Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Mánudagur 28. mars 2011 Uppreisnarmenn sækja að hersveitum Gaddafis í Líbíu: Hersveitir Gaddafis hörfa Hersveitir hliðhollar Muammar al- Gaddafi, leiðtoga Líbíu, lögðu á flótta frá borginni Ajdabiya í austur- hluta Líbíu um helgina í kjölfar um- fangsmikilla loftárása bandamanna. Uppreisnarmenn hafa nú náð borg- inni á sitt vald og fögnuðu þeir lengi vel aðfaranótt sunnudags með því að skjóta úr byssum sínum upp í loft og kyrja baráttusöngva. Herflokkar Gaddafis hafa þráast við að gefast upp eftir að loftárásir bandamanna hófust laugardaginn 19. mars og hafa þess í stað herjað á bæði almenning og uppreisnarmenn í þéttbýli með þeim afleiðingum að stór hluti fórn- arlamba er saklausir borgarar. Fréttaskýrendur greina nú frá því að baráttuvilji hersveita Gaddafis sé á þrotum enda gera þær sér ljóst að við ofurefli er að etja. Bandamenn hafa farið mikinn í sprengjuregni sínu en fyrir utan borgina Ajda- biya voru sprengdir upp skriðdrek- ar, brynvarðir bílar og þungavopn. Mannfall var talsvert en blaðamað- ur breska blaðsins The Independent mætti á vettvang eftir að loftárás á herflokk Gaddafis var yfirstaðin. Að- koman var vægast sagt hryllileg þar sem lík hermanna Gaddafis lágu á víð og dreif. Þrátt fyrir að þeir hefðu reynt að flýja undan loftárásunum máttu þeir sín lítils þar sem sprengj- urnar voru svo öflugar að sprengju- brot þeyttust í allar áttir. Höfðu ein- hverjir hermannanna fallið þegar sprengjubrot tættu líkama þeirra í sundur, í sumum tilfellum var höfuð- ið klofið frá búknum. Uppreisnarmenn náðu einnig á sitt vald borgunum Ras Lanuf og Bin Jawad í austurhluta Líbíu í kjölfar loftárása bandamanna. Uppreisnarmenn fagna Þessir menn fögnuðu í borginni Ras Lanuf á sunnudag. Upp hefur komist um stórfellt svindl sem átti sér stað á Ólympíu- móti landsliða í skák, sem fram fór í bænum Khanty-Mansiysk í Síberíu í september síðastliðnum. Það var lið Frakka sem varð uppvíst að svindl- inu, en þeir tveir meðlimir liðsins sem eru sakaðir um svindlið neita sakargiftum. Þrátt fyrir að oft hafi leikið grunur á að skákleikmenn hafi haft rangt við í alþjóðlegum einvígj- um hefur aldrei áður verið ljóstrað upp um svindl af þessari stærðar- gráðu. Notuðu tölvuforrit og SMS-skilaboð Málsatvik eru þau að þrír menn, stór- meistarinn Sébastien Feller, liðsfélagi hans Arnaud Hauchard og sá þriðji, sem tók ekki beinan þátt í mótinu, Cyril Marzolo, notuðust við þróað leynikerfi til að koma skilaboðum til Fellers á meðan hann keppti í ein- vígjum sínum. Marzolo var í frönsku borginni Nancy þegar mótið fór fram og sá hann um að skrá niður alla leiki á skákborðinu inn í tölvuforritið Fi- rebird, sem er öflugt skákforrit. Eftir að skákforritið hafði reiknað út bestu möguleika Fellers hverju sinni sendi Marzolo númeraröð með SMS-skila- boðum til Hauchards, sem var meðal áhorfenda þegar Feller tefldi. Hauchard notaði áhorfendasal- inn til að sýna Feller hvaða leikur væri bestur hverju sinni. Í salnum voru 64 borð, rétt eins og það eru 64 reitir á skákborði. Höfðu þeir félagar gefið hverju borði nafn, sem samsvaraði reitum á skákborðinu. Ef Hauchard færði sig til að mynda frá borði B1 yfir á borð B2, þýddi það að Feller átti að hreyfa skákmenn sína á sama hátt á skákborðinu. Notaði lánssíma Upp komst um svindlið því Mar- zolo notaði ekki eigin GSM-síma til verknaðarins. Vegna fjárhagsörðug- leika var búið að loka síma hans og fékk hann því lánaðan síma hjá Jo- anna Pomian, varaforseta Skáksam- bands Frakklands. Hana grunaði að eitthvað vafasamt hefði átt sér stað þegar hún fékk himinháan símreikn- ing eftir að Marzolo hafði skilað sím- anum. Í ljós kom að hann hafði sent um 180 skilaboð, öll á sama tíma og einvígi Fellers áttu sér stað. Skila- boðin