Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Page 17
mánudagur 22. nóvember 2010 erlent 17
Reykingamenn í Bretlandi gætu
átt von á því að kaupa sígarettur í
brúnum eða gráum, stöðluðum
pakkningum. Talið er að litríkir
síga rettupakkar sé ein af ástæðun-
um fyrir því að börn byrji að reykja.
Vonast er til þess að með litlaus-
um og óspennandi umbúðum sé
hægt að draga verulega úr þeim
fjölda barna sem byrja að reykja.
Talsmaður breska heilbrigðisráðu-
neytisins sagði að litríkir sígarettu-
pakkar væru markaðstól sem stóru
tóbaksfyrirtækin beittu óspart, al-
gerlega óáreitt af yfirvöldum.
Heilbrigðisráðherra Breta,
Andrew Lansley, sagði að yfirvöld
væru að gera allt sem þau gætu til
að bæta heilsu landsmanna. „Þess
vegna vil ég skoða hugmyndina
um litlausa pakka. Það liggja fyrir
beinar sannanir að hönnun síga-
rettupakka laðar að nýja viðskipta-
vini, sem þýðir að við verðum að
velta þessu fyrir okkur. Helst af öllu
myndum við vilja að enginn reykti
þó best sé ef fullorðnir geti ennþá
keypt sér sígarettur, en við verðum
að vernda börnin alveg frá byrjun.“
Nú þegar hafa yfirvöld í Ástr-
alíu samþykkt að sígarettupakkar
verði að vera í litlausum umbúðum
fyrir júlímánuð 2012, en þeir hafa
löngum tekið frumkvæði í tóbaks-
varnarmálum. Deborah Arnott er
yfirmaður samtakanna Action on
Smoking. Hún er ánægð með að
heilbrigðisráðherra fjalli um málið
en finnst að hann mætti hafa hrað-
ari hendur. „Hann ætti að setja
dagsetningu á ný tóbakslög undir
eins. Tíminn er að renna frá okk-
ur og við þurfum að vernda börnin
okkar núna. Ef við bíðum of lengi
missum við heila kynslóð frá okkur
í tóbaksfíkn.“
Bretar íhuga að banna litríkar og spennandi umbúðir utan um sígarettur:
Staðlaðir og litlausir pakkar
Hollenska borgin Amsterdam er einn
vinsælasti áfangastaður ferðamanna
í Evrópu. Þangað fer fólk hins vegar
ekki eingöngu til að skoða safn Önnu
Frank eða sigla um síkin. Í Amster-
dam er frjálsleg fíkniefnalöggjöf sem
heimilar kaffihúsum, sem hlotið hafa
tilskild leyfi, að selja kannabis-efni.
Milljónir ferðamanna sækja borgina
því heim á hverju ári, með það fyr-
ir augum að „fá sér jónu“ án þess að
þurfa að hafa áhyggjur af afskiptum
lögreglu. Nú gæti þessi hópur ferða-
manna hins vegar þurft að leita ann-
að, því hollensk stjórnvöld íhuga hvort
banna eigi ferðamönnum að sækja
kaffihús sem selja kannabisefni.
Tekið fyrir í þinginu
Dómsmálaráðuneytið í Hollandi hef-
ur staðfest að það sé stefna nýrrar
samsteypustjórnar Kristilegra demó-
krata og Þjóðarflokks frelsis og lýð-
ræðis að banna ferðamönnum að
eiga viðskipti við kannabis-kaffihús-
in. „Auðvitað er ferðamönnum vel-
komið að heimsækja Holland en ekki
til þess eins að heimsækja kaffihúsin,“
sagði Ivo Opstelten, dómsmálaráð-
herra Hollands. „Í náinni framtíð, ef
við náum að vinna úr tæknilegum at-
riðum, munu kaffihúsin ekki vera að-
gengileg ferðamönnum.“
Ferðamenn stærsti
kúnnahópurinn
Í viðtali við breska blaðið Guardian
sagði ónefndur starfsmaður á einu
vinsælasta kannabis-kaffihúsi Am-
sterdam að 99 prósent viðskiptavin-
ana væru erlendir ferðamenn. „Flest-
ir viðskiptavinirnir eru enskir, þeir
koma til að halda steggjaveislur og
blanda saman eiturlyfjum og áfengi.“
Starfsmaðurinn sagðist jafnframt vera
andsnúinn fyrirætlunum ríkisstjórn-
arinnar. „Þetta er allt grábölvað. Öll
kaffihúsin eiga eftir að fara á haus-
inn.“ Starfsmaður á öðru kaffihúsi
tók í sama streng. „Þeir [ríkisstjórnin]
segja að aðgerðirnar séu til að minnka
afbrotatíðni en það eina sem á eftir að
gerast er að afbrotum mun fara fjölg-
andi. Komist ferðamenn ekki á kaffi-
húsin fara þeir að kaupa efnið af Hol-
lendingum á götum úti.“
Þrengir sífellt að
Margir Hollendingar efast um að rík-
isstjórnin láti verða af ferðamanna-
banninu, of mikið sé í húfi. Eins
og staðan er í dag eru rekin rúm-
lega 200 kaffihús sem er heimilt að
selja kannabisefni. Hver viðskipta-
vinur má ekki kaupa meira en fimm
grömm á hverjum degi, en þau mega
aðeins vera til einkanota. Árið 2007
