Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Side 18
18 | Erlent 6. apríl 2011 Miðvikudagur
Kvenréttindasamtök á Ítalíu hafa í
hyggju að stefna forsætisráðherran-
um, Silvio Berlusconi, fyrir að hafa
hlutgert konur í sínum alræmdu
svallveislum – sem ganga jafnan
undir nafninu „bunga bunga“. Í dag
hefjast réttarhöld yfir Berlusc oni
en hann hefur verið ákærður fyr-
ir að hafa greitt ólögráða vændis-
konu fyrir kynlífsþjónustu og því
næst notað völd sín til að hylma
yfir glæpinn. Nú hefur málið tekið
óvænta stefnu þar sem kvenrétt-
indasamtökin Arcidonna hafa farið
fram á að stefna þeirra verði tekin
fyrir samhliða málinu, en samtökin
ætla sér að stefna forsætisráðherr-
anum í nafni allra ítalskra kvenna.
Verði Berlusconi fundinn sekur
gæti hann því ekki aðeins þurft að
horfa fram á fangelsisvist, heldur
gæti hann einnig þurft að greiða
konum á Ítalíu skaðabætur.
Gæti orðið sögulegt
Í bunga bunga-veislum forsætis-
ráðherrans var ætlast til þess að
þær konur sem voru viðstadd-
ar stunduðu nektardans. Þar voru
jafnan nafntogaðar konur á Ít-
alíu, fyrirsætur eða sjónvarps-
þáttastjórnendur. Þær voru hvatt-
ar til að klæðast búningum, meðal
annars hjúkrunarkvennabúning-
um, lögreglubúningum eða jafn-
vel jólasveinabúningum í veislum í
nóvember og desember.
Valeria Ajovalasit er forstöðu-
kona samtakanna Arcidonna. „Með
þessari misnotkun á líkömum þess-
ara kvenna braut forsætisráðherr-
ann ekki aðeins á réttindum þeirra
sem einstaklinga – heldur braut
hann á réttindum allra kvenna. Það
verður söguleg stund ef stefna okk-
ar verður samþykkt af dómsyfir-
völdum.“
Roberta Flaccovio er lögfræð-
ingur Arcidonna. „Þetta er í fyrsta
sinn sem samtök standa fyrir stefnu
í slíku réttarmáli,“ sagði Flaccovio,
en hún sagðist þrátt fyrir það von-
góð fyrir hönd skjólstæðinga sinna,
ítölsku kvenþjóðarinnar allrar.
Stendur í fleiri málaferlum
Réttarhöldin eiga að hefjast í dag,
miðvikudag, en ljóst er að Berlusc-
oni verður ekki viðstaddur. Í raun
er óvíst hvenær úrskurðað verður
í málinu þar sem það gæti allt eins
dregist mjög á langinn. Berlusc-
oni stendur í fleiri málaferlum um
þessar mundir, meðal annars fyrir
skattsvik og fjárdrátt. Þá á hann ekki
heimangengt til að vera viðstaddur
réttarhöldin nema á mánudögum,
og þótt ótrúlegt megi virðast ætla
dómstólar í heimaborg forsætisráð-
herrans í Mílanó að taka þá afsökun
til greina. Berlusconi hyggst verja sig
sjálfur í öllum sínum dómsmálum,
en eftir að réttarhöldin hefjast í dag
eru þau nú fjögur talsins. Þess ber
þó að geta að hann hefur ætíð úr-
valslið ítalskra lögfræðinga innan
handar, skyldi hann vanta góð ráð.
n Kvenréttindasamtökin Arcidonna hafa
farið fram á að skaðabótamál verði tekið
fyrir gegn Silvio Berlusconi n Þau segja
hann hafa hlutgert konur og að ítalska
kvenþjóðin eigi rétt á skaðabótum n Rétt-
arhöld yfir Berlusconi hefjast í Mílanó í dag
Kvenréttindasamtök
stefna Berlusconi
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Við viljum kynlíf, ekki
Bunga bunga Frá mót-
mælafundi ítalskra kvenna
gegn Berlusconi í febrúar. Nú
hafa kvenréttindasamtök
stefnt forsætisráðherranum.
VOR-TILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
kr. 1.689.000,- án fylgihluta
kr. 1.989.000,- með fylgihlutum
og byggingarnefndar teiknisetti.
31.5 m² kr. 2.149.000,- án fylgihluta
36.0 m² kr. 2.229.000,- án fylgihluta
39.0 m² kr. 2.499.000,- án fylgihluta
Sjá nánar á heimasíðu www.volundarhus.is
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
VH ehf · Njarðarbraut 11 · 260 Reykjanesbæ · Sími 864-2400 · Sími í verslun 527-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
VOR-TILBOÐ
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM
Nú fer hver að verða síðastur
VH
/
11
-0
4
40 % afsláttur
af heimsendingu á
GARÐHÚSUM
og GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda
Pallaefni, girðinga-
efni, undirstöður,
skrúfur og festingar.
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Tilboð Garðhús 9,7 m²
Tilboð Garðhús 9,9 m² - án gólfs
kr. 359.900 án/fylgihluta - áður kr. 389.900
kr. 389.900 m/fylgihlutum - áður kr. 419.900
kr. 304.900 án/fylgihluta - áður kr. 329.900
kr. 314.900 m/fylgihlutum - áður kr. 339.900
kr. 139.900 án/fylgihluta
kr. 159.900 m/fylgihlutum
Tilboð Barnahús 2,1m²