Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2010, Side 19
Eru Íslending-
ar upp til hópa
rómantískt fólk?
Fljótt á litið er
þessu auðsvarað.
Ef maður gengur
í gegnum mið-
bæinn að mið-
nætti um helgar
og lítur á hvern-
ig þjóðin hagar
ástarmálum sín-
um virðist hér
um afskaplega
órómantíska þjóð að ræða. En þegar
nánar er að gáð eru Íslendingar afar
rómantískir. Og reyndar of mikið, ef
eitthvað er. Umheimurinn uppgötv-
aði fyrst Ísland að einhverju marki
á 19. öld, þegar fræðimenn megin-
landsins heilluðust af Íslendinga-
sögunum og þessari þjóð sem virtist
samanstanda af hálfvilltum náttúru-
börnum. Þetta var á tímum rómant-
ísku stefnunnar sem hafnaði skyn-
seminni og kaus frekar hluti eins og
þjóðernið, listina og ástina til að gefa
lífinu merkingu.Síðan þá hefur Ís-
land við og við komist á kortið, ekki
síst þegar náttúrubörn eins og Björk
og Sigur Rós báru hróður landsins
víða. Að einhverju leyti hafa Íslend-
ingar gengist upp í þessari ímynd.
En að öðru leyti virðist hún hreint og
beint eiga vel við.
Rómantískir bankamenn
Með útrásinni reyndu Íslending-
ar að rífa sig upp úr þessari ímynd.
Bankamenn okkar skildu hinn
flókna heim hagfræðinnar betur en
flestir og áttu jafn vel heima í New
York og Reykjavík, Íslendingar voru
nútímaþjóð stórfyrirtækja og kaldr-
ar fjárhagslegrar skynsemi. En síðan
snérist allt við aftur. Bankamenn-
irnir voru ekki nýtísku reiknivélar,
heldur þvert á móti náttúrubörn
sem stjórnuðust af tilfinningum sín-
um, jafnvel mjög barnalegum til-
finningum eins og óhóflegri græðgi.
Ef við bætum eins og einu eldgosi
við var Ísland aftur orðið heim-
kynni víkinga og villimanna og eng-
in leið er að vita hverju þeir taka
upp á næst. Bankamennirnir eru
kannski ekki alsaklausir, en eigi að
síður er hægt að segja að mikið sak-
leysi einkenni heimsmynd Íslend-
inga. Við viljum trúa því að heimur-
inn sé í grunninn réttlátur, þó mun
erfiðara sé að trúa slíku eftir hrun.
Ef einhverjum vegnar vel viljum við
trúa að það sé vegna þess að hann sé
svona duglegur, ekki vegna þess að
hann sé að kokka eitthvað óheiðar-
legt í reikningsbókunum.
Halda Íslendingar fram hjá?
Þetta sakleysislega og að hluta til
rómantíska viðhorf má einnig heim-
færa upp á afstöðu okkar til ástar-
innar. Á meðan meginlandsþjóð-
irnar, ekki síst heimsmeistarar eins
og Frakkar, líta á hana sem leik sem
gefur lífinu lit (svo alhæft sé allhress-
ilega), þá eru Íslendingar gjarnir á
að líta á hana sem eitthvert utan-
aðkomandi afl sem kemur til þeirra
sem eiga hana skilið og gerir allt gott
þegar minnst varir. Jafnvel fullorð-
ið fólk heldur oft í barnatrúna hvað
þetta varðar. Útlendingar spyrja mig
stundum hvernig fólk fari að því að
halda fram hjá í svona litlum bæ eins
og Reykjavík. Framhjáhald er svo
eðlilegur hlutur að ekki er spurt um
hvort heldur hvernig. Ég leyfi mér að
fullyrða að Íslendingar halda líklega
minna fram hjá en aðrir, hvort sem
það er smæð þjóðarinnar eða öðru
að þakka. Það framhjáhald sem á sér
stað gerist á fylleríum þegar skyn-
semin er skilin eftir heima, en minna
er um hjákonur og langtímahliðar-
sambönd.
Framhjáhald í Frakklandi
Íslenskar konur eru þrátt fyrir allt
fremur frjálsar þegar að ástamálum
kemur, og skilnaður er talinn eðlileg-
ur hlutur þegar því er að skipta. Því er
lítil ástæða fyrir fólk að giftast ungt,
og jafnvel af félagslegum ástæðum
fyrst og fremst, og haldast gift þó það
sé löngu búið að fá leið á makanum
á meðan ástin fær fyrst að blómstra
í framhjáhaldinu. Allt þetta leiðir til
þess að Íslendingar eru líklega trú-
ir sínum maka á meðan á stendur,
því annars er ekki svo erfitt að skipta
honum út. Síðan fréttist náttúrulega
allt í litlum bæjum, en framhjáhald
er hér litið alvarlegri augum en hjá
þeim í Frans sem líta á þau sem nán-
ast eðlilegan part ástamála. Við eig-
um bágt með að skilja að fólk geri
svona nokkuð.
Hið innbyggða sakleysi Íslend-
inga hefur orðið okkur dýrkeypt. En
það hefur sínar góðu hliðar samt...
GUÐMUNDUR ÞÓRARINSSON,
bróðir Ingós í Veðurguðunum, fékk að
troða upp með hljómsveitinni á NASA
um helgina. Guðmundur skrifaði
nýverið undir samning við Pepsi-deild-
arlið ÍBV sem endaði í þriðja sæti á
síðasta Íslandsmóti.
