Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2011, Qupperneq 20
20 | Umræða 6. apríl 2011 Miðvikudagur
„Ég tel að gjaldeyrishöft-
in verki eins og lamandi
hönd sé lögð á atvinnu-
fyrirtækin. Þau skerða
samkeppnisstöðu þeirra
og draga máttinn úr
þeim.“
n Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði,
um gjaldeyrishöftin. – DV
„Þetta fólk kostar ein-
faldlega miklu meira en
Íslendingarnir.“
n Reynir Karlsson, stjórnarformaður
Kaupskila eiganda Arion banka, um
ofurlaun erlendra bankaráðsmanna
bankans. – DV
„Snyrtilegasta fólk og
jafnvel þeir sem eru ýktir í
þrifum geta fengið njálg
þannig að hann er alls
ekki merki um sóðaskap.“
n Gunnar Ingi Gunnarsson, yfirlæknir á
Heilsugæslunni í Árbæ, um njálg sem gert
hefur vart við sig. – DV
„Ég ég held að það væri
sérstaklega gott karma
fyrir okkur Íslendinga að
senda hana ekki úr landi.“
n Sigríður Klingenberg spákona um
málefni Priyönku Thapa sem sækist eftir
að fá dvalarleyfi á grundvelli mannúðar-
sjónarmiða. – DV
„Það sem menn kalla
tarantúlur eru ótalmargar
tegundir og eru allt frá því
að vera hættulegar niður í
að vera algjörlega mein-
lausar.“
n Erling Ólafsson dýrafræðingur um
tarantúlur en ein slík fannst í strætis-
vagni nýverið. – DV
Sökudólgar
Í
aðdraganda kosninganna um
Icesave þrjú er þjóðin klofin eft-
ir endilöngu. Já-menn og nei-
menn eiga í illvígum deilum um
það hvor hópurinn sé verra fólk.
Heiftin magnast eftir því sem stytt-
ist í kosningarnar. Fólk sem ekkert
hefur með ófögnuðinn að gera ann-
að en að hafa skoðun á uppgjörs-
aðferðinni situr undir ásökunum á
báða bóga.
Og fylkingarnar auglýsa af mikl-
um móð. Barnaþrælkun er fram
undan ef marka má rödd Toyota-
umboðsins. Og við erum á leið í gin
hákarla samkvæmt annarri auglýs-
ingu. Öfgarnar eru ráðandi á báða
bóga. Meira að segja bólar á lífláts-
hótunum.
Það versta við allt málið er að í
hita leiksins gleymist hverjir eru hin-
ir raunverlegu sökudólgar. Á meðan
venjulegir, þjóðhollir Íslendingar,
berast á banaspjótum, sitja söku-
dólgarnir glottandi hjá. Sumir hafa
sig meira að segja frammi í um-
ræðunni og eiga allt undir því að
moðreykurinn verði slíkur að ekki
sjáist út úr augum. Og fíflin fara á
foraðið.
Stjórnendur og skuggastjórnandi
Landsbankans þykjast vera lausir
allra mála þótt hverju mannsbarni
ætti að vera ljóst að sökin liggur hjá
þeim. Björgólfur Guðmundsson,
Björgólfur Thor Björgólfsson, Hall-
dór J. Kristjánsson, Kjartan Gunnars-
son og Sigurjón Árnason eru menn-
irnir sem lögðu klafa Icesave á þjóð
sína. Og það var fyrst og fremst Davíð
Oddsson, valdamesti maður Íslands
um áratugi, bar stærsta ábyrgð á því
að færa skúrkunum bankann. Hann
hrærir nú í pottum sundurlyndis og
ólgu. Þjóðin verður að gera upp sakir
við þessa menn í stað þess að standa
í illvígum innbyrðis deilum.
Það skiptir auðvitað máli hvern-
ig atkvæðagreiðslan fer um helgina.
Íslendingar munu svara því hvort
þeir ætla að semja sig frá skuldum
áðurnefndra óreiðumanna eða taka
áhættuna af dómsmáli. Á krossgöt-
unum sem kenndar eru við Icesave
eru tveir slæmir kostir. Það breytir
ekki því að þjóðin verður að velja.
