Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Qupperneq 11
mánudagur 22. nóvember 2010 fréttir 11
„Þótt orrustan hafi tapast á fundinum
er stríðið ekki tapað,“ segir Atli Gísla-
son þingmaður, en hann var flutn-
ingsmaður tillögu ESB-andstæðinga
á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs um helgina.
Tillaga hans, sem 70 félagar í VG inn-
an og utan flokksráðsins studdu, kom
á endanum ekki til atkvæða. Tillaga
um áframhaldandi aðildarviðræður
í anda stefnuyfirlýsingar ríkisstjórn-
arinnar var hins vegar samþykkt nær
mót atkvæðalaust áður en yfir lauk. Þar
er þó kominn fyrirvari um móttöku
styrkja frá ESB sem andstæðingar að-
ildar vilja með engu móti taka við.
„Niðurstaða flokksráðsfundarins er
Phyrrosarsigur fyrir flokksforystuna.
Þetta er með öðrum orðum dýrkeypt
fyrir flokkinn og stefnu hans gagnvart
ESB,“ segir Atli.
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG,
lýsti óánægju sinni á Fésbókarsíðu
sinni á netinu í gær. „Stjórnarflokk-
ar líkjast meir og meir gömlu komm-
únistaflokkunum eftir því sem gagn-
rýnin á forystuna eykst bæði innan
og utan þeirra. Fundir verða að hátíð-
arsamkomum til að hylla leiðtogana
og hjörðin er rekin á bás til að klappa
og greiða atkvæði í samræmi við vilja
leiðtoganna. Kjósendur horfa agndofa
á leiksýninguna og öskra á uppstokkun
en ekkert mun gerast fyrr en boðað
verður til kosninga,“ segir þar.
Ágreiningur um aðferðir
Ögmundur Jónasson, ráðherra dóms-
og samgöngumála, ritaði grein í Morg-
unblaðið á dögunum þar sem hann
hvatti til þess að knúin yrði fram nið-
urstaða um samningsmarkmið Ís-
lendinga í ESB-viðræðum á nokkrum
mánuðum og eftir það yrði eins konar
samningsígildi borið undir kjósendur í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi sjónar-
mið hans, Ásmundar Einars Daðason-
ar, Atla og fleiri urðu undir á flokks-
ráðsfundinum. Ögmundur lýsti því
þegar í umræðum um aðildarumsókn
á þingi í júlí í fyrra að aðildarumsóknin
hafi verið vitlaus. „En ég virði þá stað-
reynd að drjúgur hluti landsmanna
óskar eftir því að láta á þetta reyna og
ég virði þann vilja því að fyrir mér snýst
þetta mál fyrst og síðast um lýðræðið
og það snýst líka um að óttast ekki um-
ræðuna og horfast í augu við vandann
sem fram undan er,“ sagði Ögmundur í
þingræðu 15, júlí í fyrra.
„Ég studdi lokaályktun flokksráðs-
fundarins. Tillaga sem gekk lengra var
felld og ég harma að ekki hafi verið
hægt að samræma efni þessara tveggja
tillagna,“ sagði Ögmundur í samtali við
DV í gær.
Ögmundur hefur lagst gegn því sem
kallað hefur verið aðlögun að ESB-að-
ild Íslands og telur að það fé sem ESB
ætlar að leggja fram í slíku ferli sé raun
fé til áróðursstarfsemi. Einna lengst
hefur Heimssýn gengið gegn slíku að-
ildarferli undir forystu Ásmundar Ein-
ars Daðasonar, þingmanns VG. „Ég hef
einfaldlega hvatt til þess að í stað þess
að selja sig undir þetta aðlögunarferli,
verði svo fljótt sem auðið er látið reyna
á helstu samningsmarkmið okkar og
að því marki tel ég að hægt sé að breyta
aðildarferlinu,“ segir Ögmundur.
Undirtök formannsins
Stuðningur um 100 manna flokksráðs
VG við forystu flokksins og þá eink-
um Steingrím J. Sigfússon, formann
flokksins, reyndist meiri en róttæki
armur flokksins hafði gert ráð fyrir. Til-
lagan, sem Alti Gíslason og fleiri báru
fram gegn ESB-stefnunni, studdist
aðeins við 17 nöfn flokksráðsmanna,
þar á meðal þingmanna og ráðherra.
Tillaga, sem borin var fram af Lár-
usi Hannessyni og fleiri flokksmönn-
um átti stuðning að minnsta kosti 40
flokksráðsmanna. Í þeim hópi voru
engir þingmenn eða ráðherrar eftir því
sem næst verður komist. Að því leyti
stóð sá hópur nær skilgreiningunni á
grasrót innan stjórnmálaflokka.
