Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 6. apríl 2011 Miðvikudagur
„Það eina sem ég get sagt er að ég hef
gert allt of mikið fyrir þessa stelpu
og verið allt of góður við hana. Við
höfum átt í erjum áður og guð má
vita hvort hún hafi ekki oft átt skil-
ið að fá einn löðrung miðað við það
hvernig hún hefur hagað sér, en ég
er enginn ofbeldismaður,“ segir Ing-
var Árni Ingvarsson. Hann er að tala
um fyrrverandi kærustu sína, þá sem
hann var á dögunum dæmdur fyrir
að beita ólögmætri nauðung, sérlega
hættulega líkamsárás, hótanir og til-
raun til fjárkúgunar.
Ósáttur við sambandsslitin
Saga þeirra hófst fyrir átta árum.
Ingvar Árni var að koma úr fangelsi
fyrir fíkniefnainnflutning og ætlaði
að bæta líf sitt. Þau tóku saman og
Ingvar Árni segir að lífið hafi aldrei
verið eins gott. Í desember 2008
hættu þau saman en tengdust áfram
í gegnum hundana sem þau áttu
saman, chihuahua-tíkurnar Coco og
Gloríu. Ingvar Árni átti erfitt með að
sætta sig við sambandsslitin og gerð-
ist sífellt ágengari. Hún kynntist öðr-
um manni úti í Danmörku og þegar
Ingvar Árni frétti af því seinna brast
eitthvað innra með honum. Hún
hafði þó enga ástæðu til þess að ótt-
ast hann fyrr en í lok ársins 2009, en
í yfirheyrslu hjá lögreglunni greindi
hún frá eftirfarandi atviki. Hún var
nýkomin aftur til landsins þegar hún
þurfti að skjótast í afmælisveislu til
vinkonu sinnar og Ingvar Árni ætl-
aði að passa hundana fyrir hana á
meðan. Þegar hún kom svo að sækja
hundana ræddu þau vel og lengi
saman áður en talið barst að þessum
strák. Ingvar Árni vildi vita hver hann
væri en hún vildi ekki gefa nafn hans
upp, klæddi sig í vesti og gerði sig lík-
lega til að fara. Þá sagði hann að hún
færi ekki fyrr en hún hefði sagt hon-
um allt og hótaði að hún færi með
glóðarauga á nýársfögnuðinn. Hann
henti henni í sófann, sparkaði í hana
og kleip hana þar til hún fékk mar-
blett. Óttaslegin sagði hún honum
allt sem hann vildi vita. Hann spurði
hvort grasið væri grænna hinum
megin og hún neitaði því. „Það var
eins og hún væri að leika sér að mín-
um tilfinningum. Síðan endaði þetta
svona. Hún stórslasaðist.“
Vinkonan beið úti í bíl
„Hún gat engu svarað. Þá hugsaði ég
með mér að ég ætti þetta ekki skilið,
hún væri búin að mölbrjóta hjartað í
mér og væri nú að rugla í hausnum á
mér. Út frá því kviknaði reiðin,“ segir
Ingvar Árni.
Í kjölfarið bauð hann henni út að
borða á nýársdag. Hún afþakkaði,
sagðist ætla að fara út að borða með
vinum. Á gamlársdag, tveimur dög-
um eftir ofangreint atvik, bað hann
hana um að sækja hundana heim til
sín. Skelkuð eftir síðustu heimsókn
bað hún vinkonu sína um að fylgja
sér en það hafði lítið að segja þegar
á reyndi. Vinkonan beið úti í bíl og
varð þess ekki áskynja þegar Ingvar
Árni dró fyrrverandi kærustu sína
með ofbeldi inn í íbúðina þar sem
hann hélt henni nauðugri þar til hún
kastaði sér fram af svölunum í von-
lausri tilraun til þess að flýja.
Var virkilega illur
Þegar inn var komið lýsti hann því
fyrir henni hvernig hann ætlaði að
tuska hana til. „Hann ætlaði að nef-
brjóta mig. Klippa af mér allt hár-
ið og raka af mér hárið. Hann sagði
bara að ég væri ekki að fara að kom-
ast lifandi hérna út. Hann ætlaði
bara að drepa mig,“ sagði stúlkan í
yfirheyrslu hjá lögreglunni og bætti
því við að hann hefði verið virki-
lega illur. Var honum gefið að sök að
hafa haldið henni nauðugri, veist að
henni, rifið í hár hennar, slegið hana
margsinnis í andlit og líkama, spark-
að í fætur hennar og hótað henni
líkamsmeiðingum og lífláti. Eða svo
sagði hún.
Sjálfur þvertók hann fyrir að hafa
beitt hana ofbeldi en dómurinn taldi
það engu að síður sannað. Á mynd-
um af vettvangi má sjá hvar rakvél-
in liggur og boxhanskarnir standa á
stofuborðinu. Stúlkan hafði það eftir
honum að hann ætlaði að nota rak-
vélina til þess að raka af henni hárið
og sagði að hann hefði klæðst box-
hönskunum á meðan hann sagðist
ætla að mölva á henni andlitið. Þrátt
fyrir niðurstöðu dómsins þvertekur
Ingvar Árni enn í dag fyrir að hann
hafi beitt hana ofbeldi. Hann ætlar
að áfrýja málinu til Hæstaréttar og
segist bíða pollrólegur eftir niður-
stöðu hans.
„Ég hélt henni nauðugri“
Hann játar þó ólögmæta nauðung.
„Ég viðurkenni að ég hélt henni
nauðugri þarna inni. Ég er ekkert
smástykki og hún vissi að hún var
ekkert að fara þarna út. Það er heil-
agur sannleikur. Ég var reiður og veit
að sennilega hefur henni fundist
ég ógnandi. Ég var mjög vondur og
sagði að hún færi ekki þaðan fyrr en
hún væri búin að útskýra þetta fyrir
mér.“
Í hjólastól eftir fallið
Hún óttaðist um líf sitt og hugðist
nýta tækifærið þegar hann fór inn í
eldhús að fá sér vatn til þess að flýja
út um svaladyrnar, vitandi það að
öðruvísi kæmist hún ekki út. Hann
hafði fyrirskipað henni að bíða hans
grafkyrr í sófanum en varð þess strax
áskynja þegar hún gerði sig líklega
til þess að fara og náði henni þegar
hún var komin upp á svalahandriðið.
Hvað gerðist næst er óljóst, þar sem
þau greinir á í frásögn sinni en Ingvar
Árni var engu að síður dæmdur fyrir
líkamlega valdbeitingu. Hún náði að
rífa sig lausa en missti jafnvægið með
þeim afleiðingum að hún féll fram af
svölunum og fjóra metra niður á ver-
önd. Þar sem hún var ekki í jafnvægi
náði hún ekki að stýra fallinu og lenti
á vinstri hliðinni á hellulagðri ver-
öndinni. Við það hlaut hún fram-
handleggs- og úlnliðsbrot, spjald-
beinsbrot, mjaðmabeinsbrot, skurð
á enni, mar neðan við hægra auga
og víðar um líkamann. Eftir þetta var
hún rúmliggjandi í viku og í hjólastól
í tvær vikur, auk þess sem hún fékk
gifs á vinstri hendi og þjáðist af mikl-
um verkjum og eymslum.
„Hvað varstu að spá?“
Í stað þess að fara niður og huga að
henni lét Ingvar Árni sig hverfa. Það
var metið honum til refsiþyngingar.
Klukkan var farin að ganga sex þegar
hann sendi henni SMS: „Hvað varstu
að spá, er svona erfitt að tala við
mig, er í lagi með þig, ég er í sjokki!“
Klukkan tíu sendi hann henni enn
önnur skilaboð þar sem hann sagðist
vera miður sín. „Ég hef aldrei gert þér
neitt, þó svo að ég sé búinn að ógna
þér, ég er ekki vondur maður og hef
komið fram við þig eins og prinsessu,
alltaf.“ Sagðist hann vera hjá vini sín-
um og búinn að gráta úr sér augun
því honum þætti þetta svo súrt.
Iðrunin var ekki eins greinileg þeg-
ar hann sagði á Facebook að „þegar
einhver villidýr eru með yfirgang inná
mínu heimili á fara þau styttri leið-
ina út eða sem sagt fljúga svalameg-
in út. Síðasta villidýr meiddist mik-
ið og er að kæra mig, thihihhihihihi.“
Aðspurður sagði hann þessa athuga-
semd grín á milli vina, hún hafi verið
látin falla í hálfkæringi.
Grímuklæddir menn ráðast inn
Miðvikudaginn 24. nóvember 2010
mætti stúlkan á lögreglustöð þar sem
hún lagði fram kæru á hendur hon-
um fyrir hótanir. Þá hafði hann sent
handrukkara á hana, bróður hennar
og kærasta. Í dómnum kemur fram
að hann taldi að fyrrverandi kær-
asta sín og aðilar henni tengdir hefðu
staðið að baki árás á heimili hans
og valdið honum miklu eignatjóni.
Segir hann að tveir menn hafi ráðist
heim til hans að næturlagi vopnaðir
hafnaboltakylfum og í vígahug. „Ég
fékk heimsókn frá grímuklæddum
mönnum miðvikudaginn fyrir síðustu
verslunar mannahelgi. Klukkan var
að ganga þrjú þannig að það var lán
í óláni að ég var vakandi og gat tekið
á móti þeim. Ég heyrði eitthvað bank
og síðan sá ég bara hafnaboltakylfu
koma í gegnum hurðina. Ég komst að
því seinna að annar þessara manna
var félagi minn en hann seldi vináttu
okkar fyrir eitthvað klink,“ segir hann
og ber það með sér að vera verulega
ósáttur.
Með hnífa úti um allt
Með hjartað í buxunum tók hann á
móti árásarmönnunum og reyndi
að verjast þar til hann neyddist til að
leggja á flótta. Á meðan var heimili
hans lagt í rúst. „Auðvitað stóð mér
ekki á sama. Mér brá ofboðslega og
komst við illan leik í burtu. Þetta var
morðtilraun. Hefðu þeir ekki verið
með kylfur hefðu þeir lent illa í því, ég
get lofaði þér því.“
Hann á sjálfur hafnaboltakylfu
sem hefur fylgt honum frá því að hann
var lítill strákur. „Hún var ekki dregin
fram þetta kvöld en núna er hún allt-
af við rúmstokkinn hjá mér auk þess
sem það eru hnífar hér og þar um
íbúðina, í sófanum og víðar þar sem
auðvelt er að nálgast þá. Ég er við öllu
búinn. Líka af því að ég á dóttur og er
reglulega með pabbahelgar. Ég ætla
ekki að bjóða dóttur minni upp á það
að vakna upp við einhverja brjálæð-
inga heima hjá okkur. Hins vegar vita
það nú flestir að ég á góða og sterka
vini.“
Semper Fi-strákarnir
standa saman
Sumir þeirra eru, líkt og Ingvar Árni,
meðlimir í Semper Fi, samtökum
Jóns stóra. „Þessi samtök standa svo
sem ekki fyrir neitt en þessir strák-
ar standa allir saman. Það er búið að
blása það upp að þetta séu einhver
glæpasamtök en þetta er bara svona
Frímúrararegla, nema hvað þetta eru
strákar á sakaskrá sem komast ekki
inn í Frímúrararegluna. Það er nú til-
fellið,“ segir hann og bætir því við að
þeir bakki hann allir upp í þessu máli.
„Einn af þeim sem stofnuðu Semper
Fi reyndi að miðla málum, segja
henni að hún þyrfti ekki að óttast mig
heldur að segja sannleikann. Síðan
fékk ég tvo félaga mína með mér í
lið sem eru þarna líka. Þetta eru ekki
menn sem eru að beita ofbeldi, kúga
fólk eða níðast á því að fyrra bragði.
Aftur á móti standa þeir saman ef það
kemur eitthvað upp.“
Sendi handrukkarar af stað
Engu að síður fylgir óttinn honum
alltaf. „Ég veit aldrei á hverju ég á von.
Á hverju einasta kvöldi hugsa ég um
þetta þegar ég er kominn upp í rúm.
Ég er hvergi óhultur. Ég gæti allt eins
verið stunginn hvar og hvenær sem
er. Fólk er orðið svo geðveikt,“ seg-
ir hann og bætir því að annar þeirra
sem gekk erinda hans í þessu máli
hafi nýlega setið í fangelsi fyrir að
klippa framan af fingri manns.
Fjárkúgun var á meðal þeirra at-
riða sem hann var dæmdur fyr-
ir. „Heima hjá mér var allt brotið
og bramlað, hurðir, rúður, flatskjár,
myndir sem dóttir mín gaf mér og
fleira. Ég vildi fá það bætt. Þannig
að ég sendi tvo félaga mína, sem
eru í þessari jaðarmenningu í sam-
„Ég var mjög vondur“
n Ingvar Árni Ingvarsson er á leið í fangelsi n Dæmdur fyrir
líkamsárás, hótanir og tilraun til fjárkúgunar n „Ég hélt henni
nauðugri þarna inni“ n Sendi handrukkara á fyrrverandi kærustu,
bróður hennar og kærasta n „Þetta var morðtilraun“ n Semper
Fi-strákarnir standa saman n Líkir Litla-Hrauni við heimavist
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Boxhanskar á borðinu Ingvar Árni
er mikill áhugamaður um heilsurækt
en stúlkan sakaði hann um að klæðast
boxhönskum á meðan hann hótaði henni.
Fór í eldhúsið til að fá sér vatn Glasið
stóð uppi á vaskbrúninni sem gaf til kynna
að hann hefði lagt það frá sér í flýti. Á meðan
hann fékk sér vatnssopa flúði hún út á svalir.
Rakvél og skæri Stúlkan sagði Ingvar Árna
hafa hótað því að skerða hár hennar. Þegar
lögreglan kom á vettvang lá þetta á borðinu.
„Ég viðurkenni
að ég hélt henni
nauðugri þarna inni. Ég er
ekkert smástykki og hún
vissi að hún var ekkert að
fara þarna út.