Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Side 19
Erlent | 19Miðvikudagur 6. apríl 2011
Allt er í hers höndum á Fílabeins-
ströndinni þar sem hersveitir hliðholl-
ar Alassane Ouattara herja á Laurent
Gbagbo og hersveitir hans. Ouattara
sigraði Gbagbo í forsetakosningum í
nóvember í fyrra, en Gbagbo vildi ekki
viðurkenna ósigur og hefur setið sem
fastast á forsetastóli. Síðan í nóvember
hafa friðargæsluliðar á vegum Sam-
einuðu þjóðanna aukið viðbúnað sinn
á Fílabeinsströndinni þar sem landið
hefur verið á barmi borgarastyrjald-
ar. Á miðvikudag í síðustu viku stað-
festi öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
ályktun númer 1975, en þar segir að
„…SÞ muni beita öllum tiltækum ráð-
um til að vernda fulltrúa sína á Fíla-
beinsströndinni.“
Allt síðan ályktunin var einróma
samþykkt hefur herlið frá SÞ stutt
Ouat tara og liðsmenn hans í blóðug-
um átökum gegn stuðningsmönnum
Gbagbos.
Ouattara gæti orðið
forseti í dag
Á mánudag hóf Ouattara það sem
hann kallaði „lokasóknina“ gegn
Gbagbo og stuðningsmönnum hans.
Herlið Ouattara telur um 9.000 manns
og er það dyggilega stutt af herliði SÞ,
sem hefur yfir fullkomnum vopna-
búnaði að ráða – eins og eldflaug-
um, þungavopnum og skriðdrekum.
Apollonaire Yapi, forsætisráðherra
í hinni alþjóðlega viðurkenndu rík-
isstjórn Ouattara, sagði að „… með
stuðningi SÞ, gæti þessu verið lokið í
fyrramálið [miðvikudag].“
Á þriðjudag var gerð eldflauga árás
á forsetahöllina í Abidjan, dvalarstað
Gbagbos. Eldflaugunum var skotið
úr úkraínskri herþyrlu sem herlið SÞ
hefur yfir að ráða. Bæði Ouattara og
Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakk-
lands, hafa þó lagt áherslu á að mark-
miðið sé ekki að drepa Gbagbo, held-
ur að fá hann til að samþykkja að stíga
til hliðar. Það voru einmitt Frakkar,
ásamt Nígeríu, sem lögðu fram álykt-
un 1975 fyrir öryggisráðið. Samkvæmt
fréttum AP-fréttastofunnar síðdegis á
þriðjudag mun Gbagbo og fjölskylda
hans vera umkringd í forsetahöllinni,
en um 2.000 stuðningsmenn hans
höfðu þá gert varnarskjöld handa
forsetanum. Ouattara sagði árásina
ekki vera gegn Gbagbo sem slíkum.
„Ef við náum fram sigri gegn stuðn-
ingsmönnum hans, þurfum við ekki
að drepa hann og getum dregið hann
fyrir rétt.“
Önnur hernaðarályktun á
skömmum tíma
Ályktun öryggisráðs SÞ númer 1975
kemur í kjölfar ályktunar 1973, sem
kvað á um hernaðaríhlutun í Líb-
íu. Þetta var því önnur ályktunin á
skömmum tíma sem kvað á um al-
þjóðlega hernaðaríhlutun í fullvalda
ríki. Samtök afrískra menntamanna,
sem eru staðsett í Dakar í Senegal,
lýstu yfir vonbrigðum sínum með
hernaðaríhlutun Sameinuðu þjóð-
anna. „Ef ykkur er umhugað um fram-
tíð Fílabeinsstrandarinnar, en ekki að
ná yfirráðum yfir hvorki þjóðinni né
auðlindum hennar, þá verður þeim
markmiðum ekki náð með vopna-
valdi – heldur með því að leyfa Fíla-
beinsstrendingum að semja fyrir sig
sjálfa.“
Tölur um mannfall eru enn óljós-
ar en talið er að um milljón manns
hafi yfirgefið átakasvæði á Fílabeins-
ströndinni, aðallega í vesturhluta
landsins.
n Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, er umkringdur herliði andstæðings síns,
Alassanes Ouattara n Herlið Sameinuðu þjóðanna hefur stutt Ouattara undanfarna daga
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
GbaGbo rambar
á barmi falls
Styðja Ouattara Hermenn vopnaðir vélbyssum og sprengjuvörpum á leið til Abidjan,
stærstu borgar Fílabeinsstrandarinnar.
ÍSLENSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA Í 35 ÁR
NORM-X HF | Auðbrekka 6 | 200 Kópavogur | Sími: 565 8899 | Netfang: normx@normx.is
n Okkar verð betra verð
n Yfir 10.000 ánægðir notendur á Íslandi
n Við bjóðum einnig allar lagnir,
nuddkerfi, lok og ljósabúnað