þrengdi verulega að kaffihúsunum
þegar ákveðið var að banna áfengis-
sölu á þeim stöðum sem seldu einn-
ig kannabis. Wim van der Weegen,
talsmaður hollenska dómsmálaráðu-
neytisins, sagði að frjálsleg fíkniefna-
löggjöf Hollands væri farin að hafa
neikvæð áhrif, meðal annars þau að
kaffihúsin væru orðin helsti áfanga-
staður ferðamanna í Hollandi. „Við
ættum að gera kaffihúsin að því sem
þeim var ætlað að vera, góð aðstaða
fyrir heimamenn.“
Ferðamönnum
verði bannað að
sækja kaffihúsin
að ef sendiherrar myndu þekkjast
boð Nóbelsverðlaunanefndarinnar
myndu fylgja því „afleiðingar.“
Óvissa ríkir
Þrátt fyrir hótanir Kínverja hafa
sendiherrar vestrænna ríkja þekkst
boðið en þar á meðal eru Bandarík-
in og öll 27 aðildarríki Evrópusam-
bandsins. Lundestad vildi ekki segja
hvaða ríki það væru sem hefðu ekki
svarað boðinu, en heimildir Reuters
herma að meðal þeirra séu Indland,
Pakistan og Indónesía. Biðu sendi-
ráð þeirra eftir leyfi frá stjórnvöldum,
en þau leyfi munu aldrei hafa bor-
ist. Lundestad hefur aldrei séð neitt
þessu líkt. „Ég veit ekki um dæmi þess
að neitt ríki hafi reynt með jafnafger-
andi og beinum hætti að koma í veg
fyrir að sendiherrar verði viðstaddir
athöfnina.“
Komi til þess að einhver geti tek-
ið við verðlaununum fyrir hönd Liu,
mun afhendingin fara fram þann 10.
desember. Verðlaunin er gullmedal-
ía og peningaupphæð, sem samsvar-
ar um 160 milljónum íslenskra króna.
Liu er fyrsti Kínverjinn sem hlýtur út-
nefningu til friðarverðlauna Nóbels.
Enginn nákominn ætt-
ingi friðarverðlaunahafa
Nóbels, Liu Xiaobo, getur
tekið við verðlaununum
fyrir hans hönd. Sjálfur
situr hann í fangelsi
fyrir að berjast fyrir
lýðræðisumbótum í Kína.
Kínversk stjórnvöld
hafa hótað sendiherrum
eftirköstum, verði þeir
viðstaddir athöfnina.
Ríkisstjórnin í Hollandi ætlar sér að koma á ferðamannabanni
á kaffihúsum sem selja kannabisefni. Starfsmaður á einu slíku
segir 99 prósent allra viðskiptavina vera erlenda ferðamenn.
björn TeiTsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Þetta er allt grá-bölvað. Öll kaffi-
húsin eiga eftir að fara á
hausinn.
Kaffihúsagestir Gangi
áætlun stjórnvalda eftir
verður spurt um vegabréf á
kaffihúsum í náinni framtíð.
of litríkir pakkar Talið er að börn
laðist að litríkum sígarettupökkum.
Áfengur orkudrykk-
ur bannaður
Áfengi orkudrykkurinn Four Loko,
sem hefur verið fáanlegur í Banda-
ríkjunum, verður væntanlega bann-
aður innan skamms. Drykkurinn,
sem aðdáendur kalla „minnisleysi í
dós,“ inniheldur koffín, guarana og
tárín sem eru allt örvandi efni. Auk
þess er áfengismagnið 12 prósent,
eða á við léttvínsflösku. Ungur mað-
ur í Flórída lét lífið fyrir skömmu,
og er dauði hans rakinn til neyslu
Four Loko. Framleiðendur drykkj-
arins segja hins vegar að ef banna
eigi Four Loko, væri allt eins hægt að
banna fólki að fá sér romm og kók.
Cantona berst
við banka
Franski strandfótboltamaðurinn og
leikarinn Eric Cantona hefur sagt
bönkum stríð á hendur. Cantona er
þekktastur fyrir snilldartakta á knatt-
spyrnuvellinum en einnig fyrir að
vera óútreiknanlegur persónuleiki
og skapstór. Hann hefur nú skorað
á fólk að taka peninga sína úr bönk-
um, öðruvísi sé ekki hægt að koma
af stað byltingu. „Við verðum að fara
í bankann fyrst, kerfið er byggt á
valdi bankanna og ef við ætlum að
gera út um kerfið verðum við að gera
út um vald þeirra.“
Pútín bjargar
tígrisdýrum
Vladimír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, er mikill dýravinur. Í síð-
ustu viku sást hann knúsa innilega
búlgarskan hvolp sem hann fékk að
gjöf og nú hefur hann skipulagt fjög-
urra daga ráðstefnu tileinkaða tígrís-
dýrum. Pútín naut aðstoðar Roberts
Zoelick, forseta Alþjóðabankans,
við skipulagningu ráðstefnunnar en
markmiðið með henni er að safna
nægilegu fé til að auðvelda vernd-
un tígrisdýra. Bandaríski leikarinn
Leonardo DiCaprio mun einnig
verða viðriðinn verkefnið en tígris-
dýr hafa aldrei verið færri í heimin-
um og eru sumir stofnar taldir í út-
rýmingarhættu.