Og menn verða að una lýðræðis-
legri niðurstöðu. Hvort sem svarið er
nei eða já er afstaðan skiljanleg. Það
hafa allir rétt fyrir sér. En íslensk þjóð
má aldrei missa sjónar á sök raun-
verulegu skúrkanna. Með öllum til-
tækum og löglegum ráðum verður
að elta uppi þá sem komu þjóð sinni
í þessa stöðu. Það verður að láta þá
gjalda fyrir afbrot sín og afglöp. Sum-
ir þeirra eiga næga peninga til að
greiða samfélaginu skaðabætur.
Leiðari
Eru lyf tóm
steypa?
„Það er nokkuð
ljóst að lyf sem
innihalda sement
eru tóm steypa,“
segir Mímir
Arnórsson,
lyfjafræðingur
við Lyfjastofnun.
DV greindi frá
því í vikunni
að í sumum
megrunarlyfjum sem seld eru á netinu
hafi fundist sement. Brýnt er að vera
mjög á varðbergi gagnvart ólöglegum
lyfjum og fölsuðum innihaldslýsingum.
Spurningin
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar
„Það verður að láta
þá gjalda fyrir.
Eiður skúbbar
n Eiður Guðnason, fyrrverandi sendi-
herra og ráðherra, er maður ekki
einhamur. Hann skúbbaði því á
sunnudaginn
að Birna Einars-
dóttir, banka-
stjóri Íslands-
banka, hefði
lagt í stæði fyrir
fatlaða og náði
mynd af bílnum
á vettvangi sem
fór um víðan völl
og var birt, meðal annars á DV.is.
Eiður, sem er gamall sjónvarps-
fréttamaður, mun vera á vaktinni og
er beðið eftir næsta skúbbi hans.
„Íslenzkur Göbbels“
n Jónas Kristjánsson, bloggari og
fyrrverandi ritstjóri, er einn áköf-
ustu baráttumanna fyrir því að
Íslendingar
samþykki fyrir-
liggjandi samn-
ing um Icesave.
Í takti við þá
skoðun for-
dæmir Jónas
Egil Ólafsson,
ákafasta Nei-
manninn, sem
auglýsir að já þýði barnaþrælkun.
„Við höfum fengið okkar eigin ís-
lenzka Göbbels. Studdur af Jakobínu
Ingunni Ólafsdóttur froðufellir Egill
Ólafsson söngvari. Líkir friðarsamn-
ingi við alþjóðasamfélagið sem
ígildi þess, að börn okkar verði seld
í ánauð ...“ bloggar Jónas.
Herskár Áfram-hópur
n Allt varð vitlaust í forystu flokk-
anna þriggja, Sjálfstæðisflokksins,
VG og Samfylkingar sem styðja
samþykkt Icesave-samningsins
þegar Áfram-hópurinn birti um-
deilda og áberandi hákarlaauglýs-
ingu í síðustu viku. Er Áfram-hóp-
urinn ásakaður um að sprengja
baráttuna í loft upp með stórhættu-
legum auglýsingum. Andrés Jónsson
almannatengill og Björn Brynjúlfur
Björnsson eru sagðir mennirnir í
kringum áróðursherferð hóps-
ins. Báðir eru þekktir fyrir agressífa
auglýsingamennsku. Segja menn
þar að glannalegar auglýsingar skili
greinilega árangri og vilja sumir
halda áfram.
Náhirðin vill Kristján
n Náhirðin í kringum Davíð Odds-
son leggur nú allt undir til að koma
bæði Icesave og Bjarna Benedikts-
syni fyrir kattar-
nef. Telur hirðin
að kosningin
sé endanlegt
uppgjör, og sá
vængur sem
sigri taki flokk-
inn yfir. Er þegar
byrjað að leita
að formanns-
efni til að stilla upp gegn Bjarna á
næsta landsfundi ef Icesave fellur
9. apríl. Telur náhirðin að vænleg-
asti kandídatinn sé Kristján Þór Júlí-
usson, þingmaður í Norðausturkjör-
dæmi. Hann bauð sig fram gegn
Bjarna þegar hann var fyrst kosinn
formaður. Kom styrkur Kristjáns
Þórs þá á óvart.
Sandkorn
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Fátt er betra en þegar menn ná að ríghalda í æskuna út yfir þroska og blóma. Slíkir menn búa yfir
miklu leyndarmáli, einhverjum dular-
fullum elixír.
