGroupog
tengdrafélagaum18,2milljarðakróna.Íevrumhækkuðuskuldbindingarum
123,3milljónir:
nNýjarlánveitingarsamkvæmtákvörðunlánanefndavoru16,9milljarðarkróna.
Andvirðiþessaralánavarráðstafaðtilrekstrar(1,4ma.kr.),tilverðbréfakaupa(9,6
ma.kr.)ogtilannars(5,9ma.kr.).Tiltryggingarnýjumlánveitingumvorutekinveð
íhlutabréfumaðfjárhæð13,4milljarðarkrónaogönnurveðsamtals3,5milljarðar
króna.LánveitingartilPropertyGrouptengdustflestarfjárfestingumífélögum
íbyggingariðnaðiíDanmörkuogSvíþjóðeðakaupumátilteknumfasteignum.
Stærsturhlutilánannafórtilaðfjármagnaeiginfjárframlageigendaogtryggingar
voruíformihlutafjár.Fasteignaverðvarháttáþessumstöðumíbyrjuntímabilsins
enfórsíðanlækkandisamhliðasölutregðuáfasteignamarkaðinum.Þaðleiddi
tilþessaðbankinnþurftiaðframlengjalánog/eðaveitaviðbótarlántilaðmæta
greiðsluerfiðleikumfélaganna,þvífjármögnunþessarafasteignaviðskiptavar
yfirleittmeðskammtímalánum.“
Um Birgi og Property Group
Ég skil ekki þann gjörning, ef þú ert að spyrja mig að því.
Ég skil ekki hvernig menn komust að
þeirri niðurstöðu. Það er ekkert meira
um það að segja.
Samkomulag við skilanefndina SkilanefndLandsbankansnáðisamkomulagiviðstjórnarmennDominosaðstýrapítustaðn-
umámeðanfundnirerunýirkaupendur.
farinn út úr Dominos Magnús
Kristinssonútgerðarmaðurerekki
lengurskráðureigandiDominos.
Tæplegatveggjamilljarðakróna
skuldireruinniífélaginu.