Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Qupperneq 12
12 nærmynd 22. nóvember 2010 mánudagur
Björn Kristmann Leifsson, betur
þekktur sem Bjössi í World Class,
er landsmönnum kunnur sem einn
af fremstu líkamsræktarfrömuðum
landsins. Hann hefur rekið World
Class í 25 ár en þrátt fyrir góðan
ásetning um að koma landsmönn-
um í gott form hefur reksturinn geng-
ið misvel eins og flestir vita. Fréttir
um Björn í gegnum árin hafa spann-
að allt frá því að fjalla um að hann
og kona hans, Hafdís, hafi verið val-
in markaðsmenn ársins til frétta um
kennitöluflakk fyrirtækisins. Nýjustu
fréttir herma að hjónin hafi greitt ein-
ungis 25 milljónir króna fyrir rekstur
World Class þegar þau keyptu hann
af þrotabúi Þreks, sem var í eigu
þeirra sjálfra. Einnig er sagt að eign-
in sé þó metin á 500 til 700 milljónir
króna.
Jákvætt að alast upp í smáþorpi
Björn er fæddur og uppalinn á Flat-
eyri og er sonur hjónanna Leifs
Björnssonar og Margrétar Jónu Haga-
línsdóttur. Hann gekk í grunnskólann
á Núpi og fór snemma að æfa íþrótt-
ir af kappi. Hann æfði frjálsar íþrótt-
ir og skíði en á unglingsárunum sneri
hann sér að líkamsræktinni. Haft hef-
ur verið eftir honum að hann minnist
æskuáranna með hlýju og að það hafi
verið jákvætt að alast upp í smáþorpi
úti á landi.
Monthani niður í tær
Félagi Björns frá Flateyri lýsir hon-
um sem ágætum dreng en monthana
niður í tær. „Hann var mjög kapps-
fullur og vildi fá meira en aðrir. Hann
fékk til dæmis alltaf að smíða flott-
ari hluti en við hinir í smíði,“ segir
félaginn. Hann minnist þess einnig
hve Björn gat verið ör en sama hvað
gekk á var Björn alltaf saklaus, að
eigin sögn. „Við gengum í gegnum
súrt og sætt og stóðum fyrir ýmsum
strákapörum. Björn tók jafn mikinn
þátt í því og við hinir en um leið og
heim var komið skein af honum sak-
leysið,“ bætir hann við. Hann segir
að ástæðan fyrir því hafi líklega verið
sú að komið var fram við Björn sem
barn langt fram eftir aldri. „Hann fór
ekkert út í beitningarskúr um leið og
hann gat labbað, eins og við hin,“ seg-
ir hann að lokum.
Líkaði ekki sjómennskan
Eftir grunnskólapróf lá leið Björns í
Vélskólann á Ísafirði þar sem hann tók
þriðja stig vélastjóranáms en lauk því
í Vélskólanum í Reykjavík. Hann vann
sem vélstjóri í nokkur ár og einnig við
dekkjasólningar. Björn sagði í viðtali
við DV í lok árs 2009 að hann hefði
ráðið sig til sjós að námi loknu en að
það starf hefði aldrei hentað honum.
„Mér fannst þetta bara fúlt, ég var
alltaf úti á sjó þegar allir aðrir voru
að skemmta sér. Mér líkaði aldrei að
vera svona fastur um borð og vildi
bara komast í land. Í mínum huga er
sjómennskan einfaldlega sjálfskap-
að fangelsi,“ sagði hann. Björn hætti
sjómennsku og eftir að hafa unnið
við að sóla dekk í tvö ár á Gúmmí-
vinnustofunni stofnaði hann líkams-
ræktarstöðina World Class árið 1985.
Starfsemin byrjaði í litlu húsnæði í
Skeifunni 3c en stækkaði jafnt og þétt.
Nú 25 árum seinna eru líkamsræktar-
stöðvar World Class níu talsins á höf-
uðborgarsvæðinu.
Giftist samkeppnisaðila
Árið 1988 kynnist Björn Hafdísi Jóns-
dóttur sem rak þá sitt eigið fyrir-
tæki, Dansstúdíó Dísu, í Garðabæn-
um. Fjótlega felldu þau hugi saman,
giftu sig og eiga í dag saman tvö börn.
Ákveðið var að selja fyrirtæki Hafdísar
og slá starfsemi þess og World Class
saman og hafa hjónin rekið fyrirtækið
saman síðan þá.
Hjónin hafa staðið fyrir ýmsum
nýjungum og má þar nefna tilrauna-
verkefni sem fyrirtæki þeirra stóð fyr-
ir í byrjun árs 2009. Verkefnið gekk
út á að starfsfólk fjögurra stofnana
fékk frítt í líkamsrækt ef það mætti að
minnsta kosti einu sinni í viku. Með
þessu sagðist Björn stuðla að heil-
brigðara lífi opinberra starfsmanna
svo sem lögreglumanna og heilbrigð-
isstarfsmanna, en umræddar stofn-
anir voru Landspítalinn, Heilsugæsla
höfuðborgarsvæðisins, lögreglan og
Ríkisútvarpið.
Þrátt fyrir velgengni fyrirtækis-
ins og fjölgun stöðva hefur oft verið
á brattann að sækja hjá Birni síðustu
árin.
Í málaferlum við systur sína
Árið 1997 stofnaði Björn fyrirtæk-
ið Þrekhöllina ehf. sem hélt utan
um heilsuræktarstöð World Class á
Akur eyri ásamt hálfsystur sinni Ástu
Hrönn Björgvinsdóttur. Ásta Hrönn
var framkvæmdastjóri fyrirtækisins
og sá um rekstur stöðvarinnar í um
það bil sex ár. Í viðtali við DV í lok síð-
asta árs lýsti Ásta Hrönn samskiptum
þeirra systkina og sagði að Björn hefði
ekki komið heiðarlega fram við hana.
Hún sagði að hún hefði þurft að stefna
honum vegna vangoldinna launa og
hið sama gerðu börnin hennar sem
störfuðu á líkamsræktarstöðinni. Svo
fór að fyrirtæki Björns var dæmt til að
greiða börnum hennar launin. Einn-
ig stefndi eiginmaður Ástu Hrannar
Birni vegna vinnuframlags síns við
stofnun stöðvarinnar í Laugum en
Björn vann það mál. Í viðtalinu sagði
Ásta Hrönn að hún væri búin að gef-
ast upp á bróður sínum. „Okkar deilur
standa enn yfir og hann vílar ekki fyrir
sér að láta fólk vinna fyrir sig án þess
að borga. Ég, og við, erum því mið-
ur í þeirri stöðu að geta ekkert gert
og hann kemst bara upp með það að
borga ekki,“ sagði hún.
Kærður fyrir mútur
Eftir að Björn opnaði sína fyrstu
líkamsræktarstöð gerðist hann
rekstraraðili vinsælla veitinga- og
skemmtistaða, Ingólfskaffis og Þjóð-
leikhúskjallarans. Staðina rak hann
í tíu ár. Árið 2002 var hann ákærður
fyrir að greiða Árna Johnsen mútur.
Málavextir voru þeir að Björn og Gísli
Hafliði Guðmundsson voru sakaðir
um mútur með því að hafa sem for-
svarsmenn Þjóðleikhúskjallarans hf.
lofað að greiða Árna sem formanni
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
650.000 króna þóknun fyrir að sam-
þykkja greiðslu á reikningi veitinga-
hússins á hendur byggingarnefnd-
inni. Gísli var sakfelldur í málinu en
Björn sýknaður.
Útrás sem mistókst
Árið 2006 ákvað Björn að hefja út-
rás og setja líkamsræktarstöðvar á
laggirnar í Danmörku. Í samstarfi
við Straum-Burðarás opnaði hann
keðju líkamsræktarstöðva sem hét
Equinox og þegar mest lét voru starf-
ræktar þrettán stöðvar undir því heiti
í Danmörku. Verkefnið gekk þó ekki
sem skyldi og lauk með þeim hætti
að Straumur viðskiptabanki tók til sín
Equinox og náði að selja keðjuna til
erlendra aðila en skuldirnar stóðu þó
eftir. Haft var eftir Birni í fyrra að hann
hefði fengið ævintýralega lélegar ráð-
leggingar við útrásarverkefnið og
kom það til tals að hann myndi stefna
Straumi fyrir þessar ráðleggingar.
Í nóvember árið 2009 námu skuld-
ir Þreks ehf. tæpum milljarði króna
en það voru ekki eingöngu útrásar-
skuldir heldur líka venjubundnar
rekstrarskuldir World Class á Íslandi.
Félagið skuldaði Landsbankanum
níutíu milljónir króna í húsaleigu og
var skuldin tilkomin vegna húsaleigu
líkamsræktarstöðvarinnar í Laugum
sem og húsaleiguskulda dótturfélaga
World Class, annars vegar Lauga-Spa
ehf. og hins vegar Þreks kaffis ehf. Til
að bjarga rekstri líkamsrækarstöðvar-
innar var ákveðið að færa hann und-
ir aðra kennitölu, nánar tiltekið yfir til
móðurfélagsins, Lauga ehf.
Nýjar kennitölur
Björn viðurkenndi í viðtali við DV
fyrir ári að sökum greiðsluþrots fyr-
irtækisins hefði rekstur þess verið
færður yfir í annað félag, uppruna-
legt eignarfélag líkamsræktarinnar.
Þangað hefðu helstu rekstrarsamn-
ingar og daglegur rekstur verið
færð til að bjarga rekstrinum. „Við
erum ekki að færa reksturinn yfir í
nýtt félag heldur í móðurfélag. Mál-
ið er mjög einfalt, félagið var orðið
greiðsluþrota og til bjargar var rekst-
Björn Leifsson ólst upp á Flateyri og nam vélstjórn. Hann áttaði
sig fljótlega á því að sjómennska átti ekki við hann en líkams-
ræktin átti hug hans allan. Hann stofnaði líkamsræktarfyrir-
tækið World Class og hefur verið kenndur við það síðan. Fyrir-
tækið lenti í vandræðum eftir útrásartilraun en rekstur þess var
fluttur á milli félaga til að halda honum gangandi.
GuNNhiLdur steiNarsdóttir
blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is
Ágætur drengur en monthani
niður í tær.
World Class HöfuðstöðvarfyrirtækisinseruíLaugum. MyNd stefáN KarLssoN
Björn Leifsson Björnásamtkonusinniogdóttur. MyNd BJörN BLöNdaL
Heilsuútrásin sem mistókst