Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 37
Nærmynd | 37Helgarblað 4.–6. mars 2011
upp á síðkastið þegar hann las dóma
um Morgunþulu í stráum í dönskum
blöðum. Hann las alla dómana fyrir
mig og ég var svo ánægður fyrir hans
hönd og óskaði honum til hamingju
með þetta. Í síðasta skiptið sem ég
sá hann þá fór ég heim til hans og
hjálpaði honum að setja upp mynd-
ina sem Kjarval gerði af honum. Svo
bara heyrði ég ekki í honum eft-
ir það. En svo hringdi Guðmundur
Andri bara í mig og sagði mér þetta á
miðvikudaginn. Það er bara þannig,“
segir Páll.
Ari segist síðast hafa hitt Thor
í síðustu viku. „Við vorum nú bara
saman í síðustu viku. Þetta ber brátt
að og fær mikið á mig – að hann hafi
farið svona. Hann var búinn að vera
með mér frá því ég var tvítugur í Par-
ís.“ Ari segir að Thor hafi verið í Par-
ís – sem kvikmyndagerðarmaður-
inn kallar heimabæ Thors því hann
dvaldi þar svo oft í gegnum tíðina –
fyrir örfáum vikum og að höfundur-
inn hafi meira að segja boðið hon-
um með en því miður hafi hann ekki
komist.
Thor hélt áfram að skrifa alveg
þar til yfir lauk. Meðal þess sem
hann sagði í nýlegu viðtali við Þor-
stein J. sjónvarpsmann, sem finna
má á kynningarvef um þátttöku Ís-
lands á bókamessunni í Frankfurt í
haust, er að maðurinn þurfi á skáld-
skap að halda. „Ég held að við þurf-
um á skáldskap að halda ef við eig-
um að komast út úr fárinu,“ sagði
Thor en verið er að vinna þýska
þýðingu á bók hans Morgunþulu í
stráum sem væntanlega verður ein
af þeim íslensku skáldsögum sem
kynntar verða á bókahátíðinni í
Þýskalandi. „Það að skrifa er ákveð-
in þrákelkni, halda áfram, áfram,
áfram,“ sagði Thor meðal annars í
viðtalinu en þessi orð hans um eig-
in skrif ríma ágætlega við þær sög-
ur um kraft hans og vinnusemi sem
vinir hans segja af honum.
Thor fæddist í Edinborg í Skotlandi 1925. Foreldrar hans voru Guðmundur
Vilhjálmsson, forstjóri Eimskipafélagsins, og Kristín Thors, húsmóðir. Thor
fluttist fimm ára með foreldrum og systkinum heim til Íslands 1930 og ólst
þar upp í Reykjavík auk þess sem hann dvaldi oft á sumrin hjá Vilhjálmi, föð-
urafa sínum.
Thor varð stúdent frá MR 1944, stundaði nám við norrænudeild HÍ 1944–
46, við háskólann í Nottingham á Englandi 1946–47 og við Sorbonne-háskóla
í París 1947–52. Hann var bókavörður við Landsbókasafnið 1953–55, starfs-
maður Þjóðleikhússins 1956–59 og fararstjóri Íslendinga erlendis, einkum í
Suðurlöndum. Hann hefur stundað ritstörf frá því á fimmta áratugnum.
Rit Thors
Meðal rita Thors má nefna Maðurinn er alltaf einn, 1950; Dagar mannsins,
1954; Andlit í spegli dropans, 1957; Undir gervitungli, 1959; Regn á rykið,
1960; Svipir dagsins, og nótt, 1961; Ætlar blessuð manneskjan að gefa upp
andann?, leikþáttur, 1963; Kjarval, 1964 (og 1978); Allt hefur sinn tíma, leik-
þáttur, 1967; Fljótt, fljótt sagði fuglinn, 1968; Óp bjöllunnar, 1970; Folda, 1972;
Hvað er San Marinó?, 1973; Fiskur í sjó, fugl úr beini, 1974; Fugla-skottís,
1975; Mánasigð, 1976; Skuggar af skýjum, 1977; Faldafeykir, 1979; Turnleik-
húsið, 1979; The Deep Blue Sea, Pardon the Ocean, ljóð á ensku, 1981; Ljóð
Mynd, ljóð með myndum eftir Örn Þorsteinsson, 1982; Spor í spori, ljóð með
myndum eftir Örn Þorsteinsson, 1986; Grámosinn glóir, 1986; Sporrækt, ljóð
með myndum eftir Örn Þorsteinsson, 1988; Vikivaki, óperuhandrit, 1988;
Náttvíg, 1989; Svavar Guðnason, 1991; Eldur í laufi, 1991; Raddir í garðinum,
1991; Tvílýsi, 1994; Snöggfærðar sýnir, ljóð með myndum eftir Tryggva Ólafs-
son, 1995; Fley og fagrar árar, 1996; Morgunþula í stráum, 1998; Turnleikar og
umbergis, ljóð með myndum eftir Pál Guðmundsson, 2001; Sveigur, 2002. Þá
samdi hann texta við óratóríu Harðar Áskelssonar sem frumflutt var í Hall-
grímskirkju fyrir skömmu.
Thor hefur auk þess þýtt fjölda skáldverka og haldið nokkrar málverka-
sýningar.
Trúnaðarstörf og verðlaun
Thor var m.a. formaður Rithöfundafélags Íslands 1959–60 og 1966–68, sat
í stjórn Rithöfundasambands Íslands 1972–74 og var forseti Bandalags ís-
lenskra listamanna 1975–81, sat í þjóðfulltrúaráði Samfélags evrópskra rit-
höfunda 1962–68, í framkvæmdastjórn Evrópska menningarsambandsins í
Feneyjum, í framkvæmdastjórn Listahátíðar í Reykjavík 1976–80, í undirbún-
ingsnefnd kvikmyndahátíðar 1978 og 1980, í stjórn Alliance Francaise um
árabil, sat í ritnefndum menningartímarita, var forseti íslenska PEN-klúbbs-
ins og formaður Júdófélags Reykjavíkur í nokkur ár.
Thor voru veitt verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 1968; Menn-
ingarverðlaun DV í bókmenntum fyrir þýðingu á Hlutskipti manns eftir And-
ré Malraux, 1984; Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrir ritið Grámos-
inn glóir 1987; Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Grámosinn glóir,
1988; var heiðursfélagi í Rithöfundasambandi Íslands frá 1988; var veitt hin
franska riddaraorða lista og bókmennta fyrir starf í þágu menningarsamskipta
Frakka og Íslendinga (Chevalier dans l‘Ordre des Arts et des Lettres) 1989;
var veitt orðan Cavaliere dell‘Ordine al Merito della Repubblica Italiana (fyrir
starf í þágu ítalskrar menningar á Íslandi) 1991; voru veitt Verðlaun sænsku
akademíunnar 1992; var veitt orðan Grande Ufficiale dell‘Ordine al Merito
della Repubblica Italiana, 1995; hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
ritið Morgunþula í stráum 1998, var veitt Foringjaorða lista og bókmennta í
Frakklandi (Commandeur dans l‘Ordre des Arts et des Lettres) 1998; var veitt
Kar en Blixen-orðan; veitt Gullverðlaun Società di Dante Alighieri, 2004, var
tilnefndur til hinna virtu Nonnino-verðlauna á Ítalíu fyrir Morgunþulu í strá-
um, 2007, voru veitt Menningarverðlaun DV – Heiðursverðlaun, 2008, og
Heiðursorða franska ríkisins, Officer de l‘Ordre national du Mérite, 2010. Þá
var Thor heiðursfélagi Júdófélags Reykjavíkur en hann hafði svart belti í jap-
anskri glímu, júdó, og var heiðursborgari franska bæjarins Rocamadour.
Fjölskylduhagir
Eftirlifandi eiginkona Thors er Margrét Indriðadóttir, f. 28.10. 1923, fyrrv.
fréttastjóri Ríkisútvarpsins.
Synir Thors og Margrétar: Örnólfur, f. 8.7. 1954, kennari, bókmenntafræð-
ingur, útgefandi og forsetaritari, en kona hans er Margrét Þóra Gunnarsdóttir
píanókennari og eiga þau þrjú börn; Guðmundur Andri, f. 31.12. 1957, rit-
höfundur, ritstjóri og fjölmiðlamaður, en kona hans er Ingibjörg Eyþórsdóttir
tónlistarfræðingur og eiga þau tvær dætur.
Thor lést í Reykjavík miðvikudaginn 2. mars 2011.
Lífshlaup Thors 1925–2011
„Alltaf sami bar-
áttuandinn og
sköpunar krafturinn, alveg
sama hvað gekk á.
Hlýr Vinir Thors lýsa honum sem
einstökum manni, góðum vini og
afar hlýjum. mynd BjaRni Felix BjaRnason