voru númeraröð sem gátu lit- ið út fyrir að vera símanúmer í fyrstu, en nú er ljóst hvaða tilgangi númer- araðirnar gegndu. Klofningur í Frakklandi Nú er kominn upp klofningur í Skák- sambandi Frakklands þar sem fólk hefur skipað sér í flokka eftir því hvort það trúir á sakleysi þremenn- inganna eður ei. Í landsliðinu sem fór til Síberíu voru þrjú önnur og hafa þau öll fordæmt svindlið sem þau segja að hafi greinilega átt sér stað. Forseti skáksambandsins, Larent Verat, sagðist aldrei hafa séð annað eins. „Það hafa aldrei áður legið fyr- ir jafn greinileg sönnunargögn um svindl á þessu hæsta stigi liðskeppna í skák. Meira að segja hringdi Garrí Kasparov í mig. Hann var agndofa.“ Svindl skekur skákheiminn n Upp hefur komist um stórfellt svindl meðlima franska skáklandsliðsins n Notuðu tölvuforrit og SMS-skilaboð til að finna bestu leikina n Í fyrsta sinn sem komist hefur upp um svindl af þessari stærðargráðu í landsliðakeppni í skák Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Kasparov notaði ekki tölvuforrit Garrí Kasparov teflir hér við Anatolí Karpov. Hann sagðist vera agndofa yfir svindlinu. „Meira að segja hringdi Garrí Kasparov í mig. Hann var agndofa. Heimsendir í nánd Þann 21. maí næstkomandi verður heimsendir. Þetta segir bandaríski predikarinn Harold Camping sem rekur meira en 70 kristilegar út- varpsstöðvar víðs vegar um heim- inn. „Þessar gripdeildir, þessar lygar, þessi illska og öll þessi kynferðis- lega úrkynjun hlýtur að segja okkur eitthvað,“ sagði Camping í útvarps- þætti sínum. „Réttindabarátta sam- kynhneigðra er af sama meiði. Guð sendi okkur hana til að sýna okkur að endalokin væru í nánd.“ Camping segir að hann hafi komist að því að heimsendir yrði þann 21. maí með nákvæmri reikningsaðferð. Þá verða liðin nákvæmlega 722.500 dagar síðan Jesús frá Nasaret var kross- festur. Talan 722.500 er mikilvæg því hún er útkoman ef lagðar eru saman heilögu tölurnar 5, 10 og 17 tvisvar. „Þegar ég áttaði mig á þessu varð ég frá mér numinn,“ sagði Camp- ing. Rætist spádómurinn má búast við að tvö prósent mannkyns muni hverfa strax af yfirborði jarðar og vakna því næst í paradís þegar krist- ur stígur aftur til jarðar og dæmir lif- endur frá dauðum. Hin 98 prósentin munu hins vegar fara á „hinn stað- inn“. Þá er bara að hafa það huggu- legt þangað til. Enn hætta í Fukushima Mikil geislavirkni mælist í nágrenni við Fukushima Daiichi-kjarnorku- verið í norðurhluta Japans. Þrátt fyrir að vel hafi gengið við að beita þeim óhefðbundnum aðferðum til að kæla kjarnakljúfana að sprauta á þá vatni, standa starfsmenn kjarnorku- versins nú frammi fyrir þeim vanda að vatnið sem notað er til verksins er geislavirkt. Fyrstu mælingar sýndu að geislavirkni í vatninu mældist 10 milljón sinnum meiri en æskilegt er. Síðari mælingar sýndu þó að þær tölur voru of háar, en líklegra er að geislavirkni sé um 100 þúsund sinn- um meiri en æskilegt er, en það er engu að síður alvarleg staða. Starfs- menn kjarnorkuversins þurfa nú vatnsgeymslur til að koma geisla- virka vatninu fyrir, því ekki er hægt að losa það út í sjó. Vonast er til að hefðbundið kælikerfi verksmiðjunn- ar komist í gang innan skamms. Sturlaðist vegna kókgræðgi 42 ára fjölskyldufaðir frá bænum Horsens á Jótlandi í Danmörku sturlaðist inni í matvöruverslun um helgina. Ástæðan var sú að matvörubúðin sem maðurinn fór í ásamt fjölskyldu sinni hafði auglýst afslátt á Coca- cola drykkjum. Eftir að afgreiðslumaður búð- arinnar tilkynnti fjöl- skyldunni að takmörk væru fyrir því hversu mikið mætti kaupa af gosinu vinsæla ákvað maðurinn að slá af- greiðslumanninn. Afgreiðslumaðurinn hlaut einungis minni- háttar áverka en fjölskyldufaðirinn var kærður til lögreglunnar. 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.