Raunin varð sú að tillaga sautján-
menninganna var ekki borin undir at-
kvæði. Þess í stað bar Ragnar Arnalds
fram málamiðlunartillögu. Sú tillaga
var felld með 58 prósentum atkvæða
gegn 42 prósentum. Aftur á móti var
lítið breytt tillaga Lárusar og félaga
samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða.
Niðurstaðan hefur verið túlkuð
sem afgerandi stuðningur við formann
flokksins, Steingrím J. Sigfússon. Eftir
er hins vegar að sjá hvort þeir sem töp-
uðu orrustunni uni niðurstöðunni og
lýðræðislegri ákvörðun flokksráðsins.
Ljóst er að flokksmenn, eins og Lilja og
Atli, ætla þrátt fyrir niðurstöðu fundar-
ins að andæfa stefnu ríkisstjórnarinn-
ar í ESB-aðildarviðræðunum. Þess ber
að geta að VG hefur alla tíð áskilið sér
rétt til þess að tala gegn aðild að ESB
á opinberum vettvangi enda er það
meginstefna flokksins að hagsmunum
Íslands sé best borgið utan sambands-
ins.
Vörumst hægriöflin
Margir hafa þóst sjá að Sjálfstæðis-
flokkurinn, einkum Morgunblaðsarm-
urinn undir merkjum Davíðs Odds-
sonar, biðli í sífellu til róttæka armsins
innan VG. Enda eigi þar margir samleið
í andstöðu við ESB, Icesave-samninga
og jafnvel um fleiri pólitísk ágreinings-
mál. Flokksráðsfundur VG um helgina
tók hins vegar af skarið um að slíkar
pólitískar bollaleggingar séu þýðing-
arlausar. Í ályktun flokksráðsins um
stjórnarsamstarfið, ESB og efnahags-
mál segir orðrétt: „Flokksráð hvetur
forystu flokksins, ráðherra, þingmenn
og aðra fulltrúa hans til að sýna sam-
stöðu og vera á varðbergi gagnvart ha-
trömmum tilraunum hægriaflanna til
að reka fleyg í raðir vinstrimanna. Slík-
ar tilraunir þjóna þeim eina tilgangi að
leiða þá sem hvað mesta ábyrgð bera
á hruninu aftur til valda. Baráttunni
fyrir endurmótun og úrbótum í sam-
félaginu þarf að halda óhikað áfram
og er þátttaka Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í ríkisstjórn forsenda
þess að hún vinnist.“
Ganga styrkari til leiks
Í lokaályktun flokksráðsins um ESB-
aðildarviðræðurnar er talað um að
ekki verði tekið við styrkjum frá ESB
sem beinlínis eigi að undirbúa aðild.
Þá hvetur flokksráðið til þess að svo
fljótt sem unnt er verði í viðræðuferl-
inu látið reyna á meginhagsmuni Ís-
lands eins og þeim er lýst í samþykkt
Alþingis.
Ljóst er að þessi atriði samþykktar-
innar eiga enn um sinn eftir að valda
núningi í samstarfi VG við Samfylk-
inguna. Engu að síður er ótvírætt að
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
flokksins, og stuðningsmenn hans,
höfðu undirtökin innan flokksráðsins
þegar á reyndi og formaðurinn hafði
brýnt menn til samstöðu. Að þessu
leyti stendur ríkisstjórnin styrkari fót-
um í dag en hún gerði fyrir flokksráðs-
fundinn.
Ósigur ÓrÓlegu
deildarinnar
jóhann haUksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Órólega deildin í VG unir illa niðurstöðu
flokksráðsfundarins sem samþykkti með
yfirgnæfandi meirihluta stuðning við
stjórnarsamstarfið við Samfylkinguna
og ferli umsóknarinnar um aðild að ESB.
Ögmundur Jónasson harmar að ekki hafi
tekist að bræða saman tillögur beggja
fylkinga en hann studdi lokaniðurstöð-
una. „Orrusta tapaðist en stríðið ekki,“
segir Atli Gíslason. Lilja Mósesdóttir segir
að á fundinum hafi hjörðin verið rekin til
að klappa fyrir foringjanum.
Niðurstaða flokksráðsfund-
arins er Phyrrosarsigur
fyrir flokksforystuna.
Þetta er með öðrum orð-
um dýrkeypt fyrir flokk-
inn og stefnu hans gagn-
vart ESB,“ segir Atli.
steingrímur styrkir stöðu sína Færði
flokksráðVGríkisstjórninnivindíseglin?
Vildi ganga lengra ÖgmundurJónassonharmaraðekkiskylditakastaðbræða
samanróttækaESB-tillöguogþátillögusemendanlegavarsamþykkt.
óánægð með meirihlutaákvörðun
flokksráðsins LiljaMósesdóttirsendir
forystuogformanniVGtóninnánetinu
oglíkirstjórnarflokkunumviðgamla
kommúnistaflokka.