Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Page 4
4 | Fréttir 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Fyrirtækið Allrahanda byggir tvö þúsund fermetra húsnæði:
Stórframkvæmd í kreppunni
„Þetta eru rúmir tvö þúsund fermetrar
og er stærsta framkvæmd sem fer í
gang á Reykjavíkursvæðinu á þessu
ári,“ segir Sigurdór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtæk-
isins Allrahanda.
Á laugardag var tekin fyrsta skóflu-
stungan að byggingu nýs húsnæð-
is undir starfsemi fyrirtækisins. „Við
erum á tveimur stöðum í dag og erum
að reyna að sameina þetta,“ segir Sig-
urdór en byggingin mun rísa í Kletta-
görðum niðri við Sundahöfn. Kostn-
aðaráætlun hljóðar upp á um 300
milljónir króna að hans sögn.
„Það var allt í lagi. Við áttum góðan
sjóð í þetta sjálfir þannig að fjármögn-
un er ekki nema um 60 prósent,“ seg-
ir hann þegar hann er spurður hvort
erfitt hafi reynst að fjármagna fram-
kvæmdina. Áætlanir gera ráð fyrir að
húsnæðið verði tilbúið um mánaða-
mótin ágúst/september en BM Vallá
sér um að byggja húsið. Sigurdór seg-
ir að lögð hafi verið áhersla á að nota
íslenska framleiðslu og vonast hann
einnig til þess að framkvæmdin muni
skapa störf fyrir íslenska verkamenn.
Allrahanda er stórt ferðaþjónustu-
fyrirtæki og skipuleggur meðal ann-
ars dagsferðir til og frá Reykjavík fyr-
ir ferðamenn. Fyrirtækið sér einnig
um skólaakstur fyrir sveitarfélögin á
höfuð borgarsvæðinu og hefur því í
nógu að snúast. Sigurdór segir að yfir
vetrartímann séu starfsmenn um 60
en fari vel yfir hundrað yfir sumartím-
ann þegar erlendir ferðamenn heim-
sækja landið.
einar@dv.is
Fyrsta skóflustungan Það var Guðrún
Þórisdóttir, sölustjóri Allrahanda, sem tók fyrstu
skóflustunguna á laugardag. Mynd Gunnar Guðjónsson
Lögregla skoðar fingraför:
Enginn verið
handtekinn
Enginn hefur verið handtekinn í
tengslum við rannsókn lögreglu á
bréfi sem barst á ritstjórnarskrifstofu
DV á mánudag þar sem tuttugu fyrr-
verandi ráðherrum er hótað. Allir
höfðu þeir stutt Icesave-samninginn
opinberlega.
Að sögn Friðriks Smára Björg-
vinssonar hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar verður leitað að fingraför-
um á bréfinu í von um að hafa upp
á þeim sem bréfið sendi. Rannsókn
málsins er því haldið áfram, þrátt
fyrir að fram hafi komið á mánudag
að bréfið hafi ekki þótt mjög trúverð-
ugt er ljóst að innihald þess er tekið
alvarlega og málið rannsakað.
Friðrik Smári segir engan þeirra
sem tilgreindir eru í bréfinu hafa
kært hótunina til lögreglu. Eftir því
sem DV kemst næst barst engum
þeirra bréfið í pósti persónulega.
Eins og fram hefur komið var bréfið
skilið eftir í póstkassa DV.
Hafa þurft á líf-
vörðum að halda
DV leitaði til sagnfræðingsins
Guðna Th. Jóhannessonar á þriðju-
dag og spurði um hótanir sem
þessar í gegnum tíðina. Og það
þurfti ekki að fara lengra aftur en til
október 2008, eftir hrun bankanna,
til að finna nýlegasta dæmið. Geir
H. Haarde, þáverandi forsætis-
ráðherra, og Davíð Oddsson, þá-
verandi seðlabankastjóri, þurftu
á lífvörðum að halda eins og DV
greindi frá á sínum tíma. Björgvin
G. Sigurðsson, þáverandi viðskipta-
ráðherra, fékk einnig fylgd lífvarða.
Guðni bendir einnig á það í
svari sínu við fyrirspurn DV að
þegar aðild að NATO var samþykkt
hafi hitnað í kolunum. Nánar til-
tekið í mars 1949. „Þá var mikill hiti
í mönnum og einkum fékk Bjarni
Benediktsson utanríkisráðherra
að finna fyrir því. Þá var um stund
öryggisgæsla við heimili hans og
börn hans (m.a. Björn Bjarnason)
gistu annars staðar um stundarsak-
ir,“ rifjar Guðni upp.
Þriðja dæmið sem sagnfræð-
ingurinn man eftir í fljótu bragði er
í kringum þingrofið árið 1931. Þá
var hitinn svo mikill í mönnum að
velunnarar Tryggva Þórhallssonar
forsætisráherra höfðu uppi gæslu
við heimili hans.
Maðurinn sem situr í gæsluvarð-
haldi grunaður um gróf kynferðis-
brot gegn sjö ára syni sínum hefur
í gegnum tíðina verið dæmdur fyrir
ýmiss konar brot. Gert var hæfnis-
mat á manninum að beiðni barna-
verndarnefndar Hafnarfjarðar fyrir
nokkrum árum. Þar var hann, sam-
kvæmt heimildum DV, metinn hæf-
ur til að vera með drenginn á móti
móður hans. Manninum var dæmd
full umgengni við drenginn, sem
þýðir að hann mátti hafa hann aðra
hverja helgi, önnur hver jól og fjórar
vikur á sumrin.
Beitt dagsektum
Móðir drengsins vildi ekki leyfa
manninum að umgangast hann
vegna gruns um að maðurinn væri
í fíkniefnaneyslu og neitaði að fara
eftir dómnum, samkvæmt heim-
ildum DV. Mun hafa verið mikil
togstreita á milli þeirra en móðirin
hefur verið beitt dagsektum vegna
þessa.
Síðastliðið sumar byrjaði að
reyna meira á umgengnisréttinn
þar sem faðirinn fór að sækja það
fastar að fá að hitta son sinn. Þar
sem maðurinn virtist vera í betra
formi en áður fór drengurinn oftar
til hans en samkvæmt heimildum
DV hefur hann einungis gist tvisvar
hjá föður sínum yfir nótt.
Var á Breiðavík
Brotaferill mannsins, sem er um
fimmtugt, er langur og hefur hann
meðal annars verið dæmdur fyrir
að ráðast á barnsmóður sína og
föður hennar, ásamt því að fremja
skemmdarverk á bíl föðurins. Aðr-
ir dómar varða meðal annars fíkni-
efnalagabrot, fjársvik, þjófnað og
hylmingu. Frændi mannsins, á fer-
tugsaldri, var einnig handtekinn í
tengslum við málið. Húsleit var gerð
heima hjá þeim báðum að fengnum
úrskurði dómara. Á báðum heimil-
unum fundust fíkniefni, meðal ann-
ars marijúana.
Þá var lagt hald á tölvur beggja
mannanna vegna gruns um að í
þeim væri að finna myndir sem
sýna börn, þar á meðal unga dreng-
inn, á klámfenginn og kynferðisleg-
an hátt. Mennirnir voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald skömmu eftir að
þeir voru handteknir.
Faðirinn dvaldi á vistheimilinu
Breiðavík á sínum yngri árum og
hefur verið í mikilli óreglu sem
hófst, samkvæmt heimildum blaðs-
ins, á unglingsaldri.
Árið 2004 skildi hann við barns-
móður sína og fór fram á jafnan
umgengnisrétt við drenginn. Sam-
kvæmt heimildum DV sótti mað-
urinn ekki mikið í samskipti við son
sinn fyrr en síðastliðið sumar en
vegna neyslu og óreglu var barns-
móðir hans mótfallin því að veita
honum umgengni.
Frekari skýrslutökur
Maðurinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 6. apríl en Björgvin
Björgvinsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, segir óvíst hvort farið verði fram
á áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir manninum. „Það eru síðustu
skýrslutökur yfir honum á morgun
[á miðvikudag, innskot blaða-
manns]. Við erum að bíða eftir nið-
urstöðu tölvurannsóknardeildar og
ég get í raun og veru ekki sagt neitt
um það fyrr,“ segir Björgvin.
Spurður hvort fjölskyldu drengs-
ins verði veitt vernd gagnvart mann-
inum, sem hefur verið dæmdur fyr-
ir að ráðast á barnsmóður sína líkt
og áður kom fram, segir Björgvin að
ýmis úrræði séu til staðar fyrir fólk í
aðstöðu sem þessari en það verði að
koma í ljós hvað verði gert í því máli.
Metinn hæfur til að
uMgangast drenginn
n Grunaður um kynferðisbrot gegn syni sínum n Metinn hæfur af Barnavernd
n Móðirin beitt dagsektum n óvíst með áframhaldandi gæsluvarðhald
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Brotaferill manns-
ins, sem er um
fimmtugt, er langur og
hefur hann meðal ann-
ars verið dæmdur fyrir
líkams árás á hendur
barnsmóður sinni og
föður hennar.
dæmdur fyrir ýmiss konar brot Maðurinn sem
situr í gæsluvarðhaldi vegna meints kynferðisbrots
gegn ungum syni sínum á að baki langan sakaferil.
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Margviðurkenndur stóll
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25