Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Blaðsíða 15
Fréttir | 15Miðvikudagur 6. apríl 2011
„Ég var mjög vondur“
félaginu, ef svo má segja, heim til
mannsins sem stóð að baki þessu.
Þetta er náttúrulega bara krimmalið
hér í bænum. Hann var skíthræddur
og reyndi að borga þeim til að snú-
ast gegn mér og láta mig hverfa. Leit-
aði síðan til lögreglunnar sem bað
mig um að halda mér rólegum. En ég
vildi fá það borgað sem var eyðilagt
heima hjá mér. Það er nú málið. Fyrir
dómi var þetta kallað fjárkúgun,“ seg-
ir hann.
Fjárkúgun á Facebook
Facebook-skilaboð hans til fyrrver-
andi kærustu sinnar voru lögð fram
sem sönnunargagn í málinu. Þar
hótaði hann henni og bróður henn-
ar líkamsmeiðingum eða lífláti ef
hún greiddi ekki tvær milljónir inn
á bankareikning fyrir lokun bank-
ans næsta dag. Í skilaboðunum sagði
meðal annars: „Ég mun ekki hætta
fyrr en ég er búinn að eyðileggja líf þitt
gjörsamlega og bróður þíns líka, það
munu stelpur ganga frá þér og útlend-
ingur frá bróður þínum, ef ég væri þú
þá myndi ég flytja úr landi því ég hætti
ekki fyrr en ég fer í fangelsi eða verð
drepinn.“ Gaf hann síðan upp nafn
sitt, kennitölu og reikningsnúmer.
Ingvar Árni dregur enga dul á sekt
sína í þessum málum og viðurkennir
að hafa sent þessi skilaboð, þótt hann
geti ekki fallist á að þetta sé fjárkúgun.
Í hans huga var þetta innheimta. „Ég
er alveg búinn að láta hana heyra það.
Fjölskylda hennar er öll skíthrædd,
enda er ég búinn að sýna þeim að
ég get alveg verið með hrottaskap ef
ég vil það,“ segir Ingvar Árni blákalt.
„Bróðir hennar komst naumlega und-
an á annan í jólum þegar það átti að
ráðast að honum og ég viðurkenni al-
veg að það var á mínum vegum. Mér
þykir leitt að hafa ráðist að honum,
eða nei, mér þykir það svo sem ekkert
leitt. Mér þykir það kannski leitt vegna
foreldra þeirra því mér þykir vænt um
þá.“
„Sonur þinn verður limlestur“
Kærleikurinn kom þó ekki í veg fyrir
að hann sendi þessi skilaboð á fyrr-
verandi tengdamóður sína: „Sonur
þinn verður limlestur fyrir að fyrir-
skipa árás á heimilið hans Ingvars og
líf ykkar lagt í rúst.“ Eins og gefur að
skilja leið henni skelfilega þegar hún
tók á móti þessari hótun og lamað-
ist nánast af hræðslu. Hún taldi allt
eins líklegt að Ingvar Árni myndi láta
verða af hótunum og tók þær því mjög
alvarlega.
Ráðist að bróður hennar
Framan af taldi Ingvar Árni nefni-
lega að fyrrverandi mágur sinn
stæði að baki árásinni á heimili
hans. Síðar komst hann að því að
svo var ekki, en það var ekki fyrr en
eftir að hann hafði sent handrukk-
ara á hann. „Þeir ætluðu að stinga
hann en ég sagði að það kæmi ekki
til greina, þeir ættu bara að láta
hann finna fyrir því. Hann komst
undan þannig að þeir lögðu bílinn
hans í rúst. Félagi minn hringdi svo
í hann, sagði honum að hann væri
heppinn að vera á lífi og krafði hann
um miskabætur. Hann fékk nokkra
daga til þess að verða sér úti um
peninginn og þá taldi ég að mál-
inu væri lokið af minni hálfu. En
þetta hefur verið langt og strangt
mál og þessar 500.000 krónur duga
skammt. Þeir vildu auðvitað fá sitt
þessir gæjar sem gengu í þetta fyr-
ir mig. Þetta eru handrukkarar og
hrottar, nýkomnir úr fangelsi og ég
átti engan pening til þess að borga
þeim. En þeir tóku þetta bara í sín-
ar hendur,“ segir Ingvar Árni sem
krafðist þess að fá um tvær milljónir
greiddar. Hann tók það þó fram að
það væri ekkert heilög tala. Sjálfur
vildi hann fá milljón í „miskabætur“
og svo vildu félagar hans fá eitthvað
fyrir sinn snúð fyrir innheimtuna.
