Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Síða 6
6 fréttir 22. nóvember 2010 mánudagur
Þeir fimm starfsmenn Íslands-
banka sem komnir eru í leyfi frá
störfum vegna rannsóknar sér-
staks saksóknara á Glitnismál-
inu eða stefnu slitastjórnar Glitn-
is gegn eigendum og stjórnendum
bankans halda fullum grunnlaun-
um á meðan þeir eru í leyfi frá
störfum. Þetta herma upplýsing-
ar DV frá Íslandsbanka. Ætla má
að enginn starfsmannanna fimm
sé með undir einni milljón króna
í mánaðarlaun og laun einhverra
þeirra eru án efa nær tveimur
milljónum.
Starfsmennirnir sem um ræð-
ir eru Jóhannes Baldursson, nú-
verandi framkvæmdastjóri fjár-
stýringar og markaðsviðskipta
Íslandsbanka, Bjarni Jóhannes-
son, Magnús A. Arngrímsson og
Guðný Sigurðardóttir hjá fyrir-
tækjasviði Íslandsbanka, og að
endingu Rósant Már Torfason,
yfirmaður áhættustýringar, lána-
eftirlits og lögfræðisviðs Íslands-
banka.
Verklagsreglur bankans
Íslandsbanki samdi verklagsregl-
ur eftir bankahrunið 2008 sem
stuðst er við í tilfellum þar sem
starfsmanni bankans er stefnt eða
er til rannsóknar hjá ákæruvaldi.
Það er með skírskotun til þessara
verkalagsreglna sem starfsmenn-
irnir fimm eru sendir í leyfi en
samkvæmt reglunum fá þeir einn-
ig að halda launum sínum á með-
an þeir eru í leyfi.
Fjórir af starfsmönnunum
fimm voru sendir í leyfi í apríl
síðastliðnum þegar skilanefnd
Glintis stefndi sex fyrrverandi
stjórnendum og eigendum Glitn-
is og krafðist sex milljarða króna
í skaðabætur. Jóhannes bætt-
ist svo í hópinn í vikunni þegar
hann var yfirheyrður í tengslum
við rannsókn sérstaks saksóknara
á málefnum Stíms. Rósant Már
og Bjarni voru einnig yfirheyrð-
ir í vikunni í tengslum við rassíu
sérstaks saksóknara á málefnum
Stíms.
Starfsmennirnir fjórir hafa því
verið á launum hjá Íslandsbanka í
meira en hálft ár.
Fjórir fengu kúlulán
Allir starfsmennirnir nema Guð-
ný Sigurðardóttir fengu kúlulán
til hlutabréfakaupa í Glitni í maí
2008. Jóhannes fékk þá 800 millj-
óna króna kúlulán í gegnum eign-
arhaldsfélag sitt, Rósant Már fékk
800 milljóna króna kúlulán, Magn-
ús A. Arngrímsson 800 milljóna
króna kúlulán og Bjarni Jóhann-
esson 170 milljóna króna kúlulán.
Lánin voru tekin í gegnum eignar-
haldsfélög þeirra og ákvað stjórn
Íslandsbanka að afskrifa þau í
sumar þar sem alveg ljóst lá fyrir
að starfsmennirnir gætu ekki greitt
þau til baka.
Fjórir af starfsmönnunum fimm
fá því laun á meðan málaferli gegn
þeim standa yfir eða rannsókn á
þeim. Þessar greiðslur í leyfinu
bætast við þær hundraða millj-
óna afskriftir á skuldum þeirra sem
greint var frá fyrr á árinu.
DV hefur ítrekað reynt að ná tali
af Jóhannesi Baldurssyni frá því
rassía sérstaks saksóknara hófst á
þriðjudaginn en hefur ekki haft er-
indi sem erfiði.
Íslandsbanki samdi verklags-
reglur eftir bankahrunið
2008 sem stuðst er við í
tilfellum þar sem starfs-
manni bankans er stefnt
eða hann er til rann-
sóknar hjá ákæruvaldi.
ingi F. Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þeir fimm starfsmenn Íslandsbanka sem sendir
hafa verið í leyfi út af stefnum slitastjórnar
Glitnis og rannsókn sérstaks saksóknara á mál-
efnum bankans halda launum sínum í bankan-
um á meðan. Sérstakar verklagsreglur um slík
tilfelli voru settar í bankanum eftir hrun. Fjórir
af starfsmönnunum fimm fengu kúlulán upp á
hundruð milljóna sem hafa verið afskrifuð.
HALDA
LAUNUM
Í LEYFINU
GLITNISMÁLIÐ:
Dregur dilk á eftir
sér Glitnismálið,sem
yfirleitterkenntviðJón
ÁsgeirJóhannesson,
virðistætlaaðdraga
dilkáeftirsérfyrirþá
starfsmennbankans
semennerustarfandií
Íslandsbanka.
