Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfest
ir hefur yfirtekið einkahlutafélagið
Hersi – ráðgjöf og þjónustu, sem áður
var í eigu nánustu samstarfsmanna
hans og afskrifað 70 milljóna kröfu
sem hann átti á félagið. Þetta gerðist
á seinni hluta síðasta árs. Einkahluta
félagið Hersir var eigandi að 1 pró
sents hlut í eignarhaldsfélaginu Sam
son, móðurfélagi Landsbankans, á
árunum 2005–2007. Samhliða skulda
afskriftinni og yfirtöku Björgólfs Thors
á félaginu hefur embætti ríkisskatt
stjóra löggilt skilanefnd yfir Hersi að
kröfu Björgólfs Thors sem ætlar að
slíta félaginu. Félagið verður því ekki
tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta kem
ur fram í gögnum frá Lánstrausti um
starfsemi Hersis sem DV hefur und
ir höndum, meðal annars tölvupóst
um á milli starfsmanna skilanefndar
Hersis og starfsmanns ríkisskattstjóra.
Embætti ríkisskattstjóra samþykkti
þó aðeins með semingi að löggilda
skilanefndina vegna þess hver núver
andi eigandi Hersis er, Björgólfur Thor
Björgólfsson. Fyrri eigendur Hersis
voru Þorvaldur Björnsson, Þór Krist
jánsson, Tómas Ottó Hansson, Birgir
Már Ragnarsson og Andri Sveinsson,
en allir voru þeir nánir samstarfs
menn Björgólfs Thors á árunum fyrir
hrunið. „Ég verð enn að segja að ég
skil ekki hvað leikur er þarna í gangi,“
sagði Skúli Jónsson, forstöðumaður
hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, í
tölvupósti til annars skilnanefndar
mannanna sem stjórn Hersis hafði
kosið til að slíta félaginu í ágúst síðast
liðnum. Skilanefndarmaðurinn heit
ir Jónas Rafn Jónsson og er lögfræð
ingur hjá endurskoðendafyrirtækinu
KPMG. Tölvupóstsamskiptin áttu sér
stað í byrjun september í fyrra eftir að
Hersi hafði verið slitið.
Björgólfur fór niður
fyrir 20 prósent
Skúli útskýrði ekki í tölvupóstinum til
Jónasar hvað hann ætti við með orð
inu „leikur“ og liggur það því ekki fyr
ir út frá samskiptunum þeirra á milli.
Ein af ástæðunum fyrir því af hverju
Björgólfur Thor skirrist við að láta
Hersi verða gjaldþrota er að félagið
átti 1 prósents hlut í eignarhaldsfélag
inu Samson sem var alfarið fjármagn
aður með láni frá þessu móðurfélagi
Landsbankans. Kaup Hersis á 1 pró
sents hlutnum í Samson áttu sér stað
í desember 2005 og voru tilkynnt til
Kauphallar Íslands á næstsíðasta degi
ársins, þann 30. desember 2005.
Í tilkynningu til Kauphallarinn
ar þann 30. desember 2005 kom eft
irfarandi fram: „Hersir – ráðgjöf og
þjónusta ehf., hefur í dag gert samn
ing um kaup á 1% hlutafjár í Samson
eignarhaldsfélagi ehf. Samson eignar
haldsfélag ehf. er eigandi að 40,17%
hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. og
fruminnherji í bankanum á grundvelli
eignaraðildar.“ Kaupin voru fjármögn
uð með skammtímaláni frá Samson.
Kaup Hersis á eignarhlutnum
í Samson gerðu það að verkum að
Björgólfur Thor átti óbeinan eignar
hlut í Landsbanka Íslands sem nam
19,88 prósentum í lok árs 2005 en ekki
rúmlega 20 prósentum, líkt og hann
hefði gert ef Hersir hefði keypt um
ræddan hlut í Samson.
Gat fengið meira lánað
– þurfti ekki fyrir stjórn
Kaup Hersis gerðu það því að verkum
að Björgólfur Thor Björgólfsson var
ekki skilgreindur sem tengdur aðili í
Landsbankanum og gátu lánveiting
ar til hans því numið meiru en sem
nam 25 prósentum af eiginfjárgrunni
bankans. Lánveitingar til Björgólfs
sjálfs voru þó yfirleitt ekki svo háar
heldur voru þær í kringum 20 pró
sent af eiginfjárgrunni Landsbankans
síðustu 18 mánuðina fyrir fall bank
ans, líkt og kemur fram í skýrslu rann
sóknarnefndar Alþingis. Samkvæmt
lögum um fjármálafyrirtæki má þessi
áhætta vegna eins viðskiptavinar,
eða aðila sem eru tengdir á ákveðinn
hátt líkt og Björgólfur Thor og faðir
hans Björgólfur Guðmundsson, ekki
fara yfir 25 prósent af eiginfjárgrunni
banka. Vegna þessarar skilgreiningar
Landsbankans á Björgólfi var hann
ekki flokkaður með föður sínum sem
tengdur aðili í bankanum. Fjármála
eftirlitið var ósammála þessu mati
Landsbankans.
Fjármálaaeftirlitið hefur rann
sakað áhættuskuldbindingar Lands
bankans gagnvart Björgólfi Thor og
tengdum aðilum eftir hrunið 2008,
líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum.
Um áhættuskuldbindingar Lands
bankans gagnvart Björgólfi Thor og
tengdum aðilum segir meðal annars
í skýrslunni: „Þrátt fyrir ábendingar Í
fylgiskjali með bréfi Fjármálaeftirlits
ins, dags. 22. mars 2007, kemst Fjár
málaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að
áhættuskuldbinding Landsbankans
gagnvart Björgólfi og tengdum aðil
um hafi numið að minnsta kosti 51,3
milljörðum kr. sem nam þá 49,7% af
CAD eigin fé bankans.“ Þessar lán
veitingar Landsbankans til Björgólfs
Thors og tengdra aðila fóru því yfir
lögbundið hámark samkvæmt rann
sóknarskýrslunni.
Svipað og eignarhald
á Givenshire
Tilgangur einkahlutafélagsins Hers
is, sem DV hefur heimildir fyrir að
hafi komið til tals hjá sérstökum sak
sóknara, var hugsanlega svipaður og
tilgangurinn með því að láta nokkra
af starfsmönnum fjárfestingarfélags
Björgólfs Thors, Novator, halda utan
um fimm prósenta hlut í eignarhalds
félaginu Givenshire Equities Limi
ted. Givenshire, sem skráð var í Lúx
emborg, var félagið sem hélt utan um
eignarhlut Björgólfs í eignarhalds
félaginu Samson, móðurfélagi Lands
bankans. Samson átti 41 prósents hlut
í Landsbanka Íslands og var kjölfest
ufjárfestir í bankanum og ráðandi aðili
frá 2003 til ársins 2008.
Á fyrri hluta árs 2007 eignuðust
starfsmenn Novators þennan um
rædda fimm prósenta hlut í Given
shire, samkvæmt því sem Ragnhild
ur Sverrisdóttir, talskona Björgólfs
Thors, sagði við DV síðla árs í fyrra. Við
þetta var óbeinn eignarhlutur Björg
ólfs Thors í Landsbankanum ekki 20
prósent. „Björgólfur Thor hefur allt
af átt langstærstan hluta Givenshire
einn. Um tíma átti félag í eigu nokkurra
starfsmanna Novators lítinn hluta...
Þetta félag í eigu starfsmanna Novators
átti aðeins lítinn hlut, bara nokkur pró
sent, og líklega um 5% þegar mest var.“
Ragnhildur vildi ekki gefa upp hvaða
starfsmenn Björgólfs Thors það voru
sem áttu hlutabréfin í Givenshire.
Þetta eignarhald starfsmanna
Björgólfs á hlutum í Givenshire, sem
aftur hélt utan um hlutabréfaeign
Björgólfs Thors í Samson, gerði það að
verkum að hann var ekki skilgreindur
sem tengdur aðili í Landsbankanum.
Þar af leiðandi áttu lög um hámarks
lánveitingar til tengdra aðila – 25 pró
sent af eiginfjárgrunni – ekki við um
Björgólf Thor. Ein af afleiðingum þessa
var líka að ekki þurfti að taka lánveit
ingar frá Landsbankanum til Björg
ólfs Thor til umfjöllunar í stjórn Lands
bankans, líkt og fjallað er um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Ekki er loku fyrir það skotið að þeir
starfsmenn Björgólfs Thors sem áttu
hlutabréfin í Hersi hafi hugsanlega
einnig átt hlutabréfin í Givenshire, eða
haldið utan um þau með einum eða
öðrum hætti. Líkt og áður segir hef
ur Ragnhildur Sverrisdóttir ekki viljað
svara þessu fyrir hönd Björgólfs Thors.
Því kann að vera að eignarhald Hers
is á bréfum í Samson og eignarhald
n Starfsmaður ríkisskattstjóra
var harðorður í tölvupósti síðla
árs í fyrra n Gagnrýndi viðskipta-
fléttu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar harkalega n Leynifélagi
sem átti í Samson slitið en ekki
sett í gjaldþrot n Björgólfur eini
hluthafinn og stærsti kröfuhafinn
Ríkisskattstjóri gáttaður
á fléttu Björgólfs Thors
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„En það virðast
sumir, einkum þeir
sem helst komu þjóðinni
í ógöngur, alltaf þurfa að
fara pínulítið á skjön við það
sem er eðlilegast og jafnvel
skynsamlegast að gera.
1. Hvernig var krafa Björgólfs Thors á hendur einkahlutafélaginu Hersi tilkomin? Lánaði hann
félaginu umrædda fjármuni, 70 milljónir? Ef já, þá af hverju?
2. Hvenær yfirtók Björgólfur Thor félagið?
3. Af hverju tók Björgólfur Thor félagið yfir í staðinn fyrir að láta það fara í þrot?
4. Af hverju sleit Björgólfur Thor félaginu eftir að hafa eignast það? Hefði ekki verið eðlilegra
að láta það verða gjaldþrota?
5. Hver voru tengsl Björgólfs Thors við félagið?
6. Hvað gerði þetta félag, Hersir?
7. Af hverju var það stofnað á sínum tíma?
8. Hefur FME eða sérstakur saksóknari verið í sambandi við Björgólf Thor út af umræddu félagi?
„Hersir var félag í eigu nokkurra einstaklinga sem veittu sérfræðiþjónustu til Samson og
tengdra félaga. Björgólfur Thor lánaði félaginu fjármuni vegna reksturs þess. Þar sem
eigið fé stefndi í að verða neikvætt tók Björgólfur félagið yfir sem eini kröfuhafi þess.
Félagið var ekki sett í gjaldþrot þar sem það var einfaldlega ekki gjaldþrota og aðeins
um að ræða einn kröfuhafa. Hins vegar var það sett í slitameðferð þar sem rekstri þess
var hætt. Hvorki FME né sérstakur saksóknari hafa haft samband vegna umrædds
félags, enda ekkert tilefni til.“
Svör Ragnhildar Sverrisdóttur við spurningum DV