Mun hiklaust leita hefnda
Fyrir dómi sagðist fyrrverandi kær-
asta hans hvorki kannast við það að
hún eða nokkur á hennar vegum
hefði staðið á baki árásinni né að Ing-
vari Árna hefðu verið greiddar skaða-
bætur. Aftur á móti sagði hún að
menn hefðu haft í hótunum við hana,
bæði tveimur vikum fyrir aðalmeð-
ferð og aftur daginn fyrir hana og sagt
að það myndi hafa slæmar afleiðing-
ar fyrir hana ef dómur félli henni í vil.
Sjálfur segir Ingvar Árni að málinu
sé hvergi nærri lokið. Hann vill rétt-
læti, segir hann og segist ekki geta
tekið árásinni á heimili sitt þegjandi
og hljóðalaust. „Lögreglan vinnur á
hraða snigilsins. Það er ekkert að ger-
ast í þessu máli. En hún hefur marg-
oft beðið mig um að vera rólegur á
meðan hún er að vinna í þessu. Ég
mun hiklaust leita hefnda ef enginn
verður sakfelldur fyrir þetta,“ segir
Ingvar Árni.
Hótaði nauðgun
Handrukkarar á hans vegum hafa
þegar hringt í kærasta stúlkunn-
ar, öskrað á hann og haft í hótun-
um. „Þeir sögðu að nú væri komið
að skuldadögum. Ég fengi greiddar
skaðabætur ella yrði gengið frá hon-
um. Annar þeirra sagði að þeir myndu
taka fyrrverandi kærustu mína og láta
nauðga henni og einhvern djöfulinn.
Þetta eru náttúrulega algjörir hrottar,
ég ætla ekkert að neita því.“
Í kjölfarið fóru þeir heim til
hennar og sambýlismannsins. Son-
ur hans var heima á meðan árásar-
mennirnir sögðu henni að hún yrði
að borga umrædda peninga, annars
yrði henni nauðgað og hún síðan
drepin. Samkvæmt lýsingum henn-
ar voru þeir hátt uppi, æstir og lík-
legir til alls þannig að hún kallaði
Securitas á vettvang. Eftir allt sem á
undan var gengið óttaðist hún mjög
um líf sitt og öryggi, enda voru árás-
irnar svo alvarlegar að hún þurfti
áfallahjálp.
Fer brosandi á Litla-Hraun
Reiðin er að gera út af við Ingvar
Árna. Hann segist þó ekki vilja hjálp
við að takast á við reiðina því hann
vilji hefnd en ekki fyrirgefningu.
„Eins og málið stendur núna má
reiðin sitja í mér. Ég ætla ekki að láta
fólk komast upp með það að ráð-
ast inn á heimilið mitt og mun ekki
sofa rólega fyrr en að því hefur verið
refsað. Ég fer brosandi upp á Litla-
Hraun ef það verður enginn dæmd-
ur fyrir það sem mér var gert,“ segir
Ingvar Árni sem hefur reynsluna.
Hann sat inni í tvö ár árið 2001
fyrir fíkniefnainnflutning og þarf
nú að afplána tveggja ára dóm fyrir
þetta mál. Hann óar svo sem ekkert
við því. „Það er nú lítið mál að sitja í
fangelsi hér á Íslandi. Eftir smátíma
er þetta bara eins og heimavist fyrir
stráka.“
„Fjölskylda hennar
er öll skíthrædd,
enda er ég búinn að sýna
þeim að ég get alveg ver-
ið með hrottaskap ef ég
vil það.
„Ég mun ekki
hætta fyrr en
ég er búinn að eyði-
leggja líf þitt gjör-
samlega og bróður
þíns líka, það munu
stelpur ganga frá þér
og útlendingur frá
bróður þínum.
Sv
ið
Se
t
t
M
y
n
d