Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 28. mars 2011 Mánudagur
Tap hjá Teiti
n Teitur Þórðarson og félagar í Van-
couver Whitecaps þurftu að sætta
sig við tap í sínum öðrum leik í
MLS-deild-
inni en liðið
tapaði á útivelli
gegn Phila-
delphia Union,
1–0. Whitecaps
var án fjögurra
sterkra leik-
manna sem
voru með lands-
liðum sínum en MLS-deildin fylgir
ekki landsleikjahléum. Framherji
Whitecaps, Eric Hassli, fékk tvö
gríðarlega heimskuleg gul spjöld
snemma leiks og voru menn Teits
því tíu inni á vellinum í ríflega hálf-
tíma.
U21 mætir Englandi
n U21 árs landslið Íslands mæt-
ir Englandi í æfingaleik í kvöld á
Deepdale-vellinum í Preston. Fimm
leikmenn sem
voru með A-
landsliðinu á
Kýpur, þeir Al-
freð Finnbogason
Arnór Smárason,
Birkir Bjarnason,
Haraldur Björns-
son og Guðmund-
ur Kristjánsson
koma með flugi á leikinn og taka
mismikinn þátt í honum. Englend-
ingar eru án margra sterkra manna
en um helgina drógu sig meðal
annars úr enska liðinu Chris Small-
ing hjá Man. United og Jordan Hend-
erson hjá Sunderland.
Kolbeinn fyrir Carroll
n Fram kom í enska blaðinu Daily
Mirror um helgina að enska úrvals-
deildarliðið Newcastle ætli sér að
fylla í skarðið
sem Andy Carroll
skildi eftir sig
með íslenska
landsliðsfram-
herjanum Kol-
beini Sigþórssyni.
Einnig sagði The
People frá því að
Fulham og Glas-
gow Rangers væru á eftir Kolbeini.
Kolbeinn varð fyrir því óláni að
meiðast á Kýpur og gat því ekki tek-
ið þátt í landsleiknum með Íslandi á
laugardaginn.
Akureyri
deildarmeistari?
n Þriðja síðasta umferðin í N1-
deild karla í handbolta klárast í
kvöld, mánudag, en Akureyring-
ar geta orðið
deildarmeist-
arar með sigri á
HK í Digranesi.
Á sama tíma
mætir FH-liði
Selfoss á útivelli
en Akureyri þar
aðeins tvö stig úr
síðustu þremur
leikjunum til að verða meistari. Í
Vodafone-höllinni taka Valsmenn á
móti Aftureldingu. Hlíðarendapilt-
ar hafa að litlu að keppa á meðan
Afturelding er í mikilli fallbaráttu.
Hættir ekki að skora
n Mexíkóinn litli Javier Hernan-
dez getur einfaldlega ekki hætt að
skora. Hann hefur farið á kost-
um með Man-
chester United í
vetur og skorað
hvert markið
á fætur öðru.
Hann skoraði
tvö mörk til við-
bótar með mexí-
kóska landslið-
inu um helgina
í æfingaleik gegn Paragvæ sem
Mexíkó vann, 3–1. Fyrra markið
skoraði hann með góðum skalla og
hitt af stuttu færi. Alls er Hern-
andez búinn að skora 14 mörk í
22 leikjum fyrir Mexíkó á sínum
landsliðsferli.
Molar
VETTEL ÓSNERTANLEGUR
Heimsmeistarinn í Formúlu 1,
Sebastian Vettel, hóf titilvörnina
með sigri í gær þegar hann kom
langfyrstur í mark í Ástralíukapp-
akstrinum, fyrsta Formúlumóti nýs
keppnistímabils. Vettel var á rás-
pól, hélt fyrsta sætinu eftir ræsingu,
og var aldrei ógnað. Hann var því
með pálmann í höndum sér frá byrj-
un til enda, gat nýtt alla herfræði
og dekkjataktík eins og hann vildi
og varð á endanum 22 sekúndum
fljótari í mark en Lewis Hamilton á
McLaren. Maður dagsins var þó án
efa Vitaly Petrov á Renault. Rússinn
hélt þriðja sætinu eftir harða baráttu
við tvöfaldan heimsmeistara, Fern-
ando Alonso á Ferrari, og varð því
fyrsti rússneski ökumaðurinn á pall
í Formúlu 1. Mikið afrek hjá Petrov
sem að stóru leyti hélt sæti sínu hjá
liðinu í sumar vegna ríkra Rússa sem
lögðu pening í liðið en ekki voru allir
á eitt sáttir með frammistöðu hans í
fyrra.
Neitar að nota orðið drottnun
Það er engum blöðum um það að
fletta að Red Bull-bíllinn sem Vet-
tel og Webber aka ber höfuð og
herðar yfir alla aðra í Formúlunni,
rétt eins og í fyrra. Vettel, sem varð
yngsti heimsmeistari sögunnar síð-
asta haust, reyndi þó að gera lítið úr
orðinu drottnun sem allir vilja nota
um hann og bílinn. „Ég vil ekki nota
þetta orð þegar aðeins ein keppni
er búin. Við áttum frábæra keppni
í dag, söfnuðum fullt af stigum og
höfðum gaman af,“ sagði Vettel við
fréttamenn eftir keppnina.
Það er þó erfitt fyrir Vettel að
keyra niður háfleyg orð um bílinn
og sig sjálfan því hann var ríflega 0,7
sekúndum fljótari en næsti maður í
tímatökunni og var kominn með 2,4
sekúndna forskot á Lewis Hamilton
eftir fyrsta hringinn í Ástralíu.
„Tímabilið verður jafnt,“ ítrekaði
Þjóðverjinn ungi. „Það er bara aðal-
atriðið að komast í mark. Bíllinn var
mjög góður þessa helgina og sér-
staklega fljótur í keppninni. Fyrst
og fremst var hann þó mjög traust-
ur. Við gerðum heilmikið fyrir okk-
ur sjálfa á laugardeginum með því
að halda Lewis Hamilton og McLa-
ren fyrir aftan okkur. Ég mun samt
segja áfram við strákana að við eig-
um langt og erfitt tímabil í vændum,“
sagði Vettel.
Uppfærsla McLaren svínvirkaði
Aðeins viku fyrir fyrstu keppni
stefndi í allsvakalega erfitt tíma-
bil hjá stórliði McLaren. Bíllinn var
alltof hægur og hafði undirbúnings-
tímabilið verið liðinu gríðarlega erf-
itt. Mc Laren-menn ákváðu því að
taka mikla áhættu og henda á bílinn
stórri uppfærslu á föstudaginn fyr-
ir keppnina. Það svona svínvirkaði
þar sem Hamilton náði næstbestum
tíma í tímatökunni og endaði keppn-
ina í öðru sæti á eftir hinum ósnert-
anlega Vettel. Heimsmeistarinn frá
því 2008 var heldur betur ánægður
með árangurinn en hljóðið í honum
og liðsfélaga hans, Jenson Button,
var orðið þungt þegar nær dró móti.
„Ég er kominn aftur í slaginn,“
sagði Hamilton skælbrosandi eft-
ir keppnina. „Ég er aðeins nokkrum
stigum á eftir fyrsta manni sem er á
miklu hraðskeiðari bíl. Við munum
brúa þetta bil á milli okkar og Red
Bull, ég er alveg viss um það. Það er
samt alveg ljóst að Red Bull er með
alveg frábæran bíl. Við sýndum samt
í dag að við getum alveg keppt við þá.
Við þurfum bara að komast enn nær
þeim til að setja á þá smá pressu,“
sagði Hamilton sem stóð á verð-
launapalli í 38. sinn á sunnudaginn.
Sauber-draumurinn eyðilagður
Sauber-liðið átti hreint frábæran dag
í Ástralíu en ökumenn liðsins, Ser-
gio Perez og Kamui Kobayashi end-
uðu í sjöunda og áttunda sæti. Algjör
draumadagur, sérstaklega fyrir Kob-
ayashi sem hélt sig hafa sprautað smá
gleði inn í hjörtu landa sinna í Japan
eftir hörmungarnar sem hafa dunið á
þar. Þegar í endamarkið var komið var
stærð afturvængs beggja bíla dæmd of
stór og var þeim því vísað úr keppni.
Það þýddi að Paul Di Resta, nýliðinn
hjá Force India, lyftist upp í tíunda
sætið og halaði því inn gott stig í fyrstu
keppni sinni í Formúlu 1.
„Þetta kemur okkur mikið á óvart
og er auðvitað leiðinlegt fyrir okkur,“
sagði tæknistjóri Sauber en liðið áfrýj-
aði úrskurðinum. „Þessi vængur hjálp-
aði okkur nákvæmlega ekkert í keppn-
inni þannig að strákarnir geta alveg
fagnað árangrinum í keppninni. En
við erum auðvitað stigalausir sem er
leiðinlegt eftir svona frábæran dag,“
sagði hann. Ökumenn liðsins, Perez og
Kobayashi, voru þó af öllum sérfræð-
ingum sagðir hafa ekið best.
n Sebastian vann fyrstu
For múlukeppni ársins í n Upp-
færsla McLaren heppnaðist og Ha-
milton varð annar n Draumadagur
Sauber eyðilagður í endamarkinu
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
ÁSTRALÍA 2011
1. Sebastian Vettel Red Bull 1:29:30.259
2. Lewis Hamilton McLaren 1:29:52.556
3. Vitaly Petrov Renault 1:30:00.81
4. Fernando Alonso Ferrari 1:30:02.031
5. Mark Webber Red Bull 1:30:08.430
6. Jenson Button McLaren 1:30:24.563
7. Felipe Massa Ferrari 1:30:55.445
Aðrir voru hringaðir
1. Sebastian Vettel Red Bull 25
2. Lewis Hamilton McLaren 18
3. Vitaly Petrov Renault 15
4. Fernando Alonso Ferrari 12
5. Mark Webber Red Bull 10
6. Jenson Button McLaren 8
7. Felipe Massa Ferrari 6
8. Sebastian Buemi Toro Rosso 4
9. Adrian Sutil Force India 2
10. Paul Di Resta Force India 1
Stigakeppni ökuþóra
1. Red Bull 35
2. McLaren 26
3. Ferrari 18
4. Renault 15
5. Toro Rosso 4
6. Force India 3
Stigakeppni Bílasmiða
Langfyrstur Vettel er langlíklegastur til að hampa heimsmeistaratitlinum, annað árið í
röð.
Ólöglegur
Sauber-bílarnir
voru dæmdir úr
leik. MYND REUTERS