Fimmti maðurinn Jóhannes
Baldurssonerfimmtimaðurinnsem
settureríleyfiíÍslandsbankavegna
Glitnismálsinssvokallaða.
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 -108 RVK
Sími: 517-2040
Góðir skór
á börnin
www.xena.is
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
Garðabær tekur
400 milljóna lán
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur sam-
þykkt að taka lán upp á 400 milljónir
króna hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Í fundargerð bæjarstjórnar kem-
ur fram að lánið sé til fjórtán ára og
það sé tekið til að fjármagna kaup
á fyrsta áfanga byggingu Sjálands-
skóla. Þar kemur ennfremur fram að
lánið breytist í samræmi við breyt-
ingar á vísitölu neysluverðs og muni
bera 4,1 prósent fasta vexti allan
lánstímann. Til tryggingar greiðslu
lánsins setur Garðabær tekjur sveit-
arfélagsins.
Bílvelta við
Galtarholt
Betur fór en á horfðist þegar öku-
maður jeppa missti stjórn á honum
á Vesturlandsvegi við Galtarholt
skömmu fyrir miðnætti á laugar-
dagskvöld með þeim afleiðingum
að hann valt. Að sögn lögreglunnar
í Borgarnesi var tilkynnt um slysið
klukkan 23.40 á laugardagskvöld en
auk ökumannsins voru tveir farþeg-
ar í bílnum. Þeir sluppu allir án telj-
andi meiðsla en að sögn lögreglu er
ökumaðurinn, sem er á þrítugsaldri,
grunaður um að hafa verið ölvaður
undir stýri.
Niðurstaða Persónuverndar kemur aðstandendum Skólapúlsins á óvart:
Öfluðuviðkvæmraupplýsinga
„Við leituðum ráða hjá Persónu-
vernd í ágúst 2008. Við sýndum þeim
spurningalistann og óskuðum eftir
mati lögfræðinga þeirra á hvort um
væri að ræða viðkvæmar persónu-
upplýsingar. Við fengum þá niður-
stöðu að með núverandi spurninga-
lista væri svo ekki. Úrskurðurinn
kemur okkur því á óvart því áður en
við hófum að afla nokkurra gagna
fullvissuðum við okkur um að við
færum að þeim lögum sem Pers-
ónuvernd starfar eftir,“ segir Almar
Miðvík Halldórsson doktorsnemi og
einn aðstandenda sjálfsmatskerfis-
ins Skólapúlsins um þann úrskurð
Persónuverndar að Skólapúlsinum
hafi verið óheimilt að afla viðkvæmra
persónuupplýsinga um börn nema
fyrir lægi yfirlýst samþykki foreldra.
Skólapúlsinn er vefkerfi sem mið-
ar að því að veita skólastjórnendum
upplýsingar um virkni nemenda og
líðan þeirra í skólanum. Verkefnið
hófst árið 2008 en yfir sjötíu skólar á
landinu taka þátt.
Til úrskurðarins kom eftir að for-
eldri nemanda í Grunnskólanum í
Borgarnesi lagði inn kvörtun vegna
vinnslu persónuupplýsinga um barn
sitt. Skólinn hafði tilkynnt foreldr-
um barnsins vinnsluna en sérstaks
samþykkis var ekki óskað. Í svar-
bréfi Skólapúlsins til Persónuvernd-
ar kom fram að í upphafi hvers skóla-
árs sendi tengiliður Skólapúlsins í
hverjum skóla út upplýsingabréf til
foreldra þar sem fram komi hvað sé
mælt í Skólapúlsinum og þeir for-
eldrar sem kæri sig ekki um að þeirra
barn taki þátt beðnir um að láta skól-
ann vita. Í úrskurði Persónuverndar
kemur hins vegar fram að samþykki
foreldris skuli vera yfirlýst og því
verði þögn ekki virt sem samþykki.
Aðstandendur Skólapúlsins ehf.
munu funda með Persónuvernd í
dag, mánudag. „Þá munum við fá
að vita með hvaða hætti þeir vilja sjá
breytingarnar og að sjálfsögðu mun-
um við fylgja þeim tilmælum sem
lögð verða fram,“ segir Almar sem
vill benda á að gagnvart skólunum sé
könnunin nafnlaus til að vernda rétt
nemenda.
indiana@dv.is
Borgarnes Foreldrinemanda
íBorgarnesilagðiinnkvörtun
eftiraðbarnhanshafðitekið
þáttíkönnuninniánþessað
samþykkiþesslægifyrir.