Sveinn Andri Sveinsson lögmað-ur er einn þessara manna. Þessi 47 ára gamli lögmaður hefur á
nokkrum árum breyst úr miðaldra
skrifstofumanni með bumbu í ung-
æðislegan fola. Eins og unga fólkið
segir hefur hann „kjötað sig upp“, er
kominn á sportbíl og nú seinast inn-
siglaði hann leiftrandi ástarsamband
við tvítugu fyrirsætuna Kristrúnu Ösp
Barkardóttur. Sveinn Andri er „winn-
ing“. Hver man til dæmis ekki eftir
myndunum af honum á kvennasíð-
unni bleikt.is, þar sem hann var ber að
ofan í svokölluðu „sexí-spinning“?
Charlie Sheen er annar slíkur maður, sem bergir enn af brunni æskunnar, 45 ára gamall. Flestir
jafnaldrar hans eru frómir fjölskyldu-
menn, sem upplifa hámarksspennu
þegar liðið þeirra skorar í enska bolt-
anum, eða þegar þeir tengja fellihýsið
við skutbílinn sinn. En ekki Charlie
Sheen. Hann hafnaði steríótýpískum
lífsstíl hins miðaldra manns og gaf sig
allan gleðinni á vald. Hann hélt stöð-
ugan gleðskap, og það gjarnan með
gleðikonum, og hóf sambúð með
barnfóstru og klámmyndastjörnu.
Hér er eitt ofsafengið tundurdufl sannleikans.Árið 1965 kynnti kanadíski sál-
fræðingurinn Elliott Jacques til sög-
unnar hugtakið miðlífskrísu, sem
lýsti efasemdum nútímamannsins
um sjálfan sig upp úr miðjum aldri.
Meðal helstu einkenna ástandsins
sem hugtakið vísar til er löngunin
til að upplifa ungæðistilfinningu að
nýju. Þessu fylgja ýmsar hegðunar-
breytingar. Sumir verða helteknir af
eigin útliti og eyða peningum í alls
kyns græjur, mótorhjól, sportbíla eða
glingur. Talið er að óöryggi miðaldra
manna knýi sportbílamarkaðinn að
miklu leyti. Þetta getur líka brotist
út í öðrum öfgum, eins og til dæmis
ofneyslu á vímuefnum. Að auki er
afgerandi einkenni miðlífskrísu að
hefja samband með yngra fólki og
sprettur þaðan íslenska heitið grái
fiðringurinn.
Stjörnusálfræðingurinn Sigmund Freud var sannfærður um að flestar hugsanir miðaldra fólks
væru gegnsýrðar af óttanum um yfir-
vofandi dauða. (Kannski er ekki fullt
mark takandi á manni sem var heltek-
inn af kókaín-fíkn). Það er hin hliðin á
gráa fiðringnum; óttinn við dauðann
sem knýr menn til að endurskapa sjálfa
sig. Þarna liggur kjarninn í þessu öllu
saman. Menn með gráa fiðringinn eru
menn sem bjóða hinu hefðbundna,
nánast fyrirframákveðna lífi birginn.
Þeir brjótast til frelsis undan forminu.
Sveinn Andri útskýrði vel muninn á kynjunum í viðtali við kvenna-vefinn Bleikt. Um konur sagði
hann: „Auðvitað er það kostur hversu
umhugað þeim er að hafa heimilið
fínt og börnin vel til höfð, en að sama
skapi er það ókostur að þurfa alltaf að
vera að blanda karlmanninum inn í
þetta.“ En það hefur einmitt gerst. Karl-
mönnum hefur verið blandað inn í
þetta.Í femínisma nútímans er stöðugt
verið að krefjast þess að menn svíki
eðli sitt og taki til á heimilinu. Eins og
Sveinn segir: „Hjá karlmönnum snýst
lífið í meira mæli en hjá konum [um]
að sinna frumþörfunum auk þess sem
í karlmönnunum blundar enn veiði-
eðlið sem skilar sér í því að karlmenn
hafa margfalt meiri þörf en konur til
þess að leika sér.“ Talandi um tundur-
dufl sannleikans. Framtíðin mun
dæma. Bríet Bjarnhéðinsdóttir karl-
kynsins er komin fram. Gráa byltingin
er næst.
Eðli karlmanna er ekki að keyra um á skutbíl, heldur vera veiði-menn! Genin vilja út að leika.
Sveinn Andri er eins og lítil Líbía, sem
berst til frelsis undan Gaddafí félags-
mótunarinnar. Hann og Charlie Sheen
brjótast undan oki siðmenningar og
gera uppreisn gegn kúgun samfélags-
ins á miðaldra körlum.
Svarthöfði
GRÁI FIÐRINGURINN