Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Page 3
Harmurinn
sameinar þjóð
Guðbergur Bergsson rithöfundur
„Sjálfsmyndin er eins og hún hefur
alltaf verið. Ísland er einangrað land
og þess vegna hefði verið sálrænt
séð gott að við borguðum þetta ekki.
Við einangruðumst og stæðum
saman og við munum aldrei falla.
Þegar Rómverjar réðust inn í Spán
voru þorp eða bæir sem vildu ekki
gefast upp, heldur falla allir en að
gefast upp. Eins með þessa þjóð,
þessi þjóð hefði bara tekið því mjög
vel. Allt í lagi, þetta hefur kom-
ið fyrir okkur, þetta er okkar sjálf-
skaparvíti, nú stöndum við saman og
verðum eins og áður var. Þegar skip
fórst tók öll þjóðin þátt í harminum.
Það sem sameinaði þjóðina var harm-
urinn. Þetta myndi líka sameina
þjóðina ef hún myndi ekki borga,
einangrast og standa bara með
sjálfri sér. Vera ekkert að hugsa
um það hvaða álit hinn stóri
heimur hefur á okkur.
Stóri heimurinn hugsar
ekkert mjög mikið um
okkur.“
Úr viðtali við Guð-
berg í DV í júní 2009.
Einar fer út Einar
Sveinsson, stjórnar-
formaður N1, verður
ekki lengur hluthafi
í N1 í kjölfar fjár-
hagslegrar endur-
skipulagningar á
olíufélaginu en
Hermann Guð-
mundsson mun
stýra því áfram
þrátt fyrir eigenda-
breytingarnar.
Fréttir | 3Miðvikudagur 6. apríl 2011
Hvað segja þau
um Icesave?
Helmingi lægri
vextir en öðrum
bjóðast
Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor
„Rót Icesave-deilunnar er sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda haustið 2008 að
ráðstafa eignum þrotabús Landsbankans þannig að útkoman var hagstæðari
fyrir þá sem áttu innstæður á reikningum bankans á Íslandi en þá sem áttu
innstæður í sama banka í Bretlandi og Hollandi. Deilan snýst um skiptingu
kostnaðar við að gera innstæðueigendurna jafnvel setta. Nú hefur náðst um
það samningur sem er afar hagstæður fyrir íslenska ríkið. Það sést meðal
annars á því að vextirnir sem miðað er við eru um helmingur þess sem Evr-
ópuþjóðir bjóða nú ríkissjóðum Grikklands og Írlands. Vitaskuld eigum við
að taka í þessa útréttu sáttarhönd nágranna okkar. Kostnaður af frekari töf-
um verður alltaf miklu meiri en hugsanlegur ávinningur og áhættan óásætt-
anleg. Tafirnar hafa þegar kostað okkur stórfé, bæði vegna minni fjárfesting-
ar, sem vinnur gegn hagvexti og viðheldur atvinnuleysi, og hærri kostnaðar
við að endurfjármagna útistandandi erlend lán landsmanna. Sá kostnaður
verður þegar upp er staðið miklu hærri en þær greiðslur sem ríkið kann að
inna af hendi til að ljúka málinu.“
Hermann Guðmundsson, forstjóri
N1, mun áfram stýra olíufélaginu
í kjölfar yfirtöku kröfuhafa félags-
ins á starfsemi þess, samkvæmt
heimildum DV. „Hermann heldur
áfram,“ segir heimildarmaður DV.
Þetta á við að minnsta kosti þar til
olíufélagið verður selt til nýrra eig-
enda en ætla má að nýir eigendur
félagsins reyni að selja það á næst-
unni.
Tilkynnt var um yfirtöku kröfu-
hafa félagsins, aðallega Íslands-
banka og Arion banka, auk skulda-
bréfaeigenda og minni kröfuhafa,
á þriðjudaginn. Þá sendi Einar
Sveinsson, fráfarandi stjórnarfor-
maður N1 og stærsti óbeini hlut-
hafi olíufélagsins í gegnum eignar-
haldsfélagið BNT, móðurfélag N1,
frá sér tilkynningu um yfirtökuna
fyrir hönd stjórnar N1.
Arion banki verður stærsti eig-
andi N1 eftir yfirtökuna, með 39
prósenta hlut, og Íslandsbanki sá
næststærsti, með 32 prósenta hlut,
á meðan skuldabréfaeigendur
munu eiga 21 prósent.
BNT ekki skilað ársreikningi
Stjórnendur og eigendur N1 hafa
unnið að samkomulaginu við lán-
ardrottna félagsins frá því um mitt
síðasta ár, samkvæmt tilkynningu
Einars. Ástæða yfirtökunnar er
mikil skuldsetning fasteignafélags
N1, Umtaks, sem og móðurfélags-
ins, BNT, segir Einar í tilkynning-
unni. Með þessu telja stjórn og
eigendur N1 sig hafa tryggt áfram-
haldandi rekstur N1 og þar með
þau 600 störf sem N1 skapar víða
um land – félagið er stærsta olíu-
félag landsins með 115 starfsstöðv-
ar. Einar segir líka í tilkynningunni
að óljóst sé hvað verði um BNT og
Umtak en að ljóst sé að eiginfjár-
staða þessara félaga er neikvæð.
Yfirtakan hefur lengi legið í loft-
inu og var byrjað að kvisast út að
hún stæði til fyrir nokkrum mán-
uðum en mikil skuldsetning BNT
og Umtaks er löngu kunn þó svo
að BNT hafi ekki skilað ársreikn-
ingi síðan árið 2007. Arion banki
er stærsti lánardrottinn Umtaks á
meðan Íslandsbanki er stærsti lán-
ardrottinn BNT.
Tekið skal fram að yfirtakan
á N1 er tilkomin vegna mikillar
skuldsetningar þessara eignar-
haldsfélaga sem koma að N1 en
ekki út af slælegum rekstri félags-
ins.
53 milljarða króna skuldir
Samanlagðar skuldir Umtaks og
BNT liggja ekki alveg fyrir. Vitað
er að Umtak skuldaði rúmlega 27
milljarða króna í árslok 2009, sam-
kvæmt ársreikningi félagsins fyrir
það ár, en heildarskuldastaða BNT
liggur ekki fyrir sökum þess að fé-
lagið hefur ekki skilað ársreikningi
fyrir árin 2008 og 2009. Nefnd hef-
ur verið talan 60 milljarðar króna
í því samhengi en samkvæmt því
skuldar BNT enn meira en Umtak.
Heimildir DV herma hins veg-
ar að þessar skuldir séu aðeins
lægri, um 53 milljarðar króna.
„Þetta eru um 53 milljarðar króna
sem BNT og Umtak skulda sam-
tals,“ segir heimildarmaður DV.
Þessi tala gæti skýrt þá staðreynd
að Arion banki, stærsti kröfuhafi
Umtaks, á stærsta hlutinn í N1 eftir
yfirtökuna, á meðan Íslandsbanki,
stærsti kröfuhafi BNT, á næst-
stærsta hlutinn. Vitað er að Um-
tak skuldaði Arion banka rúma 27
milljarða króna í árslok 2009, sam-
kvæmt ársreikningi, á meðan ekki
er vitað nákvæmlega um skuldir
N1. Mismunurinn á eignarhlutum
Arion banka og Íslandsbanka gæti
því gefið til kynna að skuldir Um-
taks við Arion banka séu hærri en
skuldir BNT við Íslandsbanka.
Heimildir DV herma að lánar-
drottnar N1 gætu þurft að afskrifa
á milli 35 og 40 milljarða króna af
skuldum félaganna tveggja í kjöl-
farið á sölu N1. N1 er gott fyrirtæki
með stóra markaðshlutdeild á ol-
íumarkaði en ljóst má vera að ekki
fæst mikið meira fyrir það en 10 til
15 milljarðar króna.
Einar og Benedikt fara út
Heimildir DV herma að bræðurn-
ir Einar og Benedikt Sveinssyn-
ir, stærstu hluthafar N1 í gegnum
BNT, muni alfarið segja skilið við
félagið í kjölfar þessarar yfirtöku.
„Engeyingarnir fara alveg út,“ seg-
ir heimildarmaður DV. Stjórn N1
munu þó sitja áfram þar til næsta
sumar en þá er stefnt að því að
ljúka fjárhagslegri endurskipu-
lagningu félagsins. Þetta er gert að
ósk lánardrottna samkvæmt því
sem Einar segir í yfirlýsingunni.
Einar og Benedikt höfðu verið
ráðandi aðilar í N1 síðan árið 2006
þegar félagið varð til við samein-
ingu Bílanausts og Olíufélagsins
hf., Esso. Hermann hafði sömu-
leiðis stýrt félaginu síðan þá en
hann stýrði Bílanausti áður. Ekki
náðist í Hermann á þriðjudaginn
til að ræða við hann um framtíð N1
og hvort hann hyggist sjálfur reyna
að kaupa félagið sem hann hefur
stýrt síðastliðin fimm ár en hávær
orðrómur hefur verið þar um.
Ákveðið snögglega í síðustu
viku
Líkt og áður segir hefur yfirtakan
legið í loftinu um langt skeið. Lít-
ið hefur hins vegar spurst út um
samningaviðræður lánardrottna
N1 og eigenda og stjórnenda
félagsins síðustu mánuðina og vik-
urnar. Þær hafa þó staðið yfir síð-
astliðna mánuði. Svo var það dag
einn í síðustu viku að komist var að
samkomulagi um að yfirtakan á fé-
laginu myndi fara fram með áður-
nefndum hætti samkvæmt heim-
ildum DV. Með þessari yfirtöku
lýkur margra mánaða ferli með
niðurstöðu sem legið hefur í loft-
inu enn lengur.
Ekki er búið að skrifa undir
samkomulagið við lánardrottna N1
sem nú liggur fyrir. Samkomulagið
verður að öllum líkindum undirrit-
að öðrum hvorum megin við næstu
helgi samkvæmt heimildum DV.
„Þetta eru um 53
milljarðar króna
sem BNT og Umtak
skulda samtals.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Arion banki og Íslandsbanki yfirtaka N1 n Yfirtakan hefur legið í loft-
inu í marga mánuði n Skuldir tveggja eignarhaldsfélaga sem standa
að N1 nema 53 milljörðum króna n Nýir eigendur munu selja félagið
Hermann Heldur
áfram að stýra n1
n Arion banki 39%
n Íslandsbanki 32%
n Skuldabréfaeigendur 21%
n Minni hluthafar
Nýtt eignarhald á N1