BOLTINN SKEMMTI-
LEGRI EN SÖNGURINN
1 LÖPPIN LÖGUÐ OG HEILINN HRÖKK Í GANG Tónlistarmaðurinn
Bjartmar Guðlaugsson gekk um
fótbrotinn í 27 ár og var ánægður
þegar hann fékk meina sinna bót.
2 RÉÐUST Á PAR AÐ TILEFNISLAUSU Ráðist var á kærustupar á Hlemmi
aðfaranótt sunnudags.
3 ÚT FYRIR EIGIÐ VALDSVIÐ Lögreglumaðurinn Garðar Helgi
Magnússon var sakfelldur fyrir brot í
starfi.
4 MIKIL FRAMLEIÐSLUGETA Á AUÐGUÐU ÚRANI Bandarískur
vísindamaður segir Norður-Kóreu
búa yfir mikilli framleiðslugetu á
úrani.
5 KÆRIR ÓHRÓÐUR Á NETINU Sóley Sveinsdóttir hefur ákveðið að kæra
þá sem svívirtu hana á netinu.
6 SKILA FORNMUNUM INKA Yale-há-skóli ætlar að skila fornmunum sem
teknir voru úr Machu Picchu-rústun-
um í Perú árið 1911.
7 „EIÐUR ÞARF AÐ SÝNA ÞOLIN-MÆÐI“ Tony Pulis, stjóri Stoke, segir
að Eiður Smári sé ekki á förum frá
félaginu.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er maðurinn? „Guðmundur
Þórarinsson, lítill og saklaus strákur.“
Hvar ertu uppalinn? „Á Selfossi.“
Hvað drífur þig áfram? „Ætli það séu
ekki vinirnir og leitin að hamingjunni.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á
Íslandi? „Ætli það væri ekki Danmörk.“
Með hverjum heldurðu í enska?
„Chelsea. Ingó er Liverpool-maður en
þegar ég var yngri var ég alltaf að bögga
hann þegar Chelsea vann innbyrðis leiki
þeirra. Hann var samt góður við mig og
lét mig í friði þegar Liverpool vann því
hann vissi að ég gat ekki tekið því.“
Hvaða bíómynd sástu síðast? „Ég sá
einhverja lélega mynd. Ég er bara búinn
að gleyma því hvað hún heitir.“
Hvernig var að spila á NASA? „Það
var mjög gaman. Ég söng einhver fimm
lög og það var alveg rífandi stemning
og sætar stelpur í salnum. Ég sá þarna
hversu stórir Veðurguðirnir eru orðnir og
hversu góðir þeir eru.“
Hvort er erfiðara að spila fótbolta-
leik eða spila á tónleikum? „Það er
langt síðan ég spilaði heilt ball. Það er
auðvitað mjög erfitt að spila fótboltaleik
en þetta er töluvert ólíkt álag.“
En hvort er skemmtilegra? „Fótbolti.“
Ætlarðu að leggja sönginn jafn-
mikið fyrir þig og bróðir þinn? „Nei,
engan veginn, það er alls ekki stefnan. Ég
ætla að einbeita mér að fótboltanum og
verða betri í honum.“
Þú skoraðir mark í þínum fyrsta
leik með ÍBV á dögunum. Er það
eitthvað sem koma skal? „Það er
stefnan að sjálfsögðu. Ég hef aldrei verið
talinn mikill markaskorari en stefnan er
auðvitað sú að standa sig vel og spila
sem mest.“
MAÐUR DAGSINS
„Ég ætla að lesa bókina Stelpur eftir
Kristínu og Þóru Tómasdætur með Fönn
dóttur minni en ég er mjög ánægð
að fá svona feminíska stelpubók á
markaðinn. “
ANDREA HJÁLMSDÓTTIR
40 ÁRA BÆJARFULLTRÚI.
„Það eru tvær bækur sem mér finnst
virkilega spennandi, Ljósa eftir Kristínu
Steinsdóttur og Ég man þig eftir Yrsu.“
HELGA ÓSK LÚÐVÍKSDÓTTIR
33 ÁRA HÚSMÓÐIR
„Ég hugsa að ég lesi einhverjar af
þessum matreiðslubókum sem eru að
koma út og svo nýjustu bókina hans
Arnaldar.“
HILDUR HALLDÓRSDÓTTIR
32 ÁRA LÍFEINDAFRÆÐINGUR
„Ég ætla að ná mér í bókina Ég man þig
eftir Yrsu Sigurðardóttur og svo verður
bókin Stelpur eftir Kristínu og Þóru
Tómasdætur á náttborðinu!“
DAGNÝ RUT HARALDSDÓTTIR
27 ÁRA LÖGFRÆÐINGUR
„Ég hef ekki hugmynd um hvað mig
langar að lesa, ég byrja á að kíkja í nýju
bókina hans Hugleiks Dagsonar og rifja
svo upp eitthvað af Tinnabókunum áður
en ég fer í eitthvað fullorðinslegra.“
BJARNI EIRÍKSSON
LJÓSMYNDARI
HVAÐA BÓK ÆTLARÐU AÐ LESA UM JÓLIN?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
MÁNUDAGUR 22. nóvember 2010 UMRÆÐA 19
Íslendingar og ástin
Ég leyfi mér að fullyrða að Ís-
lendingar halda líklega
minna fram hjá en aðrir,
hvort sem það er smæð
þjóðarinnar eða öðru að
þakka.
KJALLARI
VALUR
GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
Á uppleið Tunglið lét sig hafa það að kasta aðeins mæðinni ofan á Esjunni á leið sinni upp á himnafestinguna á sunnudagskvöld.
Birtan bar keim af kólnandi veðri sem talið er að verði viðvarandi fyrripart vikunnar. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON