Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Blaðsíða 17
Finndu ódýrasta netið Á vefsvæðinu reiknivel.is er að finna ágætt
tæki sem hentugt er að nota þegar velja á internettengingu eða símaþjónustu. Á afar
einfaldan hátt má finna hvaða þjónustuleið er ódýrust. Ef valin er til dæmis miðlungs
notkun á internettenginu þá kemur upp að ódýrasta tengingin sem völ er á er hjá
fyrirtækinu Hringdu. Þar má fá 20GB tengingu sem kostar 2.995 krónur á mánuði.
Sú dýrasta kostar 8.990 krónur á mánuði en mikill munur er þó líklega á hraða og
gagnamagni.
Á sama hátt má skoða allar þjónustuleiðir sem eru í boði í símaviðskiptum. Póst- og
fjarskiptastofnun starfrækir reiknivélina.
Neytendur | 17Miðvikudagur 6. apríl 2011
Cafe Catalina n Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is
Kanaríeyjakvöld
á Catalinu
Borðhald hefst kl. 20
í tilefni af afmæli
Örvars Kristjánssonar
Föstudaginn 8. apríl
Óli Sæm fer
með gamanmál
Hljómsveitin
Arizona leikur
fyrir dansi
ásamt Örvari
og Rúnu
panta þarf matinn
fyrir miðviku-
daginn 6. apríl!
m a t s e ð i l l
Fo R R ét tuR
Laxa og lúðulag með Norry og
fyllt rauðspretta með rækjumús
og piparrótarsósu
AðAlR ét tuR
Grillað lambalæri og
svínahamborgarhryggur
gratín kartöflur, ristað grænmeti,
sveppasósa og ferskt salat
kr. 4.800.-
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Nú er sá tími kominn þegar margir
fara að huga að hjólum sínum og
koma þeim í stand fyrir sumarið.
Ekki kunna allir að skipta um dekk
og bremsupúða eða stilla gíra. Enn
færri geta teinað upp gjarðir eða
skipt um olíu á dempurum sjálfir. Ís-
lenski fjallahjólaklúbburinn stend-
ur fyrir viðgerðarnámskeiðum nú í
apríl en þar geta reiðhjólaeigendur
yfirfarið hjólin sín og fengið tilsögn
hjá sér reyndara fólki. Samkvæmt
upplýsingum frá klúbbnum eru all-
ir velkomnir og námskeiðin ókeypis.
Það er því tilvalið fyrir fólk að athuga
heimasíðu þeirra og fá nánari upp-
lýsingar.
Verð eftir ástandi hjóls
Þeir sem vilja losna við að gera þetta
sjálfir eða treysta sér ekki til þess
hafa önnur úrræði en flestar reið-
hjólabúðir bjóða upp á viðgerð af
þessu tagi. Einnig má finna nokk-
ur verkstæði sem bjóða upp á slíka
þjónustu. DV kannaði hvert hægt er
að fara með hjólin og hvað slík þjón-
usta kostar. Verðin eru að sjálfsögðu
misjöfn eftir ástandi hjólsins en
dæmigerð yfirferð á öllum stöðum
er stilling gíra og á bremsum ásamt
smurningu.
Biðraðir að myndast
Viðgerðarmenn voru sammála um
að vorið væri komið í þeim skiln-
ingi að fólk væri farið að flykkjast til
þeirra með hjólin. Þeir finna fyrir
mikilli aukningu í viðskiptum sínum
og telja að hana megi rekja til aukins
áhuga fólks á að nota reiðhjólin sem
ferðamáta. Ekki þarf að panta tíma
í viðgerð eða yfirferð en mikið er að
gera á verkstæðunum og því ráð að
koma hjólinu sínu að sem fyrst.
Hjólaverkstæði Best
er að láta fagmann yfir-
fara hjólið og koma því í
gott lag fyrir sumarið.
n Það er ekki seinna vænna að ná í reiðfákinn og koma honum í
stand fyrir sumarið n DV kannaði hvert reiðhjólaeigendur geta
farið með hjólin í yfirferð og viðgerð og hvað það kostar n Ís-
lenski fjallahjólaklúbburinn býður upp á námskeið í viðgerðum
KOMUM HJÓL-
UNUM Í STAND
n Borgarhjól á Hverfisgötu tekur frá 3.900 krónum og upp úr fyrir yfirferð á hjóli og fer
það eftir ástandi hjólsins. Þeir sem hafa geymt hjólin inni yfir veturinn gætu sloppið með
tæplega 4.000 krónur en þær upplýsingar fengust að verðið gæti farið lang leiðina upp í
10.000 krónur. Þar er tímakaupið 5.900 krónur.
n Hjólameistarinn á Nýbýlavegi tekur 4.000 krónur á tímann. Yfirferð á hjólum sem eru
vel með farin kostar á bilinu 3.000 til 5.000 krónur. Fólk sem kemur með illa farið hjól gæti
þurft að borga 8.000 til 15.000 krónur fyrir viðgerð en inn í þeirri upphæð eru varahlutir.
n Hjólasprettur í Bæjarhrauni tekur 6.000 krónur á tímann. Fyrir hjól sem hafa staðið inni
og þurfa í raun bara smurningu og stillingu þá er verðið á bilinu 3.000 til 5.000 krónur. Fyrir
þau sem hafa staðið úti gæti fólk átt von á því að greiða á milli 5.000 og 10.000 krónur.
Það gæti þó farið upp í 15.000 krónur ef þau eru mjög illa farin.
n GÁP tekur á milli 3.000 og 4.000 krónur fyrir létta yfirferð svo sem stillingur og
smurningu. Önnur sem þurfa meira kosta á bilinu 5.000 til 10.000 krónur en það fari allt
eftir ástandi hjólsins. Þar fengust þó upplýsingar að oftast komi fólk með hjól sem þurfa
einungis létta yfirferð.
n Örninn tekur 6.000 á tímann fyrir viðgerð. Létt yfirferð kostar 3.300 krónur en það
hækkar eftir því sem þarf að gera meira. Reiðhjólaeigendur gætu þurft að greiða á milli
5.000 til 10.000 krónur fyrir hjól sem koma illa undan vetrinum.
n Markið rukkar 1.600 krónur fyrir korters vinnu en lítil yfirferð kostar í mesta lagi 3.200.
Það er um það bil hálftíma vinna. Meiri viðgerð fyrir illa farin hjól fer eftir ástandi en gæti
verið 5.000 til 7.000 krónur. Það er breytilegt eftir því hvaða hluti þarf að skipta um og
hvað þeir kosta.
Viðhald Fólk má búast við að greiða allt upp í 15.000 krónur fyrir viðgerð á hjólum hafi
þau staðið úti í allan vetur.