Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Page 17
Erlent | 17Mánudagur 3. janúar 2011
Þúsundir hafa þurft að flýja eftir gífurleg flóð í norðausturhluta Ástralíu:
Ástralar flýja heimili sín
danir afstýrðu
hryðjuverkum
Hryðjuverkaárás á danska dag-
blaðið Jótlandspóstinn var af-
stýrt á miðvikudaginn. Lögregl-
an í Danmörku og lögreglan í
Svíþjóð unnu saman að hand-
töku fimm einstaklinga sem eru
grunaðir um að hafa skipulagt
hryðjuverk. Vildu hinir meintu
hryðjuverkamenn gera árás á
Jótlandspóstinn vegna teikning-
anna af Múhammeð spámanni,
sem skopteiknarinn Kurt West-
ergaard gerði fyrir blaðið árið
2005. Er þetta í fjórða skiptið
sem hryðjuverkamenn leggja
á ráðin um að gera árás á Jót-
landspóstinn síðan skopmynd-
irnar voru birtar og greinilegt að
þær halda áfram að draga dilk á
eftir sér.
Handtóku fimm á sama tíma
Danska öryggislögreglan, PET,
réðst samtímis inn á heimili fjög-
urra manna í Kaupmannahöfn
og á sama tíma réðst sænska
öryggislögreglan, SAPO, inn á
heimili fimmta mannsins sem
var staddur í Stokkhólmi. Fjór-
ir hinna grunuðu eru sænsk-
ir ríkisborgarar sem lögðu leið
sína til Danmerkur milli jóla og
nýárs. Sá fimmti er flóttamaður
frá Írak sem er búsettur í Kaup-
mannahöfn en hann hafði leitað
til danskra yfirvalda um pólitískt
hæli. Honum var sleppt dag-
inn eftir handtökuna. Mennirn-
ir höfðu í fórum sínum sjálfvirk-
an riffil, hljóðdeyfi, skotfæri og
plastræmur sem átti að nota sem
handjárn.
Herskáir íslamistar
Danska lögreglan segir að ætl-
un hinna meintu hryðjuverka-
manna hafi verið að ryðjast inn
á skrifstofur Jótlandspóstsins og
drepa eins marga og mögulegt
væri. Yfirmaður dönsku öryggis-
lögreglunnar, Jakob Scharf, sagði
mennina sem eru í haldi vera
herskáa íslamista með tengsl við
alþjóðleg hryðjuverkasamtök.
Hann sagði að lögreglunni hefði
tekist að afstýra yfirvofandi al-
varlegri hryðjuverkaárás.
Lars Barfoed sagði að lit-
ið væri á hina misheppnuðu
hryðjuverkaárás alvarlegum
augum. „Áætlanir hópsins um
að drepa eins marga og mögulegt
væri vekja mikinn ótta og þetta
er líklega alvarlegasta tilraun til
hryðjuverka sem gerð hefur ver-
ið í Danmörku.“
Hættir aldrei
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Jótlandspósturinn lendir í vand-
ræðum vegna birtingar á skop-
myndunum af Múhammeð
spámanni. Þá hafa verið gerð-
ar margar tilraunir til að ráða
teiknarann Kurt Westergaard af
dögum. Hann býst ekki við því
að árásunum á hann muni linna.
„Ég er hræddur um að ég þurfi
að búa við þetta það sem eft-
ir er. Þetta eru sterk íslömsk öfl
sem hafa gert skopmyndirnar að
táknmynd fyrir allt það sem kúg-
ar eða lítillækkar Íslam.
n Danska dagblaðið Jótlandspósturinn var skotmark hryðjuverkamanna sem voru
handteknir á miðvikudaginn n „Herskáir íslamistar,“ segir yfirmaður dönsku öryggis-
lögreglunnar n Ástæðan var skopmyndirnar af Múhammeð frá árinu 2005.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Áætlanir hóps-
ins um að drepa
eins marga og mögu-
legt væri vekja mikinn
ótta og þetta er líklega
alvarlegasta tilraun til
hryðjuverka sem gerð
hefur verið í Danmörku.
Jakob Scharf, yfirmaður dönsku
öryggislögreglunnar Sagði að um
herskáa íslamista væri að ræða.
Skrifstofur Jótlandspóstsins Blaðið hefur
fengið fjölmargar hótanir í kjölfar birtingar á
skopmyndum af Múhammeð spámanni.
Íbúar í ríkinu Queensland í norðaust-
urhluta Ástralíu keppast nú við að
yfirgefa heimili sín vegna gífurlegra
flóða. Frá aðfangadegi rigndi án afláts
í heila viku sem varð til þess að svæði
sem er stærra að flatarmáli en Frakk-
land og Þýskaland til samans er kom-
ið undir vatn. Alls flæddu sex ár yfir
bakka sína og búist er við því að vatns-
yfirborðið hækki á næstu dögum. Um
200 þúsund íbúar á svæðinu geta bú-
ist við miklu eignatjóni og sums stað-
ar hafa íbúar heilu bæjarfélaganna
þurft að yfirgefa heimili sín. Ein kona
hefur látið lífið í flóðunum, en hún
gerði tilraun til að aka yfir upphækk-
aðan veg sem var þegar kominn undir
vatn. Á miðri leið jókst vatnsstraum-
urinn og varð afl hans svo mikið að
vegurinn hrundi og tók bifreiðina og
konuna með sér.
Alistair Dawson er aðstoðarlög-
reglustjóri í Queensland. Hann sagði í
viðtali við breska blaðið Daily Telegr-
aph að hann efaðist um að það versta
væri yfirstaðið, þrátt fyrir að hætt væri
að rigna, en það stytti upp um ára-
mótin. „Þetta eru einstakar aðstæður.
Í hluta ríkisins þurfa íbúar að búa sig
undir brottflutning á meðan í öðrum
hlutum þess er byrjað að hreinsa upp.
Ég held að við séum stödd í miðri at-
burðarásinni“ Dawson bætti við að
hann væri því þakklátur að manntjón
væri enn í lágmarki.
Fjárhagslegt tjón vegna flóðanna
er enn á reiki en samkvæmt Önnu
Bligh, forsætisráðherra Queensland,
er ljóst að það mun hlaupa á millj-
örðum ástralskra dollara. Flóðin hafa
eyðilagt vegi og lagt landbúnað á
svæðinu, sem er venjulega í blóma á
þessum árstíma, í rúst. Talið er að það
gæti tekið allt að mánuð til viðbótar
fyrir vatnið að skila sér út á haf eða
þorna upp.
Allt á floti Svæðið sem er á
floti í norðausturhluta Ástral-
íu er stærra en Frakkland og
Þýskaland til samans.
Ný lög um reyk-
ingar á Spáni
Enn er þrengt að reykingafólki og
hafa Spánverjar nú tekið í gildi
ströng lög um reykingar. Samkvæmt
nýju lögunum sem tóku gildi nú
um áramótin er bannað að reykja
á kaffihúsum, börum, flugvöllum
og öðrum almenningsstöðum. Þá
er einnig bannað að reykja utan-
dyra í nágrenni við grunnskóla og
spítala. Þessi nýju lög Spánverja eru
í samræmi við nýja löggjöf Evrópu-
sambandsins til varnar reykingum á
opinberum stöðum. Stefnt er að því
að árið 2012 muni öll 27 aðildarríki
Evrópusambandsins hafa tekið upp
þessa sömu löggjöf. Enn er mikið
reykt á opinberum stöðum í Aust-
ur-Evrópu.
Allt í hers hönd-
um í Bólivíu
Bólivíumenn flykktust út á götur á
gamlársdag og fylltu götur höfuð-
borgarinnar La Paz, eins og svo oft
vill verða undir lok ársins. Íbúarn-
ir voru þó ekki komnir saman til að
fagna og skemmta sér, heldur til að
mótmæla hækkunum á eldsneytis-
verði. Forseti Bólivíu, Evo Morales,
tilkynnti að hækkanirnar tækju gildi
á nýju ári. Bensínverð hækkaði um
73 prósent og verð á dísilolíu um
83 prósent. Kalla þurfti til óeirðar-
lögreglu til að hafa hemil á mót-
mælendum sem létu óánægju sína
berlega í ljóst með kröftugum nýárs-
mótmælum.
Eistland tekur
upp evru
Eistland varð um áramótin 17. að-
ildarríki Evrópusambandsins til að
taka upp evru og er því fullgildur
meðlimur að myntbandalagi Evr-
ópu, EMU. Það var forsætisráðherra
Eistlands, Andrus Ansip, sem tók
fyrstur út evruseðil úr hraðbankan-
um við óperuhúsið í Tallinn við há-
tíðlega athöfn laust eftir að áramót-
in gengu í garð. Um fimm þúsund
manns voru viðstaddir þegar Ansip
tók út seðilinn og fögnuðu ákaft þeg-
ar hann veifaði honum í átt að fjöld-
anum. Ansip sagðist hæstánægður
með evruna og að nú færi í hönd
tímabil öryggis í Eistlandi. „Nú erum
við fullgildir meðlimir í næststærsta
efnahagskerfi í heiminum með öll-
um þeim skyldum sem því fylgir.“