Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Qupperneq 6
Einar Gautur Steingrímsson, hæsta-
réttarlögmaður og skiptastjóri þrota-
bús eignarhaldsfélagsins Saxbyggs,
mun á næstunni kæra viðskipti eign-
arhaldsfélagsins Austurbrautar við
MP Banka til efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra. Margeir Péturs-
son var stjórnarformaður Austur-
brautar og MP Banka þegar viðskipt-
in áttu sér stað í árslok 2009. Kæran
mun því að öllum líkindum beinast
að Margeiri en hugsanlega einnig
öðrum aðilum sem tóku þátt í þeim.
Saxbygg var hluthafi í Austurbraut.
Einar Gautur staðfestir aðspurð-
ur að hann sé að vinna að umræddri
kæru. „Við erum í þeirri vinnu núna
að setja það niður fyrir okkur ná-
kvæmlega hvaða atvik og athafnir við
teljum refsiverð og heimfæra þau þá
undir ákveðið lagaákvæði. Við erum
ekki alveg búin að ljúka vinnunni en
það er verið að vinna í þessu á fullu,“
segir Einar Gautur. Hann vill því ekki
tilgreina nákvæmlega hvers konar
möguleg lögbrot um ræðir í viðskipt-
unum né að hverjum kæran mun
beinast.
Hluthafar Austurbrautar eru
meðal annars FSP Holding, fjárfest-
ingafélag Byrs, Sparisjóðsins í Kefla-
vík og Sparisjóðabankans, MP Banki,
Margeir Pétursson ehf., hollenska
félagið Vostok Holdings og Saxbygg.
Talið er að gengið hafi verið á hags-
muni einhverra hluthafa Austur-
brautar í viðskiptunum.
Eignir keyptar og færðar niður
í verði
DV fjallaði um þessi viðskipti Aust-
urbrautar og MP Banka í desember í
fyrra. Í þeirri frétt kom fram að Mar-
geir Pétursson, fyrrverandi stjórn-
arformaður MP Banka og eignar-
haldsfélagsins Austurbrautar, hefði
látið Austurbraut kaupa fasteignir af
MP Banka á yfirverði í lok árs 2009.
MP Banki hafði þá leyst til sín fast-
eignir sem verið höfðu í eigu eignar-
haldsfélagsins Aurora, fjárfestinga-
félags sem MP Banki stofnaði til að
eiga í viðskiptum í Eystrasaltsríkj-
unum og Austur-Evrópu árið 2007.
MP Banki seldi svo hluta þessara
eigna til Austur brautar með láni frá
MP Banka og var félagið því fyrir vik-
ið skuldsett um það sem nam kaup-
verðinu.
Um það bil mánuði eftir að við-
skiptin áttu sér stað voru eignirnar
sem seldar voru inn í Austurbraut frá
MP Banka færðar niður í verði um 80
til 100 milljónir króna í bókum Aust-
urbrautar. Stjórn Austurbrautar var
ekki höfð með í ráðum þegar ákveðið
var að kaupa eignirnar af MP Banka,
samkvæmt heimildum DV og virðist
Margeir hafa tekið ákvörðunina án
þess að ráðfæra sig við aðra stjórn-
armenn. „Margeir er báðum megin
þegar þessi gerningur er gerður. Hann
framkvæmir þetta án þess að aðrir í
stjórninni viti af því,“ sagði heimildar-
maður DV sem ekki vill láta nafns síns
getið. Tekið skal fram að Margeir er
ekki lengur í stjórn MP Banka.
Meint brot í viðskiptunum ganga
því út á það að Austubraut hafi ver-
ið notað til að taka við eignum frá
MP Banka sem ekki voru eins mik-
ils virði og þær voru seldar á inn í fé-
lagið. Með þessu er talið að gengið
hafi verið á hagsmuni Austurbrautar
til hagsbóta fyrir MP Banka og hlut-
hafa hans.
Gengið frá málinu í lok árs 2009
Aurora Holding var slitið í árslok
2009. Í ársreikningi félagsins kemur
fram að eignarhlutur félagsins í Vo-
stok Holdings í Hollandi, sem var
metinn á rúma tvo milljarða króna,
hafi verið greiddur út til hluthaf-
anna, MP Banka og Hraunbjargs,
félags sem er að mestu í eigu MP
Banka og Margeirs Péturssonar. Vo-
stok Holdings Netherlands B.V. var
búið til til að taka við eignum Aurora
Holding og annars félags sem var í
eigu MP Banka, Vostok Holdings hf.
Samtals námu þessar eignir um 5
milljörðum króna.
Orðrétt segir í ársreikningnum:
„Aurora Holding var slitið miðað við
18. desember 2009 og eignarhlutur
félagsins í Vostok Holdings Nether-
lands B.V. greiddur út til hluthafa.
Þann 26. janúar 2010 tilkynnti skila-
nefnd félagsins um skiptalok í fé-
laginu...“ Aurora Holding var því slit-
ið rétt áður en reikningsárinu lauk
og runnu eignir félagsins til hlut-
hafa þess. Þaðan runnu eignirnar
svo meðal annars til Austurbraut-
ar. Margeir var ráðandi aðili í öllum
félögunum sem komu að viðskipt-
unum, MP Banka, Hraunbjargi og
Austurbraut.
Í ársreikningi Austurbrautar fyr-
ir árið 2009 kemur fram að félagið
eigi tæplega 5 prósenta hlut í Vo-
stok Holdings Netherlands B.V. sem
metinn var á rúmlega 255 millj-
ónir króna. Austurbraut átti ekki
þennan eignarhlut samkvæmt árs-
reikningi ársins 2008. Í ársreikningi
2009 kemur líka fram að félagið hafi
meðal annars fjárfest fyrir 255 millj-
ónir króna á árinu og að skamm-
tímaskuldir félagsins gagnvart ein-
um hluthafanum, væntanlega MP
Banka, hafi aukist um rúmlega 850
milljónir króna á árinu.
Einar Gautur segir að gengið
verði frá kærunni til efnahagsbrota-
deildarinnar á næstunni. Hann seg-
ist reikna með að vinnu við hana
ljúki í lok næstu viku.
6 | Fréttir 28. mars 2011 Mánudagur
Samherji hætti við kaupin á MP Banka út af áherslumun:
Þorsteinn vildi stjórnarmann
Ein af ástæðunum fyrir því að út-
gerðarfyrirtækið Samherji dró sig
út úr kaupunum á MP Banka fyr-
ir skömmu var sú að fyrirtækið vildi
fá stjórnarmann í bankanum, sam-
kvæmt heimildum DV. Um þetta at-
riði var ágreiningur sem meðal ann-
ars varð til þess að Samherji hætti við
þátttöku í viðskiptunum. Ef Samherji
hefði fengið stjórnarmann hefði vægi
fyrirtækisins í nýja eigendahópnum
orðið meira.
Heimildir DV herma að með-
al þeirra sem komið hafi til tals sem
stjórnarmaður fyrir hönd Samherja
hafi verið sonur Þorsteins Más Bald-
vinssonar, forstjóra Samherja. Sá
heitir Baldvin Þorsteinsson.
Þorsteinn Már sagði við DV í síð-
ustu viku að „áherslumunur“ á milli
Samherja og fjárfestisins Skúla Mog-
ensen hefði orðið til þess að Sam-
herji ákvað að draga sig út kaup-
endahópi MP Banka. Aðspurður vildi
Þorsteinn ekki útskýra nánar í hverju
þessu áherslumunur fælist. „Það var
þarna ákveðinn áherslumunur þann-
ig að við ákváðum að taka ekki þátt.
Við vonum bara að hinir klári málið.“
Áherslumunurinn mun hins vegar
meðal annars hafa verið sá að Sam-
herji vildi stjórnarmann, og þar með
meira vægi í hinum nýja eigendahópi,
í MP Banka. ingi@dv.is
MARGEIR KÆRÐUR
n Skiptastjóri Saxbyggs kærir til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra n Við-
skipti Austurbrautar og MP Banka til skoðunar n Margeir Pétursson ráðandi í
félögunum sem áttu í viðskiptunum n Eignir seldar inn í Austubraut á yfirverði
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Við erum í þeirri
vinnu núna að
setja það niður fyrir okkur
nákvæmlega hvaða at-
vik og athafnir við teljum
refsiverð og heimfæra
þau þá undir ákveðið
lagaákvæði.
Til lögreglunnar Viðskipti eignarhaldsfélagsins Austurbrautar verða kærð til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á næstunni.
Margeir Pétursson var stjórnarformaður Austurbrautar og arkitektinn að viðskiptunum sem kæran snýst um samkvæmt heimildum DV.
Vildi í stjórn Þorsteinn Már vildi fá stjórnarmann í MP Banka. Um þetta samdist ekki.
Stór hópur
fátækra kvenna
„Það er stór hópur af fátækum
konum í okkar samfélagi með þús-
undir barna á framfæri. Það þarf
að skoða þeirra stöðu sérstaklega,“
segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu. Ný
skýrsla um konur í kreppunni, sýnir
verulega neyð einstæðra mæðra.
„Aðalatriðið er að það þarf að vekja
athygli á stöðu einstæðra mæðra
sem eiga við mikinn vanda að stríða
og kemur víða fram í skýrslunni.
Það þarf að kanna stöðu þeirra sér-
staklega og hvers vegna þeim er
að fjölga,“ segir Kristín. „Ef tölur
Tryggingastofnunar eru skoðaðar
þá er það liður sem er bótaflokkur
vegna félagslegra aðstæðna. Alls
80% þeirra sem fá þær bætur eru
mæður.
Kristín bendir á að það hefði
verið eðlilegt að fólk frestaði barn-
eignum í kreppu. „Það hefur ekki
verið raunin hér. Þvert á móti hafa
verið að fæðast stærstu árgangar
síðan 1960.“
Aðspurð um það sem kom fram
í hádegisfréttum RÚV um að konur
væru jafnvel að eignast börn til þess
að tryggja stöðu sína í félagslega
kerfinu, segir Kristín það sé ekki sín
fullyrðing, heldur fréttamannsins.
Þorskum bjargað
300 lítra fiskabúr sprakk á sýning-
unni Heilsa og hamingja í Smára-
lindinni á laugardag. Verið var
að kynna vörur sem unnar eru úr
ensímum úr þorskum þegar búrið
sprakk. Þrátt fyrir að vatn flæddi
um gólf Smáralindar vegna leka frá
fiskabúrinu tókst að bjarga þorsk-
unum. Talið er að um sex þúsund
manns hafi sótt sýninguna Heilsa og
hamingja í Smáralind.
Eins og í Líbíu
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, líkir stjórn-
málaástandinu í Líbíu við brotthvarf
Sjálfstæðisflokksins úr ríkisstjórn-
inni. Vigdís skrifar á Facebook-síðu
sína: „Auðvitað er ekki bylting í Líb-
iu – það er valdarán – eins og gerðist
hér á landi þegar Sjálfstæðisflokkun-
um var hent út úr ríkisstjórn – snýst
allt um yfirráð yfir auðlindum, auð-
lindum